Dagblaðið - 02.12.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBLR 1980.
5
Afleiðingar féðurbætisskattsins koma íljds:
Nautgripirtíl slátrunar hálf-
dauðir úr fóðurskorti margfalt verr en áður
Afleiðingar fóðurbætisskattsins
koma nú mjög í Ijós við stórgripaslátr-
un úti um landið. Bændur hafa verið
og eru að fækka mjólkurkúm og kjöt
af þeim kúm sem slátrað hefur verið í
haust hefur farið síversnandi og er nú
mjög áberandi rýrara en á undanförn-
um árum. Er þetta bein afleiðing af því
að bændur kaúpa ekki fóðurbæti
handa þeim skepnum sem þeir ætla sér
að farga.
„Það er ekkert óeðlilegt við þetta,”
sagði Jón Thorarensen í sláturhúsi
Kaupfélagsins Þórs á Hellu. „Það
OfsarokáEskifirði:
Þakplötur fjúka —
rúður brotna og
gömul f iskskemma
liðast f sundur
Um klukkan níu i gærmorgun fór
að hvessa á Eskifirði og var vind-
styrkurinn 12—14 stig að sögn
Ragnars Ágústssonar skipstjóra á
Fjallfossi. Fjallfoss kom til Eski-
fjarðar í fyrrakvöld til þess aðlesta
fjögur þúsund tunnur af saltsild sem
fer á Rússlandsmarkað.
Var jafnhvasst og munar það miklu
heldur en þegar vindur er hviðóttur.
Umtalsverðir skaðar hafa ekki orðið
af völdum vindsins að öðru leyti en
því að átta til tíu þakplötur hafa fok-
ið af frystiklefum hraðfrystihússins.
Gömul Fiskskemma sem lengi hefur
staðið til að rífa liðaðist í sundur i
veðurofsanum. Einnig hafa rúður
brotnað í íbúðarhúsumen aðeins ytra
glerið.
Fólk fer til vinnu sinnar á bíl-
,um en þeir hafa skemmzt talsvert
vegna þess að á þá hefur fokið bæði
grjót og járnplötur. Jörð er nú alauð
að kalla. Síðdegis í gær var veður að
ganga niður. Símasambandslaust var
við Seyðisfjörð og Hornafjörð.
Lestun saltsíldarinnar átti að ljúka
klukkan átta í gærkvöldi en Ragnar
skipstjóri á Fjallfossi sagðist ekki
myndu fara frá Eskifirði fyrr en
veðrið hefði gengið niður.
-Regína Thor/ abj.
Vörumarkaðurínn á Seltjarnarnesi:
„LEITUM TIL
DÓMSTÓLA”
—segir lögf ræðingur Vörumarkaðarins
íReykjavík
„Páll Agnar Pálsson las fyrir mig á
föstudaginn bréf er hann var að fara
að póstleggja. Þar kemur fram að ekki
er ætlunin að hættavið nafnið Vöru-
markaðurinn á Seltjarnarnesi. Því er
ekki um annað að ræða en það að við
leitum til dómstólanna,” sagði Hall-
grímur Geirsson lögfræðingur.
Hallgrímur er lögfræðingur
Ebenezers Ásgeirssonar í Vöru-
markaðinum í Reykjavík. Nýlega létu
Þóroddur Skaptason og fleiri skrá
einkaleyfi sitt á nafninu Vöru-
markaðurinn á Seltjarnarnesi. Þetta
telja Ebenezer og lögmaður hans and-
stætt lögum. Einkaleyfi sé fyrir nafn-
inu Vörumarkaðurinn og hafi Ebenezer
það. Þvi vár Þóroddi og lögfræðingi
hans, Páli A. Pálssyni, gefinn frestur
til þess að fella niður nafnið. Við því
var ekki orðið.
„Það sem núna stendur fyrir
dyrum er að kanna hvort þetta mál
stenzt í lögbannskröfu. Ef svo er ekki
verður að leita til venjulegra dómstóla.
Lögbannið er hins vegar fógetagerð
sem tekur styttri tíma,” sagði Hall-
grímur um næstu viðbrögð í málinu.DS
Gölluðu f lugvélabensíni
blandað við bflabensín?
Nýlega kom til landsins olíuskip
hlaðið flugvélabensíni. í ljós kom við
rannsókn á bensininu að það var gallað
og stóðst ekki þær kröfur sem gerðar
eru til flugvélabensins. Áður hafði
olíuskipið, sem er leiguskip, verið að
flytja jurtaolíu og höfðu tankar
skipsins ekki verið nægilega vel skol-
aðir áður en flugvélabensínið var
lestað. Hafði því jurtaolía blandazt
flugvélabensíninu.
Nú velta forráðamenn olíufélagsins
því fyrir sér hvað gera eigi við bensín-
farminn. Er sú lausn talin heppilegust
að blanda flugvélabensíninu við bíla-
bensín og selja íslenzkum bifreiðaeig-
endum. Áður þarf að ganga frá
ýmsum atriðum, t.d. er enn óuppgert
það tjón sem olíufélagið hefur orðið
fyrir en farmurinn er tryggður.
Ef ökumenn verða varir við óvenju
mikinn kraft í bílum sínum næstu vik-
urnar þá er þetta skýringin: Bíllinn
gengur fyrir fiugvélaberisíni og jurta-
olíu.
svarar engan veginn kostnaði að gefa
skepnunum fóðurbæti og þá koma
áhrif skattsins áberandi í ljós þegar
slátrað er. Kýrkjötið flokkast margfalt
verr en áður hefur þekkzt.”
Jón sagði að lítil svínaslátrun væri
hjá þeim en hvað svín varðaði giltu
önnur lögmál en með kýrkjötið. Svína-
kjötsverð ákvarðast af framboði og
eftirspurn að miklu leyti og svínarækt
verður ekki haldið uppi án fóðurbætis-
ins. Kemur því verð hans inn í svína-
kjötsverðið. Því er hins vegar ekki til
að dreifa varðandi kýrkjötið.
Kaupmaður í Reykjavík kvað það
mjög alvarlegt mál að skattur á fóður-
bæti hefði svo mjög áhrif á gæði nauta-
kjöts sem nú er raunin. Illa væri það
kerfi rotið sem kæmi í veg fyrir að á
boðstólum neytenda væri kjöt af sæmi-
lega öldum gripum. Enn væru þeir
margir sem vildu þá greiða heldur
meira fyrir bitann en að eiga aðeins
kost á skepnum hálfdauðum úr hor, og
það á dýru verði samt.
Ýmsu fleira sagði kaupmaðurinn að
fóðurbætisskatturinn hefði áorkað. Nú
væri t.d. með engu móti hægt að fá
kalkúna eins og verið hefði. Þeir sem
þá áttu slátruðu þeim þegar skattinum
var slengt á, stofninn var drepinn því
með 200% fóðurbætisskatti í ríkissjóð
borgar slík ræktun sig ekki.
• A.St.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 - Sími 15105
Creda
Creda
tauþurrkarar
2 stærðir.
Yfir 20 ára
farsæl reynsla
enskur
antik-arinn
Flöktandi rafloginn
eykur hlýju
■á heimilinu
Fást hjá:
Rafha Austurveri, sími 84445 —
Rafbúðinni Álfaskeiði 31, Hafnar-
firði, sími 53020, og hjá okkur.
sími sölumanns 18785
RAFTÆKJAVERZLUN ISLANDS HF.
ÆGISGÖTU 7 - SÍMAR 17975 - 17976HHHH
- KMU