Dagblaðið - 02.12.1980, Page 15
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
íþróttir íþróttir Iþróttir íþréttir íþróttir
i
Stjórn KSl — Knattspyrnusambands íslands — 'Kjörin var ý 35. ársþingi sam-
bandsins á sunnudag. Fremri ^öalstjórn frá vinstri: Hilmar Viggósson, Helgi
Danielsson. sumarliöason, Ellert B. Schram, formaður, Árni Þorgrímsson,
QrÍðÍ6lnnÍðn,óSrnd<IfrRÍfi ™ röð frá vinstri: varastjórn, Gur
'gur ’ p f v»- jai nason, Helgi Þorvaldsson, Steinn Halldórsson, Kris
J6nassonogRafnYlja|ta,ln DB-myr
Allison stjóri
Crystal Palace
Það er margt skrítið í kýrhausnum. Lundúnaliðið
Crystal Palace hefur ráðið Malcolm Allison, hinn
umdelida þjálfara, sem framkvæmdastjóra félagsins
með Walley, sem tók við af Terry Venables fyrir
rúmum mánuði. Venables yfirgaf þá hið sökkvandi
skip Palace og gerðist stjóri hjá QPR.
Malcolm Allison, sem fyrir sjö vikum var rekinn
frá Man. City, þekkir vel til hjá Palace. Var þar
stjórl fyrir nokkrum árum. Tók við liðinu í 1. deild
en meðan hann rfkti féll Palace niður í 3. deild.
Allison var þá látinn hætta störfum.
Allison, sem var mjög kunnur leikmaður með
West Ham hér á árum áður, byrjaði sem fram-
kvæmdastjóri Plymouth 1964. Náði þar góðum
árangri og var ráðinn til Man. City. Náði þar frá-
bærum árángri. Man. City var stórlið undir stjórn
hans. Tilboð frá Crystal Palace freistaði hans og
hann yfirgaf City. Fór til Palace — þaðan aftur til
Plymouth, síðan Man. City öðru sinni og nú lokast
hringurinn hjá Crystal Palace á ný. Furðulegt.
-hsím.
TrevorWhymark
til Grimsby
Grimsby Town, sem leikur i 2. deild, keypti i gær
leikmanninn kunna, Trevor Whymark, frá Van-
couver Whltecaps i Ameríku. Greiddi 80 þúsund
sterlingspund fyrir leikmanninn, sem er mesta upp-
hæð, sem Grimsby hefur greitl fyrir leikmann.
Trevor Whymark var mjög kunnur leikmaður með
Ipswich Town fyrir nokkrum árum. Mjög mark-
heppinn framherji og lék i enska landsliðinu. Hann
byrjar strax að leika með Grimsby.
Cardlff City hefur mjög reynt að fá fyrirliða
Wales, Terry Yorath, til sín að undanförnu. Bauð
200 þúsund sterlingspund í kappann en Tottenham
sagðl nei, I gær hækkaði Cardiff boðið í 250 þúsund
steriingspund en Lundúnaliðið neitaði aftur. Yorath
hefur ekki komizt í aðallið Tottenham að undan-
förnu. Missti sæti sitt vegna meiðsla og hefur ekki
tekizt að vinna það aftur þrátt fyrir góða leiki með
varaliðinu og i landsliði Wales. Yorath var fyrirliði
Wales i HM-leiknum á Laugardalsvelli í júní og slas-
aðist þá í samstuði við Atla Eðvaldsson. Það var
upphafið að slysaferli Yorath. Meiðslin hafa tekið
sig upp hvað eftir annað. Yorath lék hér áður með
Leeds og um tíma vildi Leeds kaupa hann á ný til
sin. Þeir Yorath og Allan Clark, stjóri Leeds, léku
þar lengi saman. Ekki tókust þó samningar milli
Tottenham og Leeds.
Miðherji Roma
skoraði þrennu
Miðherji Roma, Roberto Pruzzo, hélt liði sínu á
toppi 1. deildarinnar í knattspyrnunni á ífaliu með
þvi að skora þrjú mörk gegn Udinese á sunnudag.
Roma vann 3-1. Leikmenn liðanna á Ítalíu léku með
svört sorgarbönd uni handlegginn til minningar um
þá, sem fórust í jarðskjálftunum miklu á ítaliu. Leik
Napoli og Brecia var frestað en leikmenn liðanna
unnu við björgunarstörf á Suður-ítaliu.
Úrslit í leikjunum urðu þessi:
Ascoli-Como 2—1
Catanzaro-Juventus 0—0
Inter-Milano-Bologna 1—0
Perugia-Cagliari 1—1
Pistoiese-Avellino 2—1
Roma-Udinese 3—1
Torino-Fiorentina 1 —1
Staða efstu liða.
Roma 9 5 2 2 12—9 12
Inter 9 5 13 17—8 11
Fiorentina 9 2 6 1 7—6 10
Cagliari 9 3 4 2 9—9 10
Barcelona vann
Real Madrid
Urslit i 1. deildinni í knattspyrnun-; a ýpáni urðu á sunnudae-
Salamanca-Zaragoza 3—1
Barcelona-Real Madrid 2—1
Hercules-Valladolid 1—1
Betis-Almeria 2—0
Sociedad-Bilbao 4—1
Valencia-Espanol , 3—1
Atl. Madrid-Gijon 0—0
Leik Osasuna og Murcia var frestað vegna snjó-
komu. Staða efstu liða er nú þannig.
Atl. Madrid 13 8 4 1 23—14 20
Valcncia 13 9 1 3 25—16 19
Sevilla 13 8 1 4 16—16 17
Sociedad 13 7 2 4 23—15 16
Barcclona 13 8 0 5 20—17 16
Real Madrid 13 7 1 5 25—13 15
lM_____________________
Guðsteinn Ingimarsson sést á þessum myndum brjótast framhjá Jóni Steingrims-
syni i leiknum i gær. Báðir leikmenn áttu góðan leik i Höllinni en þáttur Guðsteins
var mikill undir lokin — rétt eins og gegn KR. DB-myndir S.
Brad Miley í banastuði
dugði skammt gegn UMFN
—Njarðvíkingar unnu sinn níunda leik í röð í úrvalsdeildinni íkörfu er þeir lögðu Val
„Vá, maður þetta var erfiður leik-
ur,” sagði stórskytta þeirra Njarðvík-
inga, Danny Shouse, er hann og lið
hans höfðu lagt Valsmenn, með Brad
Miley í banastuði í broddi fylkingar, að
velli 87-84 í Höllinni í gærkvöld.
Njarðvíkingar eru því enn ósigraðir í
úrvalsdeildinni og erfitt er að ímynda
sér að nokkurt lið megni að bylta þeim í
vetur. „Valsmennirnir voru virkilega
erfiðir í kvöld og þetta var að mínu
mati miklu erfiðari leikur en gegn KR
fyrir viku. Strákarnir hjá okkur voru
eitthvað daprir um tíma en ég held að
mér hafi tekizt að rífa þá upp úr deyfð-
inni. Öruggur með sigur í mótinu? Nei,
ég held varla enn en þetta var skref í
áttina,” sagði Danny Shouse og brosti
breitt.
Leikurinn í gærkvöld var vægast sagt
æsispennandi nema e.t.v. allra síðustu
mínútuna. Þá náðu Njarðvikingar 5
stiga forskoti, 85-80, og það dugði
þeim út leiktímann. Annars héldu
menn að Suðurnesjaliðið myndi hrein-
lega kafsigla Hlíðarendapiltana þvi í
upphafi var staðan 10-0 og síðan 18-4
UMFN í vil, Shouse fór á kostum i
upphafi og skoraði 8 af 10 fyrstu
stigum UMFN. En Valsmenn eru seigir
og létu ekki deigan síga þrátt fyrir að
bæði Ríkharður og Kristján næðu sér
engan veginn á strik í leiknum.
Reyndar lét Ríkharður skapið hlaupa
með sig i gönur og sýndi Ðanny Shouse
„Ijótan fingur” að því er virtist að
ástæðulausu í s.h. En Jón Steingríms-
son og Þórir Magg. komu inn á og
stóðu sig vel í þeirra stað þó svo Þórir
hitti verr en oft áður. Jón var hins
vegar eitilharður í vörninni en helzt til
ragurvið að skjóta.
Valsmenn náðu fljótlega að vinna
upp hið mikla forskot UMFN og kom-
ust í fyrsta sinn yfir, 33-32, með tveim-
ur vítaskotum Brad Miley. Síðan skipt-
ust liðin á um að halda forystunni allt
fram að hléi en þegar flautað var hafði
Njarðvík betur, 49-48.
Valsmenn hófu seinni hálfleikinn af
miklum krafti og skoruðu fyrstu 8
stigin og komust í 56-49. Sama sagan
endurtók sig síðan hins vegar og Njarð-
víkingar náðu að komast að hlið þeirra.
Síðan eilífur darraðardans allt fram á
lokamínútu. Liðin leiddu til skiptis
með 1-2 stigum og spennan i Höllinni
var mikil á meðal hinna 600 áhorfenda,
sem margir hverjir komu úr Njarðvík.
Þóri Magnússyni urðu á örlagarík mis-
tök er staðan var 85-80 fyrir Njarðvík
og um ein mínúta eftir. Hann komst
einn upp og ætlaði að „húkka” ofan i
körfuna. Skotið var hins vegar alger-
lega misheppnað og glumdi í körfu-
spjaldinu. Njarðvík náði knettinum en
missti hann strax aftur. Jón
Steingrímsson skoraði og munurinn var
3 stig, 82-85. Hefði Þórir skorað er
ekki víst að úrslitin hefðu orðið eins.
Shouse skoraði tvö stig úr vítaskotum
rétt á eftir og tryggði sigurinn. Það
skipti litlu þótt Kristján Ágústsson ætti
lokakörfuna í leiknum — sigur Njarð-
víkur örugglega í höfn.
Danny Shouse bar af i liði Njarðvik-
ur en þeir Gunnar, svo og Guðsteinn,
sem tók við sér í lokin eins og gegn KR,
áttu og góðan leik. Aðrir leikmenn
liðsins voru lítt áberandi en Valur átti
góða byrjun. Bezti maður vallarins var
hins vegar Brad Miley hjá Val. Hann
skoraði reyndar ekki nein ósköp — 23
stig, en fráköstin sem hann tók voru
óhemjumörg. Er ekki að efa að þetta er
langbezti leikur hans með Val til þessa.
Jóhannes Magnússon kom vel frá
leiknum svo og Torfi, sem gerði þó
óvenjulegar skyssur. Rikharður og
Kristján voru ólíkir sjálfum sér i gær og
slíkt er þungt á metunum hjá Vai.
Stigin: Valur: Brad Miley 23,
Jóhannes Magnússon 14, Torfi
Magnússön 14, Kristján Ágústsson 11,
Ríkharður Hrafnkelsson 10, Þórir
Magnússón 10, Jón Steingrímsson 2.
Njarðvík: Danny Shouse 41, Gunnar
Þorvarðarson 16, Guðsteinn Ingimars-
son 12, Valur Ingimundarson 6, Júlíus
Valgeirsson 6, Jónas Jóhannesson 6.
Dómarar voru Þráinn Skúlason og
Jón Otti Ólafsson og dæmdu þokka-
lega. Báðum urðu á slæm mistök en.
dómarar eru mannlegir eins og aðrir.
að komast í
Rætt við ungu leikmemina íVíkingsiiðinu, Guðmund Guðmundsson og Heimi
Karlsson, sem leika sinn fyrsta Evrópuleik á morgun
Heimir Karlsson, jafnvigur á hand-
knattleik og knattspyrnu.
■ ■íamtiðin er
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
gþróttir
gþróttir
iþróttir
Iþróttir
„Það er okkur
íhagaðleika
í Halharfirðr’
—segir þjálfari Hauka, Viðar Símonarson.
Haukar leika við Nettelstedt
í Evrópukeppni bikarhafa annað kvöld
„Það er engum blöðum um það að
fletta að i liði Nettelstedt er vaiinn
maður i hverju rúmi,” sagði hinn
þrautreyndi þjálfari Haukanna, Viðar
Símónarson, er hann var spurður álits á
andstæðingum Hauka í Evrópuleik
bikarhafa á miðvikudagskvöld í
Hafnarfirði. „Ég þekki sjálfur vel til
tveggja leikmanna liðsins, Júgóslav-
anna Lazarevic og Miljak, og veit því
af eigin reynslu að þar fara sterkir leik-
menn. Miljak er einn markahæstu
manna v-þýzku 1. deildarinnar nú i
haust. Lazarevic er meira fyrir liðs-
heildina, en um leið afar sterkur
„fintari”. Aðalmarkvörð liðsins,
Wöller, þekkjum við frá landsleikjun-
um gegn V-Þjóðverjum fyrir
skemmstu.” Auk þessara landsliðs-
manna eru fjórir A-landsliðsmenn
innan vébanda Nettelstedt svo og einn
rúmenskur unglingalandsliðsmaður.
Hvernig hefur þú hagað þínum
undirbúningi fyrir lcikinn hér heima?
,,Ég hafði fijótlega, eftir að ljóst var
hverjum við drógumst gegn, samband
við Axel Axelsson og hann gat frætt
mig á ýmsu varðandi liðið enda þaul-
vanur úr v-þýzku 1. deildlnni sjálfur.
Þá fékk ég einnig upplýsingar frá
Björgvin Björgvinssyni svo og Geir
Hallsteinssyni. Það er ætlunin að reyna
að leika stífa pressuvörn gegn þeim og
láta bakkarana taka á móti framarlega
á vellinum. Klippa út hornamennina og
hugsanlega taka tvo leikmenn hjá þeim
úr umferð ef ástæða þykir til. Það er
langalgengast að leikin sé 6—0 vörn i
Þýzkalandi og því eigum við von á að
Nú en ég vil undirstrika það, að
það þarf mikið átak til að komast inn
í lið eins og Víkingsliðið og til jafn-
aldra minna þá er aðeins eitt ráð til:
Það er að æfa samvizkusamlega og
taka á fullu á æfingum. Við erum
með frábæran þjálfara — þann bezta
sem hingað hefur komið og tel ég að
við munum búa að starfi hans allan
okkar feril — en i liðið fer enginn
nema hann sé betri en sá næsti,”
sagði Guðmundur að lokum.
„Handknattleikur krefst líkams-
styrks og eins að menn séu ákaf[“;a
vel líkamlega bidjíáóir. Égleí að við
"figu strákarnir í Víking séum ekki
ennþá fyllilega undir það
leika stórt hb'f- ' . oUU'r
ro... ..„iverk í liðinu. Við erum
.vynslulitlir en þá ber að líta á það,
að reynslan kemur ekki nema menn
fái að spila — og það er ákaflega
erfitt að hanga á bekknum svona
lengi,” sagði Heimir Karlsson, hinn
efnilegi leikmaður í meistaraflokki
Víkings. Heimir hefur orðið að sáetta
sig við að verma varamannabekk
Víkings eins og nokkrir félaga hans.
Það hefur verið gagnrýni á, að
ungu mennirnir í Víking hafi fremur
Iítið fengið að spila. En þó ungu
strákarnir í Víking hafi lítið fengið að
reyna sig í meistaraflokki, þá urðu.
Heimir og félagar fslandsmeistarar í
2. flokki í fyrra og fyrir skömmu
sigruðu þeir FH, sem álitið er ejga
mjög efnilegt lið með Kristján Ara-
pressuvörn geti komið þeim í opna
skjöldu. Það er annars dálitið erfitt að
reyna að spá svona fyrirfram hvernig
leika skal gegn þeim — það verður bara
að ráðast af því hvernig leikurinn fer af
stað og þróast.”
Árangur Haukanna hefur verið
slakur i 1. deildinni í vetur. Áttu von á
þvi að liðið nái að rífa sig upp úr deyfð-
inni og standa i Þjóðverjunum?
„Vissulega höfum við verið afar
lélegir, það sem af er íslandsmótinu, en
það eru skýringar á því. Ég hef orðið
fyrir miklum vonbrigðum með liðið í
heildina því það er enginn vari á að
mun meira býr i þessum mannskap en
hann hefur náð að sýna. Markvarzlan
hefur verið i ágætu íagi hjá okkur í
vetur en vörnin harla baráttulítil. Sókn-
arleikurinn hefur verið stirður og ég
kenni þar um fyrst og fremst skorti á
útsjónarsemi hjá mörgum leikmanna.
Þessi skortur kann að reynast okkur
hættulegur gegn Nettelstedt. Ég er ekki
hræddur um að líkamsstyrkur leik-
manna liðanna sé svo verulega brá-
brugðinn en þeir eru vafalítið út-
smognari en við. Þá er bara að reyna að
mæ.ta því með réttum aðferðum”.
Eru einhverjir leikmenn, sem, að
þinu mati, hafa komið betur út en aðrir
i vetur?
,,Ég vil nú ekki beint orða það
þannig, en þvi verður ekki neitað að
yngri mennirnir og þá einkum og sér í
lagi þeir Lárus Karl og Sigurður hafa
komið vel út. Sigurður hefur þó verið
verulega óheppinn í sínum færum en
Lárus Karl hefur tekið út geysilega
„Ég var á bekknum í allan fyrra-
vetur og lærði vissulega mikið af því.
Það er ákveðin reynsla að fylgjast
með liðinu og eins tók maður þátt i
undirbúningi leikja. Ekki þar fyrir —
ég tel sjálfur, að í fyrra hafi ég ekki
verið tilbúinn til að fara í liðið — ég
hefði einfaldlega ekki verið nógu
góður. En biðin hefur fyllilega verið
þess virði þó hefði ég auðvitað ekki
viljað verma bekkinn mikið lengur,”
sagði hornamaðurinn snjalli, Guð-
mundur Guðmundsson.
Guðmundur er aðeins 19 ára gam-
all en hefur þegar vakið mikla athygli
í vetur með íslandsmeisturum Vik-
ings í 1. deild. Hann l«^"r sinn
fyrsta F'fíopuieTkj þegar hann ásamt
félögum sínum mætir ungverska lið-
inu Tatabanya í Evrón"1"-
meistaraliða í La"" ,—iveppni
kyöld -ugardalshöll annað
„Við erum staðráðnir í að gera
okkar bezta þó við leggjum megin-
áherzlu á íslandsmótið. Þar má
ekkert út af bregða. Ef við til að
mynda töpum leik, þá eru Þróttarar
aðeins einu stigi áeftir okkur.”
í haust var uppi sá orðrómur að
Guðmundur færi til Danmerkur til
náms um áramótin. „Svo verður
ekki, en það stóð til að ég færi. Ég
reikna þó með að fara til Danmerkur
næsta sumar í tölvufræði við ETB-
skólann, sem er sjálfstæð stofnun í
tengslum við Hafnarháskóla.”
son í fararbroddi 16-1*!
því '’jírí nja Viking. „Ég dreg enga
dul á það, að við fáum of K*:* «
.1, , - »"o að
spreyta okkur *' A. ,
_.. nanmg neitaði eg til
»u mynda i fyrra að fara inn á á móti
HK. Víkingur hafði leitt með 10 til 12
mörkum allan leikinn en þegar hálf
önnur mínúta var eftir, þá ætlaði
Bogdan að setja mig inn á. Mér
fannst of lítill tínii til stefnu og neit-
aði. Með þessu vildi ég undirstrika,
að gefa ætti okkur aukið tækifæri en
vissulega er ég þess meðvitandi, að
það er mjög erfitt að komast inn í
meistaralið. En út af fyrir sig er það
reynsla að sitja á bekknum og fylgj-
ast með liðirtp og eins taka þátt i
undirbúningi leikja, En ef þetta
verður svona næsta vetur, þá hugsa
ég að einhverjir okkar ungu strák-
anna muni líta annað, þar sem við
fáum að leika meira — það er ekki
nema eðlilegt þar sem við erum jú
bara áhugamenn. Við æfum til að
spila.”
Takmarkaður miðafjöldi
— forsala íHaukahúsinu fram að leiknum
Forsala aðgöngumiða á leik Hauka I framboð miða er mjög takmarkað þar
og Nettelstedt, sem fram fer í íþrótta- sem húsið í Hafnarfirði rúmar aðeins
húsinu við Strandgötu i Hafnarfirði rúmlega 1000 manns með góðu móti.
annað kvöld kl. 20.30 er í Haukahúsinu Þeir sem ætla sér á leikinn æltu því að
frá kl. 9 á morgnana til kl. 22 á hafa hraðann á og tryggja sér miða i
kvöldin. Athygli er vakin á því að j tíma.
Haukunum til góða að leika þar?
„Já, tvimælalaust. Það er enginn
vafi á því að við eigum eftir að hagnast
á þvi. Við höfum alltaf haft góða
áhangendur, sem hafa látið vel í sér
heyra. Þeir eru í nánari snertingu við
leikinn en ef leikið væri í Laugardals-
höllinni. Áhorfendur á leiknum hafa
hreint ekki svo litla þýðingu og ég von-
ast til að með þeirra stuðningi náum
við að velgja Nettelstedt rækilega undir
uggum.”
^Úrslit
Tveir leikir úr 1. umferð enska FA-
bikarkeppninnar voru háðir í gær.
Úrslit.
Carlisle-Workington 4-1
Maidstone-Kettering 3-1
Carlisle á heimaleik við Walsall í 2.
umferð en Maidstone leikur í Gilling-
ham. í 3. umferð hefja liðin úr 1. og 2.
deild keppni.
Júgóslavneski landsliðsmaðurinn kunni, Milan Lazarevic, sem lcikur með Nettelstedt.
mikinn þroska á skömmum tíma. Nú,
Sigurður Aðalsteinsson hefur verið að
koma sterkur upp að undanförnu og
hann veitir hornamönnunum þarfa
samkeppni. Eins og ég minntist á fyrr
hefur markvarzlan verið góð hjá okkur
í vetur en aðrir þættir liðsins hafa í
heild verið slakir. Það er hart að þurfa
að segja svo en engu að síður blákaldur
sannleikur.”
Falla Haukarnir i vetur?
i „Einhvern veginn hef ég aldrei get-
að ímynda mér Hauka, sem 2. deild-
arfélag. Éghef ckki trú á öðru en við ná-
um að bjarga okkur, þó svo staðan sé
óneitanlega svört um þessar mundir.
Reyndar tel ég að ölfliðin í 1. deildinni,
að Víkingi og Þrótti undanskildum, séu
í fallhættu ennþá. Reyndar er staða
Víkings á toppnum sterkari en ég tel j
styrkleika liðsins gefa tilefni til. :
Víkingur er ekki það yfirburðalið í
deildinni sem taflan gefur til kynna.
Þróttur hefur komið mér langsamlega
mest á óvart með getu sinni og
Valsmenn um leið með getuleysi.
Hreint ótrúlegt á3 sjá hvernig liðinu
hefur hrakað á aðeins einu ári. Hvað
okkur Haukana varðar tel ég að við
megum taka okkur verulega saman í
andlitinu ef ekki á illa að fara. Ég veit
að við getum það og trúi ekki öðru en
það takist að tryggja stöðu liðsins.”
Ef við vikjum örlitið aftur að lcikn-
um gegn Nettelstedt, sem fram fer í
Hafnarfirði. Telurðu það koma
Guðmundur Guðmundsson skorar gegn Fram i 1. deildtnm i vetur