Dagblaðið - 06.12.1980, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980.
HVERNIG VERÐUR SAM-
VIZKAN Á JÓLANÓTT?
—þegar Gervasoni dúsir ífrönsku fangelsi
0998—2698 og 5723—9302 skrifa:
Enn hefst þörf umræða um
Gervasoni, Frakkann sem stóð upp
í hárinu á frönskum stiórnvöldum og
biðst nú hælis á Islandi, landi
hreinleikans og hlutleysisins (sic!)
Það er hreint ótrúlegt hve margir
leggjast svo lágt að láta birta eftir sig
bréf með slagorðum eins ogt „Það
eru slæpingjar og raggeitur sem ekki
vilja gegna herþjónustu” (lesenda-
bréf Dagblaðsins 2.12. ’80 frá 3969-
8455). Hversu sjúkur á sál mun við-
komandi vera, sem telur það til þors
og dugnaðar að vilja láta þjálfa sig til
hermennsku til þess að limlesta og
drepa aðra menn. Síðan hvenær
hefur eyðilegging og manndráp, á-
vextir haturs og mannvonzku, verið
talin til dyggða og manndóms?
Við íslcndingar höfum iafnan
viljað úlhrópa meðal erlendra þjóða
hversu mannleg, kærlciksrik og
gestrisin „fjölskylda” viðséum. Hér
er enginn islenskur her, hrein nátt-
úra, hreint loft, hver þekkir ekki
þetta blaður. En þegar hingað kemur
erlendur maður sem gjarnan vill
kenna sig við og verða hluti af þessari
„fjölskyldu”, þá flettum við ofan af
okkur og sýnum ekkert nema hatur
og illsku í hans garð. Og ekki erum
við meiri hraustmenni en það að við
vörpum igðinni ytlr .; þr'ðja
•iðila Dah' vw >’m \,. '■ |j| að vísa
Gervasoni úr landi.
3969—8455. vildir þú láta þjálfa
uuidrápum, og
myt.dii þt. jja það til afreka og vera
dæmi uin hvuiKui oðlingur og
dugnaðarforkur þú sért? Og sýndu
nú að þú sért ekki blauðari en svo að
þú þorir að standa fyrir máli þinu á
þessum síðum! Ætlar þú að halda
jólin, hátíð friðar og kærleika, há-
tíðleg? Ef svo er, hvernig mun
samvizka þín vera á aðfangadags-
kvöld, þegar þú hefur gerzt
samsærismaður með hæstvirtum
dómsmálaráðherra, Friðjóni Þórðar-
syni, og mönnum hans, í að reka
landlausan mann út á gaddinn og
verða þess valdandi að hann þurfi
jafnvel að dúsa í frönsku fangelsi,
þessa sömu jólanótt?
Hvor mun hraustari, bleyðan, sem
húkir hér á Fróni og þorði ekki að
taka við einni sál af ótta við Stóra
bróður í austri og vestri eða
Gervasoni sem var sannur sinni
sannfæringu og hefur barizt þrot-
lausri baráttu fyrir hugsjónum
sínum, friði og mannkærleik í heilan
áratug innan og utan rimla?
Sér er nú hver iireystin!!!!
Hefðir þú viljað vera í sporum
bandarískra ungmenna, sem send
voru út í opinn dauðann i Víetnam?
Hefðir þú talið sjálfan þig stórkost-
lega hetju eftir að hafa myrt nokkur
ungbörn og mæður þeirra og feður
af þeirri einu ástæðu að einhverjir
herrar í Pentagon hefðu skipað þér
það? Ef svo er ættirðu frekar heima
innan veggja hótelsins við sundin blá.
I bréft þínu virðist þú vera á þeirri
skoðun að hermennska sé álíka og
að vera í hjálpræðishernum eða
unglingavinnunni. Ég ætla að vona
að þú sért ekki að heyra hér í fyrsta
skipti um tilgang herja. Herir eru
tæki, viljalaus samansöfnuður
Á þessari. mynd er það reyndar lugreglan sem tvístrar mótmælagöngu I París en
bréfritarar segja að franski herinn sé einnig notaður til slíkra verka.
óbreyttra borgara, sem notaðir eru til
að berja á óvinum stjórnarinnar. Og
eins og t.d. í Frakklandi eru þeir ekki
aðeins notaðir I stríði gegn óvinaherj-
um, heldur líka til að halda „röð og
reglu”. T.d. er franski herinn notað-
ur til að berja á fólki í mótmælagöng-
um, með kylfum, táragasi og
vopnum og þarf víst ekki að útskýra
fyrir þér framkvæmd þess verks.
En líklega telur þú það dæmi um
iðjusemi og dugnað.
Franski herinn barðist líka í Alsir
og Víetnam. Ef þú vilt mátt þú lesa
þér til „gagns og gamans” um
„hreystiverk og dugnað” ameríska
hersins í bókinni „Og svo fór ég að
skjóta” (Mark Lane, MM kiljur), og
munt þú örugglega hafa gaman af,
því þar eru sagðar sögur af riddara-
legri hreysti og vasklegri framgöngu
bandaríska hersins við að bjarga
Víetnömum undan áþján komm-
únismans.
Leitt að þú skyldir ekki fá að vera
með til að sýna dugnað þinn.
Hér Ijúkum við nú í bili vinur
vænn, en nú skulu þú og þinir líkar
ekki ver^ að slæpast heldur grípa til
fjöðurstafsins og sýna íslenzku
þjóðinni í eitt skipti fyrir öll hversu
hættulegur maður Gervasoni er
öryggi íslenzka ríkisins.
Eitt aðlokum:
Sofðu vel i nótt.
Raddir
lesenda
KRISTJAN MAR
UNNARSSON
Að eignast
gervison
„Stuðningsmaður” sendi okkur
þessa vísu:
Brostin er min veika von
varð úlfaldi tilúrmý.
Glöð vilja eignast gervison
Guðrún Helga. og ASÍ.
Jólakort
innanbæjar
óþarfi
Ragna Gunnarsdóttir, Fífuhvamms-
vegi 11, Kóp., hringdi:
Við ættum að spara okkur það að
senda jólakort innanbæjar, til fólks,
sem við eins getum hringt í. í staðinn
ættum við að gefa peningana, sem
sparast til sveltandi þjóða.
Gervasoni veldur
vargöld
„Friðmey” hringdi:
Hvernig er hinum friðelskandi
Gervasoni stætt á að stuðla að
vargöld á íslandi?
Það er komin
NÝ PLATA HJÁ SAMHJÁLP
Fíladelfíukórinn undir stjórn Árna
Arinbjarnarsonar, Ágústa
Ingimarsdóttir og
hli6msv^Áð^
Attar
^rfsi*5
hífllD^Í*™ Platan fœst
r f afgreiðslu Samhjálpar,
Hverfisgötu 42. Opið 1 —6.
Ný
metsö/uplata
Á sunnudagskvöldið,
þann 7. des.
klukkan 20, verður Samhjálparsam-
koma í Rladolfíu Hátúni 2. Þar
syngur kórinn lög af plötunni og
Ágústa Ingimarsdóttir syngur
einsöng. Einnig verða ávörp og al-
mennur söngur. Stjórnandi samkom-
unnar verður Óli Ágústsson, og eru
allir hjartanlega velkomnir.
Samhjá/p.