Dagblaðið - 16.01.1981, Page 6
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1981.
Hvað er á seyðium helgina?
IBK—UMFS t.dcildkl. 2U.
Laugardagur 17. janúar
Iþróttahús Hattaskóla
Ármann—Valur úrvalsdeild kl. 14.
F.sja—ÍA 2. deild kl. 16.
l-'ram—Reynir 5. fl. kl. 17.30.
Íþróttahúsið Sandntrúi
Reynir—UMFG 4. fl. kl. 14.
íþróttahúsiA Njarövík
UMFN—Ármann 5. II. kl. 13.
UMFG—UMFS l.dcildkl. 14.
IJMFG—UMF'N 2. II. kvenna kl. 15.30
UMFN—KR 2. fl. kl. 16.30
íþróltahúsið Akurcyri
Þór— Fram I. deild kl. 14.
Sunnudagur 18.janúar
tþrótlahús Hagaskóla
KR-ÍS úrvalsdcild kl. 14. '
ÍR—UMFS 2. fl. kvcnna kl. 15.30.
Ármann—ÍBK 2.11. kl. 17.
Iþróttahús Hafnarfjarðar
Haukar—Valur 5. fl. kl. 14.
Haukar—Valur 3. fl. kl. 15.
íslandsmótið í blaki
Sunnudagur 18. janúar
íþróttahús Hanaskóla
Þróltur—UMFL l.dcildkl. 19.
Fram—ÍS I. deild kl. 20.15.
Þróltur b—HK 2. dcild kl. 21.30.
Meistaramót TBR 1981
Sunnudagur18. janúar
Keppnil tvtliða- og tvenndarleik.
Mn.Afl.ogBn.
I.addi og Jörundur — Saxi gamli læknir og sjónvarpsmaöurinn — rannsaka
cinn gestanna á Þórskabarett, lögrcglumanninn Kirík Beck. Kkki er aó sjá ann-
að en að gesturinn skemmti sér vel. DB-mvnd: Kagnar rh.
Skemmtun helgarínnar:
Hláturrokur
og sveiflur á
Þórskabarett
Gestirnir ráku upp miklar hlátur-
rokur og af og til mátti sjá munnvik
dáranna herpast eins og þeir væru
sjálfir að berjast við hláturinn. Stúlk-
urnar þeyttust um salinn í Can-Can
og tangó fyrir þrjá, skrautlega
klæddar og fallega brosandi.
Hljómsveitin þrumaði út dixieland-
músíkinni með stórri sveiflu og þjón-
arnir dilluðu sér með..
Þetta var á Þórskabarett Halla,
Ladda og Jörundar í Þórscafé sl.
sunnudagskvöld. Stúlkurnar sem
dönsuðu voru systurnar Guðrúnu og
Ingibjörg Pálsdætur og Birgitta
Heide. (Raunar komu þær okkur
verulega á óvart: fyrr um kvöldið
höfðum við séð þær dansa af miklum
krafti og snilld 1 Blindisleik Þjóðleik-
hússins og gátum ekki ímyndað
okkur annað en að slík þolraun væri
nóg fyrir hvern meðal dansara. En
líklega eru þær heldur engir meðal-
dansarar.)
Sýningin í Þórscafé á sunnudags-
kvöldum stendur yfir i klukkutíma og
er ætluð matargestum eingöngu. Þar
•fara bræðurnir Halli og Laddi og
Jörundur Guðmundsson á kostum
með gamanmálum og dáraskap,
strákarnir í Galdrakörlum (sem
mynda kjarnann í Stjörnuhljómsveit
DB og Vikunnar í ár) spila dixieland-
jazz eins og þeir hafi aldrei gert ann-
að og ballerínurnar gefa færustu
dansmeyjum næturklúbbanna i París
og New York ekkert eftir. Þarna
gefur að sjá og heyra raunverulegar
og upplognar persónur úr islenzkri
pólitík, islenzku sjónvarpi, lögregl-
unni úr Kópavogi og víðar að. Nú um
helgina verður skipt um nokkur grín-
atriði — nýjustu mál tekin á dagskrá
— og um næstu helgi verður enn bætt
inn nýjum atriðum.
Á föstudagskvöldum er sami
hópurinn að skemmta í Þórscafé fyrir
almenna gesti (þ.e. ekki eingöngu
matargesti og dugar þá að greiða ein-
falt rúllugjald). Þá er boðið upp á at-
riði úr Þórskabarett frá í fyrravetur
og er ekki að heyra annað en að gestir
skemmti sér jafn konunglega og fyrr,
þótt dagskráin sé heldur styttri.
Eða eins og einn gestanna sagði á
sunnudagskvöldið: Þetta var fínt —
enheldurstutt.
Stutt? sögðum við. Þetta var i heil-
an klukkutíma!
Hann varð eins og spurningar-
merki í framan. Nú, það er bara
svona! Jæja, það hefði samt mátt
veralengra.
-ÓV
Skemmtanir um helgina:
i
Unglingaklúbbur-
inn endurreistur
— með dansleik í Fáksheimilinu á morgun
Unglingaklúbburinn verður með
diskótek i Fáksheimilinu á laugar-
dagskvöldið. Þetta er fyrsti dansleik-
urinn, sem Unglingaklúbburinn
hefur haldið siðan í september, þegar
hann varð að fara úr Tónabæ, þar
sem klúbburinn hafði starfað í hart-
nær tvö ár. Hefur klúbburinn verið á
hrakhólum síðan, en nú verður hald-
inn mikill baráttudansleikur í Fáks-
heimilinu. Þar vonast forráðamenn
klúbbsins til að sjá alla þá, sem
skemmtu sér í Tónabæ forðum og
auk þess að halda uppi dúndrandi
fjöri og dansi frá kl. 21—02 munu
félagar ráða ráðum sínum um fram-
tíð klúbbsins.
Félagar i klúbbnum eru um 150, á
aldrinum 15—19 ára, flestir 16—17
ára. Öllum er þó heimilt að mæta í
Fáksheimilinu til að skemmta sér og
styðja baráttuna fyrir því, að
opnaður verði skemmtistaður fyrir
unglinga í Reykjavík. Aðgöngumiða-
verð er 30 krónur.
Það verður væntanlega diskóað með
tilþrifum á fyrsta dansleik Unglinga-
klúbbsins á þessu ári.
DB-mynd: Ragnar Th.
Skemmtistaðir
FÖSTUDAGUR
ÁRTtJN: Lokað vegna einkasamkvæmis.
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi.
Diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek. ,
HÓTEL BORG: Diskótek.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Lokað vegna einkasam-
kvæmis. Stjörnusalur: Matur framreiddur fyrir matar-
gesti. Mimisbar: Opinn. Snyrtilegur klæðnaður.
INGÓLFSCAFÉ: Gömlu dansarnir.
KLÍJBBURINN: Hljómsveitin Start leikur fyrir
dansi. Diskótek á tveimur hæðum.
LEIKHÓSKJALLARINN: Kabarett kl. 20.30. Síðan
verður leikin þægileg músik af plötum.
ÓÐAL: Diskótek.
SIGTÍJN: Hljómsveitin Brimkló leikur fyrir dansi.
Diskótek.
SNEKKJAN: Diskótek.
ÞÓRSCAFt: Galdrakarlar leika fyrir dansi. Diskó-
tek.
LAUGARDAGUR
ÁRTÍJN: Lokað vegna einkasamkvæmis.
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glassir leikur fyrir dansi.
Diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek.
HÓTEL BORG: Diskótek.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar leikur fyrir dansi. Opið til kl. 3. Stjörnu-
salur: Matur framreiddur fyrir matargesti. Astrabar
og Mímisbar opnir. Snyrtilegur klæðnaður.
HREYFILSHÍJSIÐ: gömlu dansarnir.
INGÓFLSCAFÉ: Gömlu dansarnir.
KLÍJBBURINN: Hljómsveitin Start leikur fyrir
dansi. Diskótek á tveimur hæðum.
LEIKHUSKJALLARINN: Kabarett kl. 20:30. Síðan
verður leikin þægileg músík af plötum..
LINDARBÆR: Gömlu dansarnir.
ÓÐAL: Diskótek.
SIGTÓN: Hljómsveitin Brimkló leikur fyrir dansi.
Diskótek.
SNEKKJAN: Diskótek.
ÞÓRSCAFÉ: Galdrakarlar leika fyrir dansi. Diskó-
tek.
SUNNUDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi.
örvar Kristjánsson skemmtir.
HOLLYWOOD: Diskótek. Módel 79 sjá um tízku-
sýningu.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Útsýnarkvöld. Stjörnu-
salur: Matur framreiddur fyrir matargesti. Mimisbar:
Opinn. Snyrtilegur klæönaður.
ÓÐAL: Diskótek.
ÞÓRSCAFÉ: Þórskabarett. Húsiðopnaðkl. 19.
HLlÐARÉNDI: Klassískt kvöld. Gestur kvöldsins er
Atli Heimir Sveinsson tónskáld. Matur framreiddur
frá kl. 18.
Matsölustaðir
REYKJAVÍK
ASKUR, Laugavegi 28 B. Símar 18385 og 29355:;
Opið kl. 9—24 alla daga. Vínveitingar frá kl. 18 virka
daga og allan daginn á sunnudögum.
ASKUR, Suðurlandsbraut 14. Sími 81344: Opið kl.
11-23.30.
BRAUÐBÆR Þórsgötu 1, við óðinstorg. Simi 25090:
Opið kl. 9—23.30 virka daga og 10—23.30 á sunnu-
dögum.
ESJUBERG, Hótel Esju, Suðurlandsbráut 2. Sími
82200: Opið kl. 7—22. Vínveitingar.
HLlÐARENDI, Brautarholti 22 (gengið inn frá Nóa-
túni). Borðapantanir I síma 11690. Opið kl. 11.30—
14.30 og 18—22.30. Vinveitingar.
HOLLYWOOD, Ármúla 5. Borðapantanir i síma
83715. Matur framreiddur kl. 21—23 öll kvöld vik-
unnar. Vínveitingar.
HORNIÐ, Hafnarstræti 16. Sími 13340: Opið kl.
11—23.30. Eldhúsinu lokað kl. 21. Léttar vinveit-
ingar.
HÓTEL HOLT, Bergstaðastræti 37. Borðapantanir í
sima 21011. Opið kl. 12—14.30 og 19-23.30. vin
veitingar.
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavíkurflugvelli.
Borðapantanir I sima 22321: Blómasalur er opinn kl.
8—9.30 (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30.
Vínveitingar. Veitingabúð Hótels Loftleiöa opin alla
daga kl. 5—20.
HÓTEL SAGA við Hagatorg. Borðapantanir í
Stjörnusal (Qrill) í síma 25033. Opið kl. 8—23.30.
Matur framreiddur kl. 12—14.30 og 19—22.30. Vin-
veitingar. Borðapantánjr i Súlnasal i síma 20221. Mat-
ur er framreiddur föstudaga og laugardaga kl. 19—21.
Vinveitingar.
KAFFIVAGNINN, Grandagarði 10. Símar 12509 og*
15932. Opið kl. 4 eftir miðnætti til kl. 23.30. Vinveit-
ingar.
KRÁIN við Hlemmtorg. Simi 24631. Opið alla daga
kl. 9—22.
LAUGAÁS, Laugarásvegi 1. Sími 31620. Opið 8—24.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR, Uugavegi 116
Sími 10312. Opið kl. 8—21 virka daga og 9—21
sunnudaga.
NAUST, Vesturgötu 6—8: Borðapantanir í síma
17759. Opiðalladagakl. 11—23.30. Vínveitingar.
NESSÝ, Austurstræti 22. Sími 11340. Opið kl. 11 —
23.30 alla daga.
ÓÐAL við Austurvöll. Borðapantanir i síma 11322.
Matur framreiddur kl. 21—01 sunnudaga til fimmtu-
daga, kl. 21—03 föstudaga og laugardaga.
KÓPAVOGUR
VERSALIR, Hamraborg 4. Sími 41024. Opið kl. 12—
23. Léttar vínveitingar.
HAFNARFJÖRÐUR
GAFL-INN, Dalshrauni 13. Sími 54424. Opið alla
daga kl. 8—23.30. Sunnudaga kl. 17—21 er opinn
veizlusalur með heita og kalda rétti og vinveitingar.
SKRlNAN, Skólavörðustig 12. Sími 10848. Opið kl.
11.30—23.30. Vínveitingar.
VESTURSLÓÐ, Hagamel 67. Sím’i 20745. Opiö kl.
11—23 virka daga og 11—23.30 á sunnudögum. Létt-
ar vínyeitingar.
ÞÖRSC AFÉ:Brautarholti 20. Boröapantanir i sima
23333. Matur framreiddur föstudaga og laugardaga
kl. 20—22. Vínveitingar.
SNEKKJAN og SKÚTAN, Strandgötu 1—3. Borða-
pantanir I síma 52502. Skútan er opin 9—21 sunnu-
daga til fimmtudaga og 9—22 föstudaga og laugar-
<iaga. Matur er framreiddur I Snekkjunni á laugardög-
umkl. 21—22.30.
AKRANES
STILLHOLT, SUIlholti 2. Simi 93-2778. Opið kl.
9.30—21 virka daga og 9.30—22 laugardaga og
sunnudaga. Léttar vínveitingar eftir kl. 18.
AKUREYRI
BAUTINN og SMIÐJAN, Hafnarstræti 22. Sími 96-
21818. Bautinn er opinn alla daga kl. 9.30—21.30.
Smiðjan er opin mánudaga, þriðjudaga og miðviku-
daga kl. 18.30—21.30. Föstudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 11.30—14 og 18.30—21.30. Vínveit-
ingar.
HÓTEL KEA, HafnarstræU 87—89. Sími 96-22200.
Opið kl. 19—23.30, matur framreiddur til kl. 21.45.
Vinveitingar.