Dagblaðið - 06.02.1981, Page 1
ÓSÝNILEGIR ANDSTÆÐINGAR — sjónvarp sunnudag kl. 17,05:
Uppgötvanir Pasteur
leiddu til geril-
sneyðingar matvæla
Ósýnilegir andstæðingar nefnist
leikinn heimildamyndaflokkur sen.
hóf göngu sína sl. sunnudag og fjall-
ar um menn sem á síðustu öld grund-
■'ölluðu nútíma læknisfræði með
uppgötvunum sínum. Samtals verða
þættirnir sex að tölu og verður númer
tvö sýndur á sunnudag.
Hann fjallar um starf þeirra Louis
Pasteur og Robert Koch en þeir voru
báðir brautryðjendur á sviði sýkla-
fræðinnar. Pasteur var efnafræðing-
ur og starfaði við franskan víniðnað.
í starfi sínu komst hann að því að
gerjun væri verk lifandi örvera en
ekki ólífrænt efnahvarf. Aldrei tókst
honum þó að sanna kenningar sinar
fullkomlega heldur fylgdi Robert
Koch þeim eftir. Koch tókst að sanna
að sýklar valda sjúkdómum með því
að einangra miltisbrandsýkil, rækta
hann og sprauta honum síðan í aðra
lífveru sem smitaðist af miltisbrandi.
Gerilsneyðing eða pasteurization á
ensku er aðferð sem notuð er við að
útiloka gerla frá því að eyðileggja
matvæli, aðallega mjólkurafurðir.
Eins og enska nafnið bendir til er að-
ferðin þekkt vegna uppgötvana
Pasteur.
í fyrsta þætti var sagt frá ung-
verskum fæðingalækni, Semmelweis
að nafni. Harm gerði uppgötvanir
sem leiddu til þess að bamsfararsótt
Nútima læknisfræði byggir á uppgötvunum manna sem uppi voru á siðustu öld.
var útrýmt. Hann komst að þvi að
sýklar gátu borizt á milli manna,
jafnvel í loftinu, og sýkt þá þannig.
Kenningar hans fengu hins vegar
mikla mótspymu og fengu ekki
viðurkenningu fyrr en eftir dauða
hans.
Jón O. Edwald er þýðandi mynda-
flokksins.
-KMU
Laugardagur
7. febrúar
16.00 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Leyndardómurinn. Breskur
myndaflokkur í sex þáttum fyrir1
unglinga. Annar þáttur. Efni
fyrsta þáttar: í ensku sveitaþorpi
er gömul kirkja. Kvöld nokkurt er
organistinn að æfa sig og verður
þá var grunsamlegra mannaferða.
Presturinn, sem er fyrrverandi
rannsóknarlögreglumaður, tekur
að sér að komast að því, eftir
hverju menn geta verið að sælast í
kirkjunni. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.35 Spitalalff. Bandarískur
gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Ellert Sigurbjörnsson.
21.00 Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Annar þáttur undanúrslita. Kynnt
verða sex lög. Tíu manna hljóm-
sveit leikur undir stjórn Magnúsar
Ingimarssonar. Söngvarar Björg-
vin Halldórsson, Haukur
Morthens, Helga Möller, Jðhann
Helgason, Pálmi Gunnarsson og
Ragnhildur Gísladóttir. Kynnir
•Egill Ólafsson. Umsjón og stjórn
upptöku Rúnar Gunnarsson.
21.40 Æðarvarp við ísafjarðardjúp.
Bresk heimildamynd úr Survival-
myndaflokknum um dúntekju og
fuglalíf við ísafjarðardjúp. Þýð-
andi Jón O. Edwald. Þulur Katrín
Árnadóttir.
22.05 Börn á flótta (Flight of the
Doves). Bandarisk bíómynd frá
árinu 1971. Leikstjóri Ralph Nel-
son. Aðalhlutverk Ron Moody og
Dorothy McGuire. Systkinin
Finnur og Derval eiga illa ævi hjá
stjúpa sínum á Englandi. Þau
strjúka því að heiman og ráðgera
að fara til ömmu sinnar á írlandi.
Þýðandi Björn Baldursson.
23.35 Dagskrárlok.
Sunnudagur
8. f ebrúar
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Val-
geir Ástráðsson, prestur í Selja-
sókn, flytur hugvekjuna.
16.10 Húsið á sléttunni. Vorferð —
fyrri hluti. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
17.05 Ósýnilegur andstæðingur.
Leikinn heimildarmyndaflokkur í
sex þáttum um menn, sem á síð-
ustu öld grundvölluðu nútíma-
læknísfræði með uppgötvunum
sínum. Annar þáttur er um Louis
Pasteur og Robert Koch. Þýðandi
Jón O. Edwald.
18.00 Stundin okkar. Slegið er upp
grimuballi i sjónvarpssal, dansað
og farið í leiki. Börn úr Laugar-
nesskóla og Hólabrekkuskóla
skemmta. Sýnd verður teiknisaga
eftir Jón Axfjörð um Tomma og
snæálfána. Herra Fráleitur fer á
kreik og Binni er hrókur alls fagn-
aðar að vanda. Umsjónarmaður
Bryndís Schram. Stjórn upptöku
Andrés Indriðason.
18.50 Skiðaæfingar. Fimmti þáttur
endursýndur. Þýðandi Eiríkur
Haraldsson.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Leðurblakan. Óperetta í þrem-
ur þáttum eftir Meilhac og Halevy
við tónlist eftir Johann Strauss.
Fyrsti þáttur. Flytjendur Lucia
Popp, Erich Kunz, Brigitte Fass-
bánder, Josef Hopferwieser,
Walter Berry, Edita Gruberova,
Karin Goettling, Helmut Lohner,
Karl Caslavsky, hljómsveit og
ballettflokkur Ríkisóperunnar í
Vínarborg. Hljómsveitarstjóri
Theodor Guschlbauer. Annar og
þriðji þáttur óperettunnar verða
fluttir mánudaginn 9. febrúar kl.
21.15. Þýðandi Óskar Ingimars-
son. (Evróvision — Austurríska
sjónvarpið).
21.45 Landnemarnir. Tólfti og
síðasti þáttur. Efni ellefta þáttar:
Smábændum í héraðinu vegnar
vel um hríð, en verða hart úti
þegar uppskerubrestur verður.
Þeim er engin miskunn sýnd, er
þeir geta ekki staðið í skilum með
afborganir bankalána. Charlotte
kemst að þvi, hve illri meðferð
Mexíkanar sæta og berst dyggilega
fyrir málstað þeirra. Þýðandi Bogi
Árnar Finnbogason.
■00.05 Dagskráriok.
Mánudagur
9. febrúar
19.45 Frétfaágripátáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sponni og Sparði. Nýr teikni-
myndaflokkur í þrettán þáttum
frá tékkneska sjónvarpinu um
kanínurnar Sponna og Sparða sem
búa í hatti töframanns. Fyrsti
þáttur. Þýðandi og sögumaður
Guðni Kolbeinsson.
20.40 íþróttir. Umsjónarmaður Jón
B. Stefánsson.
21.15 Leðurblakan. Óperetta í
þremur þáttum eftir Meilhac og
Halevy við tónlist eftir Johann
Strauss. Annar og þriðji þáttur.
Flytjendur Lucia Popp, Erich
Kunz, Brigitte Fassbánder, Josef
Hopferwieser, Walter Berry,
Edita Gruberova, Karin Goettl-
ing, Helmut Lohner, Karl
Caslavsky, hljómsveit og ballett-
flokkur Ríkisóperunnar í Vínar-
borg. Hljómsveitarstjóri Theodor
Guschlbauer. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson. (Evróvision — Austur-
riska sjónvarpið).
23.20 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
10. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttlr og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sponni og Sparði. Annar
þáttur. Þýðandi og sögumaður
Guðni Kolbeinsson.
20.40 Styrjöldln á austurvíg-
stöðvunum. Annar hluti. Víg-
Brezka heimildamyndin um
innrásina I Tékkóslóvakfu 1968
sem sýnd var 15. desember sl.
verður aftur ó dagskró sjónvarps
nk. þriðjudag.
£
völlurinn. Hersveitir Hitlers geyst-
ust inn í Rússland og mættu lítilli
mótstöðu í fyrstu. En síðan gekk í
garð harðasti vetur í manna
minnum, Rússar sóttu í sig veðrið
og þá tók að síga á ógæfuhliðina
fyrir Þjóðverjum. Þýðandi og
þulur Gylfi Pálsson.
21.30 Óvænt endalok. Listaverkið.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.55 Innrásin. Leikin, bresk
heimildamynd um innrás sovéska
hersins í Tékkóslóvakíu árið 1968.
Handrit David Boulton. Leik-
stjóri Leslie Woodhead. Aðalhlut-
verk Paul Chapman, Julian Glov-
er, Paul Hardwick og Ray
McAnally. Myndin er byggð á frá-
sögn Zdenek Mlynars, sem var rit-
ari miðstjórnar tékkneska
kommúnistaflokksins og náinn
samstarfsmaður Dubceks, þegar
innrásin var gerð. Þýðandi Jón O.
Edwald. Áður á dagskrá 15.
desember 1980.
23.50 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
11.febrúar
18.00 Herramenn. Herra Skjálfti.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
Lesari Guðni Kolbeinsson.
18.10 Börn i mannkynssögunni.
Fyrstu alþýðuskólarnir. Þýðandi
Ólöf Pétursdóttir.
18.30 Vetrargaman. Curling og
ishokkl. Þýðandi Eirikur Haralds-
son.
Á miðvikudag varður sýnd ný
fróttamynd um óstand móla I El
Salvador en Ronald Reagan hefur
lýst þvl yfir að hann muni efla her-
foringjastjórn landslns I baróttunni
gegn liðssveitum vinstri manna.
18.55 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Vaka. Fjallað um listasöfn og
hlutverk þeirra. Umsjónarmaöur
Magdalena Schram. Stjórn upp-
töku Kristín Pálsdóttir.
21.05 Vændisborg. Sjötti þáttur.
Efni fimmta þáttar: Fitz er boðin
verkstjórastaða í verksmiðjunni
vegna áhrifa frú Bradshaw, en
hann er jafnframt hvattur til að
ganga úr verkalýðsfélaginu. Sr.
O’Connor gengur illa að sætta sig (
við framkomu yfirmanns sins.1
Mulhall losnar úr fangelsinu og
hefur vinnu á ný, en verður fyrir
slysi og missir fætuma. Þýðandii
Dóra Hafsteinsdóttir.
21.55 Ný fréttamynd frá El Salva-
dor. Tilraunir Carters til að
koma á hófsömu stjómarfari í E1
Salvador fóru út um þúfur, og nú
hefur Ronald Reagan lýst yfir því
að hann muni efla stjórnina gegn
liðssveitum vinstri manna.
Þýðandi og þulur Sonja Diego.
22.15 Vinnuslys. Hin síðari tveggja
mynda um vinnuslys, orsakir
þeirra og afleiðingar. Rætt er við
fólk, sem slasast hefur á
vinnustað, öryggismálastjóra,
trúnaðarlækni, lögfræðing, verk-
stjóra og trúnaðarmenn á
vinnustöðum. Umsjónarmaður
Haukur Már Haraldsson. Stjórn
upptöku Valdimar Leifsson. Aður
á dagskrá 13. maí 1979.
22.45 Dagskrárlok.
Föstudagur
13. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýslngar og dagskrá.
20.40 Á döfinni.
.20.50 Fréttaspegill. Þáttur um