Dagblaðið - 06.02.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1981.
15
Hvað er á seyðium helgina?
Guðmundur Ármann og Sigurður Þójrir sýna að Kjarvalsstöðum:
„VINNAN ER MIKILVÆGUR
ÞÁTTUR í MENNINGUNNI”
—segja þeir og haf a vinnandi fólk sem aðalviðf angsef ni
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi
sunnudaginn 8. febrúar.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma i
safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta I safnaðarheimilinu kl. 2. Altarisganga.
Æskulýðssamkoma á sama stað mánudagskvöld 9.
feb. kl. 20.30. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1 kl. 2. Sr.
Árni BergurSigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Sunnudagaskóli kl.
10.30. Messa kl. 14 i Breiðholtsskóla. Æskulýðsfélags-
fundur kl. 20.30 aöScljabraut 54. Sr. Lárus Halldórs-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. ll.Guðs
þjónusta kl. 2. Helgi Eliasson bankaútibússtjóri flytur
stólræðuna. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson.
Félagsstarf aldraðra er á miðvikudögum milli kl. 2 og
5. Sr. ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma i
safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. II. Guös-
þjónusta I Kópavogskirkju kl. 2.Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Óskar J. Þorláks-
son. Kl. 2 messa. Björg Einarsdóttir flytur stól-
ræðuna. Svala Nielsen óperusöngkona syngur faðir-
vorið. Fermingarbörn flytja bæn og texta. Sr. Þórir
Stephensen þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur.
organisti Marteinn H. Friðriksson.
LANDAKOTSSPlTALI: Guðsþjónusta kl. 10. Skírt
verður i guðsþjónustunni. Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Þórir Stephensen.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Laugardagur:
Barnasamkoma I Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h.
Sunnudagur: Barnasamkoma i Fellaskóla kl. 11 f.h.
Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu að Keilufelli I kl. 2
e.h. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma . kl. II.
Guðsþjónusta kl. 2. Organleikari Jón G. Þórarinsson.
Almenn samkoma nk. fimmtudag kl. 20.30. Sr.
Halldór S. Gröndal.
HALLGRlMSKlRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Engin messa kl. 2. Þriðjud. kl. 20.30.
Fyrirbænaguðsþjónusta. Beðið fyrir sjúkum. Kirkju-
skóli barnanna er á laugardögum kl. 2 í gömlu
kirkjunni.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II. Sr.
Tómas Seinsson. Messa kl. 2. Bragi Skúlason
guðfræðinemi predikar. Sr. Arngrimur Jónsson.
Messa og fyrirbænir fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr.
Arngrimur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma i Kárs-
nesskóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta i Kópavogskirkju
kl. 11 árd. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Barnasamkoma kl. II.
Söngur, sögur, myndir. Jón Stefánsson og sr. Sig.
Haukur Guöjónsson. Guðsþjónusta kl. 2.
Organleikari Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig. Haukur
Guðjónsson. Sóknarnefndin.
NESKiRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Frank M. Halldórsson.
Kirkjukaffi. Bænaguðsþjónustur á hverju
fimmtudagskvöldi kl. 20.30.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjónusta í ölduselsskóla kl.
10.30 árd. Barnasamkoma að Seljabraut 54 kl. 10.30
árd. Guðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 2.Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESSÓKN: Barnasamkoma kl. II
árd. i Félagsheimilinu. Sr. Guðmundur Óskar ólafs
son.
FRÍKIRKJAN 1 REYKJAVÍK: Messa kl. 2.
Organleikari Sigurður isólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
FRÍKIRKJAN I HAFNARFIRÐI: Barnatiminn er
kl. 10.30. Aðstandendur barnanna eru hjartanlega
velkomnir lika. Guðsþjónusta kl. 14. Fundur með
fermingarfólki eftir messu. Starfsmenn kirkjunnar
greina frá störfum sinum. Safnaðarstjórn.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Sunnudagaskólarnir byrja
kl. 10.30. Almenn guðsþjónusta kl. 20. Ræðumenn
Guðni Einarsson og Samúel Ingimarsson. Fjölbreytt-
ur söngur. Fórn fyrir Afrikulrúboðið.
NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háaleitisbraut 58:
Sérstök messa sunnudag kl. 11 og 17. Prédikari er frá
Kanada, Gcne Storer. Matur eftir morgunmessu.
Listasötn
Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS: Málverk, grafík. skulplúr
teikningar eftir innlenda og erlcnda listamenn. Opiö
13.30— 16 þriðjud.. fimmtud., laugard: og sunnud.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ, v. Suðurgötu: Opið þriðju
d., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 13.30— 16.
TORFAN (veitingahúsl: Björn Björnsson, leikmyndir,
Ijósmyndir og teikningar úr Paradisarheimt.
LISTMUNAHÚSIÐ, I.xkjargötu 2: Engin sýning
um helgina.
„Það er kominn tími til að mynd-
listarmenn snúi sér að einhverju öðru
en flatarmálsfræði eða ljóðrænum
tilraunum með liti og form,” sögðu
þeir félagar Sigurður Þórir og
Guðmundur Ármann, sem frá og
með morgundeginum sýna myndir
sínar á Kjarvalsstöðum Þarna er um
olíumálverk, grafik og teikningar að
ræða og flestar myndirnar sýna fólk í
atvinnulífinu, gjarnan við fisk- eða
járniðnað.’Þó er þarna heljarmikið
málverk úr öxnadal, 8 metra langt.
Og sýningin heitir „Vinnan-Fólkið-
Landið”.
Þetta er auðvitað ekki í fyrsta
skipti sem íslenzkir myndlistarmenn
gera myndir af vinnandi fólki og það
eru fleiri sem gera það nú en þeir
félagar. En þó má með nokkrum
sanni segja að meðan abstraktstefnan
var sterkust, frá þvi um 1950 og fram
á síðasta áratug, þá hafi tilraunir með
hrein form verið allsráðandi og
myndir af fólki, húsum eða landslagi
allt að því bannfærðar.
„Scheving, Kristin Jónsdóttir og
fleiri máluðu sjómenn, bændafólk og
búsmala,” sögðu þeir Sigurður og borgir hafa myndazt og iðnvæðing er
Guðmundur. „Okkar myndir sýna imótun.”
áhrif frá breyttum tímum, þegar Þeir eru báðir Reykvíkingar,
Flestar myndanna sýna verkamenn 1 járniðnaði eins og sú til vinstri (eftir
Guðmund Ármann) eða 1 fiskiðnaði eins og sú til hægri (eftir Sigurð Þóri).
Sigurður Þórir fæddur 1948 en
Guðmundur Ármann 1944.
Upphaflega kynntust þeir þegar báðir
voru sendlar f prentsmiðjunni Eddu
(þar sem Tíminn var lengst af
prentaður). En svo fór Guðmundur
til Gautaborgar á Vallands-lista-
skólann og býr nú á Akureyri, þar
sem hann rekur teikni- og skiltastofu
ásamt Ragnari Lár (höfundi Bogga
blaðamanns). Sigurður fór hins vegar
til Kaupmannahafnar á konunglega
kúnstakademíið og kennir nú við
Myndlistarskólann í Reykjavík.
Leiðir þeirra lágu saman að nýju
þegar Sigurður ætlaði til Húsavíkur
með fjölskyldu sína sumarið ’78, en
varð bílreika í öxnadal og þurfti að
leita gistingar hjá Guðmundi á
Akureyri. Þegar þeir fóru að sýna
hvor öðrum myndir sinar, urðu þeir
þess vísir að skoðanir þeirra í listinni
fóru á margan hátt saman, og upp
kom sú hugmynd um sýningu sem nú
er orðin að veruleika.
-IHH.
Graflk eftir Sigurð Þóri Sigurócson, en hann opnar
sýningu að Kjarvalsstöðum asamt Guðmundi Ármanni .
um helgina.
LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegi 16: Sýning á
verkum í eigu safnsins. Opið 16—20 virka daga. 14—
20 um helgar.
jNÝLISTARSAFNIÐ, Vatnsstíg 3b: Engin sýning
um helgina.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74: Safnið lokað
meðan skipt er um sýningu.
ÁRBÆJARSAFN: Opið samkv. umtali. Simi 84412
kl. 9— 10 alla virka daga.
GALLERt GUÐMUNDAR, Bergstaðastræti 15:
Verk eftir Weissauer, Kristján Guðmundsson. Eyjólf
Einarsson o.fl. Opið 14— 18 flesta virka daga.
EPAL, Siðumúla 20: Textilhópurinn sýnir. Opið á
venjulegum verzlunartima.
LISTASAFN ÁSMUNDAR SVEINSSONAR:Opið
þriðjud., nmmtud., og laugard. kl. 13.30—16.
MOKKA: Gunnlaugur Johnson, teikningar. Stendur
næstu þrjár vikur. Opið 9—23.30 alla daga.
GALLERl NONNI, Vesturgötu: Nýtt pönk á
Vesturgötunni.
GALLERt KIRKJUMUNIR, Kirkjustræti 10:
,Sigrún Jónsdóttir, batlk, kirkjumunir o.fl. Opið 9— 18
virka daga 9— 16 um helgar.
GALLERI LÆKJARTORG, Hafnarstrætí 22:
Jóhann G. Jóhannsson, málverk. tslenzkar hljóm-
plötur og Ijóðabækur.
KJARVALSSTAÐIR: Vestursalur: Guðmundur Ár-
mann og Sigurður Þórir, Vinnan—Fólkið—Landiö.
málverk og grafík. Opnar laugardag. Á göngum: Hol-
lenskt skart, Grafík frá landi Mondriaans. Austur-
salur: Carl Frederik Hill, 76 teikningar. Verk frá Lista-
safninu í Malmö. Opið 14—22alladaga.
DJÚPIÐ, Hafnarstræti (Horniðh Einar Þorstienn Ás-
geirsson og Haukur Halldórsson, Hugmyndir á þorr-
anum. Hugmyndir, myndverk og skúlptúr. Opnar
laugardagkl. 15.
GALLERt SUÐURGATA 7: Engin sýning um helg-
ina.
NORRÆNA HÚSIÐ: Anddyri: Edvard Munch:
Ævintýraskógurinn. málverk oggrafík. Kjallari: Helgi
Margrét og Hjálmtýr syngja
fyrir Hlíðarendagesti
Söngvarahjónin vinsælu Margrét
Matthíasdóttir og Hjálmtýr Hjálm-
týsson syngja fyrir matargesti í
Hlíðarenda á sunnudagskvöld.
Undirleikari er Steinunn B. Ragnars-
dóttir. Hjónin syngja lög úr
söngleikjum og léttar óperuaríur og
verða allt kvöldið á staðnum. Þannig
geta þeir sem ekki vilja missa af síð-
asta þætti Landnemanna náð að sjá
þáttinn án þess að missa af hress-
andi og skemmtilegum söng þeirra
hjóna.
Ólafur Reynisson, annar eigandi
Hlíðarenda sagði í samtali við DB að
klassísk tónlist er matargestum hefur
verið boðið að hlýða á, á meðan þeir
hafa snætt kvöldverð, hefði mælzt
mjög vel fyrir. Einnig hafi verið
haldin ljóðakvöld og lesið úr nýjum
bókum. -A.Bj.
Þorgils Friðjónsson, málverk, teikningar o.fl. Opin
14—19 til 15. feb.
Einar Þorstdnn Ásgeirsson opnar sýningu i Djúpinu
um helgina ásamt Hauki HaMórssynL
Jón Gunnar Árnason og Tryggvl Óiafsson.
Gallerf Semper Ardens
Holbergsgade 18,
Kaupmannahöfn
í tilefni opinberrar heimsóknar forseta íslands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur, heldur Gallerí Semper
Ardens sýningu á verkum fjögurra íslenzkra mynd-
Isitarmanna.
J Þau sem sýna eru Alfrefl Flóki, sem sýnir túss-
teikningar og krítarmyndir, Jón Gunnar Ámason,
sem sýnir ástandsskúlptúra og höggmyndir úr ryð-
fríu stáli, flaueli og gleri, Rúrí, sem sýnir doku-
mentation og objekta, og Tryggvi Ólafsson, sem
■ sýnir akrylmálverk og klippimyndir. Samtals er um
1 að ræða um 40 verk.
Sýningin er opin frá komu forsetans til Kaup-
mannahafnar og til 8. marz. Sýninpin er opin alla
daga vikunnar frá kl. 12—18. ókeypi' .iðgangur.
Nemendur Hólel- og veitingaskóla tslands halda
kökubasar sunnudaginn 8. febrúar nk. frá kl. 15 að
Hótel Esju þar sem skólinn er til húsa. Nemcndur
-hafa sjálfir bakað þær kökur sem verða á boðstólum
og hafa hugsað sér að nota ágóðann i ferðasjóð, en
þeir hyggjast fara utan að námi loknu og kynna sér
veitingahús út i hinum stóra heimi.