Dagblaðið - 09.02.1981, Síða 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1981.
Yndisleg
stund
—þótt rœðuna
vantaði
Séra Garðar Svavarsson, fyrrum
sóknarprestur í Laugarnessókn, var
ástsæll af sóknarbörnum sínum,
enda hjartahlýr og einstaklega ljúfur
maður og ágætur ræðumaður.
Það var því auðsótt mál þegar
kirkjurækinn maður í sókninni kom
eitt sinn til séra Garðars og bað hann
leyfis að mega taka messugjörð á
segulband. Þannig stæði á að kona
sin væri lasin og treysti sér ekki til
kirkju. Þau hefðu hins vegar nýlega
eignast frábærlega næmt
pearlrecorder upptökutæki. Langaði
sig til að prófa það i kirkjunni og
leyfa síðan konunni að hlusta á
messuna, sem hún gat ekki sótt.
Góðfúslegu leyfi fylgdi beiðni
sóknarprestsins um að fá tækið lánað
síðar til þess að geta hlustað á
messuna og lagt mat á ræðuna, eins
og áheyrandi.
Fór allt eins og ætlað var. Tókst
upptakan með ágætum og kom
sóknarbarnið þegar messukvöldið
meðtækiðtilprests.
Forvitinn um það hvernig presti
likaði tækið, spurði eigandinn strax
daginn eftir hversu gengið hefði.
Hældi prestur tækinu á hvert reipi en
bað um að fá að hafa það aðeins
lengur. Ástæðuna fór hann ekkert í
launkofa með:
,,Ég átti yndislega, friðsæla
stund. Ég naut þess að hlusta á
kórinn og organleikinn. Ég fór hins
vegar á mis við ræðuna og vaknaði
ekki fyrren við útgönguversið.”
Ekki ástæða
tilað
leita langt
Lítið land ísland og oft erfitt að
snúa sér við án þess að rekast á
ættingja sína. Það mátti Þórður
Friðjónsson, efnahagsráðgjafi for-
sætisráðherra, reyna á dögunum.
Honum var falið að kanna hver
raunverulegur samdráttur hefði orðið
í gosdrykkjasölu og hvort fullyrðing-
ar gosdrykkjaframleiðenda þess
efnis væru réttar. Þórður átti ekki í
vandræðum með að hafa upp á þeim
manni sem mest átti að vita um málið
— það var bróðir hans, Lýður
Friðjónsson, framkvæmdastjóri hjá
Kókakólaverksmiðjunni. Niður-
staðan varð sú að fullyrðingar gos-
drykkjaframleiðenda stæðust.
Og hafi þeir bræður lent í ein-
hverjum vandræðum með lögfræði-
legar túlkanir á hinum ýmsu hliðum
málsins þá þurftu þeir ekki að leita
langt eftir ráðgjöf: pabbi þeirra er
dómsmálaráðherra, Friðjón Þórðar-'
son.
Atvinnuleysis-
tímar
Það eru erfiðir tímar framundan í
,atvinnumálum hér á landi. Sumir
hafa þegar fengið smjörþefinn af því,
til dæmis hann Siggi sem vann til
skamms tima hjá verzlunarfyrirtæki
hér í borg. Eigandinn kom til hans
einn daginn og sagðist verða að reka
hann vegna samdráttar.
— Reka! sagði Siggi. Ég hélt að
þrælar væru seldir.
Björgvin Halldórsson hlaut
listamannalaun í ár:
NÚ VERÐUR
MAMMA ÁNÆGÐ
Björn Thoroddsen:
Til Bandaríkjanna að
lœra jazzgítarleik
— verður í ströngu námi í eitt ár
„Hvað segirðu! Fékk ég lista-
mannalaun?” sagði Björgvin
Halldórsson steinhissa, er blaða-
maður DB bað hann um yfirlýsingu
vegna þeirra á föstudaginn. „Nú
verður mamma ánægð,” bætti
hann síðan glottleitur við. „Hún sér
vonandi núna að það er ekki einskis
metið sem ég er búinn að vera að
gera í öll þessi ár. Ég held að ég geti
ekkert sagt fleira í bili. Þessi frétt
kemur svo óvænt.”
Það hefur verið fastur liður hjá
úthlutunarnefnd listamannalauna
að hafa einn rokktónlistarmann
með á skrá sinni á ári hverju. í fyrra
hlaut Magnús Kjartansson launin.
Svo vel hittist á að Björgvin og
Magnús voru einmitt að búa sig
undir æfingu með hljómsveitinni
Brimkló er þeim voru færð tíðindin
af launum þess fyrrnefnda. — Þeir
sátu við að borða kjúkling er blaða-
mann bar að garði. Magnús krafði
Björgvin þegar í stað borgunar á
kjúklingnum, „sem ég borgaði fyrir
þig af því að ég hélt að þú ættir ekki
eyri,” sagði launahafinn fráfarandi
og bætti við: „Viðstefnum aðsjálf-
sögðu að því að halda laununum
innan Brimklóarí framtíðinni.”
-ÁT-
Björgvin Halldórsson, sem fékk listamannalaun sjálfum sér gjörsamlega að
óvörum, og Magnús Kjartansson sem stóð I sömu sporum fyrir ári. Þeir leika
báðir með hljómsveitinni Brimkló og stefna að þvl að halda laununum innan
hennar. DB-mynd: Bjarnleifur.
Einar Jónsson alþjóðadómari
ífegurðarsamkeppnum:
Fer í maí til
Englands á
Evrðpukeppnina
— 24. skiptið sem hann dæmir í þeirri keppni
„Þetta er eins árs skóli sem ég
fékk inni í. Fjórar annir með
vikufríi á milli auk tveggja vikna
jólaleyfis. Kennsla frá níu á
morgnana til sex á kvöldin og síðan
æfingar á kvöldin að tímunum
loknum,” sagði Björn Thoroddsen
gítarleikari í samtali við blaðamann
Dagblaðsins.
Á Fólk-síðunni á laugardag var
greint frá því að Björn væri hættur í
hljómsveitinni Tívolí. Ástæðan er sú
að hann hyggst stunda nám i Guitar
Institute of Technology i Hollywood
næsta árið.
„Þessi skóli er frekar lítill og erfitt
að komast inn í hann,” sagði Björn.
,,Ég hef sennilega verið svona ein-
staklega heppinn, eða þá að forráða-
mennina hefur langað til að sjá
alvöru eskimóa. Kennslan þarna er í
miklum jazz-anda og fyrirlesararnir
margir hverjir heimsþekktir. Lee
Rittenor, Larry Carlton og Joe Pass
eru meðal þeirra.”
Til að komast að í Guitar Institute
of Technology þurfti Björn að þreyta
inntökupróf. Hann fór þó ekki utan
til þess, heldur sendi skólanum
kassettu með leik sínum. Að ári
loknu útskrifast hann síðan sem at-
vinnumaður í rafmagnsgítarleik á
bandarískan mælikvarða. Það próf
veitir honum væntanlega réttindi til
kennslu og auðveldar jafnframt að fá
vinnu í stúdíóum.
„Stúdíóvinna er einmitt parturaf
náminu,” sagði Björn. „Hver veit
nema maður geti fengið að spila með
einhverjum af öllum þessum þekkt-
ustu jazzleikurum í Bandaríkjunum.
„Ég var að fá boð um að koma tií
Englands í maí og vera dómari í
Evrópukeppninni. Ég hef setið á
öllum keppnum síðan 1957. Núna fer
Evrópukeppnin í fyrsta skipti fram í
Englandi, en hún verður haldin í
Birmingham. Ungfrú ísland, 1980,
Elisabet Traustadóttir, fer með mér
og tekur þátt í keppninni,” sagði
Einar Jónsson alþjóðadómari í
fegurðarsamkeppnum og einn aðal-
maður fegurðarsamkeppna sem
haldnar hafa verið hér á landi í yfir
tuttugu ár.
„Keppnin fer fram í lok maí og
stendur fram í miðjan júní,” sagði
Einar ennfremur. „Alls taka 22 lönd
þátt í þessari keppni og ég er nú að
vona að ég eigi aðalstúlkuna. Elisa-
bet Traustadóttir mun einnig taka
þátt í keppninni Miss Universe sem
fer fram í júní. Hins vegar hefur ekki
ennþá verið ákveðið hvar hún fer
fram,” sagði Einar.
Fleiri keppnir verða haldnar á
þessu ári eins og áður og má þar
nefna Miss International, Miss
Young International, Miss
Scandinavia og Miss World. Allar
þessar keppnir fara fram í haust.
„Ég hef lítið frétt af því hvenær
fegurðarsamkeppnin fer fram á þessu
ári hérlendis en á von á að það
skýrist fljótlega. Ætli sömu aðilar
taki þetta ekki að sér aftur í eitthvað
breyttri mynd,” sagði Einar Jónsson
alþjóðadómari fegurðarsamkeppna
og starfsmaður í Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis.
-ELA.
Einar Jónsson sinnir slnum daglegu störfum I Sparisjóði Reykjavikur og ná-
grennis á daginn. En þess á milli bregður hann sér I sparifötin og dœmir
fallegustu stúlkurnar viðs vegar um heim. — Að ofan: Elísabet Traustadóttir,
ungfrú Island 1980, fer til Englands I mai og tekur þátt í keppninni um Miss
Evrópu. DB-myndir: Ragnar Th.
Björn Thoroddsen. — Verð kannski
sendur heim hálfvitlaus... og þó.
DB-mynd.
Þeir búa einmitt margir þarna í ná-
grenninu.”
En óttast hann ekki að verða
búinn að fá viðbjóð á hljóðfærinu og
tónlist eftir nær stanzlaust nám í heilt
ár?
„Ég verð kannski sendur heim
hálfvitlaus,” sagði Björn. „Og þó.
Fyrst maður er búinn að þola við
svona lengi hlýtur að vera allt í lagi.
— Það eru liðin tiu ár, síðan ég
byrjaði fyrst að spila á gítar, en ekki
nema þrjú ár síðan ég fór að leika af
einhverri alvöru. Það er ekki nema
um það bil ár síðan ég fór að fikta við
jazzinn. Samvinna með mönnum eins
og Guðmundi Steingrímssyni, Guð-
mundi Ingólfssyni og fleirum olli því
að ég fékk ólæknandi dellu fyrir
jazzi. Það var einmitt sú della, sem
fékk mig til að sækja um skóla-
vistina. -ÁT-