Dagblaðið - 24.04.1981, Page 4
16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1981.
Hvað er á seyöium helgina
Plata vikunnar: Sky III
Nær ekki upp yfir ským
H«M: 8ky III.
RyU«ndur 8ky (John WlHams, Kcvln P*sk,
Trtetan Fry, Harfote Rowars, 8t*v* Gray).
Útgofandl: Ariote, 1881.
UmboA: Fáttdnn hf.
Það er ekki oft þegar nýjar hljóm-
sveitir eru stofnaöar að þær komi
með nýjan og sjálfstæðan stil, sem
engin önnur hljómsveit hefur komið
með, svo vel hafi farið, en það er ein-
mitt það sem hljómsveitin Sky gerði
þegar hún var stofnuö áriö 1979 af
John Williams, sem er einn virtasti
gítarleikarí heims á sviði klassískrar
tónlistar.
Og þaö var ekki að sökum að
spyrja að þegar Sky gaf út sína fyrstu
plötu voru flestir á því að þama væri
loksins komið eitthvað nýtt eða alla
vega tónlistarstefna sem hefði heppn-
azt vel, sameining rokks og klassískr-
ar tónlistar, enda var valinn maöur á
hverthljóðfæri.
En þaö er ekki nóg að góðir hljóð-
færaleikarar komi saman, það þarf
að semja góða tónlist fyrir þá. Og þar
var fremstur í fiokki Francis Monk-
ham, hljómborðsleikari Sky, en hann
samdi meiríhlutann af tónlistinni á
Sky 1.
Sky II kom út fyrir ári og var tvö-
falt albúm, og var í rauninni beint
áframhald af Sky I, ívið þyngri og í
lengra lagi, en sami meistaraklassinn
yfir tónlistinni.
Það var bæði með eftirvæntingu
og kvfða sem ég tók til við að hlusta á
Sky III, kviðinn stafaðf af því aö
siðan Sky II kom út hefur Francis
Monkham hætt í hljómsveitinni en
hann hafði samið mörg af þeirra
beztu lögum og verkum.
En þegar svona góðir tónlistar-
menn eiga i hlut kemur aUtaf góður
maður i manns stað. Nýi hljómborðs-
leikarínn heitir Steve Gray og veit ég
ekkert meira um hann en get mér til
aö hann komi úr stúdióvinnu eins og
fiestir þeirra sem fyrir eru í hljóm-
sveitinni.
Það sem helzt er einkennandi fyrir
SkylII er aö hún er ekki eins grípandi
I fyrstu eins og fyrri plötur hljóm-
sveitarinnar en vinnur á við hverja
hlustun. AUir meðlimir Sky semja
tónlistina nema John WUUams sem
lætur sér nægja að leika jafn listilega
á hvort sem er klassískan gitar eða
rafmagnsgftar og útsetur eina stefið
eftir utanaðkomandi en það er hið
guUfaUega Sarabande eftir Hándel.
Eins og á fyrri plötum Sky er
enginn söngur og þess vegna gerðar
miklar kröfur tU hljóðfæraleiks hvers
meðlims fyrir sig. Og þar er raunar
engan veikan punkt að finna.
Kannski er varla hægt að ætlast til
að hljómsveit eins og Sky breyti
mikið um stíl en þó mega þeir fara að
vara sig á því að hver ný plata verði
ekki endurtekning á þeirri síðustu.
Þó er ekki hægt að segja að engar
breytingar hafi orðið á tónUst þeirra
félaga því i Meheeco, sem er eftir
bassaleikarann Herbie Flowers og
nýja meðUminn, Steve Gray, fara
þeir aðeins út i suðræna jasssveifiu
með góðum árangri.
Eins og fyrr er sagt vinnur platan á
við hverja hlustun, aUur hljóðfæra-
leikur frábær, hljóðupptaka í hæsta
gæðaflokki, og er hin eigulegasta
plata. En herzlumuninn vantar á aö
Sky III náði gæðum Sky I sem verður
að teljast þeirra bezta plata tU þessa.
Beztu lög: The Grace, Connecting
Rooms, Moonroof og Meeheeco.
HK.
BandarMcur
skemmtihópur
íheimsókn
Thc Young Ambassadors, sem er bandariskur
skemmtíhópur, mun halda hljómleika í Háskóla-
biói föstudaginn 24. april kl. 19, i Keflavik laugar-
daginn 25. april kl. 21 , og á Selfossi laugardaginn
25. apríl kl. 13.30.
Sýningin hér á landi verður upphaf á ferð hópsins
til Danmerkur, Sviþjóöar, Finnlands og Noregs.
í hópnum er 31 maður, þar á meöal söngvarar,
dansarar og hljómlistarmenn, ásamt tæknimönnum,
en þau eru öll nemendur i Brigham Young Universi-
tiy i Provo, Bandaríkjunum. The Young Ambassa-
dors komu fyrst fram á Expo ’70 í Osaka, Japan og
síðan hefur hópurinn verið á ferðalögum víðs vegar
um heLm, t.d. í Sovétríkjunum, Póllandi, Þýzka-
landi, Ástrah'u, Sviss, Kína, Taiwan, Hong Kong,
Filippseyjum, Suður-Afríku, Grikklandi, Egypta-
landi og Norður- og Mið-Ameriku.
Hópurinn hefur alls staðar fengið frábærar mót-
tökur enda um að ræða skemmtíatriði fyrir fólk á
öllum aldri. Hópurinn skemmtir með alþýðutónlist
frá ýmsum löndum og dönsum, gamanþáttum og þvi
bezta sem er að gerast i nútimatónlist i Bandarikjun-
um i dag.
Buxtehude-tónleikar
f Háteigskirkju
Sunnudaginn 26. april kl. 5 siödegis verða tónleikar i
Háteigskirkju. Viðfangsefnin eru eingöngu eftir
Ditrich Buxtehude. Hann var einn af kennurum J.S.
Bach og jafnframt einn mesti orgelsnillingur
samtíðar sinnar. Flytjendur eru Hubert Selow,
kontratenor, sem syngur kantötuna, Jubilate Deo.
Sesselja Óskarsdóttír leikur undir á selló. Orthulf
Prunner leikur á orgel Háteigskirkju prelúdiur og
fúgur eftír D. Buxtehude.
Karlakór Selfoss
standur fyrir samsöng
Sunnudaginn 26. april mun Karlakór Selfoss halda
samsöng i Selfossbiói kl. 21, siðan mun karlakórinn
uuui^ syufija i jcuuuuiuí piiujuuoguiu xo. upiu ug
þá verður öldruðum ibúum Sclfoss boðið. A söng-
skrá veröa 19 lög, þar af tvö sem eru keppnislög i
söngkeppni sem haldin verður í Wales i sumar og
kórinn áformar að taka þátt i. Söngstjóri er Asgeir
Sigurðsson og undirleikari Suncana Slamning.
Tónleikar Samkórs
Trósmióaf ólagsins
Samkór Trésmiðafélags Reykjavíkur heldur sína ár-
legu tónleika laugardaginn 25. apríl kl. 14 í Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut. Stjómandi kórsins
er ungur tónlistarmaöur, Guðmundur óli Gunnars-
son.
Gestir kórsins að þcssu sinni verða Árneskórinn.
Á næsta ári er fyrirhuguð Finnlandsferð á mót Nor-
ræna tónlistarsambandsins. Mótíö verður haldið i
Pore 1 .—4. júlí í sumar.
Árbók Akureyrar komin út í fyrsta sinn:
Samtíðarsaga ekki síður merkileg
!— en sú saga sem gerðist fyrir árum og öldum
„Viö álítum aö samtímasagan sé
ekki síður merkileg og forvitnileg en
sú saga sem gerðist fyrir árum og
öldum og 1 þessari bók er reynt að
bregða upp eins sannri mynd og
kostur er af árinu 1980, bæði með
fréttayfirliti og greinum um málefni
sem ofarlega voru á baugi á árinu.”
Svo farast Guðbrandi Magnússyni
orð I formála að Árbók Akureyrar
sem Prentverk Odds Bjömssonar á
Akureyri gaf nýverið út. I þessari
fyrstu Árbók Akureyrar er tíundaö
fiest þaö er fréttnæmt þótti á Akur-
eyri á árinu 1980. í fréttayfirliti er
sagt frá öllu milli himins og jarðar er
þótti teljast til tiðinda á árinu, bæjar-
málum, menningarmálum, hitaveitu-
málum o.fl.
Fréttayfirlitið er með hefðbundnu
yfirUtssniði þar sem helztu fréttir árs-
ins eru raktar í tímaröð. I miðhluta
bókarinnar em birtar greinargerðir
um ýmis mál er efst voru á baugi á ár-
inu í höfuðstað Norðlendinga. Þar
má m.a. finna grein um menningarlif
bæjarbúa á árinu. í greininni kemur
t.d. fram að miklar sviptingar urðu i
blaðaútgáfu i bænum árið 1980.
Noröurland, blað allabaUa, lagði upp
laupana og Dagur og íslendingur,
málgögn framsóknar- og sjálfstæðis-
mapna, fengu tU sin nýja ritstjóra.
Og Dagur tók tU við útgáfu heigar-
blaðs að hætti dagblaðanna.
í kafia um stjómmál eru taldar
upp aUar stærri sem smærri nefndir
sem starfa á vegum bæjarins, allt frá
bæjarstjórn upp I nefnd er nefnist
markavörður en hana skipar raun-
ar ekki nema einn maður.
Ennfremur eru I bókinni sérkafiar
um sjávarútveg, verzlun, iðnað og
landbúnað svo eitthvað sé nefnt. í
kaflanum um landbúnað er t.d. fjall-
að um opnun nýju mjólkurstöðvar-
HAtiDMADt
SOUVEWRS
Miðbær Akureyrar: Guðbrandur Magnússon hefur safnað saman fréttum af þvf
markverðasta sem gerðist I hiifuðstað Norðurlands á liðnu ári.
innar og birt erindi Kristjáns fyrrver-
andi forseta sem hann flutti við
opnun stöðvarinnar. Raunar kemur
Kristján við sögu annars staðar i rit-
inu þvi ávarp hans á Möðruvöllum á
aldarafmæli Menntaskólans á Akur-
eyri, þess víðfræga afmæbs, er birt I
kafla bókarinnar um skólamál.
1 lok bókarinnar em staðgóðar
upplýsingar um menn og málefni á
Akureyri, söfn, dagvistun, félaga-
samtök, kvikmyndahús, leikhús og
margt fieira.
í hrild má segja að Árbók Akur-
eyrar sé mjög aðgengilegt og
skemmtilegt heimildarit. Í henni er aö
finna upplýsingar um allt það mark-
veröasta sem gerzt hefur í bæjarlifinu
á árinu. Vonandi auðnast útgefend-
um að halda útgáfu Árbókar áfram á
komandi ámm þvi vissulega á hún
rétt á sér.
-ÓÞH.