Dagblaðið - 22.05.1981, Side 6

Dagblaðið - 22.05.1981, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. MAI 1981. Tilefni heimsóknar okkar var að forvitnazt um undirtektir vistmanna við trimmkeppninni sem nú stendur yfir. Okkur hafði verið tjáð að mikill áhugi væri fyrir keppnninni enda vistmenn Sólheima orðlagðir fyrir íþróttaáhuga. Það kom fljótlega í ljós að keppnisandi er mikill. Forstöðukona Sólheima, Katrín Guðmundsdóttir, sagði að á kvöldin sætu vistmennirnir og hugleiddu við hvaða grein þeir ættu að merkja stig. Þeir tækju nefnilega þátt í öllú en aðeins eitt stig fæst á dag. „Það er mikill áhugi fyrir trimm- keppninni hjá okkur,” sagði Katrin „og flest allir hafa fengið stig alla dagana. Þau ganga mikið, synda og hjóla. Sundið er skylda hér, 40 minútur á dag, svo þar fá þau öll stig. Hins vegar bæta þau við sig göng- unni. Það eru þátttökukort í hverri ibúð og þau passa vel upp á aö stigin þeirraséu færðinn.” Genguí ungmennafólagið Allir vistmenn Sólheima gengu í Ungmennafélagið Hvöt í Grímsnesi í fyrravor. Upp frá því var stofnuð sér deild fyrir þroskahefta, sem lfklega er einstakt hér á landi. Kvenfélag sveitarinnar færði heimilinu 200 þúsund króna (gamlar krónur) fjár- veitingu til að hefja starfið. Á síðasta ári voru kosin íþróttamaöur og -kona ársins á Sólheimum og fengu þau bikara. Þá eiga Sólheimar mikla sundgarpa sem oft hafa unnið til verðlauna. Oft er keppt milli heimila fyrir þroskahefta og nýlega fór fram keppni milli Sólheima og öskju- hlíðarskóla í boltaleiknum boccía. „öskjuhlíðarskólinn sigraði okkur í boccia vegna þess að við höfum nán- ast enga aðstöðu til að æfa boccía hér. En þeir þorðu ekki á móti okkur í sundið — því þar hefðum við sigrað,” sagði Katrín hreykin. Heimilið 50 ára Sólheimar i Grimsnesi hafa verið starfandi í fimmtfu ár. Ung kona, Sesselia Guðmundsdóttir, kom upp- haflega með hugmynd að stofnun þessa heimilis. Hún leitaði lengi að heppilegum stað áður en hún fann Sólheima. Sesselía hefur hitt á rétta staðinn þvf notalegra umhverfi hefði hún vart fundið. Sólheimar eru sjálfseignarstofnun rekin á daggjöld- um frá ríkinu. Þar eru nú 40 vist- menn, flestir fullorðnir. Þar er 27 og hálf staða ef allir starfsmenn býlisins eru taldir með. Sólheimar minna engan veginn á stofnun eða hæli heldur á notalegt heimili. „Það er mikill munur að hér er enginn spitalasvipur,” sagði Katrín er við spurðum hana hvernig heimilisrekstri væri háttað. „Starfs- fólk og vistmenn búa saman og borða saman. Sjö lftil ibúðarhús eru á Sól- heimum og i hverju húsi búa sex vist- menn ásamt starfsmanni. Viö reynum að fá hjón hingað, þá getur konan starfað sem húsmóðir í húsinu og gert það heimilislegt og maöurinn í vinnustofunum. Húsmóðir f hverju Norræn trimm- landskeppni fatlaðra ELIN ALBEBTSDÓTTIR Vistmennirnir starfa á vinnustofum á daginn og þar er margt eigulegra muna gerðra eftir þá. Þessi klifurkarl, sem Katrin forstöðukona sýnir Sigurði Guðmundssyni, vakti td. mikla athygli á sýningu i ÁHtamýrar- skóla. Norræn landskeppni fatlaðra: Ætla að gera hlut Islands sem „Það er alveg sérstaklega skemmti- legt að koma að Sólheimum,” var sagt við mig áður en ég lagði leið mina þangað í fyrradag. Það voru sannarlega orð að sönnu. Um leið og ekið er heim að Sólheimum finnur maður hið góða andrúmsloft sem einkennir staðinn. Mikill gestagangur er að Sólheimum í Grímsnesi venju- lega, svo var einnig í fyrradag. Er við stigum út úr bílnum á hlaöinu, DB- menn og Sigurður Guömundsson, framkvæmdastjóri norrænu trimm- ’ keppninnar, barst á móti okkur hressilegur söngur og gitarleikur. Á grasflöt skammt frá sátu tuttugu nemendur þroskaþjálfaskólans ásamt vistmönnum Sólheima. Nemendurnir voru gestir Sólheima þennan dag og skemmtu þeir vistmönnum við mikinn fögnuð. Mikill áhugi fyrir trimminu norrænu trimmkeppninni ínaðSóllieimuniíG Fara f fþróttaskóla Til að fá örlitla tilbreytingu i hvers- dagslifið fá flestir vistmenn að skreppa frá nokkrar vikur yftr sumarmánuðina. 1 sumar fara 10 vistmenn að Stóru-Tjörnum í Þing- eyjarsýslu í iþróttabúðir og 18 vist- menn fara í íþróttaskóla Sigurðar Guðmundssonar í Heiðarskóla í Leirársveit. Þrír vistmenn fara í i einu, þrjár vikur í senn. „Þeim finnst ægilega spennandi að fá að faruí íþróttaskóla í smátíma — en þetia er ógurlega dýrt. Það er ekki reiknað með svona lúxus í daggjöld- unum. En ég reyni að fá aðra vist- menn inn í staðinn, þennan tíma sem aðrir eru f burtu, til aö þetta sé hægt. Æi, það er alltaf hægt að bjarga hlut- unum einhvern veginn. Lions- hreyfingin hefur verið okkur innan handar og ég vona að það geti orðið einnig núna,” sagði Katrín forstöðu- kona. Haldið igöngu ásamt smíðakennaranum, Haiidóri Hafsteinssyni. „Ef ág drífþau ekki út að ganga eftir vinnu þá drifa þau mig," sagði Halldór. Hann fær einnig stig fyrir að vera fylgdarmaður. hafði hún starfað á Kópavogshæli, á Skálatúni, í öskjuhlíðarskóla og á Hrafnistu. „Mér finnst Sólheimar skara fram úr öðrum stöðum að mörgu leyti,” segir hún. „Mér finnst mikiu betra samband vera á milli vist- manna og starfsfólks þegar það býr saman heldur en þegar sifelld vakta- skipti eru. Ég held að það sé ekki bara gott fyrir vistmennina heldur verði starfsfólkið mun betra. Hérna líkar mér mjög vel enda á umhverfið svo vel við mig, indælt og notalegt.” Katrin er mamma allra, það fór ekki fram hjá gestsauganu. Er hún gekk með okkur um staöinn leyndi það sér ekki að vistmönnunum þykir vænt um hana. Allir þurftu að sýna henni hvað þeir væru að gera, hvað þeir væru orðnir flinkir að synda, að buxurnar þyrftu viðgerðar við og margt, margt fleira. Keypt ný húsgögn Mörgum er það væntanlega í fersku minni þegar jólakonsert var haldinn til styrktar Sólheimum. Var þá upphaflega ætlazt til að ágóðinn rynni í lagfæringu á vinnustofum. í heimsókn aðstandenda jólakonserts að Sólheimum kom í ljós að ýmislegt annað vantaði enn frekar. í samráði við vistmennina voru þvi keyptir nýir svefnbekkir, litasjónvörp, sófasett og ýmislegt fleira til að gera heimilið sem heimilislegast. Þeir sem koma inn í samkomusal staðarins hugsa eflaust sitt, því þó hann geri sitt gagn er hann bókstaf- lega að hrynja. í fyrstu var hann lfka ætlaður sem hænsnakofi svo engan Skal undra. Vonandi verður einhvern tíma safnað fyrir nýjum samkomusal að Sólheimum. Ef það yrði einhvers staðar þakkað þá er það þar. Heimsókn að Sólheimum er ógleymanleg, það vita þeir sem þangað hafa komið. Eftir þessa ferö vitum viö lika að fyrir austan fjall býr hópur manna sem vill gera hlut íslands í trimmkeppni fatlaðra sem mestan. -ELA. „Kveikjum eld, kveikjum eld, song fnður hópur nemenda þroskaþjánaskólans sem voru / heimsókn að Sól- heimum og vistmenn tóku hressilega undir. húsi hefur ákveðnar reglur um umgengni sem vistmenn eiga að fara eftir. Eru í vinnu- stofum á daginn Við gerum miklar kröfur til vist- manna um umgengni og hegðun. Við reynum að láta þau hjálpa sér svo mikiö sem mögulegt er. í matsalnum sækir til dæmis hver sinn mat á sinn disk og skilar diskinum síðan aftur f eldhúsið eftir matinn.” Á daginn starfa vistmennirnir á vinnustofum, við garðrækt eða heimilisstörf. Á Sólheimum er smiða- stofa þar sem við sáum marga fallega hluti, vefstofa þar sem ljómandi gólf- mottur verða til, brúðugerð þar sem eru prjónaðar brúður og bangsar og kertagerð. Vistmennirnir skiptast á að vera á vinnustofunum til að fá sem mesta fjölbreytni. Tómstundalif er einnig stór þáttur á heimilinu. „Við erum með sérstök tómstundakvöld, diskótek, við förum í leikhús og við setjum upp okkar eigin leikrit,” segir Katrín. Skara fram úr að mörgu leyti Katrín Guðmundsdóttir hefur verið forstöðukona síöan 1979.Áður Miklir sundgarpar eru á Sóiheimum og oft hafa þau unnið til verðlauna. Vistmenn eru skyklaðir til að vera í lauginni 40 mínútur á dag og þar afla þeirsór stiga i trimmkeppnina.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.