Dagblaðið - 05.06.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1981.
(*
11
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Götumynd frá Beljing.
DB-mynd: Magnús Karel.
Pylsuvagnará
götur Beijing
Magnús K. Hannesson, fréttaritari DB
skrifar:
Kinverjar ætla á næstunni að setja
upp pyisuvagna á fjölförnum stöðum I
stærstu borgum landsins og bæta
þannig úr skorti á steikarabúllum.
Beijing dagblaðið segir frá því að í
borginni, þar sem íbúar eru 8 milljónir,
séu tvö þúsund veitingastaðir og aðeins
120 hraðréttastaðir, sem næstum
eingöngu selja núðlur, kökur og soðnar
bollur. Blaðið telur að með því að inn-
leiða pylsu-með-öllu menninguna í
Kina megi bæta stórlega þjónustuna
við neytendur og matartímar verði
verulega styttri.
Frakkland:
Samkomulag
sósíalista og
kommúnista
Leiðtogar kommúnista og sósialista
hafa komizt að samkomulagi um að
mynda bandalag við þingkosningarnar
siðar i mánuðinum. í sameiginlegri
yfirlýsingu flokkanna sagði að sá fram-
bjóðandi vinstri manna sem bezt stæði
eftir fyrri umferðina yrði eini fram-
bjóöandi þeirra í seinni umferðinni.
Begln lofar að gefa Habib „riflegt” svigrúm:
Sadait lætur til
sín taka í eld-
flaugadeilunni
Anwar Sadat, forseti Egyptalands,
hefur talið ísraelsmenn á það að
gefa út yfirlýsingu um það opinber-
lega að þeir muni veita Habib sendi-
manni Bandarikjastjórnar „ríflegt”
svigrúm til að finnalausn á eldflauga-
deilu Sýrlendinga og ísraeismanna.
Sadat og Begin áttu 90 minútna
langan fund á Sínaiskaganum f gær
og eftir fundinn lýsti Begin þvi yfir að
Habib fengi „riflegan tima” til að
leita samkomulagsleiða.
Philip Habib, sendimaður Banda-
ríkjastjórnar, er væntanlegur til Mið-
austurlanda á nýjan leik i dag.
Svo virðist sem Begin hafi neitað
að verða viö þeirri ósk Sadats að f sra-
elsmenn létu af árásum sinum á búðir
Palestinumanna i Suður-Líbanon.
Begin sagði þær árásir „aigjörlega
nauðsynlegar til að vernda okkar
eigin borgara.”
Fundur þeirra Sadats og Begins i
gær er tíundi fundur þeirra og sá
fyrsti siðan ágreiningurinn um sjáif-
stjórnarmál Paiestinumanna batt
enda á þróun Camp David samkomu-
lagsþjóðanna.
1
REUTER
i
Ný verkföll í
Póllandi
Eining, samband hinna óháðu verka-
lýðsfélaga i Póllandi, hefur boðað til
tveggja klukkustunda viðvörunarverk-
falls í fjórum héruðum í norðurhluta
landsins næstkomandi fimmtudag.
Tilgangurinn með verkföllunum er
að knýja stjórnvöld til að gefa upp
nöfn þeirra sem báru ábyrgð á árás
lögreglunnar á verkamenn i Bydgoszcz
19. marz síðastliðinn og refsa þeim.
Ef af verkföllunum verður eru það
fyrstu meiriháttar verkföllin í landinu
síðan Jaruzelski forsætisráðherra fól
þinginu að banna verkföll um tveggja
mánaða skeið hinn 10. apríl síðast-
liðinn.
Begin og Sadat hittust í tíunda sinn í gær og lýstu þvl þá yfir aö áframhald yröi á við-
ræóunum að loknum þingkosningum i ísrael 30. júní.
Morðingi Marteins
Láthers King fyrir
érás i fangelsinu
James Earl Ray, morðingi mannrétt-
indatalsmannsins Marteins I útlier
King, var særður mörgum hnífsUing-
um i ríkisfangelsinu i Petros i
Tennesseeígær.
Ray, sem er 53 ára, var þegar í stað
fluttur á sjúkrahús og var sagður á
góðum batavegi að lokinni skurðað-
gerð. Hann hafði særzt á hálsi, kviði og
handlegg.
John Parish, blaðafulltrúi Lamars
Alexander, rfkisstjóra i Tennessee,
sagði að tveir þeldökkir fangar hefðu
verið yfirheyrðir vegna árásarinnar.
James Earl Ray afplánar nú lífstiðar-
fangelsi fyrir morðið á séra Marteini
Lúther King.
King var skotinn til bana í Memphis
4. apríl 1%8. Mörgum mánuðum siðar
var Ray handtekinn í London. Hann
játaði í fyrstu á sig morðið en á undan-
förnum árum hefur hann lýst sig
saklausanafþví.
Sérstök rannsóknarnefnd fjallaði um
mál hans árið 1977 og komst að þeirri
niðurstöðu að hann væri sekur.
Miklar hreinsanir
innan Kommúnista-
flokks Júgóslavfu
—vegna óeirðanna í Kosovo-héraði
Rektor og tveir aðstoðarmenn hans
við háskólann í Pristina í Kosovo-
héraði í Júgóslavfu hafa látið af
embætti í áframhaldandi hreinsunum í
héraðinu. Hreinsanir þessar koma í
kjölfar óeirða þjóðernissinnaðra
Albana í Kosovo.
Menntamála- og innanríkisráðherrar
Kosovo sögðu af sér i fyrradag þegar
tilkynnt var að 440 mönnum hefði
verið sparkað úr Kommúnistaflokki
héraðsins, sem sakaður hafði verið um
að bera ábyrgð á því að albönsk þjóð-
ernisstefna skyldi verða svo áhrifamikil
i héraðinu.
Óeirðirnar hófust i háskólanum í
marz þegar stúdentar flykktust út á
götur til að mótmæla bágbornum lífs-
kjörum og mismunun innan flokks-
kerfisins.
Mótmælin fengu fljótlega á sig þjóð-
ernislegan blæ og breiddust út um
hArnAiA hnr o»m h<rr nA ctíSrnm hlntH
fólk af albönsku bergi brotið. Að
minnsta kosti niu manns létu lífið áður
en lát varð á óeirðunum.
Kommúnistaflokkur Júgóslavíu
leitast nú við að endurnýja áhrifavald
stjórnarinnar og fiokksins og hreinsan-
irnar og afsagnirnar f kjölfar þeirra eru
liður í þeirri viðleitni.
Embættismenn segjast þeirrar
skoðunaraðPristina-háskólinn, sem er
sá þriðji siærsti í Júgóslaviu, verði
minnkaður. Kennslan i Pristina-há-
skóla fer yfirleitt fram á albönsku og
þeir stúdentar sem ljúka prófi þaðan
eiga yfirleitt i erfiðleikum með aö fá
stðrf utan Kosovo-héraðs, sem er van-
þróaðasta og fátækasta hérað Júgó-
slaviu.
Veli Deva, nýi flokksleiðtoginn sem
kom I stað Mahmut Bakalli sem var
sparkað, sagði á flokksfundi að þó að
„óvinurinn” hefði veriö sigraður i
héraðinu þá hefði hann enn ekki verið
umjraettur.
0RFÆRUKEPPNI
Torfœrukeppnifer fram í nágrenni
HELLU á Rangárvöllum
LAUGARDAGINN 6. JÚNÍ KL. 14.00
Coca-Cola vélmennið
kemur í
heimsókn
íhléinu.
„ míiI Keppt í tveimur flokkum:
^l^Uny * 1 ■ Sérútbúnar bifreiðar
2. Almennar jeppabif reiðat
GÓÐ SKEMMTUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
Ókeypis aögangur fyrir 12 ára og yngri.
Malbikaöur vegur alla leiö.
gj
F.B.S.
HELLU
_ FERÐA..
Í!l MIÐSTODIIM
AÐALSTRÆTI9 S 28133 f
BENIDORM 9JUNI
Þriggja vikna ferð til Benidorm á suð-austurströnd Spánar. Góð hótel og íbúðir, með eða án fæðis. Islenskt leiguflug alla leið í sólna og sjóinn
Þriggjg vikna gfslöppun