Dagblaðið - 05.06.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1981.
19
Hvað er á seyðium helgina?
Tónleikar helgarinnar:
Endurreist Musica Nova f lyt-
ur verk sem tólf íslensk tón-
skáld hafa gert í sameiningu
Þrjú ung tónskáld sem munu láta að sér kveða á Skerplu 1981: Hjálmar H. Ragn-
arsson, Áskell Másson, Karólina Eirlksdóttir.
Guðsþjónustur i Rcykjavíkurprófastsdæmi um
hvítasunnuna.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Hvítasunnudagur:
Guðsþjónusta í safnaðarhcimili Árbæjarsóknar kl.
11 árd. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Hvítasunnudagur: Hátíöar-
mcssa að Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Ámi Bergur Sigur-
bjömsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Hvítasunnudagur:
Hátiöarmessa kl. 11 árd. i Breiöholtsskóla. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKjRKJA: Hvítasunnudagur: Hátiðar-
guösþjónusta kl. 2. Organleikari Guðni Þ. Guð-
mundsson. Annar hvitasunnudagur: Hljómleikar
kl. 5 síðd. Tónkór Fljótsdalshéraös. Sr. Ólafur
Skúlason, dómprófastur.
DIGRANESPRESTAKALL: Hvitasunnudagur:
Hátiöarguðsþjónusta i Kópavogskirkju kl. 2. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Hvítasunnudagur Kl. 11 hátiöar-
messa. Sr. Hjalti Guömundsson . Kl. 2 hátiöar-
messa. Sr. Þórir Stephensen. Fluttir verða hátiða-
söngvar séra Bjama Þorsteinssonar og Dómkórinn
syngur sem stólvers lag Þorkels Sigurbjömssonar viö
sálminn „Englar hæstir, andar stærstir”. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson. Annar hvítasunnu-
dagur: Kl. 11 hátíðarmessa. Sr. Þórir Stephensen.
Dómkórinn syngur, organleikarí Marteinn H.
Friðriksson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Guðsþjónusta á hvíta-
sunnudag kl. 10. Sr. Þórir Stephensen. Organleikari
Birgir Ás Guðmundsson.
HAFNARBÚÐIR: Guösþjónusta á hvítasunnudag
kl. 2. Sr. Hjalti Guðmundsson.. Organleikari Birgir
Ás Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 2 á hvita-
sunnudag. Prestur sr. Lárus Halldórsson.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Hvítasunnu-
dagur: Hátíöarguðsþjónusta í safnaðarheimilinu aö
Keilufelli 1 kl. 11 árd. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Hvitasunnudagur: Hátiöar-
guðsþjónusta kl. 2. Organleikarí Jón G. Þóraríns-
‘son. Annar hvítasunnud.: Guösþjónusta i Grensás-
deild Borgarspitalans kl. 10:30 árd. Almenn sam-
koma n.k. fímmtudag kl. 20:30. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Hvítasunnudagur:
Hátíöarmessa kl. 11, altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar
;Lárusson. Hátiöarmessa kl. 2. Sr. Karl Sigurbjöms-
son. Annar i hvítasunnu: Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þríðjud. 9. júni: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10:30. Beðið fyrír sjúkum. Landspital-
inn: Hvitasunnudagur messa kl. 10. Sr. Karl Sigur-
bjömsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Hvitasunnudagur: Messa kl.
11. Organleikari Orthulf Prunner. Sr. Tómas
Sveinsson. Annar í hvítasunnu: Messa kl. 11. Sr.
Amgrímur Jónsson.
BORGARSPÍTALINN: Messa á hvitasunnudag kl.
10. Sr. Tómas Sveinsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Hvítasunnudagur:
Guösþjónusta á Kópavogshæli kl. 4 siöd. Annar
hvítasunnud: Hátiðarguðsþjónusta i Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Þorbjöm Hlynur Árnason guð-
'fræðingur predikar. Sr. Ámi Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Hvítasunnudagur:
Hátiðarguðsþjónusta kl. 2. Garöar Cortes og kór
kirkjunnar flytja hátíðarsöngva Bjama Þorsteins-
sonar. Einsöngur Ólöf K. Harðardóttir. Organ-
leikari Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig. Haukur
Guðjónsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardagur 6.
júni: Guðsþjónusta að Hátúni lOb, niundu hæð kl.
11. Hvitasunnud.: Hátiðarguðsþjónusta kl. 11.
Þriðjud. 9. júní: Bænaguðsþjónusta kl. 18.
NESKIRKJA: Hvítasunnudagur: Hátiðarguðsþjón-
usta kl. 11. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr.
Guðmundur óskar Ólafsson. Annar hvítasunnu-
dagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Orgel og kór-
stjórn Reynir Jónasson.Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
SELJASÓKN: Hvítasunnudagur: Guðsþjónusta
veröur i ölduselsskóla kl. 11. Athugiö breyttan
guösþjónustustað. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN: Hátiöarguösþjónusta
kl. 2 e.h. i Félagshcimilinu. Sr. Guðmundur óskar
ólafsson.
FRÍKIRKJAN i Hafnarfirði: Hvítasunnudagur:
Hátiðarguösþjónusta kl. 14. Safnaðarstjórn.
jYTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Hvítasunnudagur,
hátiöarmessa kl. 11, kór Keflavíkurkirkju syngur,
organisti Siguróli Geirsson, prestur sr. ólafur Oddur
Jónsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Hvítasunnudagur,
hátiöarmessa kl. 14.
KIRKJA ÓHÁÐA SAFNAÐARINS: Hátiöarmessa
kl. 11 á hvítasunnudag.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Hátiöarguösþjón-
usta hvítasunnudag kl. 11. Athugiö breyttan messu-
tima.
Vonandi er fólk ekki búið að
gleyma Musica Nova sem á sjöunda
áratugnum gladdi alla áhugamenn
um nýsköpun í tónlist en gerði hinum
gramt i geði. Félagsskapurinn lagði
upp laupana fyrir u.þ.b. tiu árum en
er nú að fara i gang aftur með mikla
tónlistarhátið sem nefnist Skerpla
1981.
Verða fyrstu tónleikar hátlðarinn-
ar annan i hvitasunnu kl. 16 að Kjar-
valsstöðum og þeir síðustu í Háskóla-
biói þann 21. júní nk. Markmið hins
endurreista félags a þaö sama og fyrr,
að kynna nýja tónlist, innlenda sem
erlenda, og stuðla að auknum sam-
skiptum islenskra tónskálda, hljóm-
listarmanna og almennra áheyrenda.
Það gefur augaleið að ýmislegt
nýstárlegt verður á boðstólum þessa
tónlistardaga. Fimm islensk verk
verða frumflutt, hópverk, verk eftir
Hjálmar Ragnarsson, Karólinu
Eiríksdóttur, Snorra Sigfús Birgisson
og Magnús Blöndal Jóhannsson.
Einnig verða leikin verk eftír
nokkrar helstu sprautur í nútimatón-
list, Charles Ives, Anton Webern,
Edgard Varése, Erik Satíe og Krzys-
ztof Penderecki og tveir „nýlistar-
menn” i tónlist, Bandarikjamennirn-
ir Philip Corner og Malcolm Gold-
stein, flytja tónsmíðar og gjörninga
fyrir planó, fiðlu og ýmsa hljóðgef-
andi hlutí i Norræna húsinu þann 18.
júni.
Fyrstu tónleikar hátíöarinnar eru
jafnframt stofntónleikar Musica
Nova og geta menn þá látíð skrá sig
sem stofnfélaga. Eru þeir tónleikar
hnýsilegir fyrir margra hluta sakir.
Ekki síst vegna þess að þá verður
flutt verk sem nefnist Árgerð ’81, er i
tólf köflum og eftir tólf tónskáld,
þ.á m. Askel Másson, Gunnar R.
Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson,
Pál P. Pálsson o.il.
Hljóðfæraleikarar (það skiptið eru
17, þ.á m. Manuela Wiesler, Helga
Ingólfsdóttir, Kristján Stephensen,
Reynir Sigurösson o.fl. o.fl.
Aðgangseyrir á einstaka tónleika er
50 krónur en 125 á alla tónleikana.
- AI
Hljómplatavikunnar:
Portrett af Placido Domingo
keppinauti Pavarottis um stórmeistaratitilinn meðal söngvara
Placido Domingo i nýlegri uppfærslu á La Traviata ásamt Ileönu Cotrubas og
Cornell MacNeil.
A PortraH of Placido Domlngo
Arfur úr Faust, Qlovanna d'Arco, Don Cario,
Maflatofala, Manon Lascaut, Aida, Un Ballo In
Maschara, Toaca
EMI asd 4031
Dratflng: FALKINN
í gamla daga geröi óperuáhugafólk
allt hvað það gat til að etja saman
helstu stórsöngvurum, sjálfsagt til að
fá úr því skoriö hver væri „bestur”,
rétt eins og i íþróttakeppnum. Sumir
þessara söngvara létu ekki sitt eftir
liggja, e.t.v. vegna þess að fleiri voru
um hituna þá en nú og þeir vildu
gjarnan auglýsa sig, aðrir þoldu enga
samkeppni á tíndinum. Frægur er
rigurinn milli þeirra Maríu Callas og
Renötu Tebaldi, sem máttu helst ekki
vera i sömu borginni, hvað þá í sama
óperuhúsinu.
Heföu þeir Luciano Pavarottí og
spænski tenórinn Placido Domingo
verið á hátíndi listarinnar fyrir þrjá-
tíu árum er eins víst að einhverjir
hefðu reynt að koma þeim i hár
saman. Þetta hefur reyndar verið
reynt hvað þá Pavarotti og Domingo
snertir, en hvorugur þeirra hefur haft
áhuga á slikum barnaskap. Þeir eru
báðir afburða söngvarar, hver á sinn
máta, og virða hvorn annan.
Skapaður fyrir
þotuöldina
Ferill þeirra hefur einnig þróast
með ólíkum hættí. Pavarottí hefur i
seinni tíö gerst þátttakandi i mikilli
fjölmiðlamaskínu, en Domingo er
ekki eins harður á því sviði þótt hann
hafi að visu sést syngja með Cliff
Richard og i fótbolta með Kevin
Keegan. Hann er hins vegar eins og
skapaður fyrir þotuöldina, flýgur vítt
og breitt um heiminn og syngur alls
staðar þar sem óperuhús er að finna,
oft á fjögurra eða fimm daga frestí
hverja óperuvertíð. Þetta er gifurlegt
áiag á einn söngvara en Domingo
virðist þrifast vel á stressinu. Aldrei
bilar flosmjúk röddin en á hinn bóg-
inn hefur mönnum sýnst hann
komast ódýrt frá leiknum f sumum
óperum.
Hver er svo munurinn á þessum
tveim frægustu tenórsöngvurum nú-
timans, Domingo og Pavarottí? Svo
skemmtilega vill til að hægt er að gera
beinan samanburö á þeim meö því að
hlýða á nýjustu plötur þeirra,
Verismo arias eftir Pavarotti (sem
fjallað var um hér fyrir stuttu) og'
Portrait of Placido Domingo sem er
safnplata frá EMI. Þar syngja þeir
nefnilega nokkrar sömu ariurnar,
þ.á m. hina undurfögru „Dai campi,
dai prati” úr Mefistofele eftir Bo'ito
og ariurnar tvær úr Manon Lescaut
eftir Puccini: „Tra voi belle” og
„Donna non vidi mai”.
Spánverjinn ítalskari
en ítalinn
Þá kemur i ljós að Spánverjinn
Domingo er eiginlega ítalskari í túlk-
un sinni, rödd hans er vörm og mjúk
eins og flossilki, sindrandi af tilfmn-
ingaiegri innlifun. Pavarotti er hins
vegar skyldari hinum svokölluðu nor-
rænu tenórum eins og Björling þvi
rödd hans er afskaplega tær og
silfruð og ef eitthvað er, er fram-
burður hans heldur skýrari en
Domingos. Pavarotti nýtur þess að
vísu að plata hans er tekin upp í digi-
tal-tækni fyrir nokkrum misserum en
á plötu Domingos eru upptökur allt
fráþvi 1971.
Allt um það er safnplata Domingos
hinn eigulegasti gripur og ber vitni
fjölhæfni, innlifun og nærfærni hins
spænska söngvara. Sama er hvar
borið er niður, i tregablandinn söng
Fásts úr samnefndri óperu Gounods,
í gáska Des Grieux í Manon Lescaut
(„Tra voi, belle . . .”) eða kveöju-
söng Cavaradossis úr Tosca, — alls
staðar er Domingo i toppformi.
Engin peð
En hrifmest er kannski áðurnefnd
túlkun hans á hlutverki Cavaradoss-
is, arlurnar „Dammi i colori” og ,,E
lucevan le stelle”, kveðjusöngurinn.
Þær upptökur eru jafnframt frá
þessu ári.
Með Ðomingo á plötunni eru
heldur engin peð, þ.á m. Lundúna-
sinfónian, hljómsveit Parisaróper-
unnar og Nýja fílharmónian ásamt
með stjórnendum á borð við James
Levine, Riccardo Muti, Carlo Maria
GiuUni og Georges Prétre. Portrait of
Placido Domingo kostar 162 krónur.
- AI
Sýningu Hafstelns Austmann afl KJarvalsstöðum
. lýkur næstu helgl. Hér er listamaðurinn að verkl.
ÁRBÆJARSAFN: Opið samkv. umtali. Sími 84412
milli 9 og 10 alla virka daga.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ v/Suðurgötu: Opiö
þriðjud., fímmtud., laugard. & sunnud. kl. 13.30—
16. Bogasalur: Sigurður Þorsteinsson gullsmiður.
Opiö fram 1 september á sama tima og safnið.
ITORFAN, veltingahús: Leikmyndir eftir ýmsa
laðila.
GALLERÍ GUÐMUNDAR, Bergstaðastræti 15:
Kristján Guömundsson, ný málverk, Rudolf Weiss-
!auer, ný grafík. Opið 14—18 alla virka daga.
MOKKA KAFFI, Skólavörðustig: Maria Hjalta-
dóttir. Opiö 9—23.30 alla daga.
LISTASAFN Einars Jónssonar, Skólavörðubolti:
Opið miövikud. & laugard. kl. 13.30—16.
t
I Telknlagar danska háðfnglsins Storm P. hafa
eflaust yljað mörgum um hjartarsetur en þser er að
' flnna I kjallara Norrsena hússins.