Dagblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981.
11
Aukaþing Sjálfsbjargar í Reykjavík 13. og 14. júnf:
HLUTIAF LEIKRIH FRUMFLUTTUR Á
ÚTIFUNDIFATLAÐRA fyrirheymaiiausa
1 tilefni alþjóðaárs fatlaðra heldur
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
aukaþing i Reykjavik dagana 13. og 14.
júni. Meðal dagskrárliða á þessu þingi
verður útifundur á Lækjartorgi laugar-
daginn 13. júní og hefsthannklukkan
13.30. Þar mun Alþýðuleikhúsið flytja
hluta af nýju leikriti sem frumflutt
verður næsta haust og ber nafnið
Sterkari en Súpermann.
Leikritið, sem Magnús Kjartansson
þýddi, fjallar um vandamál fatlaðra og
ófatlaðra. Höfundur þess er Bretinn
Roy Klift og var verkið frumflutt ytra
7. marzi fyrra.
1 fréttatilkynningu frá Sjálfsbjörgu
segir að allstór hópur fólks, þar á
meðal margir fatlaðir, hafi séð æfingu
á leikritinu fyrir skömmu. „Voru allir
sammála um að Alþýðuleikhúsið hefði
ekki einungis valið afburðagott verk til
sýningar heldur að það unga fólk sem
að sýningunni stendur hefði náð ótrú-
legum tökum á hinu vandmeðfarna
efni sem þarna er fjallað um,” segir i
fréttatiikynningunni.
Eftir síðustu áramót var stofnuð
samstarfsnefnd Alþýðusambands
íslands og Sjálfsbjargar með þremur
fulitrúum frá hvorum aðila. Hefur
nefndin unniö margvisleg störf til
undirbúnings framtiðarsamvinnu sam-
takanna. Má þar nefna drög að kröfu-
gerð um réttindi fatlaðra, sem lögð var
fyrir fyrsta fund i 34 manna samninga-
nefnd ASÍ sem undirbýr samninga
verkalýðsfélaganna á hausti komanda.
Útifundurinn á Lækjartorgi verður túlkaður á táknmáli fvrir heyrnarlausa, auk þess
sem ferðaþjónusta og aðstoð verður látin fötluðum í tc.
Bolvíkingar í söngferðalag til Færeyja:
SÖNGSTJÓRINN
MESSAÐI0G KÓR-
INN SÖNG UNDIR
Karlakórinn Ægir í Bolungarvík
skrapp út fyrir landsteinana nú um
hátiðina og hélt til Færeyja í söng-
ferðalag. Hélt kórinn fimm tónleika
en ferð kórsins stóð i fjóra daga.
Til Færeyja var haldið aöfaranótt
laugardags og daginn eftir hélt karla-
kórinn tónleika i Skálum. Á hvita-
sunnudag fór kórinn i ferð um eyj-
arnar og hélt tónleika i Þórshöfn.
Daginn eftir var kórnum boðið í
skemmtisigiingu um eyjarnar meö
Smyrli og ferðinni lauk með tónieik-
um í Skálum. Þar stóð þá yfir mikii
hátið, ekki ósvipuö þjóðhátið Vest-
mannaeyingja, og voru eiginkonur
kórfélaganna 22 í islenzkum þjóö-
búningum á hátiðinni. Vöktu þær
mikla athygli.
Auk nefndra þriggja tónleika hélt
kórinn tvenna i viðbót og voru aðrir
þeirra í kirkju. Messaði söngstjóri
karlakórsins, séra Gunnar Björns-
son, sem einnig er sóknarprestur í
Bolungarvik, en kórinn sá um söng i
kirkjunni.
Sem fyrr segir eru kórfélagar 22, en
alls var i ferðinni hálfur fimmti tugur
Bolvikinga. Færeyingar kostuðu
uppihald og gistingu en ferðirnar
voru fjármagnaðar með tónleikunum
fimm.
- SA / KF, Bolungarvik.
Kariakórinn Ægir frá Boiungarvík gerði góða ferö til Færeyja um hvítasunn-
Þá hefur verkaiýðshreyfingin tekið
virkan þátt i undirbúningi útifundarins
þann 13. og sýnt með þvi i verki vilja
sinn til samstöðu með fötluðum.
Sem fyrr getur hefst fundurinn kl.
13.30 en fundurinn verður túlkaður á
táknmáli fyrir heyrnarlausa. Fólki er
bent á að útvega sér aðstoðarfólk i tima
og athuga um flutning til og frá fundi.
Ferðaþjónusta og aðstoð verður veitt i
tengslum við fundinn og eru þeir sem
þurfa á aðstoð að halda beönir að hafa
samband við skrifstofu Sjálfsbjargar i
sima 17868 og 29133 sem allra fyrst.
-SA
PANTANIR OSKAST
SÓTTAR SEM FYRST
ÓDÝR EINANGRUN
Nú bjóðum við einnig upp á
mjög góða hijóðeinangrun /
tilsniðnum mottum í stærðinni
31/2"x57cm x243 cm.
Hin vinsæ/a
6" og 3 1/2‘
g/erufíar-
einangrun
m/áipappa
komin aftur
EINANGRUN
Sound Control Batts
AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 45810. (Ekið inn frá Nýbýlavegi).
I fyrsta sinn á Íslandi - Hinir heimsfrægu „AMERICAN"