Dagblaðið - 11.06.1981, Side 12
mmiABW
fijálsl, úháð dagblað
Útgefandi: Dagblaöið hf.
Framkvœmdastjórí: Svoinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson.
Aðstoóarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Ómar Vaidimarsson.
Skrifstofustjóri ritstjóman Jóhannes Reykdal.
íþróttir Haiiur Simonarson. Menning: Aðalsteinn IngóHsson. Aðstoðarfróttastjóri: Jónas Haraldssor
Handrit: Ásgrimur Póisson. Hönnun: Hilmar Karisson.
Biaðamenn: Anna Bjamason, Atil Rúnar Halldórsson, Atii Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig-
urðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elin Albortsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir,
Krístján Már Unnarsson, Sigurður Svorrisson.
Ljósmyndir Bjamleifur Bjamieifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorri Sigurðsson
og Svoinn Þormóðsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn ÞorieHsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. HalF
dórsson. DroHingarstjórí: Valgerður H. Svoinsdóttir.
Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur: Þverholti 11.
Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 linur).
Begin einangrar ísrael
Hinn gamli hryðjuverkamaður, Men-
achem Begin, forsætisráðherra ísra-
els, hefur farið hamförum í baráttunni
fyrir þingkosningarnar 30. júní. Hann
hefur beitt hinum fautalegustu brögð-
um og því miður náð hylli lýðsins að
nýju.
Fyrir þremur mánuðum virtist svo sem hin hægri
sinnaða Likud-samsteypustjórn Begins mundi kolfalla
í kosningunum. En nú hafa skipazt svo veður í lofti,
að talið er líklegt, að forsætisráðherrann muni halda
velli.
Fyrst tók Begin upp á því að níða erlenda þjóðarleið-
toga, einkum Helmut Schmidt, kanslara Vestur-Þýzka-
lands. Ofsafengnar og með öllu tilhæfulausar
skammir hans virtust falla í frjóan jarðveg Þjóðverja-
haturs í ísrael.
Síðan lét hann flugher ísraels skjóta niður herþyrlur
Sýrlendinga í Líbanon. Þetta var árás á annað land og
gerði að engu tilraunir Bandarikjanna til að koma á
friði í borgarastyrjöldinni í Líbanon. Einnig þá
fagnaði ísrael.
Síðasta og mesta óhappaverk Begins var að láta flug-
herinn ráðast á kjarnorkuverin, sem ítalir og Frakkar
hafa hjálpað írökum að reisa. Færustu sérfræðingar
úr hlutlausri átt telja þessi ver eingöngu hafa verið
nýtanleg á friðsamlegan hátt.
ísraelsmenn fögnuðu ákaft á götum úti, þegar þeir
fréttu af þessu nýjasta óþverrabragði Begins. Þeir
virðast orðnir svo helteknir af Massada-hugsun hins
umkringda, að þeir telji sig yfir almenn siðalög og
þjóðarétt hafna.
Margir góðir menn á borð við Anwar Sadat Egypta-
landsforseta og Jimmy Carter Bandaríkjaforseta
höfðu lagt mjög hart að sér við að draga úr spennu á
landamærum Israels. Allt þetta starf hefur Begin
sprengt í loft upp.
Með árásinni á írak einangraði Begin ísrael í heimin-
um. Til að bjarga stjórn sinni frá falli eyðilagði hann
hið viðkvæma jafnvægi heimshlutans. Hann kann að
sigra í kosningunum, en sá sigur felur í sér ósigur
ísraels.
Otraustieg vinnubrögð
Fyrirsögnin ,.Stálbræðsla er æskileg” var á leiðara
Dagblaðsins 4. maí, þar sem mælt var með þátttöku
manna í stofnun hlutafélags um framleiðslu steypu-
styrktarjárns. Fyrirsögnin fól í sér heildarniðurstöðu
leiðarans.
Stuðningur blaðsins var með þeim sjálfsagða fyrir-
vara, að verksmiðjan skyldi ekki njóta neinnar opin-
berrar verndar. Blaðið telur til ills, að hið opinbera
styðji starfsemi, ef hún leiðir til hærra vöruverðs eða
aukinna skatta.
Eitthvað hefur fyrirvarínn farið fyrir brjóst aðstand-
enda verksmiðjunnar. Einn þeirra, Elías Gunnarsson
verkfræðingur, hefur kvartað á prenti, kryddað óvið-
komandi dónaskap, sem segir töluverða sögu um
höfundinn.
í fumi greinarinnar ruglar hann saman áliti Dag-
blaðsins á salt- og steinullarverksmiðjum, sem birtist 1.
júní og áliti þess á stálbræðslunni frá 4. maí. Efasemd-
ir blaðsins voru miklum mun þyngri í garð fyrrnefndu
verksmiðjanna.
Hinu er ekki að leyna, að nýjar efasemdir hljóta að
vakna í garð stálbræðslumanna, þegar þar koma í ljós
strákar, sem verða sér til skammar á opinberum vett-
vangi út af eigin misskilningi. Slíkt fælir bara hluthafa
á brott.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981.
Mikið var skrifað i jslenzkum fjölmiðlum um niðurstöður Russel-dómstólsins um striðsglæpi Bandaríkjamanna i Indókina,
en minna er sagt frá nýlegum niðurstöðum sams konar dómstóls um stríðsglæpi Rússa i Afganistan, segir greinarhöfundur.
Sovétríkin dæmd
fyrir stríðsglæp
Það er kannski ekki i frásögur
færandi að alþjóðlega samsettur
dómstóll kveði upp úrskurð um strið
Sovétrikjanna á hendur Afganistan.
Hjá okkur yfirgnæfir striðið við
verðbólguna og stríðið flokkanna á
milli, um atkvæði, önnur strið og þá
ekki sist þau strið sem gerast i Langti-
burtulandi. Þó gerðist það hér á
árunum að sum blöð voru nokkuð
iðin við að tiunda fregnir af striðs-
glæpum i Indókina. Þá var, ef mig
misminnir ekki, sagt vel frá störfúm
dómstóls þess er kenndur var við rit-
höfundinn Russel, en sá dómstóll
fjallaði oftar en einu sinni um striðs-
glæpi Bandarikjanna i Indókfna.
Nú bar svo við að Permanent
Peoples Trlbunal (PPT) hélt slna
sjöttu ráðstefnu i Stokkhólmi 1,—3.
mai sl. Verkefnið var að yfirheyra
vitni og sérfræðinga um strfðsrekstur
Sovétrikjanna í Afganistan og kveða
upp úrskurð. Ég hef ekki séð fjallað
um dómstól þennan f dagblöðum, og
þó svo hafi verið gert er allt i lagi að
bæta við.
Hverjir dœmdu?
Ef að likum lætur má búast við að
einhverjir rússadindlar ati slíkt til-
tæki sem Afganistan-vitnaleiðslurnar
auri og uppnefni það sem handbendi
Reagans, svipað og gert var er
Russel-vitnaleiðslurnar um stríðs-
rekstur Bandaríkjamanna í Indókina
voru af kanadindlum uppnefndar
sem verkfæri Rússa. Það er því ekki
úr vegi að kynna, þó ekki annað en
nokkur nöfn þeirra er við sögu komu
við Afganistan-vitnaleiðslurnar í
Stokkhólmi.
Formaður ráðstefnunnar i Stokk-
hólmi var Francois Rigaux prófessor
i alþjóðarétti í Belgiu, en hann er
einnig formaður PPT. Þrír dómar-
anna eru þekktir frá Russel-réttar-
höldunum um striðsglæpi Bandarikj-
anna. Þeir eru Vladimir Dedijer, rit-
höfundur og sagnfræðingur frá
Júgóslaviu, en hann á upphaflega
frumkvæðið að þessum vitnaleiðsl-
um. Leo Matarasso, prófessor i
lögum frá Frakklandi, og Laurent
Schwartz, franskur stærðfræðingur.
Aðrir dómarar voru m.a. Richard
Baumlin, stjórnarskrárlögfræðingur
frá Sviss, Eduardo Gallans, rithöf-
undur frá Uruguay, Ernesto Mela
Antunes, fyrrv. utanríkisráðherra
Portúgals, Anjit Roy, blaðamaður og
rithöfundur frá Indlandi, George
Wald, líffræðingur og nóbels-
verðlaunahafi í læknavísindum 1967
frá Bandarikjunum, erkibiskupinn i
Mexikó Sergio Mendez Arco,
Denchik Medjid, lögfræðingur frá
Alsír.
Albert Enarsson
Vitnaleiðslur
og skýrslur
í þrjá daga voru vitni yfirheyrð og
sérfræðingar fluttu skýrslur sinar.
Þær ákærur sem dómararnir áttu að
taka afstöðu til voru:
— Hafa Sovétrikin brotið gegn al-
þjóðalögum með því að ráðast inn i
Afganistan?
— Hafa Sovétrikin brotið gegn
lögunum um mannúð í striði, með
striðsrekstri sinum í Afganistan?
Frásagnir vitna þeirra sem komin
voru frá vigvellinum í Afganistan eru
í flestu sláandi likar og þær sem vitni
sögðu frá við hliðstæð réttarhöld um
striðsrekstur Bandarikjanna í Víet-
nam, bæði bandariskir hermenn og
Víetnamar.
Mohammed Rahim Henar frá mið-
hluta Afganistan sagði frá atburðum
i Hazarajat:
— Ég var fangelsaður í upphafí
stjómartiðar Tarakis. Þá var barátta
okkar enn i burðarliðnum og ekki
skipulögð. Síðar varö hún umfangs-
meiri og þá hafði stjórnin ekki tíma
til að yfirheyra alla og jafnvel ekki
einu sinni til að lifláta alla fanga.
Þeim var bara ekið lifandi í grafirnar
og ýtt yfir með dráttarvél. Maður sá
jörðina iða í hálftima á eftir. Það var
óhugnanlegt að sjá þetta.
I skýrslu sinni um brot Sovétríkj-
anna á alþjóðalögum sagði Joe Ver-
hoeven, prófessor í alþjóðarétti,
m.a.:
— Innrás Sovétrikjanna i Afgan-
istan uppfyllir engin skilyrði greinar
51 í iögum Sameinuðu þjóðanna, um
réttinn til sameiginlegra sjálfsvama.
Sovétrikin hafa heldur aldrei lagt
fram nokkur gögn er staðfesta að
Afganistan hafi óskað eftir því að
Sovétrikin gripi inn í.
Ríkisstjórn getur heldur ekki beðið
0 „Þá komu fram uppiýsingar um að
fangar væru iíflátnir án dóms og laga og
um hryðjuverk.”
annað land um hernaðaraöstoð ef
það hefur i för með sér meiri skaða
fyrir íbúana en sú ógn sem verjast á,
gerir. Ihlutun óviðkomandi valds I
innanlandsátök er i algerri andstöðu
við allt sem heitir alþjóðaréttur,
sagði Joe Verhoeven.
Rannsóknarnefnd, sem fjár-
mögnuð var af blaði ítalska Sósial-
istaflokksins, Mondo Operaio, og
var I Afganistan frá 20. des. 1980 til
3. mars 1981, greindi frá þvi að allir
þjóðfélags- og pólitískir hópar væru
með i samfylkingunni gegn innrás
Sovétrikjanna I landið. Sovétríkin
hafa einnig sett upp stjómkerfi við
hliö þess afganska og ræöur þvi al-
gerlega. Þannig er t.d. afganska
utanrikisráðuneytinu stjómað af
Valdimir Safrontjuk í sovéska sendi-
ráðinu.
Rannsóknarnefndin fann engar
sannanir fyrir þvi að afganska and-
stöðuhreyfingin fengi vopnaaðstoð
frá, hvort sem er Pakistan eða Kfna,
eins og Sovétríkin fullyrða. — Við
höfum séð fólk sem illa er farið eftir
napalmsprengjur, sagði Carlo Di
Meana fulltrúi nefndarinnar og lagði
fram Ijósmyndir til sönnunar. Þá
greindi nefndin frá þvi að hún hefði
fyrirhitt fólk illa farið eftir flisa-
sprengjur.
Innrósin fordœmd
Jafnframt þvi sem innrás Sovét-
rikjanna i Afganistan er fordæmd og
fordæmingin rökstudd með tilvisun-
um til þess á hvem hátt hún brýtur i
bága við alþjóðleg lög, var niður-
staða dómstólsins sú að senda rann-
sóknarnefnd til Afganistan til frekari
rannsóknar á stríðsglæpum. Mörg
vitnanna skýrðu frá notkun vopna
sem em alþjóðlega bönnuð svo sem
eiturgas og ýmsar tegundir sprengja.
Þá komu fram margar upplýsingar
um að fangar væru liflátnir án dóms
og laga og um hryðjuverk.
Dómararnir fjórtán, frá Evrópu,
Asíu, N- og S-Ameriku og Afriku,
skiluðu frá sér úrskurði i 30 bls. riti,
þar sem öll þau gögn sem dómsúr-
skurðurinn byggist á eru birt.
Gegn strfði og
innrós
Allstór hópur fólks tók þátt i þvi
fyrir 5—10 árum að andæfa innrásar-
stríði Bandarikjanna i Indókina.
Flestir gerðu þetta af tvenns konar
ástæðum. Annars vegar gegn stríðs-
rekstri og hins vegar til að styðja al-
þýðu þessara landa i réttlátri baráttu
gegn innrásaröflum og fyrir þvi að
ráða málum sínum sjálf. Gildir ekki
það sama í dag um innrás Sovétrikj-
anna i Afganistan?
Auk þess að kveða upp ítarlegan
úrskurð sendi PPT-ráðstefnan i
Stokkhólmi frá sér hvatningarávarp
þar sem hvatt er til stuðnings við
sjálfsákvörðunarrétt afgönsku
þjóðarinnar og réttar ibúa E1 Salva-
dor og annarra þjóða i heiminum til
frelsis til að ráða eigin málum. Þá var
hvatt til baráttu gegn uppskiptingu
jarðarinnar i andstæðar blokkir. í
ávarpinu segir að slik barátta gefi von
um nýjan og betri heim.
Albert Einarsson
kennari