Dagblaðið - 18.06.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 1981.
5
Nýtt samnorrænt bókmennta-
tímarit á ensku í burðarfiðnum
Við islendingar kvörtum iðulega
yfir þvi að okkar ágætu bókmenntir
komi aldrei fyrir augu alheimsins og
eigum þá í fiestum tilfellum við hinn
enskumælandi heim. Af islenskum
rithöfundum á Laxness einn visar
enskar þýðingar á bókum sinum og
aðeins tvö tlmarit, Scandinavian
Review og Iceland Review, birta
islenskan skáldskap á ensku, en mjög
óreglulega þó.
Nú bendir ýmisleg til þess að á
þessu verði breyting til batnaðar. Hér
á landi er staddur breskur rithöf-
undur, búsettur i Sviþjóð, Jeremy
Franks að nafni, ritstjóri ársQórð-
ungsrits er nefnist Swedis Books. Á
mánudag hélt hann fund með blaða-
mönnum og fulltrúum Rithöfunda-
sambands íslands til að kynna nýtt
bókmenntarit á ensku sem væntan-
lega kemur út að ári.
Þjónar hagsmunum
margra
Nefnist það Northern Lights Re-
view og á að birta skáldskap frá
Norðurlöndunum öllum, þ.á m. frá'
Færeyjum, Grænlandi og Lapplandi.
Northem Lights Review, sem
verður i dagblaðsformi, á annað-
hvort að koma út ársfjórðungslega
eða á tveggja mánaða fresti með
löngu sumarhléi og að þvi er Jeremy
Franks sagði, á það að brúa bilið
milli almennra rita um norrænar bók-
menntir og fræðirita. 1 þvi á að vera
rúm fyrir smásögur, kafla úr skáld-
sögum, ljóð, leikrit, ritgerðir og ann-
að efni bókmenntalegs eðlis, svo sem
viðtöl við höfunda, útgefendur,
Þeir Njörður P. Njarðvik, Jeremy Franks og Sigurður A. Magnússon á blaða-
mannafundi i Norræna húsinu vegna hins nýja bókmenntatimarits.
DB-mynd Gunnar Örn.
fræðimenn og menningarpólitikusa
og á ritið að geta þjónað hagsmunum
allra þessara hópa.
í ritnefnd eru nokkrir þekktir
höfundar, Poul Borum frá Dan-
mörku, Magnus Hedlund frá Sví-
þjóð, Carl-Gustaf LOius ftá Finn-
landi, Sigurður A. Magnússon frá
Isiandi, Pentti Sarikoski frá Finn-
landi og Einar Ökland frá Noregi.
Góðir þýðendur óskast
Sagði Franks að Norræni menn-
ingarsjóðurinn hefði gefið góð orð
um að styrkja fyrirtækið og sagði að
helsta vandamálið yrði að hafa upp á
reglulega góðum þýöendum. Lýsti
hann yfir sérstakri ánægju með dvöl
sína hér og þær viðtökur sem hann
hefði fengið hjá öllum þeim aðilum
sem hann hefði talaö við. Þeir
Sigurður A. Magnússon og Njörður
P. Njarðvík, formaður Rithöfunda-
sambands Islands, fögnuðu þessu
framtaki Franks og sögðust báðir
binda við það miklar vonir.
- AI
Sníkjuvespa íheimsókn í Breiðholtinu
Edda Birna Eggertsdóttir, 9 ára fbúi i
Þórufelii 8, fann þessa sjaldgæfu flugu
fyrir utan hús sitt um helgina. Á Nátt-
úrufræðistofnuninni fengust þær upp-
lýsingar að hér væri um svonefnda
snikjuvespu að ræöa. Berst hún hingað
til lands með timbri. Á Náttúrufræði-
stofnunin nokkur eintök slikra flugna.
Vespan er um 3 cm að búklengd en
aftur úr búknum stendur ca 4 cm
langur hali. Vespan hefur fjóra vængi
og er allógnvekjandi þegar hún er ekki
lokuð niðri í krús eða öðru íláti.
Hér getur að líta vespuna í hön ím
föður Eddu Birnu, en Edda er á minni
myndinni.
-DB-myndir Einar Ólason.
Seyðisfjörður
Umboðsmaður óskast frá 1. júlí á Seyðis-
fjörð. Uppl. í síma 97-2428 eða 91-27022.
MSBIABa
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
vekur athygli félagsmanna sinna á námskeiði
sem haldið verður samkvæmt ákvæðum í kjara-
samningi og veitir rétt til kauphækkunar.
Námskeiðið er ætlað afgreiðslufólki, sem hefur
náð efsta þrepi í 9., 11. og 13. launaflokki. Þó
getur vinnuveitandi heimilað starfsfólki að sækja
námskeiðið eftir styttri starfstíma.
Námskeiðið verður haldið 22. júní til 10. júlí í
Verzlunarskóla íslands.
Þátttökugjald er greitt af vinnuveitendum og
ber þeim að skrá afgreiðslufólk á námskeiðið hjá
Kaupmannasamtökum íslands fyrir 18. júní nk.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur.
BMW520
BMW316
Renault 20 TL
Renault 14 TL
Renault F4 Van
Renault 12 station
Renault 12 station
árg. 1980
árg. 1980
árg. 1979
árg. 1979
árg. 1978
árg. 1974
árg. 1977
Renault4 TL
Renault 4 Van F6
BMW320
árg. 1980
árg. 1978
árg. 1980
Vantar BMW bifreiðir
á söluskrá.
Opið laugardaga frá kl. 1—6.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
TIMBUR
FRÁ KANADA HÖNNUÐ
FYRIR ÍSLENZKAR AÐSTÆÐUR
Einbýlis- og parhús út-
vegum við frá Kanada
með stuttum jyrirvara.
Leitið upplýsinga og
gerið verðsamanburð.
16 GERÐIR
eldhúsinnréttinga, all-
ir skápar og inni- og
útihurðir fylgja.
SÖLUAÐILI:
HÚSAMIÐLUN
Símar 11614 og 11616