Dagblaðið - 18.06.1981, Page 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ1981.
Göngum bjartsýn
á laugardagmn
/~~l'
Og nú skal lagt af stað í Kefla-
víkurgöngu einu sinni enn. í ár er það
friðarganga á vegum Samtaka her-
stöðvaandstæðinga þann 20. júní
(næsta laugardag) með framhaldi á
næstu blaðsíðu i almanakinu um
Kaupmannahöfn alla leið til Parísar.
Það verða ekki margir, sem eiga tök á
að vera með alla þá leið, en það geta
allir sem andvígir eru afskiptum ís-
lendinga af hernaðarbrölti verið með
í göngunni til Reykjavíkur. Þann dag
þurfum við helst að hafa rjómalogn
og sólskin svo gangan geti orðið sem
fjölmennust og skemmtilegust og
mannleg samskipti í því hámarki sem
tilefni gefst til. Þarna hittast baráttu-
félagar af öllum gerðum til að rifja
upp, áætla og treysta samstöðuna.
Flestir verða auðvitað vígreifir og
baráttuglaðir og vonandi verða engir
með voteygir af svartsýni því flestir
sem þannig þenkja setja strax þann
fyrirvara að það borgi sig betur að
liggja heima, enda fer best á því,
menn eiga að ganga fram sigurvissir
og fulhr bjartsýni.
Fyrirvarar
Ég hef alltaf haft þá skoðun að
barátta gegn hersetu á íslandi og
þátttöku okkar íslendinga í fjöl-
þjóðamorðklúbbi (NATÓ) eigi og
verði að vera óbundin af fyrirvörum
og skilyrðum sem sumir freistast til
að vera alltaf að setja fyrir þátttöku
sinni. Mér hefur þótt það gefa til
kynna heldur veika trú á málstaðinn
að vera sí og æ að setja fyrirvara eða
heimta að öllum þeirra andskotum sé
sveiað um leið í nafni Samtaka her-
stöðvaandstæðinga, annars verði þeir
ekki með. Það sem einum finnst of
finnst öðrum van og þegar maður
þannig getur fundið aðferðafræðun-
um sitthvað til foráttu er auðveldur
eftirleikurinn að hreiðra um sig nota-
lega á gamla sófagarminum og láta
aðra um bjástrið.
Við þurfum nefnilega ekkert að
vera að láta vonleysi ná tökum á
okkur í baráttunni þvi einmitt nú eru
augu fólks um allan heim að opnast
gagnvart þeirri fásinnu og brjálæði
sem felst i því að láta vopnasala móta
viðhorf ráðamanna voldugra rikja.
Fólki hefur skilist sú tortímingar-
hætta sem vofir yfir öllu mannkyni ef
hugmyndir slíkra manna um „tak-
markað kjarnorkustríð fá aukinn
meðbyr. Og það sem meira er, fólki
er smátt og smátt að verða ljóst sam-
hengið milli þess háttar glæfra-
mennsku og þeirrar skammsýnu
hugsunar sem felst í rányrkju á
gæðum jarðar og eyðileggingu lífríkis
með eitrun af völdum úrgangs.
Gott fordæmi
Islendingar gáfu þjóðum heims
gott fordæmi þegar þeir færðu ein-
hliða út fiskveiðilögsögu sína til
vemdunar hagsmunum sínum og
gegn rányrkju og eyðileggingu fiski-
miðanna. Við höfum lagt fram drjúg-
an skerf til friðsamlegrar lausnar og
alþjóðasamninga um rétt strandrikja
til verndunar á auðæfum hafsins og
skynsamlega nýtingu þeirra. En allur
sá ávinningur, sem þannig hefur
náðst, getur orðið að engu fyrir okk-
ur ef fiskimiðin mengast af geisla-
virkum úrgangi t.d.
Kjallarinn
Rúnar Ármann
Arthursson
Það er helst að skilja að sú herstöð,
sem hér er staðsett, hafi einkum því
hlutverki að gegna að fylgjast með
umferð í og á og yfir hafinu í
kringum okkur með alls kyns tólum
svo hægt sé að vara þá við fyrir vest-
an haf ef eitthvað gruggugt er á seyði,
t.d. ef flugvélin rússneska sem Mogg-
inn tók mynd af fyrir 25 árum sést
hér á sveimi, en samkvæmt fréttum
þess blaðs gerist það nokkrum
sinnum á ári, tíðast rétt fyrir kosning-
ar. Þessi sömu tæki á svo lfka að vera
hægt að nota til að stjórna stríði. ís-
lendingar hafa enga tryggingu fyrir
því að hér séu ekki geymd kjarnorku-
vopn á vegum Ameríkana og það má
telja það nokkuð vist að farartæki,
sem flytja slík vopn fyrir þá, séu á
sveimi á og i og yfir hafinu i kringum
okkur sem hefur að geyma mikilvæg-
ustu náttúruauðlind okkar, fiski-
stofnana. Þama úti eru tröll að leika
sér með fjöregg þjóðarinnar.
Kjarnorkuslys
Það er stutt síðan ameríski kjarn-
orkukafbáturinn George Washington
sökkti japönsku flutningaskipi i
árekstri undan ströndum Japans. Þar
hefði getað orðiö kjarnorkuslys því
kafbáturinn er ekki einasta kjarn-
orkuknúinn heldur flytur hann lika
k jarnor kueldflaugar.
Eigum við að bíða eftir þvi að það
verði slys undan ströndum íslands
þar sem geislavirkur úrgangur eyði-
leggur möguleika á nýtingu fiskimið-
anna til lengri tíma? Eða eigum við
að byrja strax að berjast fyrir því að
landið og hafsvæðið i kringum það
verði friðað fyrir allri umferð hem-
aðarfarartækja? Slfk friölýsing er að
minu mati ekki síður nauðsynleg en
útfærsla landhelginnar var á sínum
tíma og gæti um leið orðið mjög
mikilvægur skerfur f þágu heimsfrið-
ar.
Þetta eru hlutir sem allir ættu að
geta orðið sammála um, en auðvitað
munu hernámssinnar tjalda sínum
rökum og tala um barnalega ósk-
„Friðlýsing Norður-Atlantshafsins til
verndar lífsafkomu íslensku þjóðarinn-
ar.
hyggju, öryggishagsmuni landsins og
jafnvel atvinnuhagsmuni Keflvfk-
inga.
Ég sé ekki betur en að með friðlýs-
ingu í framkvæmd mætti taka til
greina bæði öryggishagsmuni og at-
vinnuspursmál, en þá væri hin barna-
lega óskhyggja líka orðin úthugsuð
staðreynd.
Við skulum reikna meö því að
sakir vináttu amerísku þjóðarinnar í
garð íslendinga, sem m.a. kemur
fram ! meintri löngun hennar til að
vernda okkur, þá verði þeir lfka svo
vinsamfegir að eftirláta íslendingum
öll sín hlerunartól þegar þeir fara
héðan. Þessi tæki munum við svo
nota til að fylgja eftir væntaniegum
samþykktum Sameinuðu þjóðanna
um friðlýsingu N-Atlantshafsins og
séu þau jafngóö til sins brúks og af er
látið ættu þau aö duga til að stugga
burt allri óæskilegri umferð jafnt
Ameríkana sem Rússa, og um leið
vara við öllum þeim skuggaböldum
sem á okkur kynnu að vilja ráðast
þannig að hjálp gæti borist i tíma.
Stöðin á Miðnesheiði og aðrar varð-
stöðvar á fslandi yrðu þannig reknar
af Sameinuöu þjóðunum tU að fylgja
eftir friðlýsingunni, en öU þau störf
sem við getum mannað yrðu unnin af
íslendingum sjálfum, þannig að at-
vinna af þessu yrði vísast meiri en nú
er að hafa hjá ameríska hernum.
Ég vona að af framansögðu hafi
öllum sem þetta lesa skUist að það eru
ekki draumóramenn með steinfóstur
f kviði sem ætla að ganga I friðar-
göngunni á laugardaginn kemur. Það
verður gengið tU að sýna fram á að
þeir sem þar fara meina það sem þeir
segja um brottför ameríska hersins
og úrsögn úr NATÓ og eru til i að
rökræða þá skoðun við hvern sem er
hvar sem er og benda á þá valkosti
sem við höfum f staðinn fyrir hernám
og samábyrgð á manndrápum.
Barátta okkar gegn hersetunni og
NATÓaðUd er friöarbarátta sem allir
ættu að geta stutt hvar f flokki sem
þeir standa því hér er um framtiö ís-
lands, lífshagsmuni okkar og barna
okkar að tefla.
ísland úr NATÓ — herinn burt.
Rúnar Ármann Arthursson.
kennari.
Rauði bjöminn í austri
Kommúnistarnir í Kreml hafa átt
margar andvökunætur að undan-
förnu vegna ástandsins og þróunar
mála í PóUandi. Dauðinn í brjósti
kommúnismans er borinn í einni
aðalyfirsjón Marx en hann gleymdi
gjörsamlega þvi furðufyrirbrigði i
mannlegu lffl sem valdið er og eðli
þess. Hann gerir ráð fyrir að valdið
breytí um eðU þegar það er komið f
hendur „verkamanna og bænda” og
alhr sem með það fari úr þessum
þjóðfélagsstéttum, séu algóðir. Ef til
vill las hann aldrei hið sígilda verk
um valdið, prinsinn, eftir Machia-
veUi. En raunin hefur nú kennt heim-
inum nokkuð annað. Hinir algóðu
fulltrúar öreiganna hafa yfirleitt
hrifsað völdin með blóðsúthelUngum
og ofbeldi og dregið sér til handa alls-
herjarvald á öUum sviðum þjóðlífs-
ins. Lenin og félagar sáu f hendi sér
möguleikana á allsherjarvaldi vald-
hafanna í riki sósiaUsmans og sviku
samstundis öll loforð og aUar vonir
hinna mörgu þjóðfrelsishreyfinga f
Rússlandi keisarans. Og I stað þess að
veita hinum ýmsu þjóðum sjálfstæði,
eins og gert var í austurrísk-ung-
verska keisaradæminu, bjuggu þeir
tíl svindlkerfið, „Samband hinna
sósíalísku Sovétlýðvelda”. En það
dylst engum, sem tU þekkir, að þar er
ein herraþjóö, Stór-Rússarnir, sem
drotma yfir öUum hinum þjóðunum
innan Sovétsambandsins, eins og t.d.
Úkraínumönnum, Georgiumðnnum,
töturum. Þetta undirokunarkerfi
Rússa í nafni sósíaUsmans var svo
fært út yfir 100 miUjónir manna i
Austur-Evrópu í lok heimsstyrjaldar-
innar. Brestír hafa komið í þetta
kerfi sem hefur útheimt rússneskt
hernaðarofbeldi. Austur-Berlfn 1953,
Ungverjaland 1956og Tékkóslóvakfa
1968. Og nú virðist röðin komin að
Póllandi.
Þróunin í Póllandi
Atburðarásin f PóUandi er ekki
eingöngu ógnun við kommúnista-
stjórnina í Varsjá, ekki sfður við aUt
valdakerfi Rússa f allri Austur-
Evrópu. Hin gjaldþrota komm-
únistastjórn í Varsjá hefur ekki treyst
sér tíl þess að láta tU skarar skriða
gegn frelsisöflunum í Póllandi, þar
sem hún virðist vera búin að ganga
sér algjörlega til húðar og ekki bjóða
upp á neitt í framtíðinni nema áfram-
haldandi og ennþá frekari kúgun á al-
menningi þar sem andstaða gegn
stjórninni vex stöðugt og mundi enda
1 algerri efnahagslömun pólsku
þjóðarinnar. Stjórnin í Varsjá á það
ekki lengur vlst að hún eigi traust f
leynilögreglu og her tU þess að fram-
kvæma áframhaldandi og vaxandi
kúgun. Ógnarstjóm án böflla er
einskis nýt. Því er eitt aðalmálið hjá
Samstöðu frá byrjun að böðlarnir
verði sóttir tíl saka og látnir bera
ábyrgð á böðulsverkum sínum, sbr.
kröfu um réttarhöld í Bdgorsk. Hver
gaf fyrirskipunina um árás lögregl-
unnar á almenning? í dag þarf mikið
tíl að lögregluforingi eða flokksleið-
togi gefi fyrirskipun um skotárás lög-
reglu á mótmælagöngumenn sem
haft gætí í för með sér morð á
óbreyttum borgurum. Það er erfitt að
hugsa sér að sUk fyrirskipun yrði
gefln í dag í PóUandi.
Afleiðingin af valdleysi stjómvalda
og samstöðu þjóðarinnar gegn sinni
eigin ríkisstjórn er sú að gera á
tilraunir tU að færa valdakerfi
kommúnistaflokksins og skipulagn-
ingu alla tU lýðræðislegri átta. Þvi á
að halda sérstakan fund Kommún-
istaflokks PóIIands um miðjan næsta
mánuð þar sem stendur til að gera
kerfisbreytingar á valdakerfi flokks-
ins, meðal annars að enginn foringi
megi sitja lengur en 2 kjörtímabil,
hvert í 5 ár. Þessi kerfisbreyting
mundi hreinsa út alla aðalforingjana
i Kommúnistarikjunum í Austur-
Evrópu, Breznev meðtalinn. Val full-
trúanna á flokksþingið skal einnig
vera lýðræðislegra. Þessar breytingar
em alvarleg ógnun við miðstjórnar-
vald Flokksins og allt valdakerfi
Rússa. Þvi eru Rússar byrjaðir á al-
varlegum afskiptum af innanrikis-
málum f Póllandi með orösendingum
og bréfaskriftum i sambandi við
fuUtrúaval og árásir á gerðir Sam-
stöðu sem eru innan ramma skrifaðra
pólskra laga og framkvæmdar skv.
samningum og réttindum viður-
kenndum af rfkisstjóm PóUands.
Jafnvel stöðu Kania flokksleiðtoga
var ógnað af Rússaleppum fyrir
nokkrum dögum. Og nú, þegar þetta
er skrifað, hefur verið skipt um 5 ráð-
herra f pólsku rfkisstjóminni. Því
virðist svo að Rússar hafi engum ár-
angri náð með afskiptum sfnum aö
sinni. Og því lítur út fyrir að sérþing
Kommúnistaflokks PóUands, sem
ganga á frá skipulagsbreytingum
flokksins, verði haldið f næsta
mánuði.
Svo virðist i dag sem ekkert geti
snúið við þróuninni i Póllandi nema
rússnesk hernaðarinnrás. En
ákvörðun um hana er erfiðar og af-
drifaríkari fyrir „Gúlagforstjórana”
en nokkur önnur ákvörðun er þeir
hafa staðið andspænis að taka frá
upphafi sinnar tilveru. Öteljandi
spurningar vakna við slika spum-
ingu. Berst pólski herinn? Verður
hreint blóðbað i Póllandi? Hvemig á
að réttlæta slikt rússneskt blóðbað í
Póllandi? Horfir hinn frjálsi heimur
aðgerðalaus á rússneska slátrun á
Pólverjum? Er hugsanlegt að hinn al-
menni rússneski hermaður fáist ekki
til framkvæmda á níðingsverkinu eða
geri það meö hangandi hendi? Hvað
skeður i hinum leppríkjunum i
Austur-Evrópu? Megna Sovétríkin
að bera þær efnahagsbyrðar sem inn-
rásinni verða samfara sem getur þýtt
fæði og klæði tU handa 30 milijón-
um manna? Verður útkoman alls-
herjarverkfall pólsku þjóðarinnar á
komandi árum? Er hernaðarinnrás ef
til vUI engin lausn í pólska tilfellinu?
Er engin lausn til önnur en aukið
frelsi? Er þá rússneska ógnarkerfið
að ganga sér hér til húðar? Er komið
upp á yfirborðið í PóUandi það þjóð-
félagskrabbamein er mun draga
ógnarstjórnkerfi rússnesku kommún-
istanna tU dauða? Hver verður af-
staða almennigns f Sovétríkjunum?
Við innrás í Pólland, breytist þá ekki
fmynd hundraða milljóna um allan
heim á Rússum, sem framvörðum
heimsbyltingar kommúnismans, í
ímynd rússneskra böðla með tvöföld-
um keisaralegum heimsveldisstimpli?
Hverra kosta völ á ríkisstjórn sem
sækir eingöngu styrk sinn i vélbyssur,
skriödreka, táragas og fangelsi?
Lokaorð
Það hörmulega við þau örlög, sem
pólska þjóðin nú býr sér, er að hún
getur engan styrk sótt til hins frjálsa
heims i valdslegu tilliti því engin sam-
ræmd stefna og samræmt afl er til á
Vesturlöndum gegn hugsanlegum
ódæðisverkum Rússa. Ein og ein
yfirlýsing berst frá utanríkisráöherra
Bandaríkjanna, þó svo loðin og lftið
afgerandi að ekki er að sjá að Rússar
þurfi neitt verulegt að hræðast í
þeim. Þvf er það vald og styrkur þau
öfl er orsaka vanda „Gulagforstjór-
anna”, sá styrkur er felst i pólsku
þjóðinni sjálfri.
Pólska þjóðin hefur margendur-
tekið á umliðnum öldum verið
örlagavaldur evrópskrar sögu. Ef tíl
vill verða örlög Evrópu og heims-
byggðarinnar ráðin í Varsjá eftir 4
vikur.
Pétur Guöjónsson.
Rússalepparnir ógnuðu jafnvel stöðu Kania flokksleiðtoga.
A „Stjórnin í Varsjá á þaö ekki lengur víst
^ aö hún eigi traust í leynilögreglu og her
til þess að framkvæma áframhaldandi og vax-
andi kúgun.”