Dagblaðið - 18.06.1981, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ1981.
FÓLK
Snyrtijrœðingar
í Parísarreisu
Þarna er hópurinn fyrir utan Versali. Talið frá vinstri Sigriður Kristmanns, Halldóra Guðmundsdóttir, franskur
fararstjóri, Ása Magnúsdóttir, Erna Einarsdóttir, Guðrún Skarphéðinsdóttir, Maria Kristmanns, Bryndis
Friðþjófsdóttir, Helga Sigurbjörnsdóttir, Brynhiidur Þorsteinsdóttir, Sólveig Einarsdóttir, Ölafia Magnúsdóttir
ogÁgústa Guðmundsdóttir. íhópinn vantar Ernu Guðmundsdóttur.
Komið var með Ijósmyndir sem teknar höfðu verið i ferðaiaginu. A mynd-
inni eru Bryndis Friðþjófsdóttir snyrtist og verzi. Nana, og Sólveig Ein-
arsdóttir, snyrtist Dana, Keflavík. DB-myndir Einar Ólason.
Kvenleg fegurð og rómantískur
stlll ræður ríkjum í tízkuhciminum í
París þessa stundina. Litirnir sem eru
rikjandi hjá tízkuhúsi Nina Ricci á
vorsýningunum eru svart, hvítt og
stórrósótt sjiffonefni, leikandi létt.
Litirnir í andlitsförðun eru rauð-
gyllt, gult, grænt og appelsinugult.
Förðunin er mild og finleg og aðal-
áherzlan er lögð á að hafa hana sem
eðlilegasta og draga fram þaö feg-
ursta í andUtinu.
Sjapiinarnir úr Borgarneshljómsveitinni Chaplin framan við Höfða i
Reykjavik: sniðugu tjaldað um verziunarmannaheigina.
-Ljósm.: Björgvin Pálsson.
Hljómsveitin Chaplin frá Borgarnesi:
Senda frá sér litla
plötu í nœstu viku
— og veröa á stöðugum feróalögum í sumar
Hljómsveitin Chaplin úr Borgar-
nesi sendir frá sér í næstu viku sína
fyrstu plötu. Það er tveggja laga
plata og lögin heita Teygjutwist eftir
þá Ævar Rafnsson og Magnús
Baldursson og 12612 eftir Hafþór
Helgason knattspyrnukappa úr Vík-
ingi.
Hljómsveitin Chaplin verður
þriggja ára i haust. Hún kemur nú
aftur fram á sjónarsviðið eftir hlé í
vetur. Um næstu helgi fer hljómsveit-
in í ferðalag um landið og verður
fyrsti viðkomustaðurinn Vestfirðir.
„Við erum bókaðir allar helgar í
sumar alveg fram í september,” sagði
Ævar Rafnsson bassaleikari hljóm-
sveitarinnar i samtali við Fólk-síð-
una.
Aðrir meðlimir hennar eru Magnús
Baldursson saxófónleikari, Kristján
Edelstein sem leikur á pianó og gítar,
Gunnar Ringsted sem einnig leikur á
píanó og gítar, Kári Waage söngvari
og Halldór Hauksson trommari.
„Magnús Baldursson er nýkominn
heim frá Þýzkalandi og um verzl-
unarmannahelgina munum við
væntanlega tjalda svolitlu sniðugu
sem hann kom með sér þaðan,”
sagði Ævar ennfremur. í júli verða
þeir félagar á Húnavatnsgleði ásamt
hljómsveitinni Friðryk.
— Er stór plata væntanleg í kjöl-
farþeirrarlitlu?
„Það er aldrei að vita. Ennþá
höfum við ekki rætt það, við munum
að minnsta kosti sjá hvernig þessi
litla gengur. Svo er aldrei að vita
hvað maðurgerir.”
Chaplin-platan er gefin út af þeim
sjálfum, Hljóðriti tók upp og Alfa sá
umpressun.
-ELA
Helgi Hermann sigurvegari í spurningakeppni úr Gamla testamentinu:
Það eru auðvitaö snyrtisérfræðing-
ar sem sjá um að halda kvenfólkinu,
og kannski karlmönnunum einnig,
fallega snyrtum. Snyrtivörur hf.
efndu til hópferðar snyrtifræðinga á
dögunum. Fyrirtækið skipulagði
heimsóknir til fyrirtækja sem það
hefur umboð fyrir í París, Germaine
Monteil, Orlane og Parfums Lager-
feld. Fjórtán snyrtifræðingar tóku
þátt í ferðinni, sem þótti takast sér-
lega vel. Á dögunum hittust
ferðalangarnir í salarkynnum Snyrti-
vara hf. i Sundaborg. — Fararstjóri
hópsins var María Kristmanns snyrti-
sérfræðingur.
Hópurinn heimsótti höfuðstöðvar
áðurgreindra fyrirtækja en Orlane
rekur einhverja stærstu og glæsileg-
ustu snyrtistofu Evrópu. Fyrirtækið
Lagerfeld bauð hópnum á tízkusýn-
ingu hjá tízkuhúsi Nina Ricci, þar
sem sýningar Lagerfelds eru aðeins
tvær og voru ekki á þessum tíma. —
Þá var farið í skoðunarferðir um
París og einnig til Versala.
- A.Bj.
„Lít á þetta sem
Boðið var upp á vertingar þegar snyrtisórfrœðingarnir komu saman tii
þess að gleðjast yfir vel heppnaðri ferð. Frá vinstri Maria Kristmanns,
sem var fararstjóri i ferðalaginu, Erna Guðmundsdóttir, verzl. Andreu,
Erna Einarsdóttir, snyrtistofunni Dana, Keflavik, og Sigriður Kristmanns.
gjöffrá Guði
„Mig hefur lengi langað til fsraels
svo ég hlakka mikið til að fara
þangað,” sagði Helgi Hermann
Hannesson sem síðastliðinn sunnu-
dag sigraði i spumingakeppni úr
Gamla testamentinu sem var út-
varpað. Helgi hlaut 27 stig af 30
mögulegum og svo var einnig um
mótkeppanda hans, Sæmund G. Jó-
hannesson frá Akureyri. Einni auka-
spurningu var þá kastað fram og
svaraði Helgi henni rétt og hlaut því
ísraelsför í vinning. Þar mun hann
taka þátt í úrslitakeppninni ásamt
sigurvegurum hvaðanæva úr heimin-
um.
Heyrði fagnaðarerindið
fyrst 19 ára
Helgi Hermann er 28 ára gamall.
18 ár hefur hann verið búsettur í
Bandaríkjunum, þó ekki samfleytt.
Þess vegna heyrir maður örlítinn
hreim er spjallað er við hann. „Ég
kom hingað 19 ára gamall til að læra
ltffræði í Háskóla fslands. Þá
kynntist ég samtökunum KSS og
KSF. Þar heyrði ég fagnaðarerindið
fyrst og það vakti mikinn áhuga hjá
mér,” segir Helgi.
„Þegar ég átti að fara aftur um
haustið í líffræðideildina hafði ég
misst áhugann. Ég sneri þvi aftur
heim til Bandaríkjanna og var þar í
fjögur ár við biblíunám hjá
óháðum söfnuði í Oregon-fylki.
Hingað til lands kom ég aftur árið
1979 og hóf þá að kenna ensku hjá
námsflokkunum. Jafnframt þvi hef
ég numið grísku og hebresku í guð-
fræðideild HÍ. Ég hef hug á að nema
frekar guðfræði hér á landi, þar sem
ég tel að hún sé öðruvisi kennd hér
heldur en i Bandaríkjunum.”
Les Biblíuna
tvisvar á ári
— Hvernig ferðu að þvi að muna
svo margt úr Biblíunni?
„Frá því ég tók á móti Kristi 1972
hef ég lesið Biblíuna að meðaltali
einu sinni á ári. Undanfarið hef ég
lesið hana minnst tvisvar sinnum á
ári að meðaltali. Biblían er guðsorð
og ég hef unun af þvi að lesa hana og
íhuga. Eg tel að ef maður hefur virki-
legan áhuga á því sem maður er að
lesa tolli það frekar í kollinum,”
sagði Helgi.
— Ert þú i einhverjum trúarsöfn-
uði hérálandi?
„Ja, það er kannski ekki hægt að
segja að það sé formlegur trúarsöfn-
uður. Eg er í söfnuði sem nefnir sig
bi ím ”
Bað Drottin að úrslitin
mættu verða að hans viija
— Fannst þér ekki spurningarnar i
keppninni erfiðar?
„Jú, mér fannst sumar spuming-
arnar mjög erfiðar en ég hafði mjög
gaman af þessu. Annars fannst mér
að Sæmundur hefði frekar átt að
vinna. Ég hugsa að hann viti meira úr
Bibliunni en ég. Áður en keppnin
hófst bað ég Drottin að úrslitin
mættu verða að hans vilja. Ég lit svo
á að þetta hafi átt að fara eins og það
fór.”
— Átt þú von á að sigra i keppn-
inni í Israel?
„Ég held að það sé óliklegt. Ann-
ars er ekkert ómögulegt ef Drottinn
ræður. Ég lít á ferðina til fsraels sem
gjöf frá Guði,” sagði Helgi Hermann
HífniiKQnn. • K.T.A
Helgi Hermann Hannesson kynntist fagnaðarerindinu hór ó landi er hann
var 19 ára og heillaðist afþvi. Núna les hann Bibliuna að meðaltali tvísvar
á ári. DB-mynd Einar Ólason.