Dagblaðið - 18.06.1981, Síða 27
77
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 1981.
Helgl J. Halldórsson.
DAGLEGT MÁL—útvarp kl. 19,35:
TEL OFNOTKUN NAFN-
ORDA SPILLA FORM-
GERD ÍSLENZKS MÁLS
—segir Helgi J. Halldórsson
Aö þessu sinni mun Helgi J.
Halldórsson ræða um ofnotkun nafn-
orða.
„Ég tek til athugunar grein í Frétta-
bréfi um heilbrigðismál og þar þykir
mér nafnorðum vera beitt heldur
mikið,” sagði Helgi. Hann bætti því
við að einkum þætti sér lærðir menn
gerast sekir um þessa ofnotkun.
Viðvikjandi grein þeirri er Helgi fjallar
um i þetta skiptið, sagði hann:
„Hún hefur á sér það einkenni, sem
ég tel að sé verulega að spilla formgerð
íslenzks máls, ofnotkun nafnorða.
Einn meginmunurinn á íslenzku og
ensku, hvað þessu viðvíkur, er sá að í
íslenzku eru sagnorð eiginlegri.
Nú er ég ekki að halda því fram að
gera eigi nafnorð útlæg úr málinu en
aðrir orðflokkar, svo sem sagnorð og
lýsingarorð, eiga einnig að fá að njóta
sín.”
-FG.
SELLÓKONSERT í C-DÚR EFTIR JOSEPH HAYDN
—útvarp ífyrramálið M. 10,30:
HINN HEIMSKUNNIR0STR0-
POVITSJ LEIKUR Á SELLÓ
—einn af mörgum sem hrökklazt hafa frá heimalandi sfnu,
Sovétríkjunum vegna stjómmálaskoðana
Mstislav Rostropovitsj eða Slava
Rostropovitsj, eins og hann vill sjálf-
ur láta kalla sig, leikur i útvarpinu i
fyrramálið sellókonsert i C-dúr eftír
Joseph Haydn. Hann leikur með
Ensku kammersveitinni og stjórn-
andi er enginn annar en Benjamin
Britten.
Rostropovitsj er Islendingum að
góöu kunnur því hann hefur komið
hingað á listahátið. En það eru ekki
aðeins íslendingar sem kannast við
nafnið heldur er hér um heimsþekkt
nafn að ræða.
Rostopovitsj fæddist i borginni
Bakú á strönd Kaspíahafs árið 1927.
Móðir hans var pianóleikkari en faðir
hans sellóleikari, snjall en óþekktur,
þannig að tónlistargáfuna var ekki
langt að sækja, enda byrjaði Rostro-
ovits ungur að læra á hljóðfæri, fyrst
á píanó og siðar á selló.
Þritugur var hann þegar orðinn
þekktur f heimalandi sínu, Sovétrikj-
unum. Hann var einnig orðinn
nokkuð kunnur í Evrópu. Til margra
verðlauna hefur hann unnið, bæði f
heimalandi sinu og víðar. Má meðal
annars nefna Lenin-verðlaunin og
tvenn Stalín-verðlaun auk þess sem
hann hlaut nafnbótína Þjóðlista-
maður Sovétríkjanna.
Rostorpovitsj naut mikillar virö-
ingar í Sovétríkjunum allt þar tíl
hann komst i kynni við pólitíkina.
Hann var prófessor við tónlistarhá-
skólann í Moskvu en i kringum 1970
komst hann í ónáð hjá yfirvöldum.
Var það aðallega vegna stuðnings
hans við Nóbelsverðlaunarithöfund-
inn Alexander Solzhenitsyn.
Árið 1975 fékk Rostropovitsj leyfi
til að dvelja í Bandaríkjunum i tvö ár
og síðan þá hefur hann verið á
sifelldum þönum um heiminn til að
halda hljómleika. Hann hefur þó þurft
að endurnýja heimfararleyfi sitt frá
Sovétríkjunum reglulega en nýjustu
fregnir benda til þess að hann sé
endanlega skilinn við heimaland sitt.
Rostropovitsj hefur á sfðustu árum
snúiö sér æ meir að hljómsveitar-
stjórn en sellóleikurinn er þó hans
aðaláhugamál. -KMU.
Rostropovitsj ásamt dætrum sínum, Olgu og Elenu, viö matarborðið.
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bætt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
m
Verdlircfn-
AisirluMluriiiM
Nýja húsinu
v/Lækjartorg. ™ “
Bjóðum stoltir
PENTAX
MV, MV-1, MX, ME-super
og LX myndavélar
PENTAX linsur, flösh
og fylgihlutir.
Góð greiðslukjör!
Landsins mesta úr val af Ijósmyndavörum
td: 35 gerðir myndavéla, 50 gerðir af linsum, 35
gerðir af töskum, 85 gerðir af filterum og um 100
gerðiraf filmum —eitthvað fyrir alla!
Verslið hjá M fagmanninum
ILJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.|
LAUGAVEG1178 SÍMI 85811
BtSTRICTED
UNOffl 17 flfOUIHIS ACCOMPANTING
PARtNT OR AOIH T GUAHOlAN
LamABÍÖ Tryllti Max
WHEN THE GANGS TAKE !
. OVER THE HIGHWAYS...
L*AY HE’S OUT THERE
§TSOMEWHERE! -
SAMUtL l. ARKuFF PnesentsMAD MftX" m m
Musíc by BRIAN MAY V
Written by JAMES McCAUSLAIUD snd GEflRGE MILLER
Produced byBYRON KENNEOY Direciedby9E0RGE MILLER
witb MEL GIBSON Coior prints by MOVIELAB
Rfifssfn rv flMFRiran intf nnfliinNfli /i fn mwavs rn
Mjög spennandi mynd sem hlotið hefur metaðsókn víða
um heim.
Leikstjóri: George Miller.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Hugh Keays-Byrne.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.