Dagblaðið - 18.06.1981, Blaðsíða 28
Góð hegðun kom flatt
upp á lögregluyfírvöld
—„ekki svo góð þjóðhátíð í Reykjavík í mörg ár”
Landsmenn komu lögregluyfir-
völdum þægilega á óvart nóttina fyrir
og á sjálfan þjóðhátíðardaginn.
„Það hefur ekki verið svona rólegt
17. júní í Reykjavík i mörg ár,” sagði
lögregluvarðstjóri í morgun. „Þetta
r var eins og bezt gerist á virkum
’ degi.” Svipaða sögu hafði Iögreglan í
öllum stærstu kaupstöðum landsins
að segja.
Gífurlegur mannfjöldi var í mið-
hluta höfuðborgarinnar i gærdag en
allt fór mjög vel fram og án óhappa.
Sömu sögu var að segja um kvöldið.
Tveimur eða þremur var vísað út úr
LaugardalshöU þar sem dansað var.
Yfirbragð dansleiksins var
óvenjulega rólegt og ölvun mun
minni en á undanförnum árum.
Geymslur lögreglunnar í Reykjavík
fyUtust aldrei og þykja það tiðindi
þennan dag.
Á Akureyri tóku þúsundir þátt í
skemmtunum dagsins. 5—6000
manns horfðu t.d. á „ökudjöflana”.
Um kvöldið var dansað á Ráðhús-
torgi. Fimm menn stöldruðu við í
geymslum lögreglu i nótt.
Álíka rólega gekk þjóðhátiðin fyrir
sig í Hafnarfirði, Kópavogi,
Keflavik, Vestmannaeyjum og víðar.
Ein skýringin á góðri hegðun, sem
DB fékk, var að fólk væri uppgefið
orðið eftir hvítasunnuhelgi og sjó-
mannadag næstu helgar á undan
þjóðhátíð. -A.St.
■*'
'WB
Barbapapa, Tóti trúður, Eiríkur Fjalar, dansarar, leikarar, söngvarar og kynja■
skepnur skemmtu yngstu horgurunum ú skemmtunum þjóóhátíðardagsins i gœr. Og
ekki sakar að benda á að allt þetta litla fólk situr á herðum foreldra sinna, sem misstu
af nœr allri dýrðinni. DB-mynd Einar Úlason.
Mikið um dýrðir á þjóðhátíð
Það var mikið um að vera í Reykja-
vik á þjóðhátíðardeginum í ár. MikUI
fjöldi fólks var viðstaddur flest atriði
hátíðarinnar og ölvun, sem oft hefur
sett leiðilegan svip á hátíðarhöldin, var
í algjöru lágmarki. Er það mál manna
að þjóðhátið hafi sjaldan eða aldrei
tekizt betur i Reykjavík.
Það var fjölskrúðugt mannlffið í
miðborginni og við Bemhöftstorfu
hafði verið sett upp götuleikhús sem
vakti mikla athygli. Lúðrasveit blés á
blettinum fyrir framan Menntaskólann
í Reykjavík, söngflokkur var á Austur-
velli og á Hótel-íslandsplani lék jass-
hljómsveit úr tónlistarskóla FÍH.
f úthverfunum var einnig mikið um
dýrðir og var fjölmenni við Árbæjar-
og FeUaskóla. í Árbænum voru það
Eirikur Fjalar og Tóti trúöur sem unnu
hug og hjörtu íbúanna en við Fella-
skóla settu Breiöholtsleikhúsið, nem-
endur úr Dansskóla Heiðars Ástvalds-
sonar, Jörundur og Eirikur Fjalar, svip
á hátiðina.
Nánast engin ölvun var á dans-
skemmtuninni f LaugardalshöU, en þar
léku hljómsveitirnar Brimkló og Grýl-
urnar, að viöstöddu miklu fjölmenni.
Nánar segir frá hátiðarhöldunum i
Reykjavík á bls. 10 og 11.
-ESE.
Albert um Abendzeitung-f réttina:
Hef beðið utannkisráðu-
neytið að útvega blaðið
„Ég hef beðið utanríkisráðuneytið
að útvega mér þetta blað,” sagði
Albert Guðmundsson alþingismaöur
í morgun. f DB á mánudag var greint
frá frétt blaðsins Abendzeitung i
MUnchen, þar sem sagði að Albert
fengi stórar fjárupphæðir, færi svo
að knattspymusnillingurinn Ásgeir
Sigurvinsson gengi til liðs við knatt-
spyrnufélagið Bayem Mílnchen.
í sömu frétt sagði að belgiska
knattspyrnuliðið Standard Liege hafi
greitt Albert stómpphæðir á ári
hverju, en hann hafði á sínum tima
hönd I bagga um samningagerð Ás-
geirs og Standard.
„Það er ekki fótur fyrir þessu og
ég skU ekki hvaða tUgangi svona
fréttatilbúningur þjónar,” sagði
Albert. -JH.
Albert Guflmundsson.
Srfálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR18. JÚNf 1981.
Litla Hraun:
Fangardæmd-
ir fyrir íkveikju
Þrír refsifangar á Litla Hrauni hafa
verið dæmdir til fangelsisvistar vegna
íkveikju i fangelsishúsinu. Tveir fang-
anna, Kristmundur Sigurðsson og Úlf-
ar Ólafsson, sem enn sitja i fangelsinu,
vom dæmdir í tveggja ára fangelsi en
sá þriðji, sem var laus, í eins árs fang-
elsi fyrir hlutdeild i verknaðinum.
Fangarnir bám eld að fatageymslu á
neðstu hæð hússins í janúar 1977.
Eldur magnaðist fljótt og var slökkvilið
Eyrarbakka nokkra stund að ráða
niðurlögum eldsins.
Dómurinn var kveðinn upp á Sel-
fossi og komst hann að þeirri niður-
stöðu að fangamir þrir hefðu komið
samföngum sfnum og starfsmönnum
Litla Hrauns í lífshættu og valdið
hættu á stórtjóni.
Ekki varð sannað að fangarnir hefðu
ætlað aö flýja i þeim glundroða er varð
vegna eldsins, en grunur lék á því.
Fángarnir tveir, sem lengri dóma
fengu, sitja inni vegna manndráps-
mála. - JH
xr
Q e
VIN NINGUR
IVIKU HVERRI
ÍDAG
ER SPURNINGIN:
í hvaða dálki, á hvaða blaðsiðu er
þessi smáauglýsing i blaðinu í dag?
Óska eftir barngóöri stúlku til að
gæta 3ja ára stelpu í sumar úti á
landi. Uppl. í sima 97-8585 eftir kl.
18.
Vinningur í þessari riku er ÍJt-
sýnarferð til Mallorka með Ferða-
skrifstofunni Útsýn, Austurstrœti
17 Reykjarik.
/ dag er hirt ú þessum stað i
hlaðinu spurning, tengd smá-
auglýsingum hlaðsins, og nafn
heppins áskrifanda dregið út og
birt I smáauglýsingadálkum á
morgun. Fylgizt rel með, áskrif-
endur, fyrir nœstu helgi rerður
einn ykkar glœsilegri utanlands-
ferð rlkari.
hressir betur.