Dagblaðið - 01.08.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 01.08.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1981. 5 valdi hún Velamos-barnareiðhjól fyrir þriggja ára gamla dóttur sina, Ástu Björk. Hin heppna er búsett á Hlemmi- skeiði á Skeiðum i Árnessýslu. Maður hennar, Þráinn Sigurðsson, er sonur, bóndans á Hlemmiskeiði og rekur véla- verkstæði i Brautarholti á Skeiðum. Á Hlemmiskeiði er fimmbýli. Þaðan er um hálftima gangur f Brautarholt en Marfa segist einmitt ætla að nota hjólið m.a. til að fara þar á milli því í Brautar- holti er sundlaug sem hún fer oft í. Annars er Maria ekki af Skeiðunum. Hún er Vestfirðingur, nánar tiltekið Dýrfirðingur, fædd og uppalin á Þing- eyri. Sjö ár eru sfðan hún flutti frá Þingeyri en sl. tvö ár hefur hún búið á Hlemmiskeiði. í millitfðinni bjó hún 1 Reykjavfk. „Það er ágætt að fá hjól. Ég átti hjól fýrir um 10 árum en það var keyrt í klessu. Bróðir minn var að bakka dráttarvél, sá ekki hjólið og bakkaði yfir það. Síðan hef ég litið sem ekkert hjólað.” -KMU Herramannsmatur úr bugtinni Flatfiskur, einkum rauðspretta, þykir herramannsmatur og til eru þeir sem telja kola úr Faxaflóa betri en ann- an. Þeir leggja engan dóm á það, skip- verjar á Aðalbjörginni RE-5, sem undanfarið hafa stundað þessar um- deildu veiðar i bugtinni, norðan við Hraunið. Eftir um viku veiðar voru þeir búnir að fá þrjátfu tonn undir stjórn Guðbjarts Einarssonar skip- stjóra (til vinstri á myndinni) — stóran, feitan og fallegan fisk. ísbjörninn kaupir af þeim allan flsk og skipa þeir beint upp i húsið á Grandagarði. Aðal- bjðrgin er raunar frægur bátur fyrir margra hluta sakir, byggður f atvinnu- bótaskyni í Reykjavik 1935. - ÓV / DB-mynd S. „Tveir mánuðir síðan ég gerðist áskrífandi” <c Mæðgurnar Maria og Ásta Björk á nýju hjólunum. DB-mynd Einar Ólason. „Mágkona min lét mig vita af þessu. Fyrst hélt ég að hún væri að gera grin að mér en svo þegar ég sá að nafnið mitt var í blaðinu þá trúði ég þessu,” sagði Maria Guðmundsdóttir, vinningshafl sfðustu viku i áskrifendaleik Dag- blaðsins. „Það eru ekki nema tveir mánuðir síðan ég gerðist áskrifandi að Dag- blaðinu. Ég var ekki áskrifandi þegar þessi getraunaleikur byrjaði.” Maria er tiundi áskrifandinn sem kost fær á að svara hinum laufléttu spurningum sem birtast á baksfðu blaðsins í viku hverri. Hún gataði ekki frekar en hinir og fékk þar með reið- hjól frá Fálkanum að verðmæti um 3.500 krónur. Hún ákvað að fá sér tvö hjól frekar en eitt fyrir vinningsupphæðina. Hún valdi sér sjálf danskt hjól f gamla stiln- um, sem er af BKC-gerð, og einnig — segirMaríaGuð- mundsdóttir, busettáSkeiðum en Dýrfírðingur íhúð oghár.sem svaraði spuming- um síðustu viku — hún og dóttir henn- ar eiga nú splunku- ný reidhjól Ríkissjóðurtapar4,7 millj. króna —vegna niðurf ellingar vörugjalds af heimilistækjum Borgames: Rakað með sveiflu Heyskapur stendur nú sem hæst víða tlðindamaður DB átti leið hjá. Heima- um land og þótt horfur séu ekki allt of sætan, sem tekur svo hressilega á hrff- góðar, vegna kulda og slæmrar sprettu. unni, heitir Inga Lára Bragadóttir og fá þýðir ekld að láta það á sig fá. Það var hross hennar að njóta töðunnar. því rakað meö sveiflu 1 Borgarnesi er DB-myndir Jónas Haraldsson RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS VERKFRÆÐINGUR - RAUNVÍSINDAMAÐUR Rannsóknaráð rfkisins leitar eftir verkfræði- eða raunvisindamenntuðum manni til starfa, m.a. að gerð langtímaáætlunar um þróun rannsókna- starfsemi í þágu atvinnuveganna. Æskileg grundvallarmenntun á sviði verkfræði og raunvísinda. Góð ritfærni og hæfileiki til samvinnu mikilvægir kostir. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu berist skrif- stofu Rannsóknaráðs rikisins fyrir 30. ágúst nk. t dag lækka kæliskápar, þvottavélar, hrærivélar og ryksugur i verði, í kjölfar ákvörðunar fjármálaráðherra um að nýta heimild í lögum um að fella niður 24% vörugjald af þessum heimilistækj- um. Aðflutningsgjöld af þessum varn- ingi hafa numið 123% en verða eftir breytinguna80%. Þá hefur fjármálaráðherra einnig ákveöið að fella niður frá 1. ágúst sölu- skatt af aðgangseyri sundstaöa. Sölu- skattur er nú almennt ekki greiddur af íþróttastarfsemi og er niðurfelling sölu- Tilkynning til eigenda tékkareikninga um samdægurs bókun á tékkum Frá og með 4. ágúst 1981 verða tekin upp svokölluð skjalalaus greiðsluskipti á milli banka og sparisjóða. Þetta hefur í för með sér að allir tékkar, sem Reiknistofa bankanna sér um bókun á og innleystir verða hjá afgreiðslustöðum banka og sparisjóða, verða bókaðir sama dag og innlausn fer fram. Bókun fer fram með tvennu móti: 1. Samkvæmt innlestri á tékkunum sjálfum í Reiknistofu bankanna, þegar um er að ræða afgreiðslustaði, sem afhenda tékka daglega til Reiknistofunnar. Er það óbreytt meðferð frá því sem verið hefur. 2. Samkvæmt símsendum upplýsingum frá þeim afgreiðslustöðum, sem eru símtengdir Reiknistofunni. Þegar bókun fer fram símleiðis, verður tékkinn geymdur á innlausnarstað. Þurfi reikningseigandi að fá upplýsingar um slíkan tékka, mun reikningsbanki sjá um útvegun á þeim. Reykjavík, 29. júlí 1981 BANKAR OG SPARISJÓÐIR skatts af aðgangseyri sundstaöa gerö til samræmis og til stuðnings við mikil- væga almenningslþrótt. ' Talið er að tekjutap rfkissjóðs vegna þessara aðgerða nemi 4,7 milljónum kr. áþessuári. -ESE

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.