Dagblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981.
13
[vaðerásevðiumhi
Sjónvarp næstuviku
• M
s^j
Sjónvarp L
Laugardagur
8. ágúst
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
19.00 Einu sinni var. Franskur
teiknimyndaflokkur. Ellefti þátt-
ur. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
Lesarar Einar Gunnar Einarsson
og Guðni Kolbeinsson.
19.30 Hlé.
19.45 Fréttaógrip átáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Augiýsingar og dagskrá.
20.35 Löður. Gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
Konunglagt brúflkaup þeirra Karls
og Dfönu varflur á skjánum kl.
21.00. álaugardag.
21.00 Konunglegt brúðkaup. Frétta-
mynd um brúðkaup Karls Breta-
prins og lafði Díönu Spencer 29.
júlí sl. Þýðandi Ingi Karl
Jóhannesson. (Evróvision —
Breska sjónvarpið).
BLEIKIPARDUSINN—sjónvarp kl. 22,10 á laugardagskvöld:
BRÁÐFYNDIN MYND
Inspektör Clouseau er lífshættulegur hrakfallabélkur
Alveg eins og hrakfallabálkurinn
Clouseau lögregluforingi veltur um
tærnar á sjálfum sér, geta áhorfendur
velzt um af hlátri yfir Bleika pardusn-
um.
Bleiki pardusinn er gimsteinn sem
er stolið af sleipum skartgripaþjófi i
Sviss. En hann var þó ekki svo sieipur
að hann skildi ekki einhver ummerki
eftir sjálfan sig, eins og t.d. hanzka
sem „inspektör” Clouseau er fljótur
að finna.
Það er þó furðulegt að Clouseau
skuli yfirleitt finna nokkurn hlut,
eins utangátta og hann virðist vera.
Maðurinn er svo vonlaus og svo
hræðilegur hrakfallabálkur, að það
eina að vera nálægt honum er lífs-
hættulegt, hvort sem um vini eða
lóvini er að ræða. Hann er að fara
með taugar yfirmanns síns, Dreifus,
enda alltaf að detta á hann og þvíiík
óhöpp. Dreifus óskar sér þess eins,
að ganga svo rækilega frá Clouseau,
að hann sjáist ekki á yfirborði jarðar
nokkurn tfma aftur. En hvað sem á
gengur, hrökklast Clouseau lögreglu-
foringi á hina furðulegustu háttu út
úr hættunum og tekst að álpast á
þjófinn.
Myndin er bráðfyndin og auðvitað
er það sjálfur Peter Sellers í hlutverki
„inspektör” Clouseau, með sinn
drafandi franska hreim. Með honum
leika: David Niven, Capucine,
Claudia Cardinale og Robert
Wagner. Myndin var gerð árið 1963
og leikstjóri er Blake Edwards.
Þýðandi er Guðni Kolbeinsson og
sýningartiminn hefst klukkan 22.10,
strax eftir brúðkaup Karls og Díönu.
-LKM
Lilja K.
Möller
Peter Sellers fer með aðalhlutverk i Bieika pardusnum. Þar leikur hann Clouseau
lögregluforingja, sem veltur um tærnar á sjálfum sér.
KONUNGLEGT BRUÐKAUP - sjónvaip kl. 21,00 á laugardag:
BRUÐKAUP
ALDARINNAR
Milljarður
fylgdist með
Loksins fá landsmenn að sjá
hvernig hið heimsfræga brúðkaup
Karls og Díönu fór fram. Það hefur
ekkert lítið gengið á siðan fréttin um
að Karl prins ætlaði loks að festa ráð
sitt barst út. Og ekki fór það svo, að
þau fengju frið til þess að ganga í það
heilaga, án hvers kyns árása úr öllum
heimshornum. IRA-skæruliðar söfn-
uðust saman í mótmælasvelti fyrir
utan frsku sjónvarpsstöðina, til að
mótmæla tilstandinu í kringum brúð-
kaupið. Og jafnvel Spánverjar vildu
fá að ráða hvert brúðkaupsferðinni
yrði heitið.
En hvað um það, allt er nú yfir-
staðið og Karl og Díana komin í eina
sæng og allir bíða spenntir eftir nýrri
tilkynningu: Að þau standi sig í
rúminu og litill erfingi fæðist. Jii,
hvað það hlýtur að vera erfítt að leika
konungshlutverkið!
Millljarður manna fylgdist með þvi,
þegar þau voru gefin saman í Sankti
Páls-dómkirkjunni þann 29. júli.
Fjórir gráir gæðingar drógu opinn
vagn brúðhjónanna að lokinni vigslu
til Buckinghamhallar og kirkjuklukk-
ur Sankti Páls hljómuðu um
nágrennið. Hundruð þúsundir manns
voru búnir að koma sér fyrir til að
veifa til brúðhjónanna. Gífurlegur
viðbúnaður var í heimsborginni. Þrjú
þúsund lögreglumenn gættu öryggis
brúðhjóna og gesta. Þyrlur flugu yfir
svæðinu, sérþjálfaðir lögreglumenn
voru á húsþökum og sjónvarpsvélar á
hverju strái.
-LKM.
,,ÉG, Karl Filip Arthúr Georg, geng
að eiga þig Diönu Frances. . .
Bleiki pardusinn er fyrsta myndin,
sem gerfl var um . hrakfallabálk-
inn Clouseau lögregluforingja.
Aðalhlutverk: David Niven, Peter
Sellers, Capucine, Claudia Cardin-
ale og Robert Wagner. Klukkan
22.10 á laugardagskvöld.
22.10 Bleiki pardusinn. (The Pink
Panther). Bandarísk gamanmynd
frá árinu 1963. Leikstjóri Blake
Edwards. Aðalhlutverk David
Niven, Peter Sellers, Capucine,
Claudia Cardinale og Robert
Wagner. Þetta er fyrsta myndin,
sem gerð var um hrakfallabálkinn
Clouseau lögregluforingja, og hún
lýsir viðureign hans við sleipan
skartgripaþjóf í Sviss. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
00.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
9. ágúst
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Páli
Pálsson, sóknarprestur á Bergþórs-
hvoli, flytur hugvekjuna.
18.10 Barbapabbi. Tveir þættir,
annar endursýndur og hinn frum-
sýndur. Þýðandi Ragna Ragnars.
Sögumaður Guðni Kolbeinsson.
Emil ( Kattholti verflur aftur á
skjánum kl. 18.20 á sunnudag og
verflur þar á ferðinni fimmti þáttur.
18.20 Emil í Kattholti. Fimmti þátt-
ur endursýndur. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. Sögumaður Ragn-
heiður Steindórsdóttir.
18.45 Flugdrekar. Bresk mynd um
flugdrekasmíð og þá ánægju, sem
má hafa af þessum leikföngum.
Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
19.10 Hlé.
19.45 Fréttaágripátáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Sinfónfa nr. 36 í C-dúr eftir
W.A. Mozart. Sinfóníuhljómsveit-
in í Bamberg leikur. Hljómsveitar-
stjóri James Loughran. Einsöngv-
ari Edith Mathis, sópran. Upptaka
frá Mozart-hátíðinni 1 Wúrzburg
1981. Evróvision — Þýska sjón-
varpið).