Dagblaðið - 07.08.1981, Page 4

Dagblaðið - 07.08.1981, Page 4
16 _______________________________DAGBLADIÐ. FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981. Hvað er á seyðium helgina? Nýaðföng — Sýning f Listasafni alþýðu. 8.—30. égúst 1981. Laugardaginn 8. ágúst nk. kl. 14.00 verður opnuð sýning í Listasafni alþýöu á nýjum aðföngum safns- ins, listaverkum sem allflest hafa borizt safninu eftir að ný húsakynni þess voru vígð 7. febrúar 1980. Hér er um að ræða 57 verk eftir 29 m myndlistarmenn. Ragnar Jónsson hefur enn baett viö málverkagjöf slna og má þar nefna verk eftir Ásgrlm Jónsson, J6- hannes S. Kjarval, Jón Engilberts, færeyska málar- ann Mikines og Hafstein Austmann. Margrét Jóns- dóttir hefur og fært safninu ný verk — eftir Bene- dikt Gunnarsson, Nínu Tryggvadóttur, Valtý Pétursson og Þorbjörgu Höskuldsdóttur. Alþýöubánkinn hefur fært safninu myndarlega gjöf, aöallega verk eftir meðlimi SÚM, Gylfa Gíslason, Hrein Friðfinsson, Jón G. Árnason, Kees Visser, Kristján Guömundsson, Magnús Páls- son, ólaf Lárusson, Tryggva ólafsson og Þorbjöigu Höskuldsdóttur. Ámi Páll hefúr gefið safninu mynd röðina Barriera og Guðmundur Ármann Sigurjóns- son grafikmyndir úr atvinnulifinu. Ennfremur má nefna aö sýnd verður frummynd Sigurjóns Ólafs- sonar af Krfunni, sem Listasafn alþýðu og ASÍ létu reisa á Eyrarbakka Ragnari Jónssyni til heiðurs 11. janúarsl. Hannibal Valdimarsson færði safninu mjög sér- stæða gjöf, altaristöflu Samúels Jónssonar i Selár- dal og er hún nú sýnd í fyrsta sinn í safninu. Sýningin Ný aöföng Listasafns alþýðu veröur opin alla daga kl. 14—22 8.-^30*ágúst. LISTMUNAHÚSH), Lækjargötu 2: Takeo Mori, listvefnaður. Opið út ágústmánuð frá 11 til 18 alla virka daga. MOKKA-KAFFl, Skólavörðustíg: Myndir eftir italska listamanninn Liciato. Stendur til 19. ágúst. Opið 9—23.30 alla daga. RAUÐA HÚSH), Akureyri: Tumi Magnússon, teikningar og furðuhlutir. Lýkur 2. ágúst. Opiö daglega kl. 15—21. DJÚPH), Hafnarstrætl (Homlö): Guðmundur Björgvinsson. Olfumálverk, prentlitamyndir, túss og svartkrítarteikningar. Opið 11—23.30 daglega til 12. ágúst. Úr einni af grafisku myndunum sem kynntar verða á GraDskum kvikmyndadögum. Hún er heimsþekkt og nefnist Augað heyrir, eyrað sér. Grafískir kvikmyndadagar í Reykjavík: Námskeið, kynningar og almennar sýningarágrafískum kvikmyndum —í framhaldi af kvikmyndaviku f fyrra ,,Það er í framhaldi af kvik- myndaviku í Regnboganum í fyrra sem við ráðumst nú i að efna til þess- ara Grafísku kvikmyndadaga. Þar voru kynntar þrjár tegundir kvik- myndaiistarinnar sem standa utan hefðbundna formsins, það er til- raunakvikmyndir, grafískar myndir og heimildamyndir. Viö töldum að grafíska formið þarfnaðist nánari kynningar svo að ákveðið var aö gangast fyrir henni. Síðar kom svo hugmyndin að námskeiði upp.” Þannig útskyrði Sigurjón Sighvats- son, kvikmyndagerðarmaður, til- drögin að Grafískum kvikmyndadög- um. Þeir hefjast opinberlega á sunnu- daginn kemur og lýkur sunnudaginn 23. ágúst. Segja má að fyrirbærinu sé skipt í þrennt: námskeið, kvikmynda- kynningu og almennar kvikmynda- sýningar. Fyrsti hluti námskeiðsins hefst á sunnudaginn. „Því miður rúmast ekki nema fimmtán til tuttugu manns á þessu námskeiöi en við höfum ákveðið að opna það fleirum sem nokkurs konar áheymarfulltrúum,” sagði Sigurjón Sighvatsson. Námskeiðið hefst kiukkan níu á sunnudagsmorguninn og stendur til klukkan fjögur um dag- inn. Virka daga er það milli sjö og níu á kvöldin. Nauðsynlegt er fyrir þá sem sækja námskeiðiö að sækja jafn- framt kvikmyndakynningarnar og al- mennar sýningar. Námskeiðið verður í Myndlistarskólanum og sýningarnar á Kjarvalsstöðum utan ein í Tjarnar- bæ. — Kynningarnar og sýningarnar eru öllum opnar. „Námskeiöið er í raun og veru samanþjöppun á tólf vikna inngangs- námskeiði í grafískri kvikmyndalist við Háskólann í Suður-Kalifornfu sem ég stundaði nám við,” sagði Sigurjón. , .Prófessor Gene Coe sem stjórnar þvl kemur hingað til lands til að halda fyrirlestra um efnið. Einnig verður með í förinni kona hans Paul- ine Powers sem er virtur grafíkhönn- uður og kvikmyndagerðarmaður ( Hollywood. Á námskeiðinu fá þátttakendur tækifæri til að spreyta sig i hönnun- inni. Við vonumst svo til að geta sýnt verk þeirra f lokin. Til að fólk geri sér enn þetur grein fyrir viðfangsefninu en ella er því nauðsyn að sjá kvik- myndirnar sem boðið verður upp á. Margar þeirra eru meistarastykki. Tvær eða þrjár hafa hlotið Oscars- verðlaun og margar hafa hlotið ýmiss konar verðlaun og viðurkenningar aðrar,” sagði Sigurjón ennfremur. Hann bætti því við að lokum að ef vel tækist til með Grafiska kvik- myndadaga kæmi vel til greina að verða með nánari útfærslu á tilrauna- kvikmyndum á næsta ári. Það form kvikmyndalistarinnar er á miklu blómaskeiði vestra um þessar mundir. -ÁT- KYNNING Á GRAFISKRI KVIKMYNDALIST Gönguf erð helgarínnar: Rölt í þágu friðar- ins f rá Stokksnesi Gönguferð helgarinnar að þessu sinni er leiðin Stokksnes — Höfn í Hornafirði. Gangan á sunnudaginn er í nafni friðarins — gegn atóm- vopnum. Samtök herstöðvaandstæð- inga á Austurlandi eru skrifuð fyrir skipulagningunni. Á Stokksnesi er útvarðarstöð bandarfska hersins á Miðnesheiði. Þaðan verður lagt af stað kl. 9.30 á sunnudagsmorguninn og gengið 20 km leið að Fiskhól við Höfn. Langferðabílar leggja af stað frá Höfn að Stokksnesi kl. 9. Bílarnir fytgja göngunni eftir og þar má geyma farangur og hvíla lúin bein ef þörf krefur. Ávörp í göngunni og á fundinum flytja Sævar Kristinn Jónsson, Sigurður Ó. Pálsson, Torfi Stein- þórsson og Pétur Gunnarsson. Laugardagskvöldiö 8. ágúst, kvöldið fyrir gönguna löngu, er boðað til kvöldvöku í Mánagarði á Nesjum. Frummælendur um friðar- hreyfingar, vígbúnað og Stokksnes- stöðina sjálfa verða Ólafur Ragnar Grímsson, Erling Ólafsson, Geir Gunnlaugsson og Jón Ásgeir Sigurðs- son. Hópferðir eru skipulagðar af Austurlandi og frá Reykjavík til Hafnar. Reiknað er með að þátttak- endur komi að Mánagarði síðdegis á laugardag. Þeir geta gist i húsinu sem vilja. Aðrir hafi með sér tjöld. Upplýsingar og skráning f síma 17966 milli kl. 17 og 19. - ARH LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR, SkólavörOu- holli: Opiö alladaga kl. 13.30—16. KJARVALSSTAÐIR: Vesturaalur: Leirlist, gler, textfll, silfur, gull. Sumarsýning: Steinunn M»rtrin«. dóttir, Haukur Dór, Jónína Guönadóttir, Elísabet Haraldsdóttir, Hulda Jósefsdóttir, Sigríður Jó- hannsdóttir, Leifur Breiðfjörð, Guðrún Auöuns- dóttir, Ragna Róbertsdóttir, Ásdis Thoroddsen, Jens Guðjónsson, Guðbrandur Jezorski, Sigrún Ó. Einarsdóttir. Opið 14—22 alla daga. Kjarvalssalur: Kjarvalssýning. ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74: Opið alla daga nema laugardaga til 1. sept. kl. 13.30—16. Aögangur ókeypis. BÚNAÐARBANKINN, EgilsstöOum: SUfur frá vik- ingaöld. Til sýnis i sumar á venjulegum afgrtima. GALLERÍ KIRKJUMUNIR, Kirkjustræti 10: Sig- rún Jónsdóttir, batík, kirkjumunir. Opið 9—18 virka daga, 9—16 um helgar. GALLERÍ GUÐMUNDAR, BerestaOastræti 15: Kristján Guömundsson, ný málverk, Rudolf Weissauer, ný grafik. Opið 14—18 alla virka daga. NORRÆNA HÚSIÐ: Anddyri: íslenskir steinar. KJallari: Þorvaldur Skúlason, yfirlitssýning. Opin 14—20alladaga. TORFAN, veitingahús: Lcikmyndir úr Alþýðulcik- húsinu. HÖGGMYNDASAFN Ásmundar Sveinssonar: Opið þriðjud., fimmtud., laugard. & sunnud. kl. 13.30—16. Tilkynningar Stokksnesganga Helgina 8.—9. ágúst nk. efna Samtök hcrstöðvaand- stæðinga á Austurlandi til kvöldvöku og Stokksnes- göngu. Ráðgert er að þátttakendur safnist saman seinni hluta laugardagsins þann 8. ágúst í félagsheimilinu Mánagarði, Nesjum. Kl. 20.00 hefst þar fjölbreytt fræðslu- og skemmtidagskrá. Daginn eftir kl. 9.30 hefst gangan viö Stokksnes. Þar mun Sævar Kristinn Hellnanes Jónsson bóndi ávarpa göngumenn. Við Hellnanes flytur Sigurður ó. Pálsson stutt ávarp og á eftir skemmta göngumenn sér við visnasöng, gítar- og harmóníkuleik. Eftir að komið er til Hafnar verður gengiö um helztu umferðargötur og endaö með úti- fundi á Fiskhóli. Þar munu Pétur Gunnarsson rit- höfundur og Torfi Steinþórsson frá Hala flytja ræöur. Miðað er við aö aögerðunum ljúki um kl. 15.30. Rútuferöir verða skipulagðar frá flestum þétt- býlisstöðum á Austurlandi og einnig frá Reykjavík. Þátttakendum verður séð fyrir gistingu en þeir þurfa aö hafa svefnpoka og nesti meö sér. Þeim sem vilja tjalda er bent á að við Mánagarð eru fyrirtaks tjald- stæöi. Til þess að auðvelda skipulagningu eru væntan- legir þátttakendur beðnir aö skrá sig hjá trúnaöar- mönnum herstöðvaandstæðinga á hverjum staö. Fyrir Austurland i síma 97-1248, í Reykjavík 17966. Sumargleðin 1981 7. ágúst Borgarnes 8. ágúst Hellissandur 9. ógúst Sævangur að Ströndum Sumarrevfan á Sögu Um næstu helgi gefst Reykvíkingum tækifæri aö sjá hina vinsælu sumarrevíu sem sýnd hefur verið i Sjálfstæöishúsinu á Akureyri undanfarin föstudags- kvöld. Verður revian sýnd á Hótel Sögu á laugar- dags- og sunnudagskvöldiö. Eru það síðustu sýning- arnar i sumar.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.