Dagblaðið - 14.08.1981, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1981.
Föstudagur
21. ágúst
19.45 Fréttaágrip á tftVnmAli.
20.00 Fréttlr og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Á döflnni.
20.50 Pasadena Roof Orcbestra.
Tónlistarþáttur með samnefndri
hljómsveit.
21.25 VarAð á vinnustað. Siðasti
þáttur af sex um slysavarnir og
hollustuhætti á vinnustað. Þýð-
andi Bogi Amar Finnbogason.
21.35 Að duga eða drepast. Hin fyrri
tveggja mynda um erfíða lifsbar-
áttu 1 Suður-Ameriku. Þýðandi
Sonja Diego. Þulur Einar Gunnar
Einarsson.
22.25 Falln börn. s/h. (These Are
the Damned). Bresk biómynd frá
1963. Leikstj. Josep Losey. Aðal-
hlutverk Oliver Reed, Viveca Lind-
fors, Alexander Knox og Shirley
Ann Field. Bandarikjamaður i
Bretlandi er á flótta undan óaldar-
flokki. Hann leitar afdreps í helli,
þar sem hann rekst á nokkur börn.
Þýðandi Rannveig Tryggvadóttir.
23.45 Dagskrárlok.
Laugardagur
22. ágúst
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
19.00 Einu sinnl var. Lokaþáttur.
Þýðandi Ólöf Pétursdóttir. Les-
arar Einar Gunnar Einarsson og
Guðni Kolbeinsson.
19.30 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáii.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýslngar og dagskrá.
20.35 Löður. Gamanmyndaflokkur.
Þýöandi Ellert Sigurbjörnsson.
21.00 Satt og iogið um „villta
vestrið”. Heimildamynd í léttum
dúr, þar sem rýnt er m.a. í þjóð-
sögur um „villta vestrið”. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
A laugardagakvöldið verður
myndin Hefnd fyrir dollara með
Clint Eastwood og Lee Van Cleef.
Hún hefur verið sýnd í bíó og var
geysivinsæl.
21.50 Hefnd fyrir dollara. (For a
Few Dollars More). ítalskur
„vestri” frá árinu 1965. Leikstjóri
Sergio Leone. Aðalhlutverk Clint
Eastwood og Lee Van Cleef. Mikið
fé hefur verið lagt til höfuðs bófa-
foringjanum Indió. Tveir menn
taka sér fyrir hendur að reyna aö
ná óþokkanum, látnum eða lif-
andi. Þýðandi Jón O. Edwald.
23.55 Dagskráriok.
Sunnudagur
23. ágúst
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Páll
Pálsson, sóknarprestur á Bergþórs-
hvoli, flytur hugvekjuna.
18.10 Barbapabbi. Tveir þættir,
annar endursýndur og hinn frum-
sýndur. Þýðandi Ragna Ragnars.
Sögumaður Guöni Kolbeinsson.
18.20 Emil i Kattbolti. Sjöundi
þáttur endursýndur. Þýöandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögu-
maöur Ragnheiður Steindórs-
dóttir.
Hinn stærsti, eða stærsta landdýr
veraldar ar afriski ffllinn. Brazk
haimildamynd, aýnd á aunnu-
daginn kl. 18.45.
Susannah York leikur fráskilda konu f þættinum Annað tækifæri, sem er
sýndur á sunnudagskvöldum. Það rennur upp fyrir henni að við skilnaðinn ger-
breytist tilvera hennar og hún ákveður að verða sjálfstæð persóna.
ANNAÐ TÆKIFÆRI - sjónvarp
kl. 21.30 á sunnudagskvöld:
Við skilnaðinn
gerbreytist
tilvera Kates
—og hún ákveður að leita sér að vinnu
Annar þáttur Annars tækifæris
eftir Adele Rose verður á sunnudags-
kvöldið kl.21.30.
Fyrir þá sem ekki sáu fyrsta þátt
skal rifja upp efni hans:
Chris og Kate hafa verið gift í
nítjan ár en sjá þá.einsog svo margir
aðrir, að þau eiga ekki lengur neina
samleið og ákveða að skilja. Þau eiga
tvö uppkomin börn sem verða eftir
hjá móður sinni. Dóttirin, sem virðist
hafa vitið fyrir öllum í fjölskyldunni,
reynir þá að deila sér milli foreldr-
anna og heimsækir oft föður sinn.
Chris býr fyrst í stað hjá kunningjum
sinum á meðan hann leitar sér að
ibúð. Það gengur þó erfiðlega að
finna íbúð því fjárhagurinn er
þröngur.
Að lokum finnur hann þó íbúðar-
holu og sýnir dóttur sinni hana. En
henni lízt illa á íbúðina og hvetur
hann til að leita betur. En hann vill
hefja sitt eigið líf og þar af leiðandi
ekki vera upp á kunningja sina kominn
lengur. Hann ákveður að taka
íbúöina. Dóttirin fer þá til móður
sinnar og segir henni hve ömurleg
íbúðin sé. Kate fer þá í heimsókn til
Chris og reynir að telja hann ofan af
því að taka íbúðina. Þau fara þá að
ræða málin eftir margra ára hlé.
Síðan rennur það upp fyrir Kate að
við skilnaðinn ge^breytist tilvera
hennar. Hún hafði verið heimavinn-
andi húsmóðir á meðan hjónabandið
stóð og var ekki viss um hvað hún
kynni fyrir sér á atvinnumarkaðin-
um. Hún ákveður að byrja upp á nýtt
og fá sér atvinnu. Þýðandi er Dóra
Hafsteinsdóttir. Aðalhlutverk leika
Susannah York, Ralph Bates, Mark
Eadie og Kate Dorning. Mynda-
flokkurinn er i sex þáttum. -LKM.
18.45 Hlnn stærsti. Bresk mynd um
stærsta landdýr veraldar, afríska
fílinn. Þýðandi Óskar Ingimars-
son. Þulur Einar Gunnar Einars-
son.
19.10 Hlé.
19.45 Fréttaágríp á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Samlelkur I sjónvarpssal. Hlif
Sigurjónsdóttir, fiðluleikari, og
Glen Montgomery, pianóleikari,
flytja tónlist eftir Fauré, Kreisler
og Þórarin Jónsson. Stjórn upp-
töku Kristín Pálsdóttir.
21.10 Annað tækifæri. Breskur
myndaflokkur. Þriðji þáttur. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.00 Beaubourg. Bresk heimilda-
mynd um Pompidou-menningar-
miðstöðina í Parls. Þýðandi og
þulur Ingi Karl Jóhannesson.
22.50 Dagskráriok.
ÆJARINS
ESTU
Stutt kynning á því athyglis-
verðasta sem kvikmyndahús
borgarinnar sýna
LETTHERE BE ROCK
Ryljendur. AC/DC flokkunnn
Sýningarstaöun Hafnarbió
Þeir sem gaman hafa af bárujárnsrokki verða ekki sviknir af heim-
sókn I Hafnarbió. Hljómurinn er reyndar afleitur enda hljómburðar-
tækin ekki beysin, en myndin sem slfk stendur mjög vel fyrir sinu.
Hér er á ferðinni mynd um tónleikaferð AC/DCi Frakklandi 1979
og reyndar er myndin að mestu eða öllu leyti tekin upp á sömu hljóm-
leikunum. Inn á milli eru stuttar glefsur — viðtöl við flokksmeðlimi
og annað álíka gæfulegt.
Það er hins vegar tónlistin, sem þessi mynd byggist upp á og þá
einkum og sér I lagi tryllingsleg sviðsframkoma gítarleikarans, Angus
Young. Hamagangurinn og lætin eru slik að engu tali tekur. Svitinn
drýpur af hverju andliti enda er á köflum engu líkara en menn séu
þama í harðri akkorðsvinnu.
Eftir að hafa barið þessa mynd augum er ákaflega auðvelt að skilja
hvernig popparar 1 llkingu við meðlimi AC/DC verða úrvinda fyrii
aldur fram. Þrekið sem fer í eina slika tónleika er á við ótal vinnu-
stundir venjulegs verkamanns. Rokkarar ættu ekki aö láta myndina
fram hjá sér fara þótt hljómgæðin séu afleit. Hafi menn séð Síðasta
valsinn með Band er auðvelt að segja að Let there be rock sé alger
andstæða hennar. Rokk heitir þetta hvort tvegRja en andstæðurnar
eru ótrúlegar. -SSv.
HÚSIÐ VIÐ GARIBALDASTRÆTI
Leikstjórí: Peter Coliinson.
LeHcendun Topol, Nick Mancuso, Janet Suzman, Martin Balsam.
Sýningarstaður Háskólabió.
ÁRÁSIN Á LÖGREGLUSTÖÐ 13
LeHcstjóri: John Carpenter.
Sýningarsteður Háskólabió.
1 Húsinu við Garibaldastræti er góður efniviður, margir afbragðs-
góðir leikendur (sjá Leo McKern sem Ben Gurion), en leikstjóranun
tekst ekki að tendra þá spennu sem þarf, þrátt fyrir ýmsa jákvæða til
burði. Myndin fjallar um það þegar ísraelsmenn höfðu upp á Eich-
mann í Argentinu og hvernig þeir fóru að þvi að koma honum
þaðan til að rétta yfir honum í ísrael. Segja má að Húsið sé eiginlega
heimildamynd sem hefur villst upp á stóra hvíta tjaldið enda er hún
byggð á endurminningum yfirmanns leyniþjónustu ísraels.
Háskólabíó hefur tekið upp á því að sýna myndir kl. 11 og byrjar
með hörkuhasar, Árásinni á lögreglustöð 13. Hún er gerð af John
Carpenter, sem er e.t.v. þekktastur fyrir hrollvekjur á borð við
Þokuna. t myndinni reynir bófaflokkur að frelsa einn félaga sinn úr
varðhaldi og þótt efnið sé ekki frumlegt er öll úrvinnsla á því fyrsta
flokks og gerð með það fyrir augum að magna spennu.
LILI MARLEEN
Leikstjóri: Rainer Wornor Fassbinder.
Leikendur Hanna Schygulla, Mel Ferrer, Giancario Giannini.
Sýningarstaóur Rognboginn.
íslenskir kvikmyndahúsagestir hafa haft þá blöndnu ánægju
undanfarið að geta fylgst með nýjustu myndum Fassbinder. Hingaí
til hef ég haft fremur lítið álit á þeim ofmetna leikstjóra en ég verð þó
að viðurkenna að Lili Marleen ergóðmynd. Hversu góðer hins vegar
stór spurning. Bestu bútarnir í myndinni fjalla um það hvort fólk á að
taka afstöðu eða hvort jtað eigi bara að reyna að lifa, skítsama hvar
eða hvernig. Fassbinder tekuróvenju skýra afstöðu í þessari mynd
sinni oger myndin þvi að mörgu leyti meðeinföldustu frá hans hendi.
Það er hins vegar auðvelt að benda á stóran galla á myndinni en það
er hve oft Fassbinder endurtekur pælingar sínar. Það hefur verið sagt
um myndir Fassbinder að í þeim sé ekki að finna eitt einasta raun-
verulegt atriði. Þessi fullyrðing er ekki út í hött en á móti má benda á
að enginn alvarlegur kvikmyndagerðarmaður gerir fullkomlega raun-
verulegar myndir. Lili Marleen er þægilegasta kvikmynd sem ég hef
séðeftir Fassbinder en ekki endilega sú merkilegasta.
SPEGILBROT
Loikstjóri: Guy Hamitton.
LeHcendur Angola Lansbury, Goraldina Chaplin, Tony Curtis, Edward Fox, Rock
Hudson, Kim Novak, EUzabath Taylor.
Sýningarstaður Regnboginn.
Sakamálasögur Agöthu Christie verða vist seint flokkaðar með
heimsbókmenntunum, en þær hafa stytt mörgum stundir í sumar-
friinu. Sama er líklega hægt að segja um kvikmyndir þær sem farið er
í ríkum mæli að gera eftir sögum gömlu konunnar. Til þeirra hefur
verið smalað stórstjörnum og ekkert sparað í sköpun rétts umhverfis
og andrúmslofts. Þetta hefur gefið góða raun og myndirnar, einkum
og sérilagi Dauðinn á Níl, hafa verið góð afþreying og skilað gróða.
Sama formúlan er notuð við Spegilbrot sem er alveg glæný mynd.
Svolítið lúnar stórstjörnur leika eiginlega sjálfa sig og í leiðinni er gert
vægt grín að kvikmyndaiðnaðinum. Traust og snjöll leikkona, Angela
Lansbury leikur Ungfrú Marple, sem leysir morðgátu sem fjöldi
manns er viðriðinn og auðvitað er sá seki ekki afhjúpaður fyrr en í
lokin. Myndin er spennandi og allur frágangur hennar fyrsta flokks.
. Fyrir utan Angelu Lansbury er kannski mest varið í leik Edwards
Fox og kvikmyndastjórnin er í höndum fagmanns. Enginn ætti að
verða illa svikinn af kvöldstund meö Spegilbroti.