Dagblaðið - 28.08.1981, Síða 4

Dagblaðið - 28.08.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1981. DB á ne ytendamarkaði Grænmetisveizla þessa vikuna — Notið tækifærið og kaupið grænmetið á meðan verðið er falgjöru lágmarki Alla vikuna hefur staöiö yfir stórkostleg útsala á grænmeti sem nú hefur verið „lækkaö niöur úr öllu valdi” eins og sagt er. Heildsalan á blómkálinu hjá Sölufélaginu er komin í 14 kr., sem gæti þá kostað i smásölu 19,40 kr. Aðrar tegundir á útsölunni kosta eftirfarandi. Við fengum uppgefið heildsöluverð hjá Sölufélaginu en bættum svo við hugsanlegu útsöluverði, reiknuðum með 38,6% álagningu Teg. Ekki vildi viðmælandi okkar hjá Sölufélaginu, Niels Marteinsson lofa því að útsalan stæði fram yfir helgina. Við hvetjum því alla sem vettlingi geta valdið að gera stór- innkaup á grænmeti einmitt núna. Á morgun getur það verið oröiö of seint. Við höfum margsinnis bent á hvernig hægt er að frysta nánast allt grænmeti, það þarf aðeins mismunandi mikinn undirbúning. -A.Bj. Heildsöluverð Smásöluverð Blómkál 14 kr. 19,40 kr Hvitkál 6 kr. 8,30 kr. Tómatar 20 kr. 27,70 kr. Agúrkur 13 kr. 18,00 kr. Gulrætur 8 kr. 11,10 kr. Gulrófur 4 kr. 5,55 kr. Sem dæmi um verðmun á barnamatnum i krukkum má nefna að epli og perur voru til dæmis á 7 kr. og 3,75 (Beech-nut) og blandað grænmeti á 2,60. Verzlunarstjórinn i stórmarkaði KRON sagði okkur að hann vissi dæmi þess að ein tegundin af barnamatnum hefði lækkað úr 9 kr. f 3 kr.! DB-mynd Bjarnleifur. Barnamaturinn lækkar í verði: EKKILENGUR AÐ- FLUTNINGSGJÖLD AF BARNAMATNUM „Sem dæmi um verðlækkunina á -barnamatnum get ég nefnt að ein tegundin af bamaþurrmjólkinni fer úr 38 kr. í 20 kr. Maturinn í glösunum Iækkar einnig gífurleg mikið. Við erum einmitt að leysa fyrstu pöntunina okkar út eftir verölækkunina,” sagði Kristján Gunnlaugsson hjá Sól h/f fyrir nokkru í samtali við umsjónarmann neytendasíðunnar. „Eitt af síðustu verkum þingsins áður en það fór í sumarfrí í vor var að samþykkja frumvarpið hans Alberts um niðurfellingu tolla og vörugjalds af barnamatnum. Það <c munar um minna en 80% tolla og 24% vörugjald,” sagði Kristján. ,,En svo er islenzk verðlagslöggjöf svo bjánaleg að við þetta stórtöpum við. Eftir því sem varan erdýrari þess meira hagnast fyrirtækin sem flytja inn og verzla með vöruna. Við töpum fleiri þúsundum á þessari verðlækkun á barnamatnum,” sagði Kristján. Þeir kaupmenn sem áttu miklar birgðir af barnamatnum á gamla verðinu neyðast auðvitað til þes að lækka hann í verði um leið og nýjar sendingar koma í verzlanirnar. Þeir verða sjálfir að bera skaðann af þess- ari verðlækkun. rjr 1. „Upphafið að þessu var auðvitað það umtal sem há aðflutninsgjöld á barnamatnum fengu hjá ykkur á DB, á meðan gæludýramaturinn var flutt- ur til landsins tollfrjáls,” sagði Krist- ján. Gífurleg aukning hefur orðið á notkun á barnamat í glösum og pökkum á undanförnum árum. Einnig hefur aukizt mikið að unga- börnum sé gefin þurrmjólk, sem inniheldur mikil og nauðsynleg bætiefni sem ungbömum eru nauðsynleg ef þau geta ekki fengið það sem þeim er eðlilegast, brjósta- mjólk. - A.Bj. Blómkál og annað grænmeti er sprengfullt af bætiefnum sem okkur vantar svo tilfinnanlega i skrokkinn á okkur. Fátt er betra en nýtt blómkál, bæði hrátt og soðið. DB-mynd. Veizluréttur úr skötusel í einni af þeim fiskimat- reiðslubókum sem við höfum undir höndum segir að skötuselur og humar séu mjög líkir, en varla sé réttlátt að líkja þeim saman. Þeir eru mjög góðir hvor á sinn hátt. Hér er uppskrift að skötuselsrétti sem sýnist vera spennandi og hentar einkar vel ef von er á gestum því það þarf ekki að gera neitt í eldhúsinu á allra siðustu stundu. Þetta er skötuselur í deigbotni, bakaöur með sveppum og út á hann er höfð bérnais sósa. — Uppskriftin er reiknuð fyrir sex. Botninn 240 gr hveitl 120 gr smjör 1 eggjarauða kalt vatn pinulitið salt Búið deigið til á venjulegan hátt og fóðrið tertuform með því, látið það ná vel upp á hliöarnar og bakið. Búið því næst til sósuna og haldiö henni heitri yfir heitu vatni. Vitaskuld má einnig kaupa botninn tilbúinn i bakaríi. Reiknið með um það bil hálfu kg af skötusel (beinlausum), salt og pipar, um 100 gr af smjöri og 3— 400 gr af sveppum, smátt söxuðum. Skerið fiskinn í sneiðar, kryddið hann og steikið í helmingi smjörsins. Notið afganginn til þess að steikja sveppina í. Þegar tertubotninn er bakaður eru sveppirnir látnir í botninn og fisksneiðunum raðað ofan á og sósunni er hellt yfir. Smátt söxuðu tarragon er stráð yfir og stungið inn í vel heitan ofn i um það bil 5 mín. Borið fram strax. Með þessum rétti er mælt með bérnais sósunni en einnig er bent á að nota aðrar tegundir, t.d. bæta 3—4 Uppskrift dagsins Upplýsingaseðill ! til samanbuiðar á heimiliskostnaði [ Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarscðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamjðlun meðal almennings um hvert sé meðaital heimiliskostnaðar I fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- 1 tæki. 1 Nafn áskrifanda 1---------------------------------- Heimili i I i Sími J l Fjöldi heimilisfólks. matsk. af tómatpuree út í, en þá er komin alveg ný sósutegund, sem heit- ir Choron í höfuðið á frönskum meistarakokki sem bragðbætti fyrr- nefndu sósuna. Einnig er bent á sósu er nefnist Trianon, en það er hreinlega hollenzk sósa búin til úr sítrónusafa og einni matskeið af miðlungs þurru sérrii. Skötuselurinn hefur fengizt í öllum „betri” fiskbúðum borg- arinnar og kostar 30 kr. kg. -A.Bj. [Kostnaður í júlímánuði 1981 i'----------:---------------- i Matur og hreinlætisvörur kr. i Annað kr. ! Alls kr. m VIKUM Ji

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.