Dagblaðið - 28.08.1981, Page 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1981.
Samkeppnisnef nd fjallar um „gosdrykkjastríðið”:
Sanitas kærir Egil og
kók fyrir atvinnuróg
— enþaufyrirtæki
hafa áðurkært
Sanitasfyrir
meinta ólögmæta
viðskiptahætti
Gosdrykkjastríðið svonefnda
heldur áfram. Aukin harka virðist
hafa færzt í það undanfarna daga og
er nú kært til samkeppnisnefndar á
báða bóga. Sanitas hefur t.d. sakað
ölgerðina Egil Skallagrímsson hf.
um „sífelldan stuld í gegnum árin á
umbúðum Sanitas. Sanitas hefur
orðið að fjárfesta gífurlega mikið i
nýjum umbúðum vegna ofangreinds
stulds ölgerðarinnar en markaðsverð
á glerjum er nú um 50% lægra en
kostnaðarverð,” segir í fréttatilkynn-
ingu frá Sanitas.
Fyrirtækið hélt í vikunni fund með
fréttamönnum til að kynna sjónar-
mið sín í „gosstríðinu”, en Sanitas
framleiðir Pepsi, 7-Up og Thule-
pilsner. Segjast Sanitas-menn hafa
stóraukið markaðshlutdeild sína á
þessu ári og aö á undanförnum
tveimur árum hafi hlutdeildin aukizt
úr 7% í 20%.
Greinilega veldur þetta sam-
keppnisaðiium Sanitas miklum
áhyggjum, segja Sanitas-menn. „Þeir
þola mjög illa hina auknu samkeppni
sem óhjákvæmUega hefur fylgt í kjöl-
far uppvaxtar Sanitas. Þeir hafa haft
um það samantekin ráð að kæra
Sanitas og birta samdægurs niðrandi
auglýsingar um Sanitas vegna þjóð-
hátíðarinnar í Vestmannaeyjum.
Einnig hefur ölgerðin hafið ófræg-
ingarherferð á hendur Sanitas á
heldur ósmekklegan hátt í öllum fjöl-
miðlum landsins, þar sem niður-
stöður samkeppnisnefndar varðandi
kærur þeirra liggja ekki ennþá
fyrir,” segir í fréttatUkynningunni.
Segir þar einnig að Sanitas hafi nú
kært bæði ölgerðina og VífUfeU
(kókakóla) til samkeppnisnefndar
fyrir atvinnuróg.
-ÓV
i
i
Safaríkar „síamsgúrkur”
Þessa „siamsgúrku” rak á fjörur
Dagblaðsmanna í vikunni. Eins og sjá
má er í rauninni um tvær samvaxnar
agúrkur að ræða og varð úr griðarlegur
ávöxtur. Það var Bjarni Kristinsson,
garðyrkjubóndi á Brautarhóli i
Biskupstungum, sem ræktaði gúrkuna
og var hún búin að standa í um þrjár
vikur þegar ættingi Bjarna, Sverrir
Kristinsson sem hér er á myndinni,
kom með hana á ritstjórn DB. Við
þetta má bæta að gúrkan (eða gúrk-
urnar) var bæði bragðgóð og safamikil.
En það þurfti ekki mikið meira en eina
sneið ofan á brauðsneið!
- ÓV / DB-mynd Bjarnleifur.
Ný sundlaug og miimis-
varði á Staðastað
Um síðustu helgi var afhjúpaður á
Staðastað á Snæfellsnesi minnisvarði
um Ara fróða. Minnisvarðann af-
hjúpaði forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir. Við sama tækifæri var vígð
ný sundlaug að Lýsuhóli í Staðarsveit
og í framhaldi af öllu saman var haldin
mikil veizla. Var þar margt gesta og
haldnar ræður undir borðum.
Á minni myndinni má sjá Vigdísi
forseta við minnisvarðann. Á hann er
letruð tilvitnun í Snorra Sturluson, svo-
hljóðandi: „ Ari prestur hinn fróði Þor-
gUsson GeUissonar ritaði fyrstur manna
hér á landi fræði bæði forna og nýja.”
Á stærri myndinni sér í kollinn á VU-
borgu Þórðardóttur, 9 ára, sem varð
fyrst tU að synda i nýju lauginni að
Lýsuhóli. Að iaunum fékk hún á eftir
blóm frá forseta fslands.
- BC, Grundarfirði.
Starfsmenn
á Grundar-
tanga vilja
bónuskerfi
—samningarlausir
frál.septembernk.
Kjarasamningar í Járnblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga verða
lausir frá 1. september nk. Fulltrúar
starfsmanna hafa fundað nokkrum
sinnum að undanförnu með fuUtrú-
um fyrirtækisins um kjaramál, síðast
í gær. Hefur nýr fundur verið
boðaður eftirhelgi.
Að sögn Kjartans Guðmunds-
sonar, aðaltrúnaðarmanns starfs-
manna, hefur fyrst og fremst verið
rætt um bónuskerfi hingað tU. Hann
sagði starfsmenn leggja mikla áherzlu
á að bónuskerfi verði tekið upp.
Ákvæði væru i fyrstu kjarasamning-
unum, sem gerðir voru á Grundar-
tanga, um að bónuskerfi yrði tekið
upp þegar fuUum afköstum verk-
smiðjunnar væri náð. í samningum í
fyrra væri einnig bókun þess efnis að
bónuskerfi verði komið á á samnings-
timabilinu.
Rafmagnsskömmtun til Járn-
blendiverksmiðjunnar hefur komið í
veg fyrir fuU afköst og því tafið fyrir
viðræðum um bónuskerfið. Raf-
magnsskömmtuninni var aflétt i vor
og komst reksturinn þá í eðlilegt
horf. Telja starfsmenn því nú eðlilegt
að bónuskerfi verði komið á.
Viðræðurnar eru enn á frumstigi
og því varla hægt að tala um ágrein-
ing, enn sem komið er, að sögn Kjart-
ans Guðmundssonar. Sagði hann að
viðræðurnar hingað til hefðu verið
vinsamlegar.
-KMU