Dagblaðið - 28.08.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 28.08.1981, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1981. 10 Útgefandi: Dagblaðið hf. .. Framkvœmdastjórí: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Aðstoóarritstjórí: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. Skrífstofustjórí ritstjómar: Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Menning: Aðalstoinn Ingólfsson. Aöstoðarfróttastjóri: Jónas Haraldsson Handrít: Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaðamonn: Anna Bjarnason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson. Biagi Sig- urðsson, Dóra Stofánsdóttir, Elín Álbertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Hu>H Viákonardótt ., Kristján Már Unnarsson, Sigurður Sverrisson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sig'urður Þorri Sigurðsson og Svoinn Þormóðsson. Skrifstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorleifsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Hali* dórsson. Dreifingarstjórí: Valgeröur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgreiösla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur: Þverholti 11. Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 linur). Sotning og umbrot: Dagblaðið hf., Síðumúla 12. Mynda- og plötugorð: Hilmir hf., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10. Askrfftarverð á mánuði kr. 80,00. Verö í lausasölu kr. 5,00. Snarl mun lækka í verði Vaninn ræður sjálfsagt mestu um, /S hvar neytendur verzla. Þegar þeir hafa fundið stað, sem þeim líkar við, hætta þeir seint viðskiptum, þótt nýir og betri hafi komið til sögunnar, enda líklegast, að þeim sé ekki kunnugt um það. Fjarlægðin skiptir ekki minna máli. Menn verzla helzt, þar sem þeir eiga leið, eða í nágrenni heimilanna, enda heldur það samgöngukostnaði niðri. Það er nefnilega dýrt að elta kostaboð og kjarakaup út um allar trissur. Verð og gæði eru þó einnig farin að ráða töluverðu á síðustu árum. Fólk þjálfast í að átta sig á verðmun og gera innkaup í stórum stíl til að halda niðri samgöngu- kostnaði og tímamissi við að notfæra sér lága vöru- verðið. Vaxandi skilningur á gæðum hefur á siðustu árum komið í ljós í miklum uppgangi hinna beztu í hópi ým- issa sérverzlana, eins og bakaría og fískbúða. Margir neytendur láta hvorki tíma né ferðakostnað aftra sér frá slíkum búðum. Skilningur manna á verði og gæðum mundi eflast, ef frjálst verðlag væri hér á landi. Þeir eru því miður enn of vanir því, að vörur kosti alls staðar nokkurn veginn hið sama, svo að ekki taki því að kynna sér málin. Frjálst verðlag þarf auðvitað að fara saman við fræðslu. Of dýrt er fyrir fólk að fara út um allt til að kynna sér misjafnt verð nýlenduvöruverzlana og mis- jöfn gæði bakaría og fiskbúða. Það þarf aðgang að upplýsingum. Neytendasíða Dagblaðsins reið á vaðið á sínum tíma með ítarlegum verðsamanburði á ýmsum sviðum og í sumum tilvikum einnig gæðasamanburði. Sem betur fer hefur Verðlagsstofnun líka tekið upp þráðinn á þessu mikilvæga sviði. Nýbirt könnun stofnunarinnar á snarlstöðum hefur vakið verðskuldaða athygli, enda kom þar í ljós skemmtilega mikill verðmunur á einföldustu hlutum. Neytendur eru líka þegar farnir að notfæra sér þessar upplýsingar. Að vísu vantar þar ýmsa fyrirvara. Sumir dýrustu staðirnir í könnuninni veita þjónustu, sem kostar nátt- úrlega miklu meira en sjálfsafgreiðsla. Að vísu hefur ódýrasta veitingahúsið þjónustu og er undantekningin, sem sannar regluna. Auk þess fjallaði könnunin í átta atriðum um drykkjarföng og átta atriðum um ýmsar tegundir brauðs, í tveimur atriðum um súpur og þremur at- riðum um hamborgaralega fæðu. Eiginlegur matur var ekki á dagskrá könnunarinnar. Hún sýnir vel, hvar ódýrast er að fá sér brauð og drykk. Hún sýnir ekki, hvar ódýrast er að borða venju- legan mat, heimilismat og sparimat. Sú hlið hefur hins vegar rækilega komið fram i veitingahúsaþáttum Vik- unnar síðustu árin. Kunnugum kemur þó ekki á óvart, að ódýrasta veit- ingahúsið er hið sama í báðum þessum könnunum. Það er Lauga-Ás, sem þar á ofan reyndist í könnun Vikunnar einnig vera með betri veitingahúsum landsins. Þar ráða menn, sem ættu að fá orðu. Athyglisvert er, að síðasta verð- og gæðakönnun Vikunnar leiddi í ljós, að yfirleitt er bara eðlilegt, að í raunverulegum mat sé eitt veitingahús helmingi dýrara og betra en annað. í snarli ræður verðið hins vegar mestu, því að gæðin eru sumpart hin sömu og sumpart svipuð. Þar er helm- ings verðmunur út í hött. Enda má búast við, að sumir snarlstaðir lækki nú verð sín snarlega, könnuninni til vegsemdar. Svíar vilja tryggja hlutleysi sitt betur: Óskar sænski herinn eftir námskeiðum hjá Varsjárbandalaginu? — Gagnrýni hef ur komið f ram á að hundruð sænskra liðsforingja hafi sótt námskeið hjá Nató en enginn hjá Varsjárbandalaginu Hundruð sænskra liðsforingja hafa hlotið mcniitun sina í Nató- löndum að því er segir í sænska her- blaðinu VSmpliktsnytt. Sænska dag- blaðið Dagens Nyheter tekur málið upp á forsíðu og spyr í framhaldi af frétt Vámpliktsnytt: „Er Sviþjóð hlutlaus?” Umræða fer nú fram um þetta mál í Svíþjóð og sýnist ýmsum sem Svíar standi í nánara sambandi við Atlants- hafsbandalagið en æskilegt geti talizt af ríki sem kenna vill sig við hlutleysi. Thorsten Gustafsson, varnarmála- ráðherra Svíþjóðar, segir: „Jafnvel þó við lítum á okkur sem hlutlausa þá vitum við hverjum við heyrum til. Bandaríkin em hið stóra lýðræðis- ríki.” í varnarmálaráðuneytinu er gagn- rýninni svarað á þann hátt að sænskir liðsforingjar séu vel færir um að verjast áhrifum Nató á þeim námskeiðum sem þeir sækja. Lennart Ljung herforingi. Hann er einn þeirra sem hlotið hafa menntun bæði f Bandaríkunum og Bretlandi. Thorsten Gustafsson varnarmálaráð- herra: „Við vitum hverjum við tilheyrum þó við séum hlutlausir.” Lennart Frick: „Ég vildi gjarnan sækja námskeið f Sovétrikjunum. Ég tel að þar gætum viö mikið lært.” TVEGGJA ARA SANNLEIKUR ENN í FULLU GILDI Eftirfarandi grein eftir mig birtist i tímaritinu Ægi, áttunda tölublaði 1979. Ég hygg að áhugamenn um fiskveiðar og fiskvinnslu hefðu gaman af að renna yfir hana. Les- endur eru beðnir um aö hafa í huga að h ún er tveggj a ára gömul. Undanfarin ár hefur skipafjöldinn aukist óeðlilega mikið, vegna þess að ekki hefur verið staðið við það fyrir- heit, að skip væru seld úr landi í stað nýrra. Það gefur auga leið, að ef þessi þróun heldur áfram öllu lengur, verður rekstrargrundvöllurinn stór- skertur hjá fiskiskipaflotanum. Er þetta hneyksli og algjör þversögn við það sem allir fiskifræðingar og framámenn í sjávarútvegi eru sam- þykkir a.m.k. í orði, en það er að takmarka þurfi sóknina í fisk- stofnana. Hætt er við, að aukin sókn í hina svokölluðu vannýttu fiskstofna sé ekki lengur fyrir hendi. Ufsastofninn er ofveiddur, sem sést best á því, að aflinn hefur stórlega dregist saman á undanfömum árum, þrátt fyrir meiri sókn. Það sama gildir um karfastofn- inn. 1 nýafstöðnum leitarleiðangri sem togarinn Guðsteinn fór í fyrir mánaðamótin júní, júlí sl. á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar með dr. Jakob Magnússon sem leiðangurs- stjóra, fannst lítið af karfa í Rósa- garðinum og á Þórsbankanum og er álitið að varla geti borgað sig að stunda þar karfaveiðar. Einnig hefur komið i ljós að undanfömu, að karf- inn á FjöUunum, Reykjaneshryggn- um og Jökultunguenda hefur fariö Kjallarinn Auðun Auðunsson smækkandi. Töluvert er af ýsu á miðunum sem stendur, en fyrirsjáan- legt er að stofninn verði harkalega úti á þessu ári vegna mikillar sóknar í hann, sem orsakast af löngum þorsk- veiðibönnum og ágangi útlendinga í ýsuna. ísf isksölur erlendis þjóðhagslega óaröbærar Ástæður þess, að meira hefur verið veitt á þessu ári en undanfarin ár. eru tilkoma blýteinsins á þorskanet, fjölgun fullkomnari skuttogara, áframhaldandi veiðar erlendra togara og báta ásamt mjög harðri sókn í sumum landshlutum. Ef beita á tak- mörkunum þannig að þær komi jafnt niður á alla verður að setja ákveðin mörk fyrir úthaldsdögum allra fiski- A „Það er hrein tilviljun að Þingeyri komst í sviðsljósið nú um daginn. Dæmin, sem við höfum frá síðustu vertíð á HornaSrði, Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og víðar, svo að einhver dæmi séu nefnd, voru síst betri.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.