Dagblaðið - 28.08.1981, Page 24

Dagblaðið - 28.08.1981, Page 24
KVIKMYNDAHÚSIN UNDIRBÚA SAMEIGINLEGA VIDEÓLEIGU fulltrúi farínn til Svíþjóðar að velja vél sem f ramleiðir videósnældur eftir kvikmyndum húsanna „Sameiginleg videóspóluleiga kvikmyndahúsanna allra er nú líkleg- asta svar þeirra við þeim ólöglegu að- gerðum sem einstaklingar stunda nú með útleigu mynda gegn gjaldi án leyfis og „einkasjónvarpsstöðvum” í fjölbýlishúsum, ýmist einum sér eða samtengdum,” sagði Grétar Hjartar- son formaður Félags kvikmynda- húsaeigenda í samtali við DB. „öll kvikmyndahúsin gera sína kaupsamninga á tímabilinu september til nóvember ár hvert. Ætlun þeirra allra er að ná vidóeinka- réttinum fyrir ísland á myndum þeim sem stóru kvikmyndafélögin fram- leiða, ásamt með sýningarrétti í kvik- myndahúsi. Með slíkum einkarétti á 160—180 kvikmyndum árlega úti- lokast á fáum árum möguleiki ólög- legu videóleiganna til útleigu.” í samtalinu kom einnig fram að nái þessi hugmynd fram að ganga, sem mjög líklegt er talið, muni kvik- myndahúsaeigendur hér á landi sam- eiginlega kaupa þar til gerða vél sem framleiðir videóspólur eftir kvik- myndafilmum þeim sem kvikmynda- hús nota til sýninga. Með því móti verða allar videóspólur með íslenzkum texta og þar af leiðandi miklu eftirsóttari. í þessu skyni er maður frá Texta hf. farinn til Sví- þjóðar til að kanna alla möguleika, en Texti hf. sér um innsetningu íslenzks texta á flestar eða allar filmur er hér eru sýndar. Sameiginleg videóspóluútleiga kvikmyndahúsanna hér fer ekki í gang fyrr en þau hafa öll Iokið sínum samningum við umboð sin. Laugar- ásbíó hefur umboð fyrir Universal, Háskólabíó fyrir Paramount, Stjömubíó fyrir Columbia, Nýja bíó fyrir 20th Century Fox, Austur- bæjarbíó fyrir Wamer Brothers, Tónabíó fyrir United Artists og Regnboginn fyrir EMI, en Regnbog- inn er eina húsið sem búið er að semja og búið að fá videóeinkarétt á öllum sínum myndum. Utan félagsins er svo Gamla bíó með umboð fyrir MGM og Disney. Kvikmyndahúsaeigendur benda nú á að eitt videótæki fyrir heila blokk eða samtengdar blokkir sé í raun ekki annað en „einkasjónvarpsstöð” og í engu frábrugðin lítilli útvarpsstöð sem útvarpar á litlu svæði á FM bylgju. Slíkar útvarpsstöðvar séu hleraðar uppi umsvifalaust og gerðar upptækar. Yfirvöld horfi hins vegar í gegnum fingur sér með einkasjón- varpsstöðvar, að þeirra dómi. Þeir kveðast ekki á móti videóþróuninni eða útbreiðslu þeirrar tækni, sé hún á sama grunni og t.d. tónspólumar eru. , - A.St. Hasssmyglið ígangi bróðurpart þessa árs — áþriðjatugíslend- inga tengdust málinu sem neytendur Rannsókn hasssmyglsins nýjasta á Keflavikurflugvelli er nú að mestu lokið. í gær var hálfísienzka „varnarliðsmanninum” sleppt úr varðhaldi en áður hafði fslendingun- um tveimur, sem í varöhald voru úrskurðaðir, veriðsleppt. Sannprófað var aö smyglið hefur verið i gangi bróðurp'art þessaársog nokkrar sendingar komið í pósti til „vamarliðsmannsins”. Engin fyrri sendingar var neitt I líkingu að stærð til við þá síðustu sem innihélt hálft þriðjakilóafhassi. Sannreynt var að annar íslend- ingur sá um dreifinguna en „vamar- liðsmaðurinn” um móttökuna og þar með innflutning fíkniefnanna. Á þriðja tug manna utan vallar tengd- ust málinu, aðallega sem neytendur. Reynt er nú að ná til þeirra sem stóðu að sendingum fíkniefnanna til „varnarliðsmannsins” en þeir aðilar eru erlendir. -A.St. Engin loðnuveiði — eftirað loðnuverðið varákveðiðfgær Ekki hafði verðákvörðun á loðnu nein áhrif á veiðarnar til batnaðar. 1 nótt er ekki vitaö til þess að nokkurt skipanna hafi fengið afla. Þrír fengu afla í gær samtals 1700 tonn. Voru það Hrafn með 550 tonn, Albert með 600 og Ljósfari með 550 tonn. „Sá bati sem virtist i veiðunum á dögunum hefur reynzt tálvon,” sagði Andrés Finnbogason hjá Loðnu- nefnd i morgun. Heildarafli loðnuskipanna á þessari vertið er nú á milli 20 og 30 þúsundlestir. Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins ákvaö á fundi sinum i gær loðnuverðið. Skal það vera 450 kr. fyrir tonnið á loðnu veiddri til bræðslu frá 10. ágúst til 30. september. Verðið er miðað við 15% fitufritt þurrefni og breytist um 20.25 kr. til hækkunar og lækkunar fyrir hvert 1% sem fituinnihald breytist. Það breytist um 27.20 kr. til hækkunar eöa lækkunar fyrir hvert 1% sem þurrefnismagn breytist frá viömiðun. Kaupendur greiða enn- fremur 75 aura af hverju tonni til Loðnunefndar. Verðið var ákveðið með atkvæðum oddamanns og fulltrúa seljanda. Móti voru fulltrúar kaupenda. -A.St. keppninni að Ijúka: Minkur, hvar? Þeir leita af brennandi áhuga og veiðimaðurinn I brjóstinu á þeim hefur tekið mikinn kipp. Myndin sú ama er ein af hundruðum mynda, sem borízt hafa Dagblaðinu í keppnina um Sumarmynd Dagblaðsins 1981. Á mánudagskvöldið 31. ágúst rennur út skHafrestur I keppnina. Þátttaka hefur verið áberandi mikil I sumar og er það ekki undaríegt, þvl verðlaun eru mjög glœsileg. Höfundurþessarar myndar er Ari Viðar Jóhannsson, Hálsaseli 6 Reykjavlk. EYRABÚAR FÁ HITAVEITU í sumar hefur verið unnið að því að leggja hitaveitulögn frá Selfossi að Eyrarbakka og Stokkseyri á vegum Hitaveitu Eyra, sem stofnuð var af sveitarfélögunum tveimur fyrir rúmu ári. Þá hafa dreifikerfi verið lögð í þorpunum og hefur það verk gengið mjög vel. Stefnt er að því að vatni verði hleypt á aðveituæðina frá Sel- fossi um miðjan september og byrjað verði að tengja hús við veituna um mánaðamótin september-október. Er því allt útlit til þess aö flestir Eyrabúar ylji sér við jarðhitann frá Selfossi á komandi vetri og þurfi þvi ekki að sjá buddur sínar tæmast i hendur olíufurstanna úti i hinum stóra heimi. MKH, Eyrarbakka. frjálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST1981. Jón L. í efsta sæti íLondon Jón L. Árnason vann hinn sterka bandariska stórmeistara Seirawan í 3. umferð alþjóðlega skákmótsins í London. Jón hefur farið ákaflega vel af stað og unnið þrjár fyrstu skákir sínar og er því í efsta sæti ásamt Hebden, Englandi, og Hollendingun- um Van der Sterren og Ligterink. Keppendur í mótinu eru rúmlega hundrað og er teflt eftir Monrad-kerfi. Fyrst Jón byrjar svona vel mun hann mæta einhverjum af efstu mönnunum og i samtali við DB í morgun kvaðst hann mjög ánægður með að fá að keppa við öfluga meistara. Margeir Pétursson vann í gær Eng- lendinginn Wells og er í miðjum hópi keppenda með 1,5 vinninga. Sjö þekktir stórmeistarar taka þátt í mótinu og hefur þeim gengið misjafn- lega. Þannig varð Smyslov, fyrrum heimsmeistari, að gera sér að góðu jafntefli við 14 ára pilt að nafni Con- quest. Að sögn Jóns er það í annað skiptið í skáksögunni sem svo ungur /piltur nær jafntefU við fyrrverandi heimsmeistara. Af öðrum úrslitum í gær má nefna að hinn sterki brezki stórmeistari MUes tapaði fyrir HoUend- ingnum Ligterink. -GAJ iZ. Q Q IVIKU HVERRI Áskrrfendur DB athugið Einn ykkar er svo Ijónheppinn að fá að svara spumingunum I leiknum „DB-vinningur I viku hverri". Nú auglýsum við eftir honum á smáauglýsingaslðum blaðsins í dag. Vinningur i þessari viku er Crown-sett frá Radlóbúðinni, Skipholti 19Reykjavík. Fylgizt vel með, áskrifendur, fyrir nœstu helgi verður einn ykkar glœsilegu Crown-setti rlkari. hressir betur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.