Dagblaðið - 18.09.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981.
3
Steini telur Electric Light Orchestra skara fram úr öðrum hljómsveitum.
Electric Ught
Orchestra
am hálW^ — segirhrifinn
l aðdáandi
Steini skrifar:
Ég hef lesið mikið um hljómsveitir
í Dagblaðinu og Vísi, en nú ætla ég
að skrifa um eina þeirra sem ég hef
svo til aldrei séð minnzt á i neinu ís-
lenzku dagblaði. Það er Electric
Light Orchestra.
Hljómsveitin er sú bezta og
skemmtilegasta sem mér er kunnugt
um. Þar með er ég ekki að segja að
t.d. Utangarðsmenn, Bara flokkur-
inn, Kiss, Queen og fleiri séu ekki
ágætar, en mér finnst hin 12 ára
gamla hljómsveit, Electric Light
Orchestra, skara fram úr.
Vonandi sér sjónvarpið sér fært að
sýna fleiri þætti með þekktum hljóm-
sveitum. Það yrði vinsælt hjá
mörgum.
■ W"* 1 V*
\tutt ogskýr bréf
u
Enn cinu sinni minna lexcndadálkar DB alla þá. cr
hyMRÍast senda þœttinum linu. a<) lála fylgja fullt nafit.
heimUisfany. simanúmcr (efum þa<) cr a<) rœáa) oy
nafnnúmer. Þetta cr litil fyrirhöfn fyrir hrcfritara okkar
oy til mikilla þœyinda fyrir DB.
Lcsendur eru jafnframt minntir á a<) hrcfciya a<)
i cra stutt <>n skýr. Áskilinn crfullur réttur til a<) '
stytta hrcfoy umorða til að spara rúm op koma
cfni hctur til skila. Brcf wttu helzt ekki að vcra
lenpri en 200—300 orð.
Simatimi lcscndadálka DB cr milli kl. *
13 <>k /5 frá mánudöKum til /östudaKa.
Víxlaviðskipti:
Eru svörtu
listamir
launungarmál?
—ekki reyndist svo með öllu
Lesandi skrifar:
Það hefur mikið borið á því und-
anfarið að bílar hafa verið sviknir út
úr mönnum með því að greiða þá
með víxlum sem eru einskis virði.
Ég seldi bílinn minn fyrir nokkru
og fékk meirihluta söluverðsins
greiddan með vixlum. Eftir á vildi ég
komast að því hvort heiðarlegir menn
hefðu skrifað undir víxlana. Ég
hringdi i Landsbankann og vildi vita
hvort þessir menn væru á hinum svo-
kallaða svarta lista.
En viti menn, það er ekki mögulegt
að fá svo einfaldar upplýsingar sem
þessar. Er verið að halda hlífiskildi
yfir glæpamönnum svo að þeir geti
ótrauðir haldið iðju sinni áfram?
Bílasalar hafa montað sig af því að
hafa þennan „svarta lista”, en
hvernig hafa þeir fengið hann? Og
hvernig stendur á því að þeir vilja
ekki gefa neinar upplýsingar, þótt
þeir segist hafa þær. „Ef þú kaupir
bílinn af dkkur, þá göngum við úr
skugga um að útgefendur víxla séu
heiðarlegir,” er látið nægja.
Svo virðist vera sem tvær stéttir
hafi einkarétt á að vita hvort þeir eiga
vbdaviðskipti við glæpamenn eða
heiðarlega menn; bilasalar og banka-
starfsmenn.
Að lokum óska ég eftir að for-
svarsmenn bankakerfisins svari þessu
bréfi.
Ekki eru allar bjargir bannaöar:
Hjá Seðlabankanum fékk DB þær
upplýsingar, að innan bankakerfisins
væru þessir vanskilalistar trúnaðar-
mál en hins vegar myndu einstaka
fyrirtæki hafa komið sér upp sínum
eigin skrám yfir slíkt.
Skrá yfir gjaldþrot og árangurslaus
fjárnám mun vera gefin út af Þ.B. út-
gáfunni —pósthólf 4280, Reykjavik.
Síðan mun Verzlunarráð gefa út
skrá yfir afsagða vixla. -FG
Eru athaf nasvæði Vega-
gerðarinnar illa merkt?
—slíkt getur valdið slysum
l.esandi skrifar:
Vegagerðin ætti nú stundum að at-
huga sinn gang. Síðastliðinn sunnu-
dag vorum við nokkur á leið frá
ÞingvöIIum, þegar minnstu munaði
að illa færi.
Austan við Seljabrekku í Mosfells-
dal standa yfir vegaframkvæmdir og
þar átti m.a. að sneiða hressilega af
beygju, sem er allra góðra gjalda
vert. Hins vegar voru framkvæmdir
ekki lengra komnar en það, að vegur-
inn hélt áfram beint út í móa — gjör-
samlega ómerktur.
Síðan var manni ætlað að beygja
-td-hægri af.þvi sem sýndist vera rétti
vegurinn, ef maður hafði ekki sér-
stakan áhuga á að fara sér að voða. í
slæmu skyggni hefði nú svo getað
farið, hvort sem áhuginn var fyrir
hendi eður ei.
Er of mikil fyrirhöfn að koma slá
fyrir á tveim tunnum eða merkja
svona lagað á einhvern hátt?
„Vegagerðin ætli nú stundum að at-
huga sinn gang,” segir lesandi.
Hvernig finnst þér
ríkisstjórnin
hafa staðið sig?
Axel Guðmundsson, meindýraeyðir:
Ekki nógu vel og sízt í verðlags-
málunum.
Svala Árnadótlir, húsmóðir: Með
heiðri og sóma. Það er bara mesta
furða.
Guðmundur Friðjónsson, bóndi: Hún
hefur gert margt gott en á margt eftir
ógerl.
Sigriður Halldórsdóttir, húsmóðir: Æ,
flest hefur verið fjárhagslega misgert —
en einstaka hefur veriðgott.
Tómas Ludwig, garðyrkjumaður:
Nokkuð vel, en ég er ekki stórhrifinn af
öllu.
Jóna Guðmundsdóttir kennari: Ég er
tiltölulega nýkomin heim eftir 6 ára
dvöl ertendis, svo ég get eiginlega ekki
svarað þessu.