Dagblaðið - 18.09.1981, Side 4

Dagblaðið - 18.09.1981, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981. DB á neytendamarkaði Sérkennilegasti skóli landsins? Meiríhlutinn konur og flestir læra tungumál — örlítið um Bréf askólann „Langflestir eru að læra tungumál og svo er það bókfærslan,” sagði skólastjóri eins sérkennilegasta skóla landsins. Sá heitir Bréfaskólinn og er í eigu Sambands ísl. samvinnufélaga, Alþýðusambandsins, BSRB, Far- manna- og fiskimannasambandsins, Kven félagasambandsins, Stéttarsam- banda bænda og Ungmennafélags ís-. lands. í Bréfaskólanum er hægt að læra fjölmargar greinar. Eru þar fyrst tungumálin, bókmenntir, heilsufræði, félagsfræði, tómstunda- störf og fræðsla um ýmsar greinar at- vinnulífsins. Einnig má nefna greinar fyrir sjón- og hreyfiskerta. Námið er yfirleitt byggt þannig upp að menn fá send í póstkröfu tvö bréf. Hinu fyrra leysa þeir úr með hjálp þar til gerðra bóka og snældna (kassettna) og senda aftur. Á meðan þeir bíða eftir því að í skólanum sé farið yfir bréfið leysa þeir úr bréfi númer tvö. Senda það þá af stað og er þá ekki langt að bíða þess að inn um lúguna' komi úrlausn á fvrsta bréfinu og þriðja bréfið. Svona geng ur þetta koll af kolli. Misjafnt er hvað hver námsflokkur er langur, hvað honum fylgir af bréfum og öðrum kennslugögnum. Verðið er einnig misjafnt. Um allt þetta geta menn fengið mjög nákvæmar upplýs- ingar með því að hringja í síma 81255 og panta kynningarrit skólans sem þá eru send endurgjaldslaust. Bréfanámið er miðað við þá sem búnir eru að ljúka grunnskólaprófi. Enda sagði Birna skólastjóri að mikið væri um nemendur í Bréfaskól- anum sem væru að búa sig undir nám í fjölbr'autaskólum eða öldungadeild- um. Fyrir þá sem lengra eru komnir gefst hins vegar kostur á sjálfsnámi. Þá fá menn sendar bækur og snældur og læra síðan heima. Þeir senda engin svör í skólann aftur og frétta því ekkert frá öðrum um það hvernig þeim gengur. Þetta sjálfsnám er ein- göngu i tungumálum og miðast við það að menn nái að tala og skilja •daglegt mál án þess að hafa mikinn málfræðigrundvöll. Æskilegt er því fyrir þá sem ætla sér að ná umtals- verðri leikni að byrja fyrst á bréfun- um og fá með þeim málfræðigrunn- inn undir frekara nám. Meirihlutinn konur 60% nema í Bréfaskólanum eru konur og helmingurinn af þeim hús- mæður. Núna eru skráðir til náms 3800 nemendur. Um þúsund nýir inn- ritast á hverju ári og eru margir í skólanum meira en eitt ár. Mikið er eins og fyrr segir um fólk sem er að búa sig undir nám í öðrum skólum og jafnvel nema annarra skóla. Fólkið sem er að læra kemur úr mörgum stéttum þjóðfélagsins. Sem dæmi má nefna að á undanförnum árum hefur því bændafólki, sem í skólanum er, fjölgað stórlega. Skólinn hefur undanfarin ár verið rekinn með nokkru tapi sem aðildar- félög hans hafa greitt. Nú er hins veg- ar bjartara framundan því ríkið hefur lagt stærri hlut til skólans. Framlög til hans eru 120 þúsund á þessu fjár- hagsári auk 85 þúsunda sem veittar hafa verið til að útbúa nýtt námsefni. Birna sagði að skólinn hefði hin síðari ár dregizt nokkuð aftur úr með nýtt efni vegna fjárskorts en með þessari aukafjárveitingu liti allt miklu betur út. Nemendurnir eru eftir sem áður þeir sem mestan hluta kostnað- arinsgreiða. „Okkar stærsta og stöðuga vanda- mál hefur verið það að menn gefast upp og hætta í miðju námi. Það er erfitt að vera eigin húsbóndi og þurfa að vinna einn að námi sinu. Við höfum verið að reyna að senda því fólki sem gefst upp hvatningarbréf. Við það hefur svörun frá því aukizt að mun auk þess sem við náum miklu betra sambandi við nemendur okkar en áður,” sagði Birna. Bréfaskólinn er miðaður við að menn ljúki hverju bréfi á þrem vikum. Ef ekki hefur borizt svar eftir þrjá mánuði hefur verið litið svo á að neminn væri hættur. Nú er honum hins vegar gefið að minnsta kosti eitt tækifæri eftir það til að taka sig á og halda áfram. Bréfaskólinn er til húsa að Suður- landsbraut 32. -DS. ■ Skóladótið drjúgur kostnaður Hóffý skrifar: Hér sendi ég inn ágústseðilinn og hann er eins og venjulega svimandi hár (535 krónur á mann í mat og hreinlætisvörur, það kalla ég ekki hátt, innskot DS). Bókin ykkar er ágæt á sína vísu en ég skrifa ekki inn í hana eins og á að gera. Ég hef áður Qin-f -i-'r ■ • —- tuitai sKnrao inn i stilabók og svo fært inn á veggspjaldið. Ég hef alltaf fært inn hvað kostar hvað, s.s. bensín, rafmagn, sími, föt og fieira. Nú eru skólarnir að byrja og þá þarf aö kaupa skóladót og er það ærinn kostnaður þar sem mörg börn »<i i ->■*’- *• • - —- w.m < sKoia. tg hef tekið eftir því að kennararnir láta börnin skrifa í, t.d. stílabækur, bara öðrum megin á síðuna og jafnvel í aðra hverja línu þannig að bækurnar eru ódrjúgar. En í fyrravetur var hér kennari sem lét börnin snúa við Vv—— u . . _ pau voru oúin með bókina og skrifa til baka, þ.e. byrja aftast í bókinni öfugri og skrifa fram hinum megin á síðurnar. Mér finnst þetta alveg bráðsnjallt. ODYRARA AÐ VERA TVEIR EN EINN S.Á. skrifar: Hér sendi ég inn ágústseðilinn minn. í þessum mánuði var ég ekki ein, því vinur minn sem annars borðar hjá mömmu sinni var í fæði hjá mér alian mánuðinn. Við vorum bæði í sumarleyfi og fórum því oft í útilegur og hleypti það matar- reikningnum nokkuð upp. Annars er það mun ódýrara á mann að vera fleiri. í júlí eyddi ég 1.118,40 kr. i mat og var ein en nú 1.579,65 eða 789,85 á mann. Mismunurinn er því 328,55. Liðurinn annað hefur hins vegar hækkaðmjög. Úr 1,725,65 í 2,952,25 eða um 1,226,60. Það skal tekið fram að annað er algjörlega minn einka- reikningur. Ber hæst bensín og viðhald á bil 842, gjafir 637,45, búsáhöld 462, skemmtanir 426, húsa- leigu 300, handavinnu 190 og Dag- blaðið 80. (Skrýtið að ekki skuli vera hægt að hækka áskriftina á einu bretti frekar en að hækka þetta um 5 kall á mánuði, 70, 75, 80og nú 85). Svar: Þetta með verðið á Dagblaðinu; stafar víst af því að alltaf er verið að reyna að hafa það eins ódýrt og nokkur kostur er. Þegar verðið er hækkað er það gert eins lítið og menn telja sér unnt að komast af með. En i okkar verðbólguþjóðfélagi eru allar slíkar niðurstöður fljótar aö breytast og þá þarf aðreikna upp á nýtt. -DS. plataðir við mynt- una G.P. skrifar: September seðillinn sýnir mikið í dálknum annað. Bíll var seldur og annar ódýrari keyptur og greiddir vixlar og lán. Mér finnst matar- reikningurinn alltaf hár enda dýrt að verzla í kaupfélögum. Það sá ég þegar ég dvaldi i Reykjavik í viku núnaumdaginn. - Ég hef haldið svona reikninga það lengi að ég hef auðveldlega séð þann mikla mun sem varð á kostn- aði við heimilið eftir áramót. Mun- urinn er geysilegur, varð strax um 3000 gamlar krónur frá því í nóvember og fram i febrúar. Ég held að neytendur hafi verið stór- lega pl ataðir við myntbreytinguna. Svar: Þessa síðustu athugasemd höfum við heyrt oft áður og reynt hana á sjálfum okkur. Hvað sem stjórnmálamennirnir segja viröist hafa orðið umtalsverð hækkun á verði vöru, og þá aðaliega þeirrar vöru sem var ódýr fyrir áramót. Hvers konar „óþarfi” hefur. hækkað gífuriega og allt það sem ekki er inni í visitölu. Fyrir áramót fékk fólk ýmislegt i innkaupapoka fyrir fimm þúsund gamlar krónur. En nú reynir enginn að fara út i búð með 50 nýjar krónur, þó það eigi að vera sama upphæðin. Jafnvel fyrir hundrað nýjar krónur, sem er heim- ingi meira fé, fæst næsta litið. -DS. Meira I en júlí Þegar menn stunda sjálfstætt nám, þarf viljastyrkurinn að vera mikill svo menn gefist ekki upp. Kannski er ráðið að læra saman eins og þessar ungu stúlkur gera greinilega. S.I. skrifar: Þá er það ágúst og allmikil hækkun áöllum liðum. Við höfum greinilega borðaö meira í ágúst en júlí enda talsverður gestagangur. Af öðru munar mest um skattana, þá var og greitt fyrir rafmagn, hita og tryggingu. Bensinreikningurinn lækkaði sem betur fer. Ég segi hiklaust að bensínkostnaður hjá okkur sé 2.200 krónur á mánuði og eru þó aðeins meðalaksturshættir viðhafðir. G. A.skrifar: Hér sendi ég inn ágústseðilinn. Liðurinn annað er mjög hár núna þar sem við erum að byrja að byggja. Hann er sem hér segir, barnagæzta 500,00, sjúkrabill 510,00, lækniskostnaður 66,85 og byggingarvörur fyrir 111.220, 25 og svo er ýmislegt annað smávegis. Heimilisdagbókin er mjög góð.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.