Dagblaðið - 18.09.1981, Page 7

Dagblaðið - 18.09.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981. 7 Einhver skriður að komast á sölu Glæsibæjar? Húsnæðismál íslenzku óperunnar í deiglunni „Húsnæðismál íslenzku óper- unnar eru ekki lengra á veg komin í dag en þau voru í fyrra,” sagði Garðar Cortes er blaðið ræddi mál óperunnar við hann í gær. „Óperan fékk höfðinglega gjöf í fyrra, sem var fjórði hluti af tilteknum eignum hjónanna Helgu Jónsdóttur og Sigur- liða Kristjánssonar kaupmanns. Þær eignir voru þá metnar á um það bil 4 milljarða gkr., þannig að um millj- arður gkr. kemur í hlut óperunnar”. Garðar sagði að eignirnar væru bundnar í ýmsum fasteignum, þó aðallega í Glæsibæ. Enn sem komið er hefur lítið verið selt af eignunum en Garðar taldi að einhver skriður væri að komast á þau mál. Fyrr en séð væri fyrir um sölu eignanna væri ótímabært að huga að kaupum á gömlu húsi fyrir óperuna eða hefja byggingaframkvæmdir, hvor leiðin sem valin yrði. Aðalskiptaráðandi dánarbúsins, Sveinn Snorrason lögfræðingur, verður erlendis fram undir mánaða- mót og því ekki unnt að fá hans álit á málum er varða sölu fasteigna þeirra sem arfleifð Sigurliða og konu hans er bundin í. Hjá íslenzku óperunni er hins vegar mikið starfað. Unnið er að því, að sögn Garðars, að byggja óperuna upp sem fyrirtæki og félag sem heldur uppi óperustarfsemi allt árið. Fjallað er um hvaða óperur verða teknar til flutnings í náinni framtíð og hugað er að ráðningu fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. ,,Svo mun austurrískur andi svifa hér yfir vötnum í vetur,” sagði Garðar Cortes. „Sígaunabaróninn verður tekinn til sýninga um jólin. Ráðinn hefur verið hljómsveitarstjóri frá Vínarborg sem Mascat heitir. Þaðan kemur einnig leikstjóri sem — þó ötullega sé unnið að skipulagi óperuflutnings í framtíðinni og undirbúningur jólasýninga sé á lokastigi Steuer heitir en æfmgastjóri verður Tom Gligoroff, Bandaríkjamaður af ungverskum ættum. Gligoroff kemur til starfa hér i október, Steuer leikstjóri siðast í nóvember og Mascat hljómsveitar- stjóri fyrst i desember,” sagði Garðar. ,,Það er síður en svo uppgjafar- tónn í óperuliðinu þó húsbyggingar- mál framtiðarinnar verði að þróast á eðlilegan hátt.” -A.St. UTGJOLD TIL VEGAMÁLA ÞRIÐJ- UNGUR AF TEKJ- UM RÍKISINS AF BIFREIÐUM Segli hulin bifreið í Bankastræti vakti athygli vegfarenda í fyrradag, en seglinu var skipt í mismunandi litla og stóra hluta. Bílgreinasam- bandið stóð fyrir þessari uppákomu en tilefni hennar var að vekja athygli á því að ríkið hirðir 56% af verði hverrar bifreiðar. Verksmiðjan sem bifreiðina framleiðir fær 27,5%, inn flytjandinn 9,5% og flutningskostn- aður er 7% af verðinu. Þá hirðir ríkisvaldið rúm 56% af verði hvers bensínlitra. Alls er áætlað að tekjur hins opinbera af bilum árið 1980 hafi numið 735,6 milljónum nýkróna, en á sama tíma voru útgjöld til vegamála aðeins 252,4 milljónir nýkóna. Útgjöld til vegamála i fyrra voru því aðeins 34% af tekjum ríkisvaldsin^ af bifreiðum. -SA a ti| '■m'-in ^ _ ',Ef49 » ? a « 4 1-,'aS '.l»ní>* 9 4 9 9 9 9| DB-mynd Bjarnleifur. Hríngtorgin reynast ýmsum öku- mönnum erfið Þessi mynd var tekin við Miklatorg laust fyrir hádegi í gær. Volvo-bif- reiðin á myndinni var í hringtorginu, á ytri akrein þess, þegar stór flutn- ingabíll frá Kók-verksmiðjunni ók inn í hringtorgið af Hringbraut. Volvo-bíllinn rakst í Kókbílinn og snerist hálfhring við höggið. Engin slys urðu á mönnum en Volvo-bíllinn er töluvert skemmdur eins og sjá má. Hins vegar sást litið á Kókbílnum. Árekstur sem þessi minnir öku- menn á að gæta ítrustu varkárni þegar ekið er um hringtorg. Að mörgu þarf að hyggja og athyglis- gáfan verður að vera vel vakandi ef ekkiáillaað fara. -KMU Jafnréttisráö sendir Ríkisútvarpinu bréf vegna auglýsingar innheimtu- deildar: Sjónvarpið hætti að sýna auglýsinguna Jafnréttisráð hefur nú farið þess á leit við Ríkisútvarpið að það hætti sýningum á hinum umtöluðu auglýs- ingum innheimtudeildar Ríkisút- varpsins. Sem flestum er eflaust kunnugt um koma fram í umræddri auglýsingu tvær stúlkur sem dansa og vel klæddur herramaður. Segir Jafnréttisráð að auglýsingar þessar hafi vakið athygli fyrir fádæma ósmekklega framsetningu þar sem ekkert samræmi virðist vera á milli myndar og texta. Vekur ráðið athygli á jafnréttislögunum og reglum um auglýsingar í útvarpi. Telur það að ekki hafi verið gætt ákvæða jafnréttislaganna í marg- nefndum auglýsingum. Loks fer ráðið þess á leit við Ríkis- útvarpið að það ræki betur hlutverk sitt í baráttunni fyrir jafnrétti kvenna og karla og gæti þess í framtíðinni að auglýsingar og annað efni Ríkisút- varpsins sé í samræmi við tilgang jafnréttislaganna. -KMU. DB-mynd: Sigurður Þorri. tíi UMBÚÐA- SAMKEPPN11981 Umbúðasamkeppni Félags ísl. iðnrekenda verður nú haldin í sjötta sinn. Samkeppnin er fyrir allar gerðir umbúða, svo sem flutn- ingsumbúðir, sýningarumbúðir og neytendaumbúðir. Verða þær að vera hannaðar á íslandi og hafa komið á markað hér eða erlendis. Allir íslenzkir umbúða- framleiðendur og umbúðanotendur geta tekið þátt í sam- keppninni svo og aðrir þeir sem hafa með höndum gerð og hönnun umbúða. Einungis er leyfilegt að senda inn umbúðir sem komið hafa fram frá því að umbúðasam- keppnin fór síðast fram eða frá miðju ári 1977. Fimm aðilar skipa dómnefnd og eiga sæti í henni: Brynj- ólfur Bjarnason, fulltrúi Félags ísl. iðnrekenda, Þröstur Magnússon, frá Félagi ísl. teiknara, Kristmann Magnússon frá Kaupmannasamtökum Islands, Ottó Ölafsson frá Myndlista- og handíðaskólanum og Gunnlaugur Pálsson frá Neytendasamtökunum. Allar umbúðir sem sendar eru til þátttöku á að afhenda í þremur eintökum og skulu, ef unnt er, tvö þeirra vera með innihaldi en eitt án innihalds. Fyrir sérstakar gerðir umbúða má þó veita undanþágu frá þessu skilyrði. Umbúðirnar ásamt upplýsingum um nafn og heimilisfang þátttakenda, umbúðaframleiðanda, umbúðanotanda og þann sem hefur séð um hönnun umbúðanna, skal senda til Félags íslenzkra iðnrekenda fyrir 9. október nk. Ritari nefndarinnar er Þórarinn Gunnarsson, skrifstofu- stjóri FÍI og geta þátttakendur snúið sér til hans með allar fyrirspurnir í síma 27577. Félag íslenzkra iðnrekenda, Hallveigarstig 1, pósthólf 1407, 121 Reykjavík.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.