Dagblaðið - 18.09.1981, Qupperneq 8

Dagblaðið - 18.09.1981, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981. SKOLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI 20235. r ,Dale . Carnegie námskeiðið Viltu losna viö áhyggjur og kvíða? • Viltu veröa betri ræðumaður? • Viltu verða öruggari i framkomu og njóta Ufsins? • Þarftu ekki að hressa upp á sjálf- an þig? \ i twmskcii) Q®T6 ij Tl a<) In l/asi QfcH E I STJORNUNARSKÓLINN, Konrád Adolphsson KVARTMÍLUKEPPNI VERÐUR HALDIN LAUGARDAGINN 19. SEPT. KL 2 E.H. A BRAUT KVARTMÍLUKLÚBBSINS VIÐ ALVERIÐ. Keppt verður í öllum flokkum ásamt nýjum „SE” „Street Eliminator” flokki. Keppendur mœti kl. 11 f.h. Keppni byrjar kl. 2 e.h. Keppt verður um íslandsmeistaratitil. Mœtið og sjáið einu kvartmílukeppni ársins og kynnizt hinum nýja fjölmenna SE keppnisflokki. STJÓRNIN nriTTn ■ ■ ■ wwtttttwwí ■'■■■■■ ■ rr FILMUR DG VÉLAR S.F. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235. Bandarískur kardínáli sakaður um fjárdrátt: HNEYKSU FYR- IR KAÞÓUKKA Eins og Dagblaðið hefur skýrt frá hefur bandaríski kardínálinn John Patrick Cody verið ákærður fyrir að draga sér fé frá kirkju_sinni og nemur upphæðin milljón dala. Blaðið Chicago Sun Times, sem fyrst birti ákæruna, segir sig hafa rannsak- að þetta mál í tvö ár og er málið nú komið til dómstóla í Chicago. Enn er þó ekki búið að ákveða hvort ákæra skal kardínálann opinberlega. Ef sök þessi sannast á Cody er þetta meiri háttar hneyksli fyrir kaþólsku kirkjuna því kardínálinn, sem nú er 71 árs gamall , nýtur svo mikillar virðingar innan kirkjunnar að hann kom jafnvel til greina sem heppilegur frambjóðandi við síðasta páfakjör. Chicago blaðið sakar kardínálann um að hafa gefið ástkonu sinni um margra ára bil, frú Wilson, pening- ana en bæði neita þau þessum ásök- unum harðlega og fuilyrða einnig að um ástarsamband hafi aldrei verið að ræða þeirra á milli. Cody kardináli: Tvöfalt hneyksli, fjárdráttur og ástarsamband. Erlent Erlent Pólska kommúnistastjórnin herðir nú enn á viðvörunum sínum til óháðu verkalýðssamtakanna, Einingar. Segja þeir Einingu stefna eindregið i átt að valdatöku og harðra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir slikt. Eining mun halda áfram að þinga I næstu viku. Stungið hefur verið upp á því við nóbelsnefndina að forystumaður Einingar, Lech Walesa, fái friðarverðlaun Nóbels við næstu úthlutun en hún fer fram 14. október nk. Á myndinni hér að ofan sjáum við Lech Walesa í skemmtilegri félagsskap en við eigum að venjast af fréttamyndum og var hún tekin er ungar stúlkur úr Einingu færðu foringja sinum blóm. Fyrrverandi ognúverandi forsetar Valéry Giscard d’Estaing, fyrrver- andi Frakklandsforseti, er nú í heim- sókn hjá öðrum fyrrverandi forseta, Gerald Ford, fyrrum forseta Banda- ríkjanna. Bauð Ford d’Estaing til Bandaríkjanna í tilefni af vígslu hins nýja Ford-safns í Michigan. Reagan forseti verður einnig viðstaddur vigsluna, og má þvi búast við að miklum ljóma stafi af athöfn þessari, engu siður en vígslunni okkar á Hrauneyjafossvirkjun hér á dögunum. Tilraunadyr við eigin rannsóknir Pierre Bastien, 57 ára gamall franskur læknir, sem oft hefur notað sjálfan sig sem tilraunadýr við vísinda- iegar rannnsóknir, snæddi 70 g skammt af eitursveppum sem ætti að duga til að drepa mann. Gerði hann þetta til að sanna að hann væri búinn að finna rétta mótefnið gegn þeim. Hann féll þegar í djúpan svefn, en undir kvöldið sótti á hann ákafur magaverkur. Einn af kollegum hans fylgist með líðan hans á meðan á tilrauninni stendur. Bastien hefur tvisvar áður gert svipaða tilraun, en heilbrigðisyfirvöld fullyrða að rúmlega helmingur fólks sem vegna mistaka neytir sveppa þessara bíði banaaf. Er vinir hans voru spurðir um lifsT horfur læknisins voru þeir varkárir í svörum og sögðust vona það bezta og samkvæmt nýjustu fréttum er hann á batavegi. Einu reglulegu óvæntu úrslitin í norsku kosningunum var aukið fylgi Framfaraflokksins, em hann hlaut fjóra menn kjörna á þing. Framfaraflokkurinn, sem stofn- aður var í anda hins útsmogna, danska lögfræðings Glistrups, er eini flokkurinn i Noregi sem með sanni stendur undir nafninu „svartasta íhald”. Veldur því þessi mikla fylgis- aukning hans nokkrum áhyggjum þar í landi. Á myndinni sjáum við formann ffans, Carl I. Hagen, fagna kosninga- sigrinum með konu sinni.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.