Dagblaðið - 18.09.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981.
9
I
Erlent
Erlent
I
REUTER
8
Brottrekstur
ávíxl
Þeir sjö sovézkir sendiráðsmenn i
Kairó sem reknir voru úr landi eru nú
komnir til Moskvu.
Þessar aðgerðir egypzkra stjórnvalda
eru taldar upphaf mesta brottreksturs
sovézkra sendimanna, tæknimanna og
ýmiss konar ráðgjafa síðan Anwar
Sadat skipaði 17 þúsund sovézkum
hernaðarráðgjöfum að fara fráEgypta-
landi 1972.
Sovétmenn hafa nú svarað með því
að vísa hermálafulltrúa Egypta ásamt
10 samstarfsmönnum hans úr landi.
í Kairó er nú aftur á móti hafínn
undirbúningur réttarhalda yfir þeim
trúarofstækismönnum sem Sadat lét
nýlega handtaka í mikilli herferð sinni
gegn slíku fólki.
Washington:
Gasgrímur
gegn gula
regninu?
Talsmaður Bandarikjastjórnar sagði
í gær að það gæti tekið allt að tveimur
árum að finna mótefni gegn „gula
regninu”, eiturefninu sem Bandaríkja-
menn hafa ásakað Kremlverja fyrir að
nota í hemaði í Afganistan, Kampútseu
og Laos.
Veldur það stjórninni miklum
áhyggjum þar sem eitrið er bráðdrep-
andi. Er nú verið að reyna hvort gas-
grímur geta veitt vörn gegn þessu eitur-
efni sem sagt er að úðað sé úr flug-
vélum.
Talsmaður, sem ekki vill láta nafns
síns getið, fullyrðir að Bandaríkin hafi
innan fárra vikna nánari sannanir fyrir
því að eitrið hafi verið notað í SA-Asíu.
Víetnamar hafa neitað því að hafa
beitt eiturefni i hernaði í Laos og
Kampútseu. Thailenzki herinn segist
aftur á móti hafa sannanir fyrir sliku
og bætti við að landamæraverðir hans
bæru þess vegna gasgrímur.
Líbýa:
Gaddafí
veitist
adKönum
Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu,
sagði á fundi arabaríkjanna að sam-
þykkt Bandaríkjamanna og ísraels-
manna um samvinnu hefði breytt'
stefnunni í sambúðarvanda Israels og
arabaríkjanna þannig að þau væru nú
orðin vandamál á milli arabaríkjanna
og Bandaríkjanna.
Washington:
Erfiðleikar
heima fyrir
Komið hefur afturkippur í sambandi
við þá áætlun Reagans Bandaríkjafor-
seta að selja fimm ratsjárfiugvélar til
Saudi-Arabíu þar sem stjórnarand-
staðan telur sig hafa meirihluta til að
fella tillöguna á þingi.
Reagan á einnig í fleiri örðugleikum
heintafyrir því nýjar skýrslur stjórnar-
innar sýna að það er ekki eins bjart yfir
fjárhag landsins og búizt var við.
Einnig hefur orðið nokkur lækkun á
verðbréfamarkaðinum.
Sovézkur hermaður handtekinn í Angóla:
Stríösfang-
inn okkar
— segja S-Afríkumem, en Sovétstjómin er
ósammála
Eins og frá hefur verið skýrt í
blaðinu telja S-Afríkumenn sig hafa
gildar sannanir fyrir aðstoð Kreml-
verja við Angóla. Lengi hefur allt
verið á huldu um sannleiksgildi fregna
þessara en nú hafa S-Afríkumenn
leyst nánar frá skjóðunni í sambandi
við þessi mál. Segjast þdr hafa her-
tekið bústað 27 sovézkra ráðgjafa í
Xangongo. Að visu voru ráðgjafamir
flúnir en skildu eftir allar eigur sínar,
þ.á m. fjölskyldumyndir, tómar
vodkaflöskur, nákvæm landabréf og
önnur sönnunargögn sem S-Afríku-
menn telja að sanni síaukna hernað-
arlega aðstoð Sovétmanna við
Angóla.
Rúsínan í pylsuendanum fyrir S-
Afrikumenn var þó handtaka þeirra á
einkennisklæddum, sovézkum liðs-
foringja og hefur nú birtzt mynd af
honum í blaðinu Beeld í Jóhannesar-
tíorg. Heitir sá Nikolai Fjodoro-
witsch.
— Þetta er fyrsti rússneski stríðs-
fanginn okkar, segir blaðið fagnandi
— eins og búizt sé við að þeim muni
fjölga.
Sovétstjórnin hefur þó aldrei viljað
viðurkenna dvöl sovézkra hernaðar-
ráðgjafa i Angóla og þar við situr.
Sové/ki hermaðurinn Pestrezow:
handtekinn i Angóla.
HSSHSSIIÍSEgSðSBSðg
— - •— . ■ »
V,
v.
Síöasta ferð milli
Tuborg og Malmö
Þeir eru áreiðanlega ófáir íslending-
arnir sem hafa brugðið sér yfir sundið á
milli Tuborghafnar í Kaupmannahöfn
og Málmeyjar, með þeirri ágætu ferju
Sveu Scarlett. En sl. sunnudag fór Svea
sína síðustu ferð, rekstrarhalli á þessu
ári er kominn upp i 13 milljónir dkr. og
því þykir ekki annað fært en leggja
ferðirnar niður.
Mikið er þrýst á dönsku og sænsku
ríkisjárnbrautirnar að fá minna skip í
staðinn þar sem ferjufargjöldin hafa
verið mun lægri en fargjöld með flug-
bátum þeim sem sigla oft á dag milli
miðbæjarins 1 Kaupmannahöfn og
Málmeyjar. En þessir rekstraraðilar
þverneita nema til komi styrkur frá ríki
eða bæ. Borgarstjóri Kaupmanna-
hafnar, Egon Weidekamp, hefur látið
málið til sín taka og hótar að snúa sér
til ráðherra.
— Það breytir engu um það að við
höfum ekki bolmagn til að reka ferj-
urnar, segir forstjóri dönsku ríkisjárn-
brautanna, Andresen. — Við erum svo
sem alveg til í að halda uppi ferðum,
bara ef við vitum hver á að borga brús-
ann.
Aliauglýsir
Eftir að stjarna Muhammed Ali,
fyrrverandi heimsmeistara i hnefaieik,
fór að dala hefur hann snúið sér mcir
og meir að auglýsingastarfsemi. Nú
hefur hann fengið móður sína, Odessu,
í lið með sér og auglýsa þau í sam-
einingu risahamborgara fyrir banda-
rískt fyrirtæki. Slagorð Alis er: „Það
þarf svei mér stóran kjaft til að kyngja
svona stórum hamborgara”.
Sértrúarsöfnuðir geta verið varasamir:
Heilaþvegin afséra Moon
Útlendingaeftirlitið í Bandaríkjunum
leitar nú ákaft að írskri kennslukonu
sem gekk í sértrúarsöfnuð kenndan við
séra Sun Myung Moon eftir komu sína
til landsins. Segja talsmenn Moon-
hreyfingarinnar stúlkuna löngu farna
úr landi.
Þar sem foreldrar hennar trúa því
ekki eru þau nú einnig komin til Banda-
ríkjanna og eftir að hafa fengið um
þrjátíu manns í lið með sér gerðu þau
áhlaup á búðir Moonmanna í Kalir
forníu. Vildu þau á þann hátt bjarga
dóttur sinni úr klóm safnaðarins, en
hún fannst hvergi.
— Við viljum ekki að dóttir okkar sé
heilaþvegin af söfnuðinum, sagði faðir-
inn á blaðamannafundi sem þau hjón
héldu vegna máls þessa.
Útlendingaeftirlitið hefur nú gefið
út skipun um handtöku stúlkunnar á
þeim forsendum að landvistarleyfi
hennar í Bandarikjunum er útrunnið.
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiðar
í tjónsástandi
Subaru 1800, árg. 1981.
Lada 1500, árg. 1979.
Mazda 323, árg. 1979
VolgaT972 og 1973.
Cortinaárg. 1972.
Skoda 120 LS, árg. 1980.,
Cortina, árg. 1977.
Toyota Corolla, árg. 1978.
Fiat 125 P, árg. 1977.
Bifreiðarnar verða til sýnis að Melabraut 26, Hafnarfirði,
laugardaginn 19. sept. frá kl. 1—5. Tilboðum sé skilað til
aðalskrifstofu, Laugavegi 103, fyrir kl. 5, mánudaginn 21.
sept.
Brunabótafélag íslands,
Laugavegi 103, Reykjavík.
Sími 91-26055.
Chevy Vanárg. 78
moð um 300 aukahlutum. Innréttaður eins og lítil einkaþota. Tal-
stöfl, útvarp og segulband, sjálfskiptur mefi vökvastýri. Krómfelg-
ur. Ýmis skipti möguleg og gófl kjör. Komifi og skoflifi mesta lúx-
usbil á Íslandi.
B,!LAKAL(P
llfTllljTl 1,^:: ::l:iMi iiTlilHI llii,,lT,ll!TTi! iTTlHliillíliílIiiIliilllliíii.
SKEIFAN 5 -1 SÍMAR 86010 oð 86030
ALTERNATORAR
Startarar og varahlutir í rafkerfið
Ford Bronco
Chevroíet
Blaser
Dodge
Wagoneer
Cheroky
Datsun
Toyota
Citroen
Mazda
Benz
Taunus
Opel
Land Rover
Range Rover
Cortinu
Sunbeam
Fiat
Volvo
Lada o. fl.
VERÐ FRÁ
KR. 680,00
Póstsendum
Varahluta og BILARAF
viðgerðaþjónusta Borgartúni 19 - Sími 24700