Dagblaðið - 18.09.1981, Qupperneq 10

Dagblaðið - 18.09.1981, Qupperneq 10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981. MMBIAÐin frjálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaöið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóifsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Aðstoðarritstjórí: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. Skrífsto'ustjóri rítstjómar Jóhannos Reykdai. íþróttir: Hallur Simonarson. Menning: Aðalstoinn Ingólfsson. Aöstoðarfróttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Stoinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hókonordóttir, Krístján Már Upnarsson, Sigurður Sverrisson. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorrí Sigurðsson og Sveinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorloifsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. Halldórs- son. Drerfingarstjórí: Valgoröur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Síðumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur: Þverhotti 11. Aðalsími blaðsins er 27022 (10 Knur). Setning og umbrot: Dagblaðið hf., Síðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Arvokur hf., Skodunni 10. Áskriftarverö á mánuði kr. 85,00. Verð í lausasölu kr. 6,00. Enn þáttaskil í Bretlandi Tveggja flokka kerfið í Bretlandi er væntanlega hrunið nú, eftir að lands- þing Frjálslynda flokksins hefur sam- þykkt, að stefna að kosningabandalagi við hinn nýstofnaða flokk sósíaldemó- krata, jafnaðarmanna. Skoðanakannanir hafa um hríð gefið til kynna, að kosningabandalag þessara tveggja flokka yrði líklegt til að vinna hreinan meirihluta á brezka þinginu eða verða að minnsta kosti stærsti flokkurinn. í Bretlandi gætir mikillar þreytu með gömlu flokkana stóru. Landsmenn telja þá báða hafa brugðizt, Verkamanna- flokkinn og íhaldsflokkinn. Bretlandi fór stöðugt hnignandi undir ríkisstjórnum Verkamannaflokksins og miðjumoðsmanna úr íhalds- flokknum. Það voru þáttaskil í brezkum stjórnmálum, þegar Clement Attlee myndaði ríkisstjórn Verkamanna- flokksins eftir stríðið og hélt á braut sósíalisma. Þegar fram liðu stundir, minnkaði áhugi landsmanna á hinum nýju siðum. Ýmist var Verkamannaflokkurinn við völd eða íhaldsmenn, sem ekki hrófluðu svo að teljandi væri við ríkjandi kerfi. Bretland staðnaði. Mikið atvinnuleysi og verðbólga urðu landlægar plág- ur. Hverri ríkisstjórninni af annarri mistókst að hrífa landsmenn úr öldudalnum. Verkalýðsfélögin efldust svo að afli, að áhrif þeirra urðu fjötur um fót sérhverri tilraun til viðreisnar. Bret- land dróst stöðugt aftur úr i framleiðni. Við þær aðstæður var ofureðlilegt, að landsmenn leituðu að einhverju nýju. Hið nýja töldu menn sig finna í frjáls- hyggjuboðskap Margrétar Thatcher. Hún boðaði landsmönnum að sínu leyti engu minni byltingu en Clement Attlee hafði gert eftir stríðið. Nú var meirihlutinn reiðubúinn að söðla um. íhaldsmenn unnu kosningar undir merki járnfrúarinnar og mynd- uðu ríkisstjórn. Ríkisstjórn frjálshyggjumanna hefur lent í mestu vandræðum. Atvinnuleysi hefur stóraukizt. Verð- bólgan er áfram mikil. Sem stendur sjá landsmenn fáa ljósa punkta í stefnu núverandi ríkisstjórnar. Þeir eru því enn að leita. Nýstofnaður jafnaðarmannaflokkur boðar kjós- endum eitthvað nýtt, sem þó er alls óráðið, hvernig verður. Hugmyndin er, að með kosningabandalagi við Frjálslynda flokkinn verði til afl, sem ekki verði háð forystuliði verkalýðshreyfingarinnar, verkalýðsrekend- unum brezku. Jafnframt hverfi Bretland af vegi frjáls- hyggjunnar án þess að ganga eins langt til vinstri og forystumenn Verkamannaflokksins hyggjast fara. Því benda skoðanakannanir nú til þess, að þetta kosningabandalag gæti fengið yfir 40Ýo atkvæða, ef kosið væri nú, Verkamannaflokkurinn fengi rúm 30% og íhaldsflokkurinn aðeins um 25% atkvæða. Miklar sviptingar hafa orðið í kosningum í ýmsum ríkjum síðustu ár, og ekki allar á einn veg. Frjáls- hyggjumenn hafa völdin í Bandaríkjunum eftir ára- tugalangt skeið miðjumoðsmanna. Stjórnir jafnaðar- manna hafa verið felldar í Svíþjóð og Noregi, og sósíal- istar hafa náð völdum i Frakklandi og eru ekki úrkula vonar um sigur á Grikklandi. Bretar veðjuðu sjálfir á frjálshyggjubyltingu um sinn, en gætu nú enn staðið fyrir miklum umskiptum — í leit sinni að leið úr ógöngunum. Jóhannes Páll páf i II hef ur sýnt meiri pólitísk tilþrif en nokkurfyrirrennari hans: Skýr stefnubreyt- ing i páfagarði — Hef ur sérstaklega gengið til liðs við þær 60 milljónir kaþólskra er byggja A-Evrópu Nýlega var tilkynnt í Varsjá að Jóhannes Páll páfi II væri væntan- legur í heimsókn í ágúst næsta sumar. Þetta verður þá í annað skipti sem páfinn heimsækir föðurland sitt, Pól- Iand, síðan hann var kjörinn páfi 1978. Fyrri heimsókn hans, 1979, hafði vissulega stjórnmálalega þýð- ingu en búast má við að síðari heim- sókn hans verði enn áhrifameiri, á því sviði, vegna hins spennta stjórn- málaástands í Póllandi. Ef til vill má vænta þess að páfinn noti tækifærið og gefi greinargóð fyrirmæli um hvernig þær 60 milljónir kaþólskra sem byggja Austur-Evrópu eigi að mæta þeirri stjórn kommúnista sem þeir búa við. Fyrirrennarar hans, Jóhannes XXIII og Páll VI, lifðu á tímum þegar álitið var að stjórnir þessar væru það fastar í sessi að það borg- aði sig bezt að vera í vinfengi við þær. Sendimenn þeirra í A-Evröpu kusu því fremur að ræða við jarðnesk yfirvöld en kaþólska biskupa og reyndu ekki að standa uppi í hárinu á þeim fyrrnefndu. 1 sumum löndum verður páfagarð- ur af sögulegum ástæðum að leita blessunar stjórnvalda við biskupsút- nefningu, sérstaklega í Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu en þar greiðir stjórnin laun presta. Svo það hefur verið vissara að halda sér á mottunni. Páfagarður hefur því orðið að tak- marka vald sitt. T.d. var samþykkt árið 1973 útnefning biskups í Tékkó- slóvakíu sem var þekktur fyrir fylgi sitt við stjórnina, jafnvel þó hinn ka- þólski söfnuður væri á móti honum. Útnefningin var samþykkt með þvi r skilyrði að biskup segði sig úr kommúniskum samtökum presta, ella yrði útnefningin afturkölluð. Biskup efndi ekki loforð sitt en páfa- garður þorði þó aldrei að reka hann. Þessi atburður varð kaþólskum í Tékkóslóvakíu mikið áfall og olli trú- bræðrum í öðrum A-Evrópulöndum þungum áhyggjum. ttc1 Vanmáttur páfagarðs gagnvart A- Evrópu varð til þess að Wyszynski kardínáli, sem nú er látinn, snerist gegn útnefningu sérlegs umboðs- manns páfa í Varsjá eins og pólska stjórnin ætlaðist til. Kardínálinn óttaðist að stjórnin mundi nota erindrekann til að stofna til vandræða milli pólskra biskupa og páfagarðs. Enda tókst pólskum klerkum að halda jafnvægi i sam- skiptum sínum við stjórn landsins allt fram að tímum óháðu verkalýðssam- takanna, Einingar. Kjör pólsks páfa veldur straumhvörfum Kjör Karols Wojtyla, hins pólska kardínála, til páfa árið 1978 vakti mikla gleði í A-Evrópu. Kaþólskir vonuðust þar með til að páfagarður yrði ekki jafn afskiptalaus um sam- búð þeirra við kommúnistastjórnir og áður. Og núna, þremur árum seinna, má vissulega merkja mikla breytingu. Páfinn hefur smám saman komið A-Evrópumönnum að i lykilstöður í páfagarði. T.d. er aðstoðarritari sá er sér um tengsl við A-Evrópu frá Litháen. Hin nýja stefna páfans kom strax í Ijós í bréfi er hann sendi i fyrra til allra landa er undirrituðu Helsinki- sáttmálann ’75. Þar skilgreinir hann trúfrelsi sem ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir mannréttindum. Einnig birtir hann langan lista yfir atriði sem hann telur til nauðsynlegra mannréttinda og brjóta mörg þeirra einmitt í bága við ríkjandi stjómskipulag í A- Evrópu. Stalín heitinn benti einu sinni rétti- lega á að páfinn ræður ekki yfir neinum her. En Jóhannes Páll páfi trúir þvi fastlega að kirkjan geti a.m.k. haft mikil áhrif á baráttu fylgjenda sinna fyrir trúfrelsi, eins og t.d. hefur gerzt í Póllandi. Og hann veit að þá dugar engin linkind við fjandsamleg stjórnvöld. Þess vegna A að endasend- ast með úrelt menntaskólakerfi milli bæjarhluta í Kópavogi? Enn eru skólamálin í Kópavogi til umræðu. Og ekki ætla ég að þakka það bæjaryfirvöldum í Kópavogi að þau hafþ opnað þá umræðu. Nú liggur fyrir tillaga í bæjarstjórn um að selja ríkinu hlut bæjarins í einum grunnskólanna, Þinghólsskóla, og er ekki haft fyrir því að leita álits kennara, hvað þá heldur nemenda, enda þótt þeir verði sendir á vergang milli skóla og bæjarhluta. Grunnskólalög Sjálfsagt hafa þeir sem að tillögu- gerðinni standa í bæjarstjórninni, og vísast fleiri, ekki hugmynd um að sett voru fyrir nokkrum árum lög sem heita Lög um grunnskóla hvað þá um það sem þar stendur. í öllu falli taka þeir ekkert mark á slíkri laga- setningu. Hinsvegar taka þeir svo mikið mark á væntanlegri laga- setningu um framhaldsskóla að þeir eru ekkert að bíða eftir henni, heldur endasendast með úrelt menntaskóla- kerfi bæjarhluta á milli og tala svo um að fylgjast verði með þróuninni. Hvað ætla svo herrarnir í bæjar- stjórninni að gera er þeir endur- skipuleggja skólana. Einhver skyldi ætla að við þær breytingar sem nið- urlagning eins skóla hafa í för með sér þurfi allmiklar endurbætur skóla- húsnæðis — eða er ekki meiningin að gera slikt. í 25. gr. Laga um grunn- skóla segir. ,,Við gerð nýs skóla- húsnæðis og endurbætur eldra húsnæðis skal séð fyrir aðstöðu fyrir nemendur til náms utan kennslustunda og til að neyta máls- verðar.” Þetta hafa herrarnir ekki lesið, eða horfa einfaldlega framhjá þessu, — eða hvernig ætla þeir að koma fyrir slíkum endurbótum í Kársnesskóla og Kópavogsskóla (og e.t.v. víðar) og ætti ekki að vera þörf á því þegar verið er að senda nemendur milli bæjarhluta í skóla og meira að segja þó svo væri ekki? Enda þótt hvorki lög eða regiugerð geri ráð fyrir einsetnum skóla er það yfirlýst stefna. Einsetinn skóli er ekki síst hagsmuna-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.