Dagblaðið - 18.09.1981, Page 11

Dagblaðið - 18.09.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981. Jóhannes Páll II páfi: Meirihállar áhrif á A-Evrópu. 11 Kaþólskir í Austur-Evrópu AÞYZKALAND 7-6% % af heildaríbúatölu TÉKKÚSLÚVAKÍA 71-6% UNGVERJALAND 60-8% JÚGÚSLAVÍA 31-7% SOVÉTRÍKIN 1-2% Heimildin Almanak kaþölskra 1981 BÚLGARÍA 0-7% leggja starfsmenn páfagarðs nú mun meiri áherzlu á fundi með trúarleið- togum en stjórnvöldum á ferðum sín- um um A-Evrópu. Páftnn hefur líka tekið miklu harðari afstöðu til biskupsútnefn- ingar í A-Evrópu. Það er þess vegna ekki tilviljun að enginn „friðarklerk- ur” (þ.e. a.s. prestur sem vill náið samstarf við kommúnistastjórnir) hefur valizt til biskups í A-Evrópu síðan Jóhannes Páll tók við páfa- dómi. Þessi stefna hans hefur þegar valdið vandræðum, sérstaklega í Tékkóslóvakíu, en þar hafa risið upp deilur milli stjórnvalda og páfagarðs í sambandi við útnefningu biskupa. Afleiðingarnar eru þær að aðeins 3 af 13 biskupsdæmum í Tékkóslóvakíu eru setin. í nóvember lenti páfagarður líka i útistöðum við júgóslavnesk stjórn- völd þegar hann útilokaði harðan stuðningsmann stjórnarinnar frá biskupsembætti í Sloveníu en valdi í staðinn lítt pólitískan prestaskóla- rektor. Afskipti páfa áhrifarík Páfinn hvetur líka aðra a-evrópska biskupa að fylgja dæmi kollega sinna í Póllandi og sýna meiri baráttuhug í sambandi við réttindi safnaðarfólks síns. Hann veit af eigin reynslu að stjórnvöld reyna oft að einangra biskupa frá kaþólskum almenningi og sú aðferð getur jafnvel verið áhrifaríkari en beinar ofsóknir. Hann leggur einnig áherzlu á að biskup- amir berjist ekki aðeins fyrir trúfrelsi kaþólskum til handa, heldur trúfrelsi allra. Hvatning páfa hefur þegar sýnt sig í verki. Kaþólskir biskupar i Júgó- slaviu, sem annars hafa lítið látið á sér kræla, hafa nú t.d. vakið máls á stjórnaraðgerðum sem þeir telja brjóta i bága við almenn mannrétt- indi. Og Frantisek Tomasek, kardi- náli í Tékkóslóvakíu, er byrjaður á að gagnrýna stjórnina eftir margra ára þögn og þolinmæði. Tékknesk stjómvöld, sem hafa þungar áhyggjur af þróuninni í Pól- landi, hafa svarað með því að herða eftirlit með kirkjunni. En svona til að bera smyrsl á sárin hafa þau um leið hækkað laun prestanna. Júgóslav- neska stjórnin hefur líka snúizt harðlega gegn því sem hún kallar af- skiptasemi kirkjunnar en á sífellt meira í vök að verjast gagnvart biskupum sínum, sérstaklega þeim yngri. Stefna páfagarðs í málum A- Evrópu hefur þannig tekið miklum stakkaskiptum. En Jóhannes Páll páfi hefur enn ekki fundið rétta kaþólska svarið við marxisma. Vinstrisinnaðir kaþólikkar á Vestur- löndum hafa ásakað hann fyrir að ráða marxískum prestum í S- Ameríku frá byltingarkenndum aðgerðum gegn kúgun stjórnvalda á meðan hann hvetur presta í A- Evrópu til að berjast af hörku fyrir mannréttindum. Páfinn vinnur nú að nýju umburðarbréfi sem á að fjalla um slikar spurningar. Má kannski búast við því að það verði eins konar páfasvar við „Auðmagninu” (Das Kapital)? (The Economist', / Kjallarinn Albert Ðnarsson mál kennara, nemenda og foreldra. Nú stefnir tillögugerð bæjarstjórnar- manna í þveröfuga átt, hún eykur á þau þrengsli sem sligað hafa skólahald um langan tíma. Kennara hefur um langan tíma dreymt um starfsaðstöðu sem gerir þeim kleift að nýta kennsluhæfni sína betur. Þeir draumar hafa yfirleitt gufað upp i þvi aðstöðuleysi sem þrengsli og fjársvelti valda. Enn um sinn er kennurum í Kópavogi ætlað að horfa upp á drauma sína gufa upp og það sem verra er, starfskraftana nýtast verr enskyldi. Með þeim hugmyndum sem voru á sveimi í kringum grunnskólalögin á sinum tíma og lifað hafa áfram í hugum kennara eins og fallegar myndir úr erlendum skólaritum, var grunnskólalögunum yfirleitt tekið ákaflega vel af kennurum. Það var eitthvað nýtt aðgerast. E.t.v. fengju nemendur sérstakar og til þess útbúnar tungumálastofur og sér- stofur fyrir hinar ýmsu\ náms- greinar. Námið yrði ekki lengur sama gamla formið — kennarinn þusandi fyrir framan misleiða nemendur. Það er til einhvers að setja lög og ætla þeim eitthvað ef yfirvöldum ber ekki að framfylgja þeim og hafa jafnvel velþóknun hinna æðstu menntamálayfirvalda til að hunsa þann vilja sem í lögunum felst. Sumir brjóta lög — aðrir fara bara ekki eftir þeim, hver ermunurinn? Til hvers er allt þetta vesen? Jú, allt þetta vesen er vegna þess að Menntaskólinn í Kópavogi er í miklum þrengslum og honum þarf að skaffa húsnæði. Saga þess skóla er merkileg. MK er nefnilega stofnsettur sem menntaskóli með fjölbrauta- sniði. Sniðið á skólanum er klárt, en hvergi örlar á fjölbrautunum. Um er að ræða venjulegan gamaldags menntaskóla. Maður skyldi ætla að nú á þessum síðustu tímum ætti eitthvað.tannað að vera „aðhlúendum” skólamála kappsmál en að útvega húsnæði fyrir gamla skólaformið, einkum þegar tillit er tekið til þess að í Kópavogi eru nú þegar myndarlegar fjölbrautir starf- ræktar. Þær brautir hafa verið byggðar upp sem framhaldsdeildir grunnskóla vegna þess að beðið er eftir lögum um framhaldsskóla. Á þessu kennsluári er nemendafjöldi framhaldsdeildanna um 100 og skiptir i fjórar tveggja ára brautir. Nemendafjöldi MK er um 350 í öllum fjórum árgöngunum. Fjölbrauta- námið hefur ekki verið mikið til umræðu, hvað sem veldur, þrátt fyrir allt tal og mas um menntaskóla með fjölbrautasniði. Nei, helsta kappsmálið hjá „aðhlúendum” skólamála í Kópavogi þessa dagana er að leggja niður einn grunnskólanna í bænum og svo mikið liggur við að keyra á málið í gegn í snarhasti, enda þótt ekki sé gert ráð fyrir að MK fái húsnæðið fyrr en eftir þetta skólaár. Hvað veldur þessum æsingi? — spyr sá sem ekki skilur. Þinghólsskóli i Kópavogi. Greinarhöfundi þykir lakara að kennarar og nemendur séu ekki spurðir álits á sölu hans, enda þótt þeir verði sendir á vergang milli skóla og bæjarhluta. DB-mynd. "" Aðrar lausnir Auðvitað eru til aðrar lausnir á þessu máli en þær að -velta vanda Menntaskólans yfir á grunnskólann og er slíkt alls engin lausn heldur arg- asta frekja og vanvirðing við bæjar- búa, vægast sagt. Enginn hefur nokkurntímann andmælt því að MK búi við ófremdarástand í húsnæði. Samt er vandi MK ekki meir en svo í augum ráðamanna þar að þeir höfnuðu tilboði um að á MK yrði létt með því að tvær bekkjardeildir færðust í Þinghólsskóla en yrðu undir yfirstjórn meistara MK. Vandi er það nú samt, en kannski ekki bara húsnæðisvandi? Besta lausnin, eins og málum er nú komið, er sú að hefjast þegar handa um að samræma framhalds- . skólakerfið í Kópavogi, þ.e. framhaldsdeildirnar í Víghólaskóla og Menntaskólanum og búa til fjölbrautaskipulag og þá gjarnan taka höndum saman við aðra skóla á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Með því væri framhaldsskólinn í Kópavogi færður nær því sem væntanleg framhaldsskólalög gera ráð fyrir. Húsnæðisvanda framhaldsskólans mætti leysa á þann veg að starfrækja aðskildar brautir í skólunum þrem, Víghólaskóla, Menntaskólanum og Þinghólfsskóla, þar til sérstakt fram- haldsskólahúsnæði væri risið. Þá væri réttast að hefja þegar viðræður við menntamálayfirvöld landsins um byggingu slíks skóla, i stað þess að fara að ræða við þau völd um afsal grunnskólahúsnæðis fyrir bráða- birgðamenntaskóla. Starfræksla framhaldsdeilda við Víghólaskóla hefur sýnt það og sannað að þetta er mögulegt, enda þótt ekki sé um frambúðarlausn að ræða þvi sérstakt framhaldsskólahús gerir betur. Albert Einarsson kennari.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.