Dagblaðið - 18.09.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981.
12
c
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Badminton á
heimsmælikvarða
íHöllinni
— alþjóðlegt badmintonmót um
helgina — fjórir Evrópumeistarar
meðal þátttakenda
Um helgina gengst hadmintondeild Vals fyrir
opnu alþjóðlegu badmintonmóti og er það haldið í
tilefni af sjötiu ára afmæii Vals. Níu erlendir
badmintonleikarar taka þátt í mótinu og koma þeir
frá þremur löndum, Danmörku, Englandi og Skot-
landi.
Fjórir keppendanna hafa orðið Evrópumeistarar,
Dorte Kjær, Nettie Nielsen og Mark Christiansen frá
Danmörku og Helen Torke frá Englandi. Fjórði
keppandinn frá Danmörku er Kenneth Larsen sem
er mjög framarlega í íþróttinni í sínu heimalandi.
Auk Torke koma frá Englandi Martin Dew, sem
er landsliðsmaður, og Englandsmeistarinn undir 21
árs, hinn 19 ára gamli Stephen Baddeley. Frá Skot-
landi koma þau Charlie Gallagher og Pamela
Hamilton sem talin eru beztu badmintonleikarar’
Skota í dag.
Ekki má gleyma íslenzku keppendunum en flest
bezta badmintonfólk okkar mun etja kappi við hina
erlendu gesti.
Það verður því badminton á heimsmælikvarða
sem boðið verður upp á í Laugardalshöllinni um
helgina. Keppnin hefst laugardaginn 19. september
kl. 14 og byrjar aftur á sunnudag kl. 10 um
morguninn.
-VS.
Hin 16 ára gamla Helen Torkc, Evrópumeistari
unglinga i einliðaleik 1981, verður meðal þátttak-
enda á alþjóðlegu badmintonmóti í Laugardalshöll
um helgina.
Einherjamótið
Einherjakeppnin — stórmót þeirra sem farið hafa
„holu í höggi” — fór fram um síðustu helgi á
Grafarholtsvelli. Leikin var punktakeppni með for-
gjöf og sigraði Hannes Eyvindsson, GR.
Hannes hlaut 38 punkta, iék 18 holurnar á 72
höggum, en síðan komu þau Svan Friðgeirsson, GR,
og Kristín Pálsdóttir, GK, með 35 punkta. Þrjár
konur voru meðal keppenda en alls hafa fimm konur
farið „holu í höggi” i golfi hér á landi.
Veitt voru verðlaun fyrir að vera næstur holu á 17.
braut og hlaut þau Jón Þór Ólafsson GR.
Firmakeppni KR
Frá knattspyrnudeild KR.
Hin árlega firma- og stofnanakeppni KR hefst
laugardaginn 19. september næstkomandi. Firma-
keppni KR hefur sem kunnugt er skipað sér sess sem
stærsta keppni sinnar tegundar hér á landi og fjöldi
þátttökuliða skiptir tugum. Vinsældir keppninnar
má hiklaust rekja til fyrirkomulags hennar, þar sem
liðin eru einungis skipuð sjö leikmönnum og er
leikið i 2x 15 mínútur þvert á venjulegan völl. Enn-
fremur er fyrirtækjum gert kleift að nota sumar-
starfsmenn í keppnina.
Áformað er að Ijúka undankeppninni helgina
19.—20. september og úrslitakeppnin fer síðan fram
helgina 26.-27. september. Þátttökugjaldi er sem
fyrr mjög i hóf stillt eða 600 krónur á hvert lið sem
greiðist um leið og þátttakendur sækja reglur keppn-
innar og önnur mótsgögn.
júgóslavneski landsliðsmaðurinn hjá Bordeaux, hirðir knöttinn næstum af tám Aðalsteins Aðalsteinssonar, 19 ára piltsins í Víkingsliðinu. Aðalsteinn
lék i s.h. og var einn albezti maður Vikings.
DB-mynd Bjarnleifur.
Draumamörk Bordeaux
og stórsigur á Víking
Franska liðið sigraði 4-0 og sýndi einhvem bezta leik sem lið hefur leikið hér á landi
Hvilík snilld — hvílik knattspyrna.
Það var stór stund á Laugardalsvellin-
um i gær, þegar Vikingur og franska
liðið Bordeaux léku fyrri leik sinn i
UEFA-keppninni í knattspyrnu.
Franska liðið sýndi hreint frábæra
knattspyrnu og það er mat þeirra sem
bezt til þekkja að sjaldan eða aldrei
hafi önnur eins knattspyrna og leik-
menn Bordeaux sýndu verið leikin á Is-
landi. Auðvitað tókst leikmönnum
Vikings ekki að hamla gegn sliku liði.
Það vann yfirburðasigur, 4—0, og
nokkur marka Frakkanna eru með
þeim fallegustu, sem skoruð hafa verið
á Laugardalsvellinum. Þarna sást allt
önnur knattspyrna en við eigum að
venjast. Sorglegt að aðeins um 2500
áhorfendur — 2212 greiddu aðgangs-
eyri — skyldu verða vitni að frábærum
leik franska liðsins. Hann hefði verð-
skuldað margfalt meiri aðsókn. En fáa
grunaði vist fyrir leikinn að franska
liðið væri svona afburðasnjallt.
Þrátt fyrir ofureflið reyndu Víking-
ar, einkum eftir því sem leið á leikinn,
að leika saman og sækja. Aldrei reynt
að „pakka” í vörnina, leika algjöran
varnarleik, þegar í ljós kom hve leikur-
inn yrði erfiður fyrir þá. Þökk sé Vík-
ingum fyrir það. Og þeir fengu sín
tækifæri i leiknum, tvívegis varði júgó-
slavneski landsliðsmaðurinn Pantelic
vel. Fleiri voru færi Víkinga þó ekki
væru þau mörg og liðið fékk einar sjö
hornspyrnur í leiknum. Þær voru ekki
svo miklu fleiri hjá Frökkum.
Þrátt fyrir yfirburðina fékk
Bordeaux ekki mörg marktækifæri i
fyrri hálfleiknum. Liðið keyrði þá á
fullu og skoraði þrjú glæsimörk í hálf-
leiknum. Diðrik Ólafsson þurfti lítið
fleiri nlraunir að gera í hálfleiknum en í
þessi þrjú skipti til að verja. Enginn
ásakar hann vegna markanna. Það
hefði víst enginn varið þau.
Fyrsta markið skoraði Jean Fernand-
es með þrumufleyg af 30 metra færi.
Knötturinn snerti völlinn rétt utan
markteigsins og beinlínis spýttist í
markið af rennblautu grasinu. Talsvert
hafði rignt í gær en veður gat varla
verið betra fyrir knattspyrnu. Annað
markið, sem blökkumaðurinn Tresor
skoraði á 30. mín., var hreint gull af
marki. Lék upp miðjuna, gaf á sam-
herja, og fékk knöttinn rétt utan vita-
teigs. Spyrnti á markið og skotið var
svo fast, að maður sá varla knöttinn á
leiðinni í markið. Neðst í markhornið,
út við stöng. Þriðja markið skoraði
Albert Gemmerich á 40. mín. Fékk
langsendingu inn í vítateiginn og skor-
aði með viðstöðulausri neglingu. Fá
voru tækifæri Víkings í hálfleiknum.
Heimir Karlsson skallaði yftr markið
— Pantelic missti knöttinn eftir auka-
spyrnu Ragnars Gíslasonar en varnar-
maður bjargaði. Vikingur fékk fjórar
hornspyrnur í hálfleiknum en litil
hætta skapaðist við þær.
1 síðari hálfleiknum náði Víkings-
liðið sér betur á strik, mest vegna ágæts
leiks Aðalsteins Aðalsteinssonar, sem
kom inn sem varamaður eftir leikhléið.
Oft brá fyrir nettum leik og yfirburðir
Frakka ekki eins miklir og áður. Pant-
elic varði gott skot Aðalsteins, hirti
knöttinn síðar næstum af tám hans.
Ómar Torfason fékk knöttinn í opnu
færi inn undir markteig en hitti boltann
ekki. Þá komst Sverrir Herbertsson í
færi. Spyrnti yfir.
En leikmenn Bordeaux réðu þó alltaf
ferðinni. Lacombe miðherji skoraði
fjórða markið á 71. mín. með hnitmið-
uðu skoti, frekar Iausu, neðst í mark-
hornið. Ef til vill átti Diðrik að verja. í
lokin varði hann hins vegar tvívegis
með miklum glæsibrag.
Allir leikmenn Bordeaux eru hreinir
snillingar með knöttinn og leikskipulag
liðsins stórkostlegt. Varla að sending
færi forgörðum. Liðið naut sín virki-
lega við þær aðstæður, sem völlurinn
bauð upp á. Rennvotur og háll — en
yndislegt veður. Blankalogn. Erfitt að
gera upp á milli leikmanna. Alain Gir-
esse, franski landsliðsmaðurinn, og
vinstri bakvörðurinn Francois Bracci,
hreint stórkostlegir. Einnig Marius
Tresor frábær og svo var um flesta
aðra.
Hjá Viking var Jóhannes Bárðarson
beztur, mjög sterkur miðvörður. Helgi
Helgason átti einnig traustan leik við
hlið Jóhannesar. Aðalsteinn kom veru-
lega á óvart. í heild var þetta mjög lær-
dómsríkur leikur fyrir íslandsmeistara
Víkings. Þeir gátu varla komizt í betri
kennslustund. Það er ómetanlegt fyrir
íslenzkt Jið að fá.tækifæri til að leika
við slíkt lið sem Bordeaux er.
-hsím.
„Ég hef ekki séð betri
knattspymu leikna hér”
—sagði Albert Guðmundsson alþingismaður um leik Bordeauxliðsins
„Þetta er bezta lið, sem leikið hefur
á íslandi — ég hef að minnsta kosti
ekki séð betri knattspyrnu leika hér.
Við vorum að tala um það eftir leikinn,
gömlu félagarnir, sem lékum saman
fyrir 35—40 árum, að betra liö hefði
ekki komið hingað til keppni. Við
vorum allir sammála um það. Helzt að
þýzka landsliðið, sem kom hingað fyrir
strið (1938), gæti staðizt samanburð
við Bordeaux. Ég held þó varla,” sagði
Albert Guðmundsson alþingismaður
eftir leikinn í UEFA-keppninni á
Laugardalsvelli í gær og hélt áfram.
„Það var hrein unun að horfa á leik
frönsku leikmannanna, þeir léku gull-
knattspyrnu. Allt fullkomið, knatt
meðferðin, nákvæmnin í sendingum,
leikskipulagið. Það var stór stund að
vera viðstaddur þennan leik”.
Mikil reynsla
„Það er mikil reynsla að leika við
slíkt lið. Bordeaux er áreiðanlega lang-
bezta lið, sem ég hef séð leika hér á
Islandi,” sagði Youri Sedov, hinn so-
vézki þjálfari Vikings.
„Ég varð alls ekki fyrir vonbrigöum
með leik Vikingsliðsins. Við vitum að
við getum ekki enn keppt við svo sterk
liö en það kemur. Kannski næsta
sumar. Ég er ekki hræddur við leikinn i
Bordaux. Við höfum engu að tapa og
munum sýna að við getum leikið knatt-
spyrnu,” sagði Sedov ennfremur.
„Þetta var erfitt. Ég bjóst ekki við
franska liðinu svona geysilega sterku.
Það hlýtur að ná langt í þessari keppni,
áreiðanlega eitt albezta lið í Evrópu.
Enginn veikur hlekkur, liðsheildin
mjög sterk. Knötturinn strax gefinn,
enginn reynir að bera af öðrum,” sagði
Ómar Torfason, landsliðsmaður í Vík-
ing, og hélt áfram. „Ég var óheppinn
að hitta knöttinn ekki fyrir opnu marki
Frakka í siöari hálfleiknum. Spyrnan
var föst og knötturinn smaug framhjá
mér. Ég er viss um að ef ég hefði aðeins
komið við hann hefði knötturinn farið í
markið.”
„Það er mikill munur á knattspyrnu
atvinnumanna eða áhugamanna. Þetta
voru mjög góð úrslit fyrir okkur og við
stefnum ákveðnir að sigri í UEFA-
keppninni,” sagði Couecou, fram-
kvæmdastjóri franska liðsins. „Við
vorum ekki með okkar albezta lið,
landsliðsmaðurinn Tigana gat ekki
komið hingað til íslands vegna
veikinda. Víkingsliðiö lék mun betur
nú.na en þegar ég sá það leika fyrr í
sumar í íslandsmótinu, ég var oft
ánægður með leik liðsins, þó einkenni-
legt sé að segja það um mótherja."hsím.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
21
I
Eitt sterkasta handknattleikslið Sovétríkjanna íheimsókn:
Leikur sex leiki á sjö
dögum í boði Valsmanna
Sunnudaginn 20. september nk. er
væntanlegt hingað til lands sovézka
handknattleiksliðið Kunsevo og kemur
það í boði handknattleiksdeildar Vals.
Sem kunnugt er halda Valsmenn upp á
70 ára afmæli félagsins á þessu ári og er
heimsókn þessi framlag handknatt-
leiksdeildar félagsins til afmælishátíða-
haldanna.
Valsmenn eru nýkomnir úr 9 daga
æfinga- og keppnisferð til Sovétríkj-
anna og sér þjálfari Vals, Boris
Akbashev, um þessar gagnkvæmu
heimsóknir. Hann var þjálfari Kunsevo
frá stofnun félagsins árið 1962 til
sumarsins 1980 er hann tók við þjálfun
Vals. Lið Kunsevo mun leika sex leiki
hér á landi á sjö dögum, þar af tvo á
Akureyri en þangað fer liðið í boði
íþróttafélagsins Þórs. Fyrsti leikurinn
verður í Laugardalshöll kl. 20 mánu-
daginn 21. september. Þá verður haldið
norður og leikið í Skemmunni á Akur-
eyri þriðjudags- og miðvikudagskvöld
gegn Þór og KA. Á fimmtudagskvöld
leikur Kunsevo gegn HSÍ-úrvali í Höll-
inni, á laugardag gegn FH í Hafnar-
firði og að lokum á sunnudagskvöld
gegn Val í Höllinni en sá leikur er
einmitt liður í afmælishátíðahöldum
Vals. Þess má geta að íslandsmeist-
urum Víkings var boðið að leika gegn
Kunsevo en Bogdan Kowalczyk, þjálf-
ari Víkings, afþakkaði.
í liði Kunsevo leika nú 4 landsliðs-
menn. Þeirra þekktastur er Vladimir
Belov, fyrirliði Kunsevo og sovézka
landsliðsins, með yfir 60 landsleiki að
baki þó hann sé ekki nema 23 ára.
Hinir eru Vladimir Manulenco, örv-
hentur hornamaður með fjölda lands-
Jack Taylor, einn kunnasti knatt-
spyrnudómari heims, sem var eftirlits-
dómari á Evrópuleikjum Fram og Vík-
ings, verður á fundi Knattspyrnudóm-
arasambandi íslands í kvöld í Leifsbúð
að Hótel Loftleiðum. Fundurinn hefst
kl. 20.30.
Klingjandi
kristall
Síðasta stórmótið fyrir félaga golf-
klúbbs Ness á þessu keppnistímabili
verður á laugardaginn á Nesveliinum.
Er það Kristalskeppni NK. Fyrirtækið
Tékk-Kristall hf. gefur öll verðlaun til
keppninnar og eru þau mjög glæsileg
að vanda. Verða veitt sex verðlaun í
karlaflokki og fjögur i kvennafiokki.
leikja, Dmitri Pukatsjov, stórskytta
með 30 landsleiki, og Vadim Valeiso,
sem er þriðji markvörður sovézka
landsliðsins. Þá kemur með liðinu
Nicolai Sjimonov sem var fyrsti mark-
vörður í ólympíuliði Sovétmenna 1972
og hefur leikið um 60 landsleiki. Á
meðan Kunsevo er á Akureyri mun
hann þjálfa markverði Vals hér í
Reykjavík.
Handknattleiksfélag Kunsevo er
ungt að árum og hefur frami þess verið
ótrúlega skjótur. Það var stofnað árið
1962 og á rætur sínar í 220.000 manna
hverfi í Moskvu. Sjö árum eftir að
félagið var stofnað hafði það þrisvar
orðið sovézkur meistari, 1966, 1967 og
1969. Liðið hefur einu sinni komizt í
undanúrslit í Evrópukeppni en tapaði
þá fyrir vestur-þýzka stórliðinu
Gummersbach.
Sovézkur handknattleikur er í
fremstu röð í heiminum í dag. Karla-
liðið sovézka vann gullverðlaunin á
tveimur síðustu ólympíuleikum, 1976
og 1980. Það eru því engir aukvisar sem
væntanlegir eru til landsins og verður
fróðlegt að sjá hvernig íslenzku
liðunum vegnar í viðureignunum sem
fram undan eru. -VS.
Heimsmet
Yurik Vardanyan, Sovét, setti nýtt
heimsmet í léttvigt í lyftingum á HM í
Lille i Frakklandi í gær. Snaraði 178
kg. hálfu kilói meira en heimsmet hans
var áður. Hann setti einnig heimsmet í
jafnhöttun 223 kg og samanlagt.
Sigurgeir Sigurðsson
r Aðvörun frá Þróttarvini í Noregi:
Islendingurinn hjá AK 28 gefiir
KIF Kristiansand upplýsingar
—Þróttur og KIF mætast í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa f handknattleik
„Okkur mun ekki skorta upplýs-
ingar um mótherja okkar i Evrópu-
keppninni,” sagði formaður KIF
Kristiansand, Per Arntsen, í viðtali við
norska blaðið Fædrelandsvennen 27.
ágúst sl. „KIF leikur við íslenzka liðið
Þróttur í 1. umferð Evrópukeppni
bikarhafa. Nafnið var í fyrstu það eina
sem við vissum um liðið. En ég veit að
íslenzka landsliðið er betra en það
norska. Þess vegna reikna ég með að
Þróttur sé mjög gott handboltalið.
Ferðin til íslands mun kosta okkur
50.000 krónur,” segir Arntsen enn-
fremur. Fyrri leikur Þróttar og
Kristsiansand verður sunnudaginn 4.
október i Laugardalshöllinni en siðari
leikurinn verður i Gimlehallen í
Kristiansand 11. október. KIF þarf
3000 áhorfendur á þann leik til að
standa undir kostnaði, segir norska
blaðið.
„Við fáum ekki þann áhorfenda-
fjölda nema við náum góðum árangri í
leiknum í Reykjavík. Minna tap þar en
fjögur mörk teljum við í lagi. Við
munum ekki senda menn til íslands til
að taka upp leik hjá Þrótti — það
hefðum við hins vegar gert ef mótherj-
inn hefði verið sænskur eða danskur.
Ragnar Ól. í
úrval Evrópu
Ragnar Ólafsson, golfmaðurinn
snjalli í GR, hefur verið valinn í úrvals-
lið Evrópu, áhugamanna í álfukeppni
við Suður-Ameríku dagana 25.—27.
þessa mánaðar. Keppnin verður i Buen-
os Aires. Þetta er mikill heiður fyrir
Ragnar sem einstakling og golfíþrótt-
ina á íslandi. Ragnar heldur utan á
mánudag til Parísar þar sem leikmenn
Evrópu hittast áður en haldið er til
Buenos Aires. Fyrir þremur árum var
Ragnar valinn í úrvalslið pilta —
Evrópuúrvalslið.
Stórmót á Austfjörðum:
Haustmót Blaksambands-
ins haldið íNeskaupstað
Ekki er vitað til þess að svo stórt
íþróttamót hafi áður verið haldið á
Austfjörðum að vetri til. Og ef stórmót
frjálsíþróttamanna eru undanskilin er
hið væntanlega blakmót án efa eitt
stærsta mót sem fram hefur farið í
þessum landsfjórðungi.
Heimamenn eru þegar farnir að und-
irbúa móttöku blakliðanna. Mötuneyti
verður komið á fót sérstakiega vegna
keppninnar og séð verður fyrir gistingu
fyririiðin. -KMU.
Stjórn Blaksambands íslands hefur
ákveðið að haustmót sambandsins
verði í ár haldið í Neskaupstað. Mun
blakdeild Þróttar halda mótið sem
fram fer dagana 24.—25. október
næstkomandi.
Búizt er við að flest beztu blaklið
landsins mæti til leiks. Aðeins karla-
flokkur haustmótsins verður leikinn í
Neskaupstað þar sem mótið yrði of
viðamikið ef keppni í kvennaflokki og
yngri flokkum færi fram þar líka.
Ferð til Sögueyjarinnar of dýr. En við
fáum verðuga mótherja, þegar hugsað
er til aðsóknar á leikinn”, og síðan
hefur blaðið eftir formanninum, að
íslendingar séu kröftugir handknatt-
ieiksmenn og hafi náð betri árangri á
alþjóðavettvangi en Norðmenn. ísland
eigi hins vegar færri-topp-félagslið en
Noregur en beztu lið íslands séu betri
en þau norsku. Þá segir formaðurinn
að landsliðsþjálfari fslands sé þýzkur.
Það er auðvitað ekki rétt. Hilmar
Björnsson er landsliðsþjálfari.
íslendingurinn aðstoðar
Þá ræðir Fædrelandsvennen við
Sigurgeir Sigurðsson sama dag og segir
að Sigurgeir, sem leikur með AK 28 í
Kristiansand og hefur verið búsettur
þar í nokkur ár, muni gefa KIF upplýs-
ingar um lið Þróttar. Var þjálfari AK
28 í fyrra og blaðið segir að hann geti
orðið þýðingarmikill maður fyrir KIF.
Sigurgeir var landsliðsmarkvörður
íslands í handknattleiknum hér á árum
áður, lék með Haukum og Víking.
Uppiýsingar þær, sem hann gefur
biaðinu, eru hins vegar furðulegar.
'Hann segir.
„Það verður að gæta Lars Johnsson.
Hann er næstum heilt lið sjálfur. Þessi
Lars Johnsson hefur tvívegis verið
Evrópumeistari með þýzku liði. Hann
er hins vegar kominn heim á ný og auð-
vitað aðalmaður Þróttar. Hefur leikið
milli 80—90 landsleiki fyrir ísland,”
segir Sigurgeir.
„Við erum þakklátir fyrir þá hjálp
sem Sigurgeir getur veitt okkur á næstu
vikum,” segir Arntsen en blaðið snýr .
svo aftur máli sínu að Sigurgeir. Segðu
okkur eitthvað meir um íslenzkan
handknattleik.
„íslendingar eru oft ásakaðir fyrir
að spila grófan handknattleik. Það tel
ég ekki rétt. Hjá félagsliðunum ræður
teknískur og taktískur handknatt-
leikur. Þar eru íslendingar mun fremri
Norðmönnum. Ástæðan til þess, að
hjá félagsliðunum er „stútfullt” af
pólskum, júgóslavneskum og þýzkum
þjálfurum. Auk þess hefur ísland átt
marga leikmenn, sem leikið hafa í
Þýzkalandi. Þeir hafa komið heim með
mikla þekkingu („Know-how” hjá
blaðinu).
Áhugi á handknattleik er gifurlegur á
eyjunni. Það koma fleiri áhorfendur á
landsleiki í handknattleik en á lands-
leiki i knattspyrnu. KIF má reikna með
því að um fimm þúsund áhorfendur
verði umhverfis leikvöllinn 4. október
og ég get fullyrt, að það er erfitt fyrir
eriend lið að sigra á íslandi. Þvi get ég
lofað.
Þróttur, sem er frá Reykjavík, komst
upp í 1. deild fyrir þremur árum. Árið
eftir sigraði Þróttur í 1. deild. Ástæðan
fyrir árangrinum er Lars Johnsson,
sem kom heim frá Þýzkalandi og gekk í
Þrótt. Þessi 33ja ára leikmaður er jafn
góður í vörn sem á línunni. Takist KIF
að „pakka honum inn” er mikið
unnið,” segir Sigurgeir Sigurðsson í
Fædrelandsvennen. Heldur betur rugl
flest og Þróttur þarf varia að óttast
þær upplýsingar, þó vinur Þróttar og
DB í Noregi hafi af þeim áhyggjur.
Hins vegar þökkum við kærlega fyrir
blaðaúrklippurnar — og svona í lokin
má geta þess, að það er Ólafur H. Jóns-
son, sem kom frá Þýzkalandi.og gerðist
þjálfari og leikmaður hjá Þrótti. Varla
ástæða til að vera að leiðrétta annað í
viðtali Sigurgeirs í norska blaðinu.
-hsim.
Héraðsmót UMSK í Kópavogi:
Spjótið flaug vel
yfir 60 metrana!
Héraðsmót UMSK í frjálsum
iþróttum var haldið i Kópavogi nýlega.
Athyglisverðasta árangri mótsins náði
Hreinn Jónasson, UBK, í spjótkasti er
hann þeytti spjótinu 63,24 m sem er
héraðsmet.
Sigurvegarar í einstökum greinum
urðu þessir: Karlar: 100 m hlaup:
Guðni Sigurjónsson, UBK, 11,8 sek.,
400 m hiaup: Guðni Sigurjónsson UBK
55,9 sek., 1500 m hlaup: Gunnar
Snorrason, UBK,4:50,4 min., 3000 m
hlaup: Gunnar Snorrason, JBK,ö:45,l
mín., 4x100 m boðhlaup: Þorsteinn
Sigurmundsson, Einar Gunnarsson,
Sigurjón. og Guðni Sigurjónsson,
UBK, 47,9 sek; hástökk: Karl West
Frederiksen, UBK, 1,85 m; stangar-
stökk: Karl West Frederiksen, UBK,
4,00 m; langstökk: Helgi Hauksson,
UBK, 5,94 m; þrístökk: Helgi Hauks-
son, UBK, 12,42 m; kúluvarp: Eggert
Bogason, Aftureldingu, 13,08 m; spjót-
kast: Hreinn Jónasson, UBK, 63,24 m;
kringlukast: Þorsteinn Alfreðsson,
UBK, 39,37 m; Konur: IÖ0 m hlaup:
Heiga D. Árnadóttir, UBK, 12,5 sek.;
400 m hlaup: Hrönn Guðmundsdóttir,
UBK, 68,0 sek.; 1500m hlaup: Guðrún
Karlsdóttir, UBK, 5:19,0 mín.; 4x 100
m boðhlaup: A-sveit UBK (Helga,
Hrönn, Ragna, Ásta) 52,9 sek.; 100 m
grindahlaup: Ragna Ólafsdóttir, UBK,
18,2 sek.; hástökk: fris Jónsdóttir,
UBK, 1,60 m; langstökk: Helga D.
Árnadóttir, UBK, 4,87 m; kúluvarp:
Hafdís Ingimarsdóttir, UBK, 8,53 m;
spjótkast: Hafdís Ingimarsdóttir,
UBK, 30,45 m; kringlukast: Ásta B.
Gunnlaugsdóttir, UBK, 31,10 m.
LANDSUÐSSTULK-
URNAR ERLENDIS
kvennalandsliðið íhandknattleik íkeppn-
isför til Vestur-Þýzkalands og Bretlands
Kvennalandsliðið í handknattleik
hélt í gær í keppnisferðalag til Vestur-
Þýzkalands og Bretlands og verða
leiknir fimm leikir í ferðinni. Keppt
verður á móti i Vestur-Þýzkalandi þar
sem mótherjarnir verða a og b lið Vest-
ur-Þjóðverja og landslið Svía. Síðan
verður haldið til Bretlands og leiknir
tveir landsleikir gegn Bretum.
Landslið íslands er þannig skipað í
þessari ferð: Markverðir: Jóhanna
Pálsdóttir, Val, og Kristín Brandsdótt-
ir, ÍA. Aðrir leikmenn: Katrín Dani-
valsdóttir, Kristjana Aradóttir, Margrét
Theódórsdóttir og Auður Harðardótt-
ir, allar FH, Oddný Sigsteinsdóttir,
Fram, Erna Lúðvíksdóttir, Val, Olga
Garðarsdóttir, KR, Laufey Sigurðar-
dóttir, ÍA, Ingunn Bernódusdóttir,
Víkingi, Erla Rafnsdóttir, Katrín Fred-
riksen og Guðný Guðjónsdóttir, ÍR.
Þjálfari stúlknanna er Sigurbergur Sig-
steinsson og fararstjórar Þórður Sig-
urðsson, Jón Kr. Óskarsson og Elín
Helgadóttir.
Leikið verður á þremur stöðum í
Vestur-Þýzkalandi, Neuenhaus,
Schuttorf og Nordhorn en dvalið
verður á síðastnefnda staðnum. í Bret-
landi verður dvalið og leikið í London.
Stúlkurnar og fylgdarlið þeirra eru
væntanleg heim á fimmtudag. -VS.