Dagblaðið - 18.09.1981, Side 14
22
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981.
Veðrið 1
Gert er ráð fyrir uuatan- og norð-
uustunótt á landinu í dag, svipað og1
undanfarna daga. Rigning á Suð-
austur- og Austuriandi, Iftils háttar
rigning í öðrum landshlutum, þoka
úti fyrir Norðausturlandi.
Kl. 6 var í Reykjavik hœgviðri, al-
skýjað og 10; Gufuskálar austan 4,
alskýjað og 9; Galtarviti norðaustan
4, súld og 7; Akureyri norðaustan 3,
skýjað og 9; Raufarhöfn norðaustan
3, alskýjað og 6; Dalatangi noröaust-
an 3, rigning og 7; Höfn hægviðri,
rigning og 7; Stórhöfði austsuðaust-
an 6, skýjað og 9.
í Þórshöfn var þoko og 10, Kaup-
mannahöfn láttskýjað og 11, Osló al-
skýjað og 11, Stokkhólmur skýjað og
4, Hamborg alskýjað og 10, Parfs
skýjafl og 13, Madrid heiðskfrt og 15,
Lis8abon skýjað 19, New York skýjað
Rósa Lilja Jónsdótlir lézt 10. septem-
ber 1981. Hún fæddist i Vestmannaeyj-
um 8. júlí 1948, dóttir Stefaníu Stefáns-
dóttur úr Vestmannaeyjum og Jóns
Haraldssonar frá Akureyri. Ung giftist
hún Magnúsi Sigurðssyni, þau eign-
uðust tvær dætur en slitu samvistum
fyrir rúmum tveim árum. Rósa verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, kl.
13.30.
Helgi Björnsson, Skúlagötu 72 Reykja-
vík, lézt 11. september 1981. Hann
fæddist í Reykjavík 18. nóvember
1916. Foreldrar hans voru Björn Bene-
diktsson og Helga Haraldsdóttir. Faðir
Helga lézt árið 1944 en móðir hans lézt
árið 1916. Fósturforeldrar hans voru
Ingibjörg Andrésdóttir og Helgi Jóns-
son. Var heimili þeirra að Grundarstig
5. Þann 5. nóvember 1938 kvæntist
Helgi eftirlifandi konu sinni, Huldu
Dagmar Jónsdóttur, Þau eignuðust sex
börn, eitt misstu þau rúmlega ársgam-
alt en hin eru öll uppkomin. Lengst af
starfaði Helgi við höfnina í Reykjavík,
hjá Rikisskip, en síðustu árin hjá Eim-
skip. Hann verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í dag, kl 13.30.
Ásmundur Hannesson, Birkivöllum 2
Selfossi, verður jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju 19. september kl. 14.
Hulda Valdimarsdóttir White verður
jarðsungin laugardaginn 19. september
frá Háteigskirkju kl. 10.30.
Ólafur Kjartansson, Borgarbraut 1
Borgarnesi, verður jarðsungin, frá
Hvammskirkju Norðurárdal 19.
september kl. 16.30.
(Dúna) Gunnþórunn Ragna Gowan
fædd Eiríksdóttir verður jarðsungin frá
Landakotskirkju 19. september kl.
10.30. Jarðsett verður í kirkjugarðin-
um við Suðurgötu.
Aðalfundur
Islandsdeildar
Norræna sumarháskólans
verður haldinn mánudaginn 21. sept. kl. 20.30 í
Sóknarsal, Freyjugötu 27. Venjuleg aðalfundar-
störf. Stjórnin.
Aðalfundur Félags íslenzkra
fiskmjölsframleiðenda,
haldinn í Reykjavík 11. september 1981 átelur harð-
lega síðustu verðlagningu á loðnu til bræðslu þar
sem í forsendum oddamanns er gert ráð fyrir miklu
Ágústa Arngrímsdótlir, Hvassaleiti 95,
er látin. Hún var fædd 29. september
1932 að Árgilsstöðum í Rangárvalla-
sýslu, dóttir hjónanna Arngríms Jóns-
sonar og Stefaníu Marteinsdóttur og
átti Ágústa fjögur systkini. Hinn 20.
nóvember 1952 giftist hún Sæmundi
Óskarssyni, sem nú er prófessor við
Háskóla íslands. Þau eignuðust 5 börn.
Ágústa verður jarðsungin í dag.
Einar Garðar Guðmundsson er látinn.
Hann fæddist 16. nóvember 1923 að
Görðum við Önundarfjörð. Foreldrar
hans voru Guðmundur Júlíus Jónsson
útvegsbóndi og Salóme Jónsdóttir.
Hálfsystir Einars er Soffia Jónsdóttir,
búsett á Norðfirði. 12. júlí 1945 kvænt-
ist hann Margréti Magnúsdóttur frá
Akranesi, þau eignuðust 5 börn. Einar
var mikið á sjúkrahúsi, þrátt fyrir það
las hann fyrsta bekk stýrimannskólans
á Landakotsspitala og útskrifaðist úr
skólanum 1946.
Steinunn Bjarnadóttir, Oddagötu 12,
andaðist að Hrafnistu 16. september.
Soffía Árnadóttir frá Efri-Hrísum
verður jarðsunginn frá Ingjaldshóls-
kirkjukl. 14ámorgun.
Gunnlaugur Jónsson, fyrrverandi
starfsmaður hjá Eimskipafélagi
íslands, lézt 15. september í Borgarspít-
alanum. Jarðarförin fer fram miðviku-
daginn 23. september kl. 13.30.
Fyrirgreiösla
Leysum út vörur, úr tolli og banka, með greiðslu-
fresti.
Lysthafendur leggi inn nöfn til Dagblaðsins
fyrir 21. sept. nk. merkt „Fyrirgreiðsla”.
Ancfiát
Friðhelgi f immtudaga
Fimmtudagskvöldin njóta sérstöðu
vegna sjónvarpsleysisins. Skjárinn
freistar margra og oft er það svo að
setjist menn fyrir framan sjónvarps-
tækið, þá er erfitt að rífa sig upp
aftur og fara að gera eitthvað af viti.
Það er því mikil blessun fyrir
marga að losna undan áhrifamætti
sjónvarps eina kvöldsfund í viku.
Félagslíf blómgast enda á fimmtu-
dagskvöldum, fundir eru haldnir um
borg og bí og fólk fer í heimsókn til
kunningjanna. Vilji menn dunda
heima við, má hlusta á útvarpið á
meðan. Það er smekksatriði hvort út-
varpið er gott þessi kvöld eða ekki.
Það fer að mestu eftir því hvernig
tekst til með útvarpsleikritið.
Eflaust sakna þó margir sjónvarps-
ins þessa einu kvöldstund, sjúkir,
aldraðir og þeir sem ekki eiga
heimangengt. Ný tækni nær þó að
hluta til þessa fólks. Vídeótæki hafa
náð ótrúlegri útbreiðslu hérlendis á
skömmum tíma. í flestum stærri fjöl-
býlishúsum á höfuðborgarsvæðinu
og víðar um landið, njóta menn nú
slíkra útsendinga. Fimmtudags-
kvöldin eru þvi ekki friðhelg lengur.
Menn meðtaka kannski tvær bíó-
myndir í röð þessi kvöld og halda
slíku áfram yfir helgarnar sem á eftir
fylgja. Baugar undir augum stækka
því jafnt og þétt hjá þeim, sem þurfa
að mæta til vinnu morguninn eftir
slíkt gláp.
En þrátt fyrir vídeóvæðingu eða
kannski vegna hennar verður að vona
það í lengstu lög að forráðamenn
Ríkisútvarpsins haldi fimmtudögun-
um sjónvarpslausum. Það er a.m.k.
hvíld fyrir þá sem ekki hafa enn
ánetjazt videóinu.
P.s. Er ekki hægt að finna al-
mennilegt íslenzkt orð í staðinn fyrir
videó? Hér með er auglýst eftir
tillögum.
-JH.
hærra verði á afurðum en fáanlegt er og einnig gert
ráð fyrir hærra gengi á dollar en skráð er.
Með þessum bjartsýnisforsendum fá verksmiðj-
urnar ekkert upp í afskriftir eða vexti og lítið upp í
viðhaldskostnað.
í forsendum oddamanns er aftur á móti gert ráð
fyrir að veiðiskip fái allan kostnað greiddan, þar
með taldar afskriftir og hafi hagnað að auki.
Söluhorfur á mjöli og lýsi hafa ekki í áraraðir
verið jafnslæmar og nú. Eftirspurn er lítil í þeim
markaðslöndum, sem mest hefur verið skipt við og
stafar það af minnkandi notkun i Vestur-Evrópu og
fjárhagserfiðleikum Austur-Evrópulanda. Veruleg
verðlækkun í dollurum hefur átt sér stað síðan um
sl. áramót og er sú lækkun í samræmi við styrkingu
dollars gagnvart Evrópumyntum.
Ljóst er að við næstu verðlagningu á loðnu verður
ekki unnt að byggja á óskhyggju þeirri um verðlag
afurða, sem einkenndi síðustu verðlagningu.
Verksmiðjurnar geta ekki starfað áfram ef rekstr-
argrundvöllurinn brestur.
Því samþykkir fundurinn að fresta aðalfundi og
óska eftir viðræðum við sjávarútvegsráðherra um
rekstrarvanda loðnuverksmiðjanna. Niðurstaða
þeirra viðræðna og annarra aðgerða stjórnar félags-
ins til að bæta rekstrarafkomuna verði lögð fyrir
framhaldsaðalfund sem haldinn verði í síðasta lagi í
október.
Árstíðarfundir
Samhygðar
Árslíðarfundir Samhygðar 21.9 nk. verða að þessu
sinni haldnir á þremur stöðum í Reykjavík, að Skip-
holti 70, Hótel Esju, 2. hæð, og Fáksheimilinu við
Reykjanesbraut, eins verður árstiðarfundur í Safn-
aðarheimilinu Garðabæ. Allir fundirnir hefjist kl.
21.
Til þessara funda, sem eru virkilegir fagnaðar-
fundir félaga Samhygðar, eru allir velkomnir sem
áhuga hafa á að kynna sér nánar starf Samhygðar, a
einfaldlega miðar að því að einstaklingurinn byggi
upp bjargfasta trú á lífið og hafa jákvæð áhrif í
umhverfi sínu og takist þannig að gera jörðina
mennska.
Samhygð, félag sem vinnur að jafnvægi og þróun
mannsins.
AA-samtökin
í dag, föstudag, verða fundir á vegum AA-
samtakanna sem hér segir: Tjarnargata 5 (91—
12010) græna húsið kl. 14 21 (opinn
fjölskyldufundur) og lokaður uppi á sama tíma.
Tjarnargata 3 rauða húsið kl. 12 og 21. Hallgrlms-
kirkja, byrjendafundur kl. 18. Neskirkja 2. deild kl.
18, Neskirkja kl. 21.Akureyri (96-22373),Geislagata
39, kl. 12. Hellissandur, Hellisbraut 18, kl. 21.
Húsavík, Höfðabrekka 11, kl. 20.30.
Neskaupstaður, Egilsbúð kl. 20. Selfoss (99-1787),
Selfossvegi 9, Sporafund, kl. kl. 20.
í hádeginu á morgun, laugardag, verða fundir
sem hér segir: Tjarnargata5 græna húsiö kl. 14 og
11. Akurevri, Gcislagata 39 kl. 11, Kefiavik,
Klapparstfg7 icl.ll, Fáskrúðsfjörður, félagsheimilið
Skrúður kl. 11, Reyöarfjörður, kaupfélagshúsinu,
kl. 11, Selfoss, Selfossvegur 9, kl. 11.
L; Afmæli
85 ára er í dag, 18. september, Elín
Jónsdóttir frá Eskifirði. Hún dvelst um
þessar myndir í Heilsuhæli NLFÍ i|
Hveragerði.
70 ára er í dag, 18. september, frú
Jónina Þórunn Jónsdóttir, húsfrú í
Vorsabæ í Austur-Landeyjum. —
Eiginmaður hennar er Guðmundur
Jónsson, bóndi frá Borgareyrum undir
Eyjafjöllum. Eiga þau uppkomin börn.
Hún er að heiman í dag.
Jazztónleikar þessa helgi í
Norrœna húsinu og Árseli
,,Nýja kompaníið heldur jazztónleika laugardag 19.
september í Norræna húsinu og hefjast þeir kl. 17,
sunnudag 20. september kl. 20 í Árseli og þar verður
kaffistofan opin. Hljómsveitin mun aðallega leika
eigin tónlist.
Nýja kompaníið hefur nú starfað í rúmlega eitt ár
og víða komið við á stuttum æviferli sínum; i
Djúpinu með reglulegu millibili, í skólum, sjón-
varpi, á jazzkvöldum á Hótel Sögu og Hótel Borg og
spilað fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Þá lék hljóm-
sveitin sl. vor með bandaríska trompetleikaranum
Ted Daniel í Djúpinu og 1 júlí lék hún fyrir norræna
tónlistarkennara. Um þessar mundir er hljómsveitin
'aö leika í félagsmiðstöðvum Æskulýðsráðs, Næstu
helgi verður hún 1 Djúpinu. 24. september, 1
Tónabæ 27. september og Þróttheimum 4. október.
Nýja kompaníið skipa þeir Sigurður Flosason
altó- og tenórsaxófónn og altóflauta, Sveinbjöm I.
Baldvinsson gítar, Jóhann G. Jóhannsson, píanó,
Tómas R. Einarsson kontrabassi og Sigurður G.
Valgeirsson trommur.
Ný hljómplata
Hljómsveitin ÞEYR hefur nú sent frá sér fjögurra
laga hljómplötu er hefur hlotið nafnið Iflur til fóta.
Hljómplatan er ekki aðeins tímamótaverk tónlistar-
lega séð, heldur er hún einnig framvörður nýrrar
tækni sem í fljótu bragði virðist ekkert eiga skýlt viö
tónlist.
Með aðstoð DBX-tækja sem eru í eigu Hljóðrita
hefur ÞEY tekizt að setja úrval hátíðnihljóða á
hljómplötu sína Iflurtilfóta.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 177 - 18. SEPTEMBER 1981 KL. 09.15. Ferflamanna- gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7,720 7,742 8,516
1 Steriingspund 14,097 14,137 15,550
1 Kanadadollar 6,425 6,443 7,087
1 Dönsk króna 1,0659 1,0690 1,1759
1 Norskkróna 1,3074 1,3111 1,4422
1 Sœnsk króna 1,3958 1,3997 1,5397
1 Finnsktmark 1,7435 1,7484 1,9232
1 Franskur f ranki 1,4014 1,4054 1,5459
1 Belg. franki 0,2054 0,2080 0,2266
1 Svissn. f ranki 3,9173 3,9285 4,3214
1 Hollenzk fiorina 3,0394 3,0480 3,3228
1 V.-þýzktmark 3,3679 3,3775 3,7153
1 ítölsk líra 0,00664 0,00666 0,00732
1 Austurr. Sch. 0,4792 0,4806 0,5286
1 Portug. Escudo 0,1190 0,1194 0,1313
1 Spánskur pesetj 0,0823 0,0826 0,0908
1 Japanskt yen 0,03392 0,03402 0,03742
1 (rsktDund 12,265 12,300 13,530
SDR (sérstök dráttarréttindl) 01/09 8,9406 8,9661
Sfmsvari vegna gengisskráningar 22190. |