Dagblaðið - 18.09.1981, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 18.09.1981, Blaðsíða 24
Löngum hefur það tíðkazt að börn á grunnskólaaldrinum biðji um réttarfri til að vera viðstödd réttir í þeirri sveit sem dvalizt hefur verið í um sumarið. Óvenjumargar beiðnir bárust að þessu sinni frá börnum í Breiðagerðisskóla og tók þá skólastjórinn, Hrefna Sigvalda- dóttir, sig til og bauð öllum börnunum í réttarferð. Það var enda mikil kátína í morgun við Breiðagerðisskóla er börnin, yfir hundrað og fimmtíu, voru að stíga upp í rúturnar og halda af stað. Viðkomu- staður verða hinar nýhlöðnu Skeiða- réttir og verður ferðin því í leiðinni vettvangskönnun. Börnin eru á aldrinum 9—12 ára og sagði Hrefna í samtali við DB í morgun að ef séð yrði að börnin, svona stór hópur, yrðu til vandræða á réttarsvæð- inu, yrði ferðinni flýtt til baka. Annars koma börnin í bæinn um hálfþrjú i dag. Má því með sanni segja að dagur- inn sé spennandi hjá börnunum í Breiðagerðisskóla. -ELA/DB-mynd Bjarnleifur. Næg forgangsorka til stór- iðju og almennings í vetur — Hrauneyjafoss ræður úrslitum „Teknar hafa verið upp viðræður við stóra orkukaupendur, Álverið og Járnblendiverksmiðjuna um ástand og horfur á vetri komanda, á sama hátt og tíðkazt hefur á þessum árs- tíma,” sagði Halldór Jónatansson, aðstoðarframkvæmdastjóri Lands- virkjunar, í viðtali við DB. Krafla framleiðir enga raforku um þessar mundir og hefur ekki gert um nokkurt skeið. Þar er verið að taka upp og yfirfara vélar. „Hrauneyjafossvirkjun kemur ekki í gagnið fyrr en 1. nóvember. Það fer því meðal annars eftir veðr- áttu næstu vikur að hve miklu leyti Landsvirkjun verður aflögufær um afgangsorku þar til Hrauneyjafoss- virkjun byrjar framleiðslu. Á hinn bóginn er fyrirsjáanlegt að engin hætta er á að til skerðingar á forgangsorku þurfi að koma í haust eöa vetur, hvorki til stóriðju né al- mennings, enda er miðlunarforði í Þórisvatni nokkru meiri nú en var á sama tíma í fyrra. Úrslitum ræður þó að sjálfsögðu tilkoma Hrauneyja- fossvirkjunar,” sagði Halldór Jóna- tansson. Hann sagði að álagið hefði að vísu aukizt um ca 50 megavött með seinni ofninum í Járnblendiverksmiðjunni sem og aukinni þörf almennings- veitna. „Afgangsorka er fyrst og fremst fáanleg á sumrin. Hvorki Járn- blendiverksmiðjan né Álverið tóku þá orku að fullu í sumar. Eðli málsins samkvæmt er alltaf undir hælinn lagt hvernig um hana háttar að vetrarlagi. Mest er þó um vert, að enginn þarf að bera skarðan hlut frá borði hvað for- gangsorku snertir,” sagði Halldór Jónatansson. -BS. Fullyrðingar á fullyrðingar ofan: Verið að búa til mál iír alls engu segja f réttamenn útvarpsinsum Eiávaðann íkringum meint„trúnaðarbrot” íframhaldi af óbirtu viðtali viðformann Alþýðuflokksins Hver fullyrðingin stendur nú gegn annarri í moldviðrismáli því sem þyriað hefur verið upp í kringum fréttastofu útvarpsins og ætlað „trúnaðarbrot” fréttamanns eða -manna þar í framhaldi af viðtali sem Gunnar E. Kvaran fréttamaður átti í sumar við Kjartan Jóhannsson, for- mann Alþýðuflokksins. Viðtal þetta fór fram 30. júlí vegna lokunar Alþýðublaðsins og var aldrei flutt opinberlega, enda mun það aðallega hafa snúizt um að Kjart- an vildi ekkert segja um lokun Alþýðublaðsins. Hann sagði þó — og hefur staðfest það síðar — að „Alþýðublaðsdeilan” væri „mann- legur harmleikur” en ekki stjórn- málaleg átök. Viðtalið spilaði Gunnar Kvaran síðan af segulbandi fyrir samstarfsmenn sína.á fréttastof- unni þann daginn. Nokkru síðar hafði Vilmundur Gylfason orðrétt á hraðbergi það sem sagt hafði verið um „mannlegan harmleik”. Segiif Gunnar Kvaran að Vilmundur hafi í votta viðurvist á fréttastofunni lýst því yfir að hann hefði segulbands- spólu með viðtalinu við Kjartan undir höndum en nú segir Vilmundur það rangt, hann hafi einungis heyrt viðtalið af segulbandi. Allt þetta mál, hið ætlaða „trúnaðarbrot”, hefur verið viðkvæmnismál á fréttastofunni allan seinni hluta sumars og var um það bil að leggjast i lágina þegar nokkrir útvarpsráðsmenn tóku það upp aftur i bókunum í framhaldi af stóryrtum yfirlýsingum Vilmundar Gylfasonar. Þræta nú allir málsaðilar — og jafnvel fleira fólk — fyrir að hafa „lekið” ummælum Kjartans í Vilmund. Kjartan hefur gefið þá skýringu á þessum orðum, að hann teldi það „mannlegan harmleik” að Alþýðuflokksmenn væru að eyða kröftum sínum í innbyrðis deilur í stað þess að einbeita sér að sameigin- legum baráttumálum. Keppast nú allir við að hvítþvo sig af upptökum þessa moldviðris — fréttastofa útvarpsins, Kjartan Jóhannsson og Vilmundur Gylfason. Fréttastofan mun fyrir sitt leyti hafa sannfærzt um að enginn frétta- maður þar hafi verið að verki. Þeir fréttamenn, sem Dagblaðið ræddi við í morgun, færðust allir eindregið undan að ræða málið opinberlega og töldu að verið væri að gera úlfalda úr mýflugu, búa til mál úr engu, eins og einn þeirra orðaði það. -KMU/ÓV. Spennandi dagun Breiðageroisskola: 0G ÖLL FENGU ÞAU RÉTTARFRÍ... frjálst, úháð dagblað FQSTUDAGUR 18. SEPT. 1981. Illskiljan- leg með- f erð vinnu- plagga borgar- stofnana —segirborgar- stjóri ísvarbréfi vegna mats varðandi Grjótaþorpið „Illskiljanlegt er að vinnuplögg ein- stakra borgarstofnana skuli liggja frammi hjá Fasteignamati ríkisins,” segir Egill Skúli Ingibergsson í niður- lagi svarbréfs borgarráðs til Þorkels Valdimarssonar. Þorkell sendi, eins og getið hefur verið í DB, fyrirspurn til borgarráðs vegna óundirritað bréfs og beiðni sem lá frammi hjá Fasteigna- matinu og fjallaði um eignir í Grjóta- þorpi. Hjá borgarráði upplýstist, að umrætt bréf, sem á var stimplað „Ekki til birtingar” fjallaði um mál, sem enga formlega umfjöllun hefur hlotið meðal stjórnvalda Reykjavíkurborgar. Var borgarstjóra falið að rannsaka tilurð bréfsins. Um það segir borgarstjóri i svarbréfinu: „Hér er um vinnuplagg borgarskipulags að ræða, sem fyrst kemur til frekari skoðunar, verði til- laga að skipulagi Grjótaþorps sam- þykkt.” „Ljóst er af viðbrögðum borgarráðs og svarbréfi borgarstjóra, að embættis- menn borgarinnar hjá skipulaginu hafa hér teygt sig langt út fyrir þann ramma, sem þeim er ætlað að starfa innan og starfsaðferðir þessa fólks eru furðu- legar,” sagði Þorkell Valdimarsson, sem sýndi DB afrit af svarbréfinu. -A.St. ■1 7J* Uy VIN VIKL Q M HVEI ö jURJ ?RI Áskrifertdur DB athugið Vinningur i þessari vikur er 10 gíra Raleigh reiðhjól frá Fálkan- um, Suðurlandsbraut 8 Reykjavlk, og hefur hann verið dreginn út. Noesti vinningur verður kynntur i blaðinu á mánudaginn. Nýir vinningar verða dregnir út vikulega nœstu mánuði. hressir betur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.