Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Issue
Main publication:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 12.07.1964, Page 1

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 12.07.1964, Page 1
MUSSAFAR OG RÍKI FURSTINN Einu sinni fyrir langalöngu var ríkur fursti í Tadzjikistan. Hann átti tólf ríkisfjárhirzlur sem voru fullar af alls kyns gulli og gersem- um og auk þess átti hann undur- iagra Ö^ttur, Séin hét gP&ía* &ÚS haíði ákveSið að giftást enguffi öðr- um en þeim, er ætti meira af gulli og gersemum en faðir hennar. Einn af þjónum furstans var svartur þræll, sem hét Mussafar, hann var hestasveinn. Hann var mjög góður við hestana og þeim þótti mjög vænt um hann, því að hann varði þá oft fyrir yfirmanni hesthússins, sem var hræðilega vondur maður og barði þá oft, þeg- ar hann var í vondu skapi. Dag nokkurn kom yfirmaðurinn fullur inní hesthúsið. Hann var í ógurlega vondu skapi og lamdi vesa- lings hestana aftur og aftur. Muss- afar vildi hjálpa hestunum, brá fyrir hann fæti, svo að hann datt og sneri sig um úlnliðinn. Utan við sig af reiði hljóp yfir- maðurinn brott til að hefna sín á Mussafar. Hann gekk rakleiðis til furstans og sagði: „Virðulegi fursti. Umhyggja fyrir þér neyðir mig til þess að ganga fram fyrir hásæti þitt. Mussafar auvirðilegasti þræll þinn hefur illt í hyggju. Hann segist geta fundið svartar perlur, sem séu eins stórar og valhnetur. Og þar sem þessar perlur eru dýrmætustu og sjald- gæfustu perlur sem finnast í heim- inum, hlýtur hann að fá dóttur þinnar Robiu. Þegar furstinn heyröi þetta, skipaði hann, titrandi af reiði að leggja svarta þrælinn í bönd og o o c*> kasta honum í fangelsi án þess að yfirheyra hann. Einn af ráðgjöfum furstans, sem hét Dilsjod kenndi í brjósti um Mussafar og vildi hjálpa honum. Hann fékk furstann til að sækja fangann. „Ráðgjafi minn Dilsjod hefur borið í bætifláka fyrir þig“, sagði furstinn við Mussafar. Yfir- maður þinn hefur sagt að þú vitir, hvíir sé að finna perlur, sem eru eins stórar og valhnetur. Þessvegna færðu frelsi þitt með því skilyrði að þú sækir fyrir mig nokkrar af þessum dýrmætu perlum. En komir þú ekki með þær, missir þú lífið. Mussafar hafði aldrei séð perlur, hvað þá svartar perlur. Hvar átti hann eiginlega að leita að þeim? Sorgmæddur og utan við sig af á- hyggjum lagði hann af stað. Á leið sinni gegnum landið, kom hann dag nokkurn að litlu vatni. Á bökkum vatnsins rakst hann á fisk, sem lá þar í sandinum og reyndi án árangurs að komast út í vatnið. Slíkan fisk hafði Mussafar aldrei séð fyrr. Hreistur hans glitr- aði af gulli og uggar skinu í sólinni eins og skírasti kristall, en hið feg- ursta við hann voru augun, tvær svartar perlur. Skyndilega féllu tár úr augum fisksins. Fullur með- aumkunar hugsaði Mussafar: Á ég að drepa þennan fisk aðeins til þess að furstinn fái tvær svartar perlur? Hann hugsaði ekki lengi um þetta, hann tók fiskinn og kast- aði honum út í vatnið. í sama bili skall á ógurlegt óveður og upp úr hafinu kom gamall maður með sítt mosagrænt skegg. „Þú hefur gott hjartalag, Mussa- far“, sagði hann, „þú hefur bjargað lífi eins af kærustu þjónum mín- um, gullið og perlurnar hafa ekki freistað þín, þessvegna vil ég launa þér.“ Þvínæst dýfði hann síða skegginu sínu í vatnið og þegar hann dró það upp aftur, trúði Mussafar ekki sínum eigin augum: Græna skeggið var alþakið svört- um perlum. „Allar þessar perlur átt þú,“ sagði gamli maðurinn. „Gættu þeirra vel og sýndu ekki furstanum þær allar í einu. Þú verð- ur að muna það, þvi annars mun þér farnast illa.“ Undrandi safnaði Mussafar öllum perlunum saman og hélt heim á leið. Þegar hann kom til hallar furstans, gekk hann stoltur fyrir furstann, rétti út hönd- ina og sýndi honum fjórar svartar Framhald á 3. síðu.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.