Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Issue
Main publication:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 12.07.1964, Page 2

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 12.07.1964, Page 2
DÆMISÖGUR ÍVANS KRILOFFS Menntun ríkisarfans Ljónið, konungur skógarins, átti einn son. Þegar hann var ársgamall áleit faðirinn að tími væri kominn til að mennta soninn. Hver átti nú að verða kennari unga ríkisarfans? Hver gat alið hann svo viturlega upp að hann yrði hæfur til að rikja yfir öllum dýrum skógarins? Moldvarpan er fræg fyrir aðgætni sína. Hún hreyfir sig aldrei án þess að gæta vel að jarðveginum fyrir framan sig. Hún étur aldrei nokk- urn bita án þess að hreinsa hann fyrst. En þótt móldvarpan gæti vel að öllu, sem er í nánd við hana, þá sér hún ekkert frá sér. Og konungsríki ljónsins er ekk- £rí_moIdvörpubÉéÍi. Svo er auðvitað pardusdýrið. Það er hugrakkt og sterkt og snillingur í bardögum. En það hefur enga þekkingu á borgaralegum málum. Konunugurinn verður að vera ráð- gjafi og dómari, auk þess sem hann er hermaður. Uglan, konungur fuglanna, frétti af vandræðum ljónsins. Hún kom og bauðst til að annast uppeldi rík- isarfans. Ljónið var mjög hrifið. Enginn var færari um að annast menntun sonar hans en konungur fuglanna. Ríkisarfinn litli var strax senduir heim til uglunnar til þess að læra að stjórna. Nokkur ár liðu. Menntun ríkis- arfans var lokið og hann sneri heim til föður síns. Konungurinn kallaði þegna sína saman, faðmaði son sinn fyrir framan þá og sagði: „Elskulegi sonur, dauði minn nálg- ast óðum, og nú ætla ég að afhenda þér veldissprotann. Segðu mér hvað þú hefur lært og hvernig, þú ætlar að stjórna.“ „Faðir minn“, svaraði ríkisarfinn. „Ég veit meira en nokkurt þessara dýra. Ég þekki nafn hvers einasta fugls. Ég veit á hverju hver einasti fugl lifir og hvað hann verpir mörg- "Hm eggjum. Og strax og ég verð 2V — ÖSKASTUND konungur ætla ég að kenna öllum dýrum skógarins aö byggja sér hreiður.“ Laun íkornans íkoma nokkrum var boðið að dveljast við hirð ljónsins. „Þú verður einn af hirðmönnum konungsins“, sagði ljónið vinsam- lega, „og þegar þú lætur af þjón- ustu verður þér launað með heilu hlassi af hnetum.“ „íkorninn var hreykinn yfir að þjóna konungi skógarins og gerði allt sem hann gat til að þóknast húsbónda sínum. Hann hentist til og frá og var svo önnum kafinn við að annast sendiferðir að hann vana tima til að eta. Hinir íkornarnir voru alltaf að brjóta sér hnetur og leik sér 1 trjánum. En konunglegi íkorninn hafði engan tíma til að skemmta sér með þeim. Hann var á sífelldum þönum að gegna erindum konungs. Loks varð íkorninn gamall og þreyttur og gat ekki lengur hlaupið nógu hratt. Ljónið leysti hann frá störfum og hann fékk heilt hlass af hnetum. Hneturnar voru einstakar i sinni röð. j>2sr yoru tínáar gf be§|a trjáiT- um og voru stórar og góðar. Eng- inn hafði áð3ur séð svona stórar og fallegar hnetur. Það var aðeins-eitt sem íkorninn harmaði. Hann var orðinn gamall og hafði misst allar tennurnar. Duglegur drengur Kæra Óskastund. Ég þakka þér fyrir allar skemmtilegu sögurnar og getraunirnar sem þú hefur birt. Ég ætia að senda þér mynd af dreng sem er að raka saman laufbiöðum sem fallið hafa af trjánum. Ingibjörg V. Friðbjörnsd. Hlíðarhvammi 3, Kópav. J

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.