Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Issue
Main publication:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 07.02.1965, Page 4

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 07.02.1965, Page 4
LEIKIR Hérna er skemmtilegur leikur, er þið getið leikiö í afmælisboöum eða þegar þið eruð að leika ykkur inn- an dyra. Nokkrir þátttakendanna fara út úr herberginu, svo að þeir vita ekki hvað gerist. Á meðan eru settar 9—10 flöskur í röð með nokkru millibili og einhver fær það hlut- verk að taka burt flcskumar þegar honum er gefið merki. Nú er hinn fyrsti af þeim sem eru úti, leiddur inn, og ixoniun sagt að reyna að ganga a yfir hverja flösku í röðinni án þess að velta þeim. Það gengur áreiðanlega vel, en þegar hann fer aftur til baka þá er bundið fyrir augun á honum. En rétt áður en hann stígur yfir fyrstu flöskuna takið þið burt án þess að hann viti, allar flöskurnar og þá verður gaman að sjá hann reyna að ganga yfir flöskurnar sem ekki eru til staðar. Þegar hann hefur lokið þessu er hann áreiðanlega mjög ánægður yfir að hafa komizt þetta klakk- laust, þangað til trefillinn er tek- inn frá augunum á honum, og allir hlæja. Og þá er kallað á næsta fórnardýr. — Góða skemmtun. Hér er skemmtilegt og auðvelt spil, sem þið getið búið til þegar ykkur leiðist. Teiknið á spjald myndina hér fyrir ofan. Innst í hringinn komið þið fyrir lítilli skál. Þið getið sjálf ákveðið hve langt frá þið standið, þegar þið kastið. Þið getið notað tóman eldspýtu- stokk til að kasta með. Þið skiptizt á að kasta og sá sem fyrst kemst upp í 100 stig vinnur. 4 — ÓSKASTUND Hvaö sérðu vel? Nú ætlum við að leggja fyrir ykkrnr þraut til að reyna hvað sjón ykkar er góð — en varið ykkur, allar fjórar þrautirnar eru ef svo má að orði komast, „sjónblekking“. 1) Eru þessar tvæir lóðréttu línur beinar eða svigna þær dáiítið inn í miðjunni? 2) Er þetta ein löng lína, sem er skorin af hinum tveim aflöngu ferhyrningum, eða eru þetta þrjár stuttar? 3) Þessir sjö punktar, sem liggja innst inni á milli strikanna, taka þeir yfir lengra svæði en hinir sjö sem liggja utar? 4) Feirhyrningurinn, sem er inni í öllum þessum strikum, eru allar hliðar hans jafnlangar eða er sú neðsta ekki svolítið lengri? Þegar þið eruð búin að komast að niðurstöðu með því að nota sjónina, fáið ykkur þá reglustriku og athugið hvort fyrri niðurstaða ykkar er rétt. — Góða skemmtun. STÖKUR DRANCFY Við skulum ekki víla hót. Vart það léttir trega. Það er alltaf búningsbót aö bera sig karlmannlega. Tíbrá frá Tindastóli titrar um rastir þrjár. Margt sér á miðjum firði Mælifellshnjúkur blár. Margt er sér til gamans gert geði þungu kasta. Það er ekki einskisvert að eyða tíð án lasta. Sér hvað hefur sína tíð, svo er að hlæja og gráta. Hóf er bezt. Hafðu á öllu máta. Þar rís Drangey úr djúpi. Dunar af fuglasöng bjargið og báðum megin beljandi hvala þröng. Einn gengur hrútur í eynni Illugi Bjargi frá dapur situr daga langa dauðvona bróður hjá. Jónas Hallgrímsson.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.