Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 01.03.1926, Qupperneq 4

Veðráttan - 01.03.1926, Qupperneq 4
Mars Veðráttan 1926 aði mikið þ. 28.—30., mest á Hraunum þ. 29., svaraði til 19 mm aí regni. Hvassviðrí: Stormdagar eru ekki mjög margir, mest 7 í Vestmannaeyjum, en víða er brimasamt fyrri hluta mánaðar- ins og einnig síðustu dagana. Þ. 3. var suðvestan hvassviðri á Suðvesturlandi. Voru þá margir bátar úr Sandgerði hætt komnir og mistu sumir veiðarfæri. Þótt ekki væri mjög hvast, var óvenjumikill ósjór. Skolaði 4 mönnum út af bátunum, og 3 þeirra druknuðu. Aðfaranótt þ. 7. fórst vjelbáturinn „Eiru með 12 manns. Kvöldið áður lagði hann af stað frá Reykja- vík og ætlaði til Isafjarðar. Um nóttina og daginn eftir var sumstaðar á Suður- og Vesturlandi hvast á sunnan eða suð- vestan með snjókomu. Þ. 14. fórst bátur í lendingu í Grinda- vík, og fórust 9 menn, en tveimur varð bjargað. Brim var mik- ið en ekki hvast. Þ. 16. sökk vjelbáturinn „Málmeyu við Kal- mannstjörn á Reykjanesi. Var það einnig vegna brims. Skips- höfnin komst í togara. I norðangarðinum 27.—30. varð hvast um alt land, eink- um 28.-29. Skaðar urðu litlir í þessu veðri. E.s. „Nordlandu lenti í hrakningum fyrir Horni aðfaranótt þ. 28. og misti björg- unarbát, en komst loks inn á Önundarfjörð. I Vestmannaeyj- um liröktust bátar allmikið þ. 28., en „Þóru kom til hjálpar, svo að ekkert mein varð af. Þ. 29. rak vélbát á land nálægt Elliðaárósum. Þ. 30. fauk þak af íbúðarhúsi og stór geymslu- skúr að Leirvogstungu í Mosfellssveit. A Norðausturlandi hrakti fje víða þ. 28., en náðist flest óskaddað. Snjólag: Framundir miðjan mánuðinn er alhvítt um alt land, og einnig síðustu dagana. A Suðvesturlandi er viða alautt seinni hluta mánaðarins, nema sumstaðar 4 síðustu dagana. Snjódýpt mældist mest 75 cm. í Eagradal við Vopnafjörð þ. 18. A Suðurlands-undirlendi var mjög rnikill snjór fyrri hluta mánaðarins, einkum austan til. Teptist póstur á aðra viku, frá 6.—15., í Vík í Mýrdal vegna ófærðar. Þ. 3. fjell snjóflóð á 2 menn á Sauðanesi milli Súganda- fjarðar og önundarfjarðar. Annar maðurinn komst undan, en hinn fórst. Hagi: Það sem af er þessum vetri, hefir haginn í hverjum mánuði verið yflr 75%, en nú er hann kominn niður í 59%, og er það lítið eitt minna en í sama mánuði í fyrra (61%). A Græn- hól er haginn lægstur 13%, en Teigarhorn er eina stöðin, sem telur hann lOO°/0. Gœftir voru slæmar fyrri hluta mánaðarins og yfirleitt lak- ari en í mars í fyrra. A vélbáta voru gæftir að meðaltali 46% (6 stöðvar), mest 74% í Vestmannaeyjum, á róðrarbáta að með- altali 27%, 36°/0 á Hjalteyri. Sólskin í Reykjavík er dálítið minna en fyrra. 73.3 stund- ir, eða 20.3% (i fyrra 79.8 stundir eða 22.1 %). Mest var sól- skinið þ. 30., 8.8 stundir, en 7 daga er sólskinslaust. Sjávarhiti er 1°—3° neðan við meðallag við Vesturland, en nálægt meðallagi annarsstaðar. Þrumur í Vestmannaeyjum þ. 7. kl. 6 10 og síðari hluta sama dags í Vík í Mýrdal. (12) ?RENTSM, AC.'A H.F.

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.