Veðráttan - 01.04.1926, Side 4
Apríl
Veðráttan
1926
orðnum. Sömu nótt strandaði togarinn „Asa“ á Flúðum við
Grindavík. Þessa nótt var suðaustan hvassviðri og mikið brim.
Komust skipverjar ekki í land fyr en daginn eftir. Þ. 13, var
sunnan stormur á Suðvesturlandi. 9 bátar frá Eyrarbakka og
Stokkseyri náðu þá ekki lendingu, vegna þess að brim var
mjög mikið og stórstreymt. Einn báturinn brotnaði, en menn-
irnir komust í togara. Um nóttina rak skip á land á Þingeyri
við Dýrafjörð, en brotnaði-þó ekki til muna.
Snjólag: Á Suðurlandi, frá Papey til Snæfelisness, er víð-
ast alautt allan mánuðinn, nema 3 fyrstu dagana á Hólum í
Hornafirði. A Norður- og Norðausturlandi er flekkótt mestan
hluta mánaðarins, en verður víða alhvítt frá 16. til 20. Yfir-
leitt er mjög snjóljett norðanlands, og mældist mest snjódýpt
25 cm. á Grænhól þ. 1. og á Hraunum þ. 17.
Hagi er mjög góður eftir árstíma, að meðaltali 93°/0 (í
apríl í fyrra 81°/0). Allar stöðvar sunnanlands telja hagann
100°/0 og einnig margar stöðvar annarstaðar. Minstur er hann
39°/0 á Grænavatni.
Gœftir eru yfirleitt góðar, einkum á vjelbáta, að meðaltali
.68°/0 (6 stöðvar), mest 80% í Keflavík, en minst 51% á Djúpa-
vogi. A róðrarbáta var sjósókn mest 69% á Auðnum, minst
26% í Vestmannaeyjum, en að meðaltali 48% (7 stöðvar).
Sólskin í Reykjavík er rúmlega þriðjungi minna en í apríl
í fyrra, 120.0 stundir eða 26.4°/0 (í fyrra 197.5 stundir eða
44.0%). Mest var sólskinið þ. 21., 14.1 stundir. Aðeins 3 daga
(þ. 1., 24. og 28.) sýnir sólskinsmælirinn ekkert sólskin.
Sjávarhiti við Island er lítið eitt ofan við meðallag.
Brennisteinslykt mikil fanst úr suðri á Þorvaldsstöðum þ. 22.
Hœtt að gefa gemlingum: Fyrst þ. 29. mars, síðast þ. 26.
apríl, meðaltal 8 stöðva 15. apríl eða 5 dögum fyr en í fyrra.
Gemlingum slept: Samkvæmt 13 skýrslum var gemling-
um slept á tímabilinu 14. mars til 28. apríl, meðíjtal 16.
apríl eða 12 dögum fyr en í fyrra.
Hœtt að gefa ám: Fyrst er hætt að gefa ám þ. 14. mars,
en síðast þ. 26. apríl. Meðaltal 9 stöðva er 14. apríl, eða 23
dögum fyr'en í fyrra.
Am slept á tímabilinu 15. mars til 28. apríl, meðaltal 10
stöðva 16. apríl, eða 19 dögum fyr en í fyrra.
Kýr látnar út fyrst 26. apríl.
Túnávinsla byrjar þ. 14. apríl.
(16)
PRBNTSM. ACTA H.F.