Veðráttan - 01.06.1926, Blaðsíða 1
V i:+) K A TT A X 1926
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
J ú n í :
Alment yfirlit: Tíðin er yfirleitt hagsta ð. Á norðvestan-
verðu landinu er óvenju þurkasamt. Grasspretta er því slæm
á þurlendi, en aftur góð á deiglendi. A Austur- og Suðaustur-
landi er mjög úrkomusamt og fremur kalt fyrii hluta mánað-
arins. Grasspretta er þar þó i góðu meðallagi i mánaðarlokin.
Þ. 1.—13. Ganga loftvægislægðir austur eftir hafinu fyrir
sunnan land og valda austlægri átt hér á landi. En eftir því,
hvort lægðin er fyrir suðvestan eða suðaustan landið er vind-
staðan suðla^gari eða norðlægari. Þessa daga er mjög úrkomu-
samt á Austur- og Suðausturl. Hitinn er fyrir neðan meðallag
þ. 1.—4. og 11.—12., hina dagana talsvert fyrir ofan.
Þ. 14.—18. Iíæð fyrir norðaustan land. Austlæg átt. Næst-
um úrkomulaust en þokur víða, einkum á Norðvesturl. 16.—
18. Illýtt er á Norður- og Vesturl. þ. 14. og 15., annars er hit-
inn uin meðaliag.
Þ. 19.—21. Lægð gcngur austur fyrir sunnan land. Aust-
læg og norðaustlæg átt. Þurt á Norðvesturlandi, úrkoma sunn-
an og austanlands. Hiti nálægt meðallagi.
Þ. 22.—30. Hæð fyrir sunnan land. Breytilegir hægir vind-
ar, oft hafgolur. Urkoma er víða þ. 29. og 30., en annars mjög
lítil. Þokur eru allmiklar á Suður- og Vesturl. og þrjá síðustu
dagana einnig á Norðurl. Hitinn er talsvert fyrir ofan meðallag.
Loftvœgi í júní er 1.0 nnn fyrir ofan meðallag. Lægst stóð
loftvog þ. 19. í Vestm. kl. 15 748.4 mm, en hæst þ. 15. á
Raufarh. 769.8 mm.
Hiti: Mánuðurinn er yfirleitt fremur hlýr, 0.9° fyrir ofan
meðallag. Þó er hitinn á Austurl. nálægt meðallagi. Hlýjast er
á Suðvesturl. Kaldast er fyrstu dagana í mánuðinum (1.—4.).
A Vesturl. víðast þ. 1’., á Núpi 1.0. A Norður- og Austurl. víð-
ast þ. 2., á Grímsst. -1.5 og -0.5 á Nefbjarnarst. og Eiðum. Þá
er og kalt á Norður- og Austurl. þ. 11. og 12. og þ. 20. á
Norðausturl. Hlýjast er dagana 6, - 10. og 22.—30. Á Teigar-
horni 25.2 þ. 25. og 27., á Lækjamóti 23.4 þ. 27. og á Húsa-
vík 23.2 þ. 6. og 23.
Sjávarhiti við Island er ca. 1.0° fyrir ofan meðallag. Við
Suðuri. er hann nálægt meðallagi, en allmikið hærri við Norðurl.
Urkoma: A Austur- og Suðausturl., frá Langanesi til Mýr-
dals, er úrkoman mikið meiri en venjul. A Teigarhorni rúml.
þrefalt meiri, 317°/0. A norðvestanverðu landinu er úrkoman
aftur mikið minni en venjulega, minst eftir hætti 36% á Græn-
hól (rúmlega 1 3 af venjul. úrk.) Mest úrkorna á einum sólar-
hring er 72.6 mm þ. 20. í Vík í Mýrdal. Þar er og mæld mest
úrkoma yfir allan mánuðinn, 250.6 mm. En minst úrkoma yfir
raánuðinn er á Lækjamóti aðeins 10.7 mm. A Suður- og Austurl.
(21)