Veðráttan - 01.11.1926, Side 1
YEÐKÁTTAN 1926
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á YEÐURSTOFUNNI
Nó vember:
Alment yfirlit: Tíðarfarið í þessum mánuði er yfirleitt
fremur óhagstætt, ógæftir til sjávarins, og snjóþyngsli og hag-
leysur til landsins á Vestfjörðum, Norður- og Norðausturlandi.
Þ. 1.—22. ganga loftvægislægðir fyrir sunnan land. Þ. 1.—3.
er aðallega austlæg átt hvöss sunnanlands. Eftir það gengur
hann í norðrið, er lægðin gengur suðaustur fyrir landið. Þessi
norðanátt helst til þ. 9. og er tíðast hvöss. Lægðin þokast nú
aftur vestur fyrir sunnan land, því verður enn austan átt í 3
daga (10—12.) en gengur síðan aftur í norðrið þ. 13. og helst
það til þ. 15. A suðvesturlandi er suðlæg átt þ. 16., breytileg
annarstaðar. Síðan kemur hann aftur á austan þ. 17. og er
austan, norðaustan og norðan til þ. 22. Þenna tíma er úrkomu-
samt norðanlands og austan og einnig á Vestfjörðum, oftast
snjókoma. En suðvestanlands er úrkoman yfirleitt lítil.
Þ. 23.—30. ganga lægðir að vestan norðaustur milli Græn-
lands og Islands. Þ. 23. og 24. er austan og suðaustan átt, en
gengur síðan í suðvestrið og helst það til þ. 27. Síðan gengur
hann aftur í suðrið og suðaustrið þ. 28. og 29. en snýst aftur
í suðvestrið þ. 30. Þessa daga er oftast allhvast á Suðvestur-
og Vesturlandi. Urkoma er allmikil þessa daga á Suður- og
Vesturl., bæði snjókoma og regn.en lítil á Norður- og Austurl.
Loftvœgi í þessum mánuði er lágt, 5.3 mm. fyrir neðan
meðallag, mest á Ilólum 7.2 mm en minst á Isafirði 2.4 mm.
Lægst stóð loftvog aðfaranótt þ. 14., á Seyðisfirði 718.9 mm.
En hæst stóð hún á Austurl. þ. 1., á Seyðisfirði 766.2 mm.
Hiti: Eyrir alt landið er liitinn 0.6° fyrir ofan meðallag.
Hlýjast er eftir hætti á Suður- og Austurl., á Raufarhöfn 2.5°
og á Fagurhólsmýri 2.4° fyrir ofan meðallag. Annarstaðar er
hitinn nálægt meðallagi. Hlýjast er þ. 6.—16. og þ. 24.—30.
En kaldast þ. 1—4., 17.—19. og 22. Hæstur hefir hitinn orðið
á Suðureyri 8.0° þ. 30. og á Teigarhorni 8.0° þ. 7., en lægstur á
Grímsst. -17.9° þ. 17. og 18.
Sjávarhiti er í þessum mánuði 0.6° fyrir neðan meðallag
fyrir alt landið. Við Vesturland er hann 1.7° fyrir neðan en
við Austurland 1.0° fyrir ofan meðallag.
Urkoman í þessum mánuði er ca. 50°/0 fyrir ofan meðal-
lag. Mest er hún eftir hætti á norðaustanverðu landinu fjór- til
fimmföld, en minst á Suður- og Suðvesturl., á Pagurhólsm. 60°/0
fyrir neðan meðallag. Tala úrkomudaga er á sunnan og vestan-
verðu landinu 5 lægri, en að norðan og austan 4 hærri en venju-
lega. Minst úrkoma yfir mánuðinn er mæld á Grænhól 36.9
mm, en mest á Hraunum 240.7 mm. Þar er og mest úrkoma
yfir einn sóiarhring 60.0 mm.
Hvassviðri: Mánuðurinn er stormasamur. Þ. 1. er hann
(41)