Veðráttan - 01.11.1926, Qupperneq 4
Nóvember
Veðráttan
1926
suðaustur yfir landið og verður víða mjög hvast þ. 6. og 7.
18 slöðvar telja storm þessa daga og 3 þeirra (Kollsá, Hraun
og Vík) rokstorm (10). Þessu veðri fylgdi mikil snjókoma á
Norður- og Norðvesturl. Þá urðu mestu símabilanir sem orðið
hafa síðan síminn var lagður, ísingu kent um að miklu leyti.
Línur fjellu niður í Skagafirði/ á Snæfellsnesi, Vaðlaheiði og
nálægt Esjubergi. Sjógangur varð mjög mikill á Austurl. aðfara-
nótt þ. (>. A Norðfirði brotnuðu þá um 30 árabátar og auk þess
smábryggjur og sjóhús, um 20 kindur týndust í sjóinn og 8
skippd. fiskihlaða tók út af þurkreit. I Mjóafirði týndust 3 ára-
bátar og á bænum Eldleysu 15 skippd. fiskihlaði. Þ. 9. varð
Olafur Hafliðason úti á Rauðamelsheiði á Snæfellsnesi. Þ. 10. er
hvast á austan við Suðuriand, stormur í Vestm. Þ. 12. og 13.
er víða hvast á austan og norðaustan. 7 stöðvar telja þá storm
(Elatey rokstorm). Hraun teija austan storm þ. 15. og Vestm.
aðfaranótt þ. 17. Þ. 20. og 21. er norðan hvassviðri á Suður-
og Austurlandi. Vestm. telja storm báða þessa daga og Hólar
og Vík rokstorm þ. 21. Austan stormur er í Vestm. þ. 24. Og
þ. 27. er hvast á suðaustan á Suður- og Vesturl., stormur. í
Vík og Vestm. Þ. 29. og 30. er sunnan hvassviðri á Vestur-
og Norðvesturlandi. Elestar stöðvar þar telja þá storm, 3 rok-
storm og ein (Suðureyri) ofsaveður (11) þ. 29. síðd. Þ. 29. fórst
vjelb. Baldur frá Reykjavík með 4 mönnum. Þ. 23. strandaði
norska skipið „Nystrand“ á Þykkvabæjarfjöru við Skaftárós,
áttavitaskekkju kent um. Einn skipverja druknaði.
Snjólag: Eftir meðaltali allra stöðvanna er 59°/0 af jörð-
inni hulið snjó yfir mánuðinn, rúmlega helmingi meira en í sama
mán. í íyrra. Norðan til á Vestfj. og á Norðurl. er næstum al-
livítt allan mánuðinn, 87—100°/o. A Vestur- og Suðvesturl. og
Austfjörðum er víðast alhvítt 5—6 fyrstu daga mán. Síðan er
aftur alhvít jörð í nokkra daga úr miðjum mán., og á Suð-
vestur- og Vesturl. öðru hverju síðustu dagana. A Fagurhóls-
mýri er alautt allan mánuðinn og á næstu stöðvum (Hólum og
Kirkjub.) kemur aðeins stöku sinnum snjór á jörð. Mest snjó-
dýpt er mæld á Suðureyri 85 cm. þ. 21.—23. Snjóflóð fjellu
víða norðanlands og á Vestfjörðum eftir veðrið, sem gerði þar
þ. 5. og 6. I Iínífsdal fjellu tvö snjóflóð, er tóku símalínuna á
kafla. I öðru fórust 5 liestar. Snjóflóð tók bryggju á Hesteyri
og stórskemdi aðra. A Láheiði i Ölafsfirði tók snjóflóð kafla af
símalínunni. A Skeri á Látraströnd við Eyjafjörð tók snjóflóð
fjárhús með 60 kindum og heyhlöðu og 4 báta, sópaði öllu á
sjó út, 9 kindum bjargað. Fólkið yfirgaf bæinn. Maður úr Svarf-
aðardal, Dagbjartur Þorsteinsson, fórst í snjóflóði í Háagerðis-
fjalli, var á rjúpnaveiðum.
ílagí er á öllu landinu 74°/0, fullum fjórða parti minni en
í sama mán. í fyrra. Sunnanlands er hann þó allgóður 84—
100°/o, en norðanlands slæmur 24—100°/0. Þó að stöðvarnar
Húsav., Raufarh. og Þorvaldsst., sem allar liggja við sjó, telji
hagann allgóðan hjá sjer, geta þær allar um snjóþyngsli og
hagleysur til landsins.
Sólskin í Reykjavík í þessum mán. er 42.8 stundir eða
22,2% og er það % meira en að meðaltali 3 undanfarin ár
(32 st.). Mest er sólskinið þ. 1. 6.8 st. 17 daga er ekkert sólskin.
Þrumur heyrðust í Vík og Vestm. þ. 17. árd.
(44)
PRBNTSM. ACTA H.F.