Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.08.1927, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.08.1927, Blaðsíða 1
YEÐRATTAN 1927 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURS.TOFUNNI Ágúst. Alment yfirlit: Tíðarfariö í þessum mánuði má yfirleitt telj- ast gott, það er fremur lilýtt, hægviðrasamt og þurkasamt sunnanlands og vestan (nema í sumum fjallasveitum), en á Norðausturl. er kvartað um tafir við heyskap og sumstaðar skemdir á töðum vegna óþurka. Þ. 1.—4. eru grunnar loftvægislægðir um Island, oftast hæg- viðri og breytileg vindstaða, víða þokur, úrkoma og sumstaðar þrumuveður. Þ. ð.—12 er loftvægishæð fyrir norðvestan og norðan land, norðanátt yfii gnæfandi, lítil úrkoma og oft bjartviðri og þurkar einkum sunnanlands og vestan. Þ. 13.—23. eru lægðir fyrir sunnan og suðaustan land, norðan og austan átt yfirgnæfandi, þurkar á Vesturl. og viðar en úrkomusamt í útsveitum á Norður- og Austurlandi. Þ. 24.—26. eru lægðir fyrir vestan og suðvestan land, aðallega suðlæg átt og víða allmikil úrkoma (skúrir), þó er hann kominn á norðan á Norðvesturlandi þ. 26. Þ. 27.—28. Lægðin, sem var fyrir suðvestan land þ. 26. gekk um nóttina austur fyrir 1 ind og fylgdi því norðan hvass- viðri um land alt, er hjelst fram á þann 28., en þá snýst hann í vestrið og suðrið. Allmikil úrkoma var norðanlands, og snjó- aði þar víða í fjöll og sumstaðar í byggð. Hitinn er 2—4° fyr- ir neðan meðallag. Þ. 29.—31. eru lægðir fyrir suðvestan og vestan land suð- austlæg og suðlæg átt og víða úrkoma. Loftvœgið í þessum mánuði er 1.1 mm fyrir neðan meðal- lag frá 0.9 mrn (Tgh., Vm.) til 1.3 mm (Ak., Rfh., Sf.. Grvk.). Hæst stóð loftvog nóttina milli þ. 10 og 11., á Raufarh. 773.3 mm, en lægst stóð hún þ. 27. árd., á Hólum 720.7 mm. Hitinn er 0.8° fyrir ofan meðallag. Hlýjast er eftir hætti á Suðausturlandi, á Tgh. 1.6°fyrir ofan meðallag, en kaldast á norðanverðu Vesturl., í Fl. 0.4° fyrir neðan meðallag. Yfirleitt er hlýjast (hitinn mest fyrir ofan meðallag) þ. 1.—9. og 30.—31., en kaldast þ. 27.—28.; einnig er fremur kalt þ. 22.—24. Iíæst- ur hiti hefir verið mældur 21.3° á Þorvaldssöðum þ. 1. og á Eiðum þ. 5., en lægstur —0 4C á ðtnp. þ. 28. Sjávarhitinn er alstaðar fyrir ot'an meðallag, frá 0.1° við Stykkish, til 3.3° við Djúpavog (Tgh.) Meðaltal allra stöðvanna er 1.4® fyrir ofan meðallag. Urkoman í þessum mánuði er 20°/0 fyrir ofan meðallag á öllu landinu. Mest eftir hætti er hún á Eyrarb. 82°/0 fyrir ofan meðallag, en minst í Rvk. 30°/0 fyrir neðan meðallag. Hún er einnig fyrii\ neðan meðallag i Stli. og á Tgh., annarstaðar fyrir ofan. Ukomudagar eru tveimur fleiri en venjulega á öllu landinu. Minst úrkoma yfir mánuðinn er á Eiðum 32.0 mm, en (29)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.