Veðráttan - 01.10.1927, Qupperneq 1
VEÐRATTAN 1927
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á YEÐURSTOFUNNI
Október
Alment yfirlit: Fyrri hluta mánaðarins er mild tíð, en úr-
komusöm. Seinni hlutann er aftur köld tíð, norðanlands setur
niður mikinn snjó á fjöll og heiðar og töluverðan í bygð. Á
Norðausturlandi verður hey úti sumstaðar vegna. óþurka.
Þ. 1.—2. er loftvægislægð fvrir austan iand. Norðanáttin
(sjá sept.) helst þessa daga og einnig þ. 3. á Austurl. Snjókoma
er norðanlands.
Þ. 3.—16. eru lægðir einkum fyrir suðvestan, vestan og
norðvestan land, aðallega suðaustan, sunnan og suðvestan átt
(mjög hvass suðaustan á Suðvesturl. þ. 4.), þó er hann á vestan
þ. 12. og 14. og norð-vestlægur þ. 15. Þenna tíma er mikil
úrkoma sunnanlands og vestan.
Þ. 17.-21. er lág loftvog fyrir austan land, norðlæg átt
og víða snjókoma norðanlands.
Þ. 22.—31. eru lægðir fyrir sunnan og Suðaustan land,
austan og norðaustan átt, mjög hvöss við Suðurland þ. 24.—27.
Snjókomur eru víða norðanlands þessa daga.
Loftvœgið í þessum mán. er 4.3 mm. fyrir ofan meðallag,
frá 3.5 mm. á Rfh. til 4.7 mm. í Rvk. og Sth. Hæst stóð loftvog
þ. 4., á Tgh. 770.6 mm., en lægst þ. 27., í Vm 736.4 mm. kl. 7.
Hitinn á öllu landinu er 0.5° fyrir neðan meðallag. Hlýjast er
eftir hætti á Suðurl., 0.2° fyrir ofan meðallag í Rvk. og Fghm. Mest
fyrir neðan meðallag er hitinn 2.3° á Eiðum. Yfirleitt er hlýj-
ast þ. 5.—14. en kaldast þ. 2., 17.—24. og 29.—31. Hæstur
hefir hitinn orðið 16.9° á Tgh. þ. 12., en lægstur —15.5° á
Eiðum þ. 23.
Sjávarhitinn er 0.4° fyrir ofan meðallag kring um alt landið.
Við Suður- og Austurl. er hann 0.8° fyrir ofan meðallag, en
0.2° fyrir neðan við Norðvesturland.
Úrkoman í þessum mán. er nálægt meðallagi á öllu landinu
(3% fyrir ofan). Mest eftir hætti er úrkoman á Norðurl., á Hrn.
66°/0 fyrir ofan meðallag, en minst er hún á sunnanverðu
Austurl., á Tgh. 89°/0 fyrir neðan meðallag,. Úrkomudagar
eru 5 fleiri en venjul. norðanlands, 3 færri sunnanlands (aðal
úrkomukaflinnþ. 4.—16.). minst úrkoma yfir mánuðinn er á Tgh.
14.4 mm. en mest í Vík 194.7 mm., þar er og mest úrkoma á
einum sólarhring 90.0 mm. þ. 4.
(37)