Veðráttan - 01.09.1928, Blaðsíða 1
V EB R A T T A X 1928
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á YEÐURSTOFUNNI
September.
Alment yfirlit. Veðráttan í þessum mánuði lieíir yíirleitt verið
fremur hag'stæð. Það er hlýtt, úrkoma alltíð fyrra hlutann, en hey
náðust samt inn vei þur, og þó heyfengur sje sumstaðar fremur lítill
að vöxtum, eftir sumarið, er nýting alstaðai' svo góð, að telja má
sumarið hagstætt landbúnaði. Grös voru víða lítið sölnuð i mánaðar-
lokin. Afii misjafn, en yfirieitt góðar gæftir.
Þ. 1.—3. Suðlæg átt og hvassviðri sumstaðar á Suður- og
Austuriandi’, Lægð kemur þá vestan að íslandi, og gengur austur
yfir landið norðanvert. Úrkoma víða töluverð.
Þ. 4.—,r>. er stiltara veður og heiðskírt sumstaðar á Vestfjörð-
um síðara daginn; úrkoma fremur lítil.
Þ. 6.—8. gengur alldjúp lægð úr suðvestri notðaustur um land-
ið. Veldur hún fyrst austan stonni á Suðuriandi og hvassviðri á
Austurlaruli, en snýst svo í vestrið og hægir. Úrkorna víða.
Þ. 9.—10. er breytileg átt, fremur hæg, úrkoma víða fyrra dag-
inn, en heiðskírt á Suðausturlandi síðara daginn.
Þ. 11.—10. Suðlæg átt yfirleitt, víða hvassviðri, og sumstaðar
rolcstormur. Úrkoma töluverð nema á Norðausturlandi. Þessadagaeru
lægðir á sveimi fyrir vestan land.
Þ. 17.—18. gengur lægð austur yfir landið og snýst hann þá
í norðrið.
Þ. 19.—30. er oft blíðviðri og heiðskírt, og yfirleitt hægviðri,
nema þ. 2(5., þá er norðan hvassviðri víða. Fyrstu dagana er loft-
vægishæð fyrir sunnan og austan land, en síðar fyrir sunnan og vest-
an. Úrkoma er lítil þenna tíma, einkum á Norður- og Austurlandi.
Loftvœyið í þessum mánuði er 0.7 mm yfir meðallag á öllu
landinu, hæst á Hólum 2.1 mm yfir meðallag, en lægst á Ak. og
Rfh. 0.1 mm. l'yrir neðan meðallag. Hæst stóð ioftvog í Rvk. ]). 22.
kl. 12 774,9 mm, en lægst í Sth. þ. 3. kl. 1 733,3 mm.
Jlitinn er að meðaltali 8,4° á öllu landinu eða 1,9° yfir meðal-
lag, mest á Grænhóli og Eiðum 2,8°, en minst á Hólum 1.1. Hlýj-
ast er eftir hætti þ. 21.— 25. og þ. 6.—10. Þá er hitinn allmikið
ofan við meðallag. Þ. 18. —19. er yfirleitt kaldara en í meðallagi,
kaldast þ. 27. Hæstur lieíir hitinn orðiðið á Þvst. 20,2° þ. 1. en
lægstur á Lækm. —7.2° þ. 27.
Sjávarhitinn á öllu landinu er 1.6° fyrir ofan méöallag, mest
við Austurland, 2,1° yfir meðallag í Papey og 2.0° við Rfh., en
minst við Suöurland, í Vm. 1.1° yflr meðallag.
(33)