Veðráttan - 01.05.1929, Síða 4
Maí
Veðráttan
1929
Stórhríðin þ. 4. skall mjög íljótt á, með mikilli veðurhæð og
fannkomu. í Fnjóskadal varð Karl Kristjánsson, bóndi að Belgsá
fyrir snjóflóði, skammt frá Belgsá og beið bana. í Keflavík voru
margir bátar á sjó, komust 9 til Sandgerðis, 2 til Iíafnarfjarðar,
en 1 lá undir Hafnarbergi aðfaranótt þ. 5., og komst þá til Sand-
gerðis. Urðu engin slys á sjó. Á Suðvesturlandi fennti víða fé, en
margt náðist lifandi. Á nokkrum bæjum drápust einnig hestar. Mest-
ir urðu fjárskaðarnir í Ilreppum, Biskupstungum, Grímsuesi og á
Skeiðum, einnig urðu fjárskaðar á Reykjanesskaga og á Kjalarnesi.
í uppsveitum á Suðurlandsundirlendinu stífluðust sumar ár alveg af
fannkomunni, Þjórsá varð svo lítil að enginn man hana slíka, rann
sumstaðar aðeins í hraungjám í botninum, en mikið af venjulegum
árbotni þurt. I hlákunum, sem gerði um miðjan mánuðinn urðu fjár-
skaðar sumstaðar á Norðausturlandi af vatnagangi. Þ. 28. sökk vb.
„Glustav11 frá Yestmannaeyjum í Faxaflóa, 10 kvartmílur undan
Malarrifi, orsakir ókunnar. Menn björguðust í vb. Hjálparann frá
Vm., er var samferða. Veður var allhvasst á suðaustan.
Snjólagið er 20 °/0 á öllu landinu. Þar sem 5 ára meðaltal
heflr verið reiknað er snjólagið nú 19 °/0, en 5 ára meðaltal 17 0 0.
Norðanlands frá Grnh. til Nbst. eru snjóalög talsverð allan fyrra hluta
mán. en sunnanlands aðeins eftir hretið þ. 4. nokkra daga. Síðara
hluta mánaðarins er aðeins flekkótt á nokkrum stöðvum norðanlands,
en alautt annarsstaðar. Mesta snjódýpt var á Grnh. 49 cm. þ. 6.
Ilaginn er 96 °/0 á öllu landinu. Á þeim stöðvum, þar sem 5
ára meðaltal hefir verið reiknað, er hann í meðallagi. Minnstur er
liann í Fgd. 61 °/0. 20 st. telja fullan haga, 100 °/0-
Sólslcinið í Rvk. er 203.8 st. eða 37.1 °/0, en ineðalt. 5 undanf.
ára er 215.4 st. Mest er sólsk. þ. 26. 17.1 st. 4 daga er sólsldnslaust.
Hafís. Skip á Halamiðum sögðu talsverðan ís þ. 30., en sást
óglöggt vegna þoku.
Þrumur í fjarska heyrðust í suðaustri frá Hvk. þ. 21. og í
Hverad. heyrðust þrumur þ. 25.
Landslcjálftar: Þ. 24. fannst snarpur kippur á Reykjanesi kl.
5B0, og 2 kippir kl. 6. Landskjálftamælarnir í Reykjavík sýndu 2
landskjálfta. Þ. 1. kl. 1447, upptök í Norðaustur-Persíu. Blaðafregnir
sögðu, að í þessum jarðskjálfta hefðu mörg sveitaþorp í Khorassan-
hjeraði eyðilagzt og 200 manns farist, í Shirwanhjeraði eyðilögðust
700 hús. Þ. 26. kl. 21B1 sýndu mælarnir annan kipp, upptök í Kyrra-
hafinu suður af Alaska.
JEldgos: Þ. 29. fannst sterk goslykt úr suðvestangolu lengi
dags á Þvst. og var aska í lofti.
Gemlingum sleppt frá 9. marz til 15. maí, að meðalt. 12. apr. (12 st.)
Ám sleppt frá 6. marz til 19. maí, að meðalt. 10. apr. (12 st.)
Rófufrœi sáð frá 15, apr. til 11. júnf, að meðalt. 23. maí (14 st.).
KaHUflur settar niður frá 30. marz til 9. júní, að meðaltali 20.
maí (I 7 st.).
Farfuglar: Tjahlur sást fyrst þ. 2. marz á Kollsá, en mun hafa
verið hér allan veturinn. Svanur sást fyrst þ. 10. marz á Grnh.,
skúmur þ. 12. marz á Fglnn., lóur þ. 28. marz á Grnh. og Tgh.,
hrossagaukur þ. 2. apr. á Kollsá, þröstur þ. 9. apr. á Lmbv., stelkur
sömuleiðis, en sást í Rvk. allan veturinn, lundi þ. 10. apr. í Vm.,
maríuerla þ. 20. apr. á Fghm., kjói þ. 21. apr. á Fghm., steindepill
þ. 1. maí á Grnh., spói þ. 5. maí í Vm., kría þ. 8. maí á Fghm.,
sandlóa þ. 9. maí í Rvk. og óðinshani þ. 11. maí á Fghm.
(20)