Veðráttan - 01.04.1931, Side 1
VEÐRÁTTAN 1931
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Apríl.
Tíðarfarið var víðast talið fremur hagstætt. Á Suðvestur- og Vesfurlandi var
þó óstöðugt og snjóasamt fyrri hluta mánaðarins, en stillt og góð tíð seinni
hlutann. Snjó leysti heldur seint, einkum norðanlands, og gróðri fór lítið fram.
Afli ágætur þegar á sjó gaf.
Þ. 1.—2. Lægð yfir Grænlandshafi á hreyfingu norðaustur eftir. Útsynn-
ingsveðrátta á Suður- og Vesturlandi.
Þ. 3.-4. Lægðin komin austur fyrir landið. Norðangarður hér á landi
með slyddu eða kafaldi norðanlands og austan.
Þ. 5. Ný lægð að nálgast úr suðvestri. Ðreytileg átt gg góðviðri hér á landi.
Þ. 6.-9. Djúp lægð yfir hafinu fyrir suðvestan ísland, en færðist svo
norður eftir Grænlandshafi. Olli fyrst suðaustan hvassviðri, en síðan hægri
sunnan átt og hlýindum, sem að lokum snérist í suðvestan átt með skúrum
og nokkrum snjóéljum vestanlands.
Þ. 10.—12. Þessa daga færðist lægðin norðaustur yfir landið. Var veðrátta
þá breytileg mjög og snjóaði öðru hvoru.
Þ. 13. Stillt og bjart veður með talsverðu frosti.
Þ. 14.-15. Hefst suðaustan átt að nýju vegna lægðar, sem kom upp að
Reykjanesi suðvestan af hafi. Fyrst varð stormur og rigning, en síðan hægari
suðvestan átt með skúraveðri.
Þ. 16. Lægðin komin austur fyrir ísland. Norðangarður og snjókoma,
einkum norðaustanlands.
Þ. 17.—18. »Milli lægða«. Breytileg átt og allgott veður, en gengur þó
í sunnan átt að kveldi hins 18. og rignir vestanlands.
Þ. 19.-22. Loftþrýsting mest fyrir suðaustan eða austan ísland, en lægðir
yfir Grænlandi og Grænlandshafi. Sunnan átt og hlýtt í veðri að jafnaði.
Þ. 23.-26. Fór lægð austur eftir fyrir sunnan landið og olli austan og
norðaustan átt hér á landi. Kólnaði þá og snjóaði dálítið stundum á Norður-
og Austurlandi.
Þ. 27.—30. Þessa daga er sífelld norðan átt og oftast fremur hæg. Bjart-
viðri sunnanlands og vestan, en oftast kalsaveður og rigning norðaustanlands.
Loftþrýstingin er nú mest yfir Grænlandshafi, en lægðir halda sig fyrir sunnan
og austan Island.
Loftvægið var 2.9 mm undir meðallagi, frá 1.7 mm í Vm. til 4.8 mm á
Rfh. Hæst stóð loftvog 776.2 mm á Ak. þ. 17. kl. 18, en lægst 727.2 mm í
Grvk. þ. 8. kl. 5.
liitinn var 1.5° yfir meðallag á öllu landinu. Hlýjast var eftir hætti á
Norðurlandi, þar var hitinn víðast rúm 2° yfir meðallag (2.6° á Rfh.), en
kaldast á Suðurlandi, 0.4° yfir meðallag í Vm. Þ. 2.-4., 11.—17. og 26.—30.
var oftast venju fremur kalt. Kaldasti dagurinn var sá 29., hitinn 2° undir
meðallagi. Hlýit var þ. 5.—10. og 18.—25., og hlýjast þ. 7., hitinn 6° yfir
meðallag. Hæstur varð hitinn 12.8° á Eið. þ. 20., en lægstur —12.4° á Grst.
þ. 14.
Sjávarhitinn var 1.0° yfir meðallag frá 1.6° við Grímsey til 0.3° við Papey.
Úrkoman var 23°/o umfram meðallag á öllu landinu. Á Suðurlandi var
hún heldur minni en venjulega, annarstaðar var hún mikil eftir hætti, nema í
Gr. Þar var minnsta mánaðarúrkoman 7.4 mm, 58°/o eða rúmlega hálf meðal-
úrkoma. Mest eftir hætti var úrkoman árTgh., 131 °/o umfram meðallag eða
hér um bil 2J/3 sinnum meðalúrkoma. Úrkomudagar voru nærri 4 fleiri en
(13)