Veðráttan - 01.08.1931, Blaðsíða 1
VEÐRATTAN 1931
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Tíðarfarið. Mjög góð og hagstæð tíð til lands og sjávar, stillt lengst af,
hlýtt og nægilegir þurkar. Gras var að spretta mikinn hluta mánaðarins, svo
að gróður varð sæmilegur, og nýting var ágæt. Mikil síld fyrir norðan landið,
en afli annars víðast tregur.
Þ. 1. Hæg sunnan átt og hlýindi hér á landi. Lægð á hafinu suðvestur
undan en háþrýstisvæði yfir Norðursjónum.
Þ. 2.-5. Færðist lægðin norðaustur með austurströnd Grænlands og
olli vestan átt hér á landi og regni vestanlands. Dagana 2. og 3. varð hvass-
viðri norðanlands. Síðan hélzt hæg vestan átt í tvo næstu daga.
Þ. 6,—10. Loftþrýsting mest um vestanvert Atlantshaf en lægð yfir
Norðurlöndum. Yfirleitt hæg norðvestan átt hér á landi. Úrkomulaust fyrstu
tvo dagana en síðan nokkur votviðri, einkum á Vestur- og Norðurlandi.
Þ. 11.-16. Háþrýstisvæðið hefir færst austur um Bretlandseyjar en
lægðir eru yfir Grænlandi og fyrir suðvestan ísland. Verður fyrst hæg sunnan
átt hér á landi, en síðan færist lægðin austur um Bretlandseyjar og verður
þá áttin austlæg. Alla þessa daga mega heita óslitin góðviðri hér á landi, þó
var stundum þoka á Austurlandi.
Þ. 17. —18. Lægðin er nú yfir Norðursjónum og Noregi, en hæð yfir
Grænlandi. Vindur fer nú að verða norðaustan hér á landi með þokusúld
fyrir norðan og austan en bjartviðri á Suðvesturlandi.
Þ. 19.-23. Djúp lægð yfir Bretlandi en háþrýstisvæði um Grænland
og Island. Yfirleitt hæg norðaustan átt og bjartviðri hér á landi.
Þ. 24.-27. Um þessar mundir skiftir aftur um veðurlag. Loftþrýsting
er orðin mest um Bretlandseyjar en lægðir koma vestan yfir norðanvert
Grænland og valda vestan átt og rigningu hér á landi.
Þ. 28.—31. Háþrýstisvæði yfir Islandi. Stillt og gott veður. Að kveldi
þ. 30. gekk þó snöggvast í vestan átt með þoku eða rigningu á Vestur- og
Norðurlandi.
Loftvægið var fremur hátt, 3.0 mm fyrir ofan meðallag á öllu Iandinu,
frá 1.7 mm á Rfh. til 4.7 mm í Vm. Hæst stóð lofívog í Vm. þ. 29. kl. 12
771.5 mm, en lægst á Ak. þ. 26. kl. 4, 743.8 mm.
Hitinn var 2.2° yfir meðallag á öllu landinu. Alstaðar var mánaðarhitinn
yfir meðallag, einna minnst í Kvgd. (1.0°) en mest í Hvk. (3.3°). Vfirleitt var
tiltölulega hlýjast á Norðurlandi, og var mánaðarhitinn þar víðast um 3° yfir
meðallag. Þ. 5.-9., 18.—24., 27.-28. og 31. var hitinn oftast í góðu meðal-
lagi, annars var hann 2—5° yfir meðallag. Hlýjast var þ. 11. og 12. (5° yfir
meðallag). Hæstur varð hitinn 26.3° á Eið. þ. 11., en lægstur —2.3° a
Grst. þ. 31.
Sjávarhitinn umhverfis landið var 1.6° yfir meðallag, frá 0.2° við Grvk.
til 3.2° við Rfh.
(29)